Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Side 10
10
MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1990.
Útlönd
DV
MALA-
SKÓLiNN
MÍMIR
HEFUR ÁRATUGA
REYNSLU í TUNGU-
MÁLAKENNSLU Á
ÍSLANDI
ENSKA
ÞÝSKA
SPÆNSKA
FRANSKA
ÍTALSKA
ÍSLENSKA
F. ÚTLENDINGA
ENSKA FYRIR
BÖRN
JAPANSKA
SÆNSKA
O.FL.
INNRITUN
STENDUR YFIR
10 004
2 16 55
Málaskólinn
Mímir
STJORNUNARFÉLAG Islands
ER EIGANDI MALASKðLANS MlMIS
Hundrað þúsund tóku þátt í mótmælagöngu umbótasinna i Moskvu i gær.
Simamynd Reuler
Moskva:
Hundrað þúsund kröfðust
afsagnar f orsætisráðherrans
Aö minnsta kosti hundrað þúsund
umbótasinnar tóku þátt í mótmæla-
göngu í Moskvu í gær og voru þetta
ein víðtækustu mótmælin í borginni
frá því í byltingunni 1917. Göngu-
menn kröfðust afsagnar Ryzhkovs
forsætisráðherra samstundis og að
markaðsbúskap yrði komiö á sem
fyrst.
Fyrir mótmælunum stóðu ýmsar
hreyfingar og flokkar og haföi bæði
Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna,
og Jeltsin Rússlandsforseta verið
boðið að halda ræður. Hvorugur
þeirra kom og sögðu skipuleggjendur
mótmælanna að Jeltsin hefði borið
við veikindum.
Aðalræðumaður varö í staðinn
hinn róttæki borgarstjóri í Moskvu,
Gavriil Popov, og sagði hann eina
markmið Ryzhkovs forsætisráð-
herra vera að halda í gamla kerfið.
Orðin væru ný en kerfið hið sama.
Popov krafðist þess að Ryzhkov og
stjórn hans færu frá og að í stað
húverandi stjórnar kæmi sam-
steypustjóm. Benti Popov á að nú-
verandi stjórn hefði verið skipuð af
stjómmálaráðinu og að hún nyti ekki
trausts fólksins. Engan tíma mætti
missa, fólkið hefði hvorki brauð né
sykur. „Reyndar er næstum skortur
á öllu,“ sagði borgarstjórinn og var
orðum hans ákaft fagnað af viðstödd-
um. Aðrir ræðumenn tóku í sama
streng og borgarstjórinn.
Svo getur farið aö Ryzhkov verði
bráðlega við óskum andstæðinga
sinna og víki. Á laugardagskvöld
sagði hann í sovéska ríkissjónvarp-
inu að stjórn sín myndi fara frá ef
áætlanir hennar um efnahagslegar
umbætur yrðu ekki samþykktar.
í síðustu viku lýsti Gorbatsjov því
yfir að hann styddi fimm hundruð
daga áætlunina svokölluðu sem er
miklu róttækari en áætlun Ryzh-
kovs. Samkvæmt fimm hundrað
daga áætluninni er gert ráð fyrir að
fijálst markaðskerfi veröi komið á í
Sovétríkjunum innan eins og hálfs
árs. Þing Rússlands, stærsta lýðveld-
is Sovétríkjanna, hefur samþykkt
drög að áætluninni sem kennd er við
hagfræðinginn Sjatalín.
í dag mun veröa fjallað um áætlun-
ina á ný í sovéska þinginu. Umræð-
urnar um áætlunina hófust fyrir
viku en þeim var frestað í nokkra
daga á meðan Gorbatsjov reyndi að
koma á málamiðlun milli stuönings-
manna Sjatalins annars vegar og
Ryzhkovs hins vegar. Gorbatsjov
hefur nú viðurkennt að sér hafi mis-
tekist.
í þingræðu í morgun hvatti Gor-
batsjov til þess að þjóðaratkvæða-
greiðsla færi fram um eignarhald
manna á landi. Sagði hann málið of
mikið ágreiningsefni til þess að
stjórn landsins gæti ein tekiö ákvörð-
un um það. Reuter og TT
Leiðtogi Hizbollah-samtakanna:
Bjartsýnn á frelsi breskra gísla
Breskir gíslar í Líbanon gætu
bráðlega fengið frelsi en Bandaríkja-
menn munu verða áfram í haldi, að
því er íranska ríkisútvarpið hafði
eftir einum leiðtoga Hizbollah-sam-
takanna seint í gærkvöldi.
Á Vesturlöndum er það álit manna
að Hizbollah-samtökin hafi átt aðild
að mannránunum en því vísa sam-
tökin á bug. Þrír Bretar og 'sex
Bandaríkjamenn eru meðal þeirra
tólf gísla sem talið er að séu í haldi
í hverfi shíta múhameðstrúarmanna
í Beirút, höfuðborg Líbanon.
íranska útvarpið sagði að leiðtogi
Hizbollah-samtcikanna hefði varað
viö afleiðingunum ef bandarískir
hermenn færu ekki þegar í stað frá
heilögu landi múhameðstrúar-
manna. Átti leiðtoginn þar við veru
bandarískra hermanna á Persaflóa-
svæðinu.
Fyrr í þessum mánuði var írskum
gísl, sem einnig er með breskt vega-
bréf, sleppt úr haldi. í ágúst' síðast-
liönum var tveimur svissneskum
gíslum sleppt en í apríl fengu tveir
Bandaríkjamenn að fara fijálsir
ferða sinna.
Reuter
Noregur:
Neyðist Syse til að
segjaafsér?
Jan P. Syse, forsætisráðherra Nor-
egs, viðurkennir að hafa veitt sjálf-
um sér og mági sínum lán aö upphæð
160 þúsund norskar krónur úr fyrir-
tæki sínu, CamiUa Colletts. Þetta
brýtur í bága við lög um hlutafélög
því á þeim tíma sem lánin voru veitt
var halli á rekstri fyrirtækisins og
eiginfjárstaða þess var neikvæð.
Syse sagði í viðtali viö fréttamenn í
gærkvöldi aö sér hefði ekki verið
kunnugt um að slíkar lánveitingar
brytu í bága við lögin. Eftir öllu að
dæma verður Syse aö gera þinginu,
stjórninni og flokki sínum grein fyrir
lántökunni.
Samkvæmt norska blaðinu Dagens
Náringsliv getur þetta mál orðið Syse
hættulegt. Blaðið kveðst hafa haft
samband við mikilvæga menn innan
Hægri flokksins. Hefur blaðið það
eftir þeim að möguleikar Syse á
verða endurkjörinn formaður séu
litlir. Sumir eru þeirrar skoðunar að
máliö geti leitt til þess aö forsætisráð-
herrann verði að segja af sér.
NTB
Jan P. Syse, forsætisráðherra Nor-
egs.