Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1990.
Fréttir
Byssumaður við Neðstaleiti:
Lögreglan f lúði í skjól
„Það kallaði einhver: Maðurinn er
með byssu, og þá var lögreglan ekki
sein á sér að leita skjóls inni í íbúð-
inni hjá mér.
Ég stóð hins vegar ein frammi á
gangi þegar maðurinn kom veifandi
haglabyssu í kringum sig. Hann var
eitthvað að hóta mér og endaði svo
á því að skjóta einu skoti í gólfið til
aö hræða mig. Þegar lögreglan
heyrði skotið ríða af kom hún aftur
fram á gang og tókst að yfirbuga
byssumanninn,“ sagði íbúi í blokk
við Neðstaleiti í samtali við DV.
Að sögn íbúans var gleðskapur í
íbúð hans aðfaranótt laugardags.
Meðai gesta var eiginkona byssu-
mannsins og kom hann skömmu eft-
ir miðnætti til að sækja hana en hjón-
in búa í blokkinni sem atburðurinn
átti sér stað í. Maðurinn var mjög
ölvaður og vildi konan ekki fara meö
honum. Hann var beðinn um að yfir-
gefa íbúðina og fór eftir nokkurt
stímabrak.
„Við hringdum á lögregluna þegar
maðurinn vildi ekki fara með góðu.
Það var eiginlega algjör heppni að
lögreglan skyldi vera á staðnum þeg-
ar hann kom upp aftur vopnaður
haglabyssunni. Lögreglan fór svo
með manninn en honum var sleppt
aftur síðdegis í gær,“ segir íbúinn.
Að sögn rannsóknarlögreglunnar
var maðurinn yfirheyrður um at-
burðinn og honum sleppt að því
loknu. Byssa mannsins og skotfæri
voru gerð upptæk og verður málið
sent ríkissaksóknara nú eftir helgi.
-J.Mar
Það var mikið fjör á Laugardalsvellinum á laugardaginn þegar Framarar tryggðu sér islandsmeistaratitilinn í
knattspyrnu með þvi að sigra Valsmenn, 3-2, i æsispennandi leik. Kapparnir á myndinni eru eldheitir stuðnings-
menn liðanna og þeir hafa báðir haft ástæðu til að brosa í sumar, Framarar eru íslandsmeistarar og Valsmenn
bikarmeistarar. Hemmi Gunn er Valsmaður og Ómar Ragnarsson er Framari og hann hefur örugglega verið
ánægður með titilinn í afmælisgjöf en sjónvarpsmaðurinn og skemmtikrafturinn átti fimmtugsafmæli í gær.
DV-mynd Brynjar Gauti
JarðskjáKtahrína á
Reykjanesi
og yfír 5 stiga skjálfti í Bárðarbungu
Síðdegis á laugardag geröi jarð-
skjálftahrinu á Reykjanesi. Fyrsta
skjálftans varð vart um fimmleytið
og fram eftir kvöldi urðu allmargh'
jarðskjálftar. Laust fyrir klukkan sex
kom stærsti skjálftinn og mældist
hann 4,5 stig á Richterskvarða. Upp-
tök skjálftans voru í nágrenni
Reykjanesvita en þar er þekkt jarð-
skjálftasvæði. Áhrifanna gætti víða
á Suöumesjum og fólk í Reykjavík
og á Seltjamamesi varð einnig vart
við stærsta skjálftann. Næststærsti
skjálftinn mældist 3,5 stig á Richt-
erskvarða og varð hans vart í
Grindavík klukkan 20.40.
Aö sögn Barða Þorkelssonar jarð-
fræðings era þessir kippir nú vænt-
anlega úr sögunni í bih en á þessu
svæði em jaröskjálftar tíðir. Ástæða
skjálftanna er sú að á þessu svæði
eru svokölluð plötuskil þar sem
byggist upp spenna og þegar hún
leysist úr læðingi verðajarðskjálftar.
Á laugardagskvöldið varð einnig
jarðskjálfti í Báröarbungu í Vatna-
jökli og mældist hann 5-5,2 stig á
Richterskvarða. Á því svæði verða
stórir skjálftar á nokkurra ára fresti
en áhrifa þeirra verður ekki vart hjá
almenningi enda er Bárðarbunga
flarri alfaraleið.
-GRS
Harður árekstur
á Reykjanesbraut
EDiheimiliö Grund:
Kviknaði í
Eldur kviknaði í rúmdýnu í
kjaliaraherbergi á eUiheimihnu
Gmnd aðfamótt laugardags.
Upptök eldsins eru rakin til raf-
magnshitapúða sem ofhitnaöi
með þeim afleiðingum aö það
kviknaði í dýnunni. Þegar
slökkvihðið kom á staðinn haföi
starfs- og dvalarfólki tekist að
ráða niöurlögum eldsins. Engan
sakaði en mikih reykur varð í
kjallarahússins. -J.Mar
Mjög harður árekstur varð á mót-
um Reykjanesbrautar og Njarðar-
brautar við Fitjar um klukkan hálf-
níu í gærkvöldi. Tveir fólksbílar
skuhu harkalega saman viö gatna-
mótin. Mildi þótti að enginn skyldi
slasast í árekstrinum, að sögn lög-
reglunnar í Keflavík. Bílarnir vom
báðir óökufærir á eftir og vom þeir
fjarlægðir meö kranabíl.
