Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1990.
39
Fréttir
Nýtt malbik lagt á
Keflavíkurflugvöll
„Það voru þrjár flugvélar frá
hemum að fara í loftið nýlega. Sú
fyrsta sem fór á stað spændi upp
malbikið á annarri aðalflugsbraut-
inni á 5 til 10 metra kafla. Hinar
tvær fylgdu í kjölfarið en við höfum
ekki haft fregnir af því að flugvél-
arnar hafi laskast neitt þrátt fyrir
skemmdirnar sem fyrsta flugvélin
olli á malbikinu. Þegar farið var
að skoða betur slitlagið á brautinni
kom í ljós að það var ótryggt á
stærra svæði og það því hreinsað
burt og nýtt verður lagt í þess stað,“
segir Andrés Andrésson, yfirverk-
fræðingur hjá íslenskum aðalverk-
tökum.
í sumar hefur verið unnið að því
að leggja nýtt Slurry-slitlag á aðal-
flugbrautir Keflavíkufflugvallar.
Það er mjög þunnt lag sem lagt er
á brautirnar, einungis íjórir til átta
millímetrar á þykkt. Það er þýskt
fyrirtæki sem haft hefur verkið
með höndum.
„Helsti kosturinn við þetta nýja
malbik er hversu stuttan tíma tek-
ur að leggja það. Það var lagt á
aðra aðalbrautina og lokið við að
leggja á tvo þriðju á hinni á þremur
vikum. Nýja lagið lokar yfirborði
brautanna og á að verja þær fyrir
áhrifum veðurs auk þess sem það
sléttar að htlu leyti misfellur á
brautunum. Það er lítil sem engin
reynsla komin á þessa tegund mal-
biks hér á landi, tíminn mun leiöa
í ljós hvort það hentar íslenskum
aðstæðum,“ segir Andrés.
-J.Mar
Menning
Spennusaga af fréttamanni
Við sem vanist höfum á að grípa með okkur
laufléttar kiljur til lesturs í sumarbústaðnum á
biðstofunni, hjá tannlækninum eða á öðrum
stopulum stundum milh stríða höfum nú úr
meira úrvali íslenskra bóka að moða en fyrir
áratug eða svo. Flestum útgefendum hefur nú
skilist að íslendingar kæra sig ekki um að reiða
fram stóran pening fyrir innbundnar þýðingar
á afþreyingarbókum þegar hægt er að fá hand-
hægari kiljuútgáfur sömu bóka á frummáhnu í
næstu bókabúð. Og fyrir snöggtum lægri upp-
hæð. Með ýtrustu hagkvæmni geta útgefendur
nú boðið flestar íslenskar kiljur á lægra verði
en sambærilegar kiljur frá útlöndum, ef marka
má óformlega könnun sem ég geröi í reykvískri
bókaverslun ekki alls fyrir löngu. Verst er aö
hagkvæmnin kemur stundum niður á gæðum
þýðinganna, nema þegar búið er að gefa þær út
í bandi sem venjulega tryggir að íslenskufræð-
ingur hefur yfirfarið textann á einhverju stigi
málsins.
Bókstaflega þýtt
Aht of mikið er um bókmál og bókstaflegar
þýðingar í íslenskum khjum, svo ekki sé talið
um ambögur. Stundum eru þýðingarnar svo
flatneskjulegar að lesandinn fagnar hverju
kringilyrði, hverju því sem felur í sér agnarögn
af hugarflugi. Oftar en einu sinni hefur flökrað
að mér að leggja ætti allar þýðingar, einkum
kiljuþýðingar, í dóm málnefndar engu síður en
sjónvarpssendingar frá útlöndum.
Bókmenntir
Aöalsteinn Ingólfsson
Urvalsbækur heitir nýr flokkur spennusagna
sem tímaritið Úrval hefur nú hafið útgáfu á. Sú
fyrsta í röðinni heitir Flugan á veggnum, þriher
eftir Tony Hillerman sem notið hefur meiri vin-
sælda en títt er um spennusögur. Enda ekki að
furða því hér er á ferðinni harðsoðin frásögn
með haganlegri fléttu á réttum stað og spennu
sem varir allt til loka.