Lögreglan stöðvaöi ökumann bif-
hjóls nokkru síðar um kvöldið en
hann hafði mælst á 94 kílómetra
hraöa á Vesturgötu í Keflavík. Leyfi-
legur hámarkshraði þarna er 50 kíló-
metrar. Ökumaðurinn var færður á
lögreglustöðina þar sem hann var
sviptur ökuréttindum tíl bráða-
birgða.
-ÓTT
Sveitarfélög á Suðumesjum:
Tekjur af ál-
veri til allra
sveitarfélaga
- Vogamenn eru því ósammála
„Öll sveitarfélögin á Suöurnesj-
um hafa unnið að því að fá álver á
Reykjanes. Hvert og eitt þeirra hef-
ur fómað ákveðnum framtíðar-
hagsmunum sínum til að þrýsta á
að fá það á Reykjanesið. Nú bendir
allt til þess að það lendi í Vogum
og því er rætt um skiptingu tekna,
sem af álverinu verða, mUli sveit-
arfélaganna," sagði Kristján Páls-
son, bæjarstjóri í Njarðvík.
Um helgina var haldinn aðal-
fundur Sambands sveitarfélaga á
Suðumesjum þar sem sveitarfélög-
in sjö á Suðurnesjum áttu öU sína
fulltrúa. Á fundinum var mikið
rætt um væntanlegt álver á Keihs-
nesi og skiptingu tekna sem af því
verða.
„Ef álver verður reist á íslandi
þá verður það reist á Keihsnesi.
Við heyrum að minnsta kosti ekki
annað frá ráðamönnum. Sveitarfé-
lög á Suðurnesjum hafa unnið að
því í sameiningu að fá álver á
Reykjanes. Nú bendir allt til að þaö
lendi í Vogunum. Það virðist verða
mikil búbót þó að Byggðastofnun
segi þetta verða hvað mesta búbót
fyrir Reykjavík og Hafnarfjörð því
margt fólk kæmi þaðan.“
Á aðalfundinum komu meðal
annars fram hugmyndir um að
fasteignagjöld renni til Voga en
önnur gjöld skiptist milli allra
sveitarfélaganna. Áður hafði kom-
ið fram hugmynd um að stofna
byggðasamlag um rekstur álvers
sem væri sameiginlega rekið af
sveitarfélögunum, en ekki náðist
samkomulag um það.
Að sögn Kristjáns eru Vogamenn
ekki tilbúnir tU að skipta tekjum
álversins að neinu leyti, að minnsta
kosti ekki á þessu stigi málsins.
Benda þeir á það að aðrir hreppar
og bæir hafi séraðstöðu, eins og
Miðneshreppur sem hefur flug-
stöðina. „Það koma til með að
verða mjög miklar tekjur af þessu
álveri, allt að 100_ milljónir á ári.
Við vonum að samkomulag náist
en máhnu hefur nú verið vísað til
stjórnar Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum þar sem það verður
væntanlega tekið fyrir á næsta
fundi. Það er ljóst að mestur hluti
tekna færi aUtaf til Vogamanna en
einhver skipting er þó sanngjörn
því hvert og eitt sveitarfélag hefur
lagt sitt af mörkurn," sagði Kristj-
án.
Oddviti Vatnsleysustrandar-
hrepps, Jón Gunnarsson, vildi ekki
láta hafa neitt eftir sér um málið
annað en að það væri til umræðu
og yrði leyst á meöal deiluaðila en
ekki í fjölmiðlum.
-hmó
Niðurstööur skoðanakönnunar:
Stór hluti lands-
manna vill álver
á Keilisnes
- mest fylgi innan Alþýðuílokks
í skoðanakönnun, sem Félagsvís-
indastofnun Háskólans hefur gert
fyrir iðnaöarráðuneytið, kemur í
ljós að meirihluti landsmann vUl
aö nýtt álver verði reist á íslandi
og flestir vilja það á KeUisnes ef
Atlantsál vUl aðeins álver þangað.
í úrtakinu voru þúsund manns á
aldrinumn 18 til 75 ára spurðir um
afstöðu til nýs álvers. Sögðu 68%
já við því hvort þeir vildu nýtt ál-
ver hérlendis, 18% sögöu nei en
15% aðspurðra voru óákveðnir eða
andvígir.
Meirihluti kjósenda allra flokka
vih álverið á Keilisnes ef Atlantsál
setur það sem skUyrði, þó svo að
íslensk stjómvöld vUdu greiða fyr-
ir byggingu þess í öðrum lands-
hluta.
Minnst var fylgið meðal kjósenda
Kvennalista eða 50% en mest meðal
kjósenda Alþýðuflokks, 86,8%, þeg-
ar tekið er miö af sömu forsendum.
I könnuninni var einnig könnuð
afstaða íbúa hvers landshluta fyrir
sig til byggingar álvers á KeUis-
nesi, að því athuguðu að Atlantsál
vilji aðeins byggja álver þar. Sömu
fyrirvarar voru um atbeina ís-
lenskra stjórnvalda.
Um 80% Reykvíkinga vUja álve-
rið þangað og 61% landsbyggöar-
fólks.
Flestir voru fylgjandi á Reykja-
nesi eða 84,2% aðspurðra.
-hmó