Sigilt efni
Efniviðurinn er sígildur. Stjórnmálafrétta-
maður í einhverju af miðvesturríkjum Banda-
ríkjanna trúir félaga sínum fyrir því að hann
sé með stórt pólitískt hneykslismál í rannsókn,
deyr síðan voveiflega. Grunsemdir vakna hjá
félaganum sem ákveður að komast að hinu
sanna en lendir þá í margs konar hremmingum,
þar á meðal lífshættu. í lokin tekur málið
óvænta stefnu, leysist þó farsællega.
Persónusköpun er svona frekar á flatlendinu
en atburðarásin er hröð og auðsætt að höfundur
hefur talsverða þekkingu á blaðamennsku,
bandarísku stjórnkerfi og refskák stjórnmál-
anna. Þýðing Ragnars Haukssonar er mjög svo
læsileg, ekki úr hófi bókstafleg. Samtöl hefði þó
mátt færa nær íslensku talmáli. Ég saknaði
þess að finna ekki upplýsingar um upprunalegt
nafn og útgáfuár bókarinnar á saurblaði, einnig
einhverjar upplýsingar um ferh höfundar og
aðrar bækur hans.
Tony Hillerman - Flugan á veggnum, 250 bls.
Útg. Frjáls Fjölmiölun
Sumarsalan
búin.
Haustsalan
að hefjast.
Vantarallargerðiraf
bílum á skrá og á stað-
inn vegna mikillar
sölu. Ekkert innigjald.
Nýja Bílahöllin,
Funahöfða 1, sími 672277
(3 línur).
28 FIATUR FERKANTAÐUR SKJÁR, FÍNVPP-
LAUSN. SKIPANIR BIRTAST Á..SKJÁ. ÞRÁÐIAUS
FJARSTÝRING. BEIN TENGING FYRIR MYND-
BANDSTÆKI. TENGING FYRIR HEYRNARTÓL/
AUKA HÁTALARA. SVEFNROFI.
SUMARTILBOÐ KR. 69.950 stgr.
RÉTT VERÐ KR. 84.350 stgr.
T€C
STEREO
LITSJÓNVARPSTÆKI
20” MONO M/FJARST. TILB. 35.950 stgr. RÉTTVERÐ 42.750 sigr. 14” MONO M/FJARST. TILB. 23.950 stgr. RÉTT VERÐ 28.800 stgr. 10” 12 VOLT og 220 VOLT í SUMARBÚSTAÐINN EÐA ELDHÚSIÐ TILBOÐ 33.950 stgr. RÉTT VERÐ 38.000 sigr.
5 ÁRA ÁRBYRGÐ Á MYNDLAMPA
S3 Afborgunarskilmálar [Ej VÖNDUÐ VERSLUN
1 HUÖMCO rÁKAFEN 11 — SÍMI 688005
Meiming
Regnboginn: Náttfarar
★★★
Óttinn óritskoðaður
Listamaðurinn Clive Barker, Breti að uppruna, hef-
ur reynst óvenjulega ijölhæfur. Eftir að hafa slegið í
gegn í bókmenntaheiminum með sérstæðum smásög-
um og bókum, er allar má kenna viö hrylling, hefur
hann snúið sér jafnhhða aö kvikmyndun eigin efnis.
Frumraun hans, Hellraiser, tókst með ágætum, þótt
sagan þyldi illa að vera blásin upp í fulla lengd. Nýj-
asta kvikmynd Barker, Náttfarar, er byggð á hans
þriðju skáldsögu, Cabal, og nú fær hann loksins aö
sýna hvers hann er megnugur.
Náttfararnir eru þjóðflokkur sem heldur sig neðan-
jarðar í sveit einni í Kanada. Staður sá heitir Midian
og kemur oft fram í hugarórum glataðra sálna er halda
aö þar fái þær þau grið sem mannkynið vill ekki veita
þeim. Ungur maður að nafni Boone (Schaeffer) hefur
átt langa sögu geðtruflana en tekist með hjálp sálfræð-
ings síns, Decker (Cronenberg), að læknast að mestu
leyti. Eftir eimir þó af draumum þar sem Boone er
eltur af hópi hálfmennskra vera. Leiðir Boone og
þeirra eiga eftir að hggja saman þegar hann verður
að flýja mannheima á vit Midian vegna gruns lögreglu
um að hann sé morðingi með 15 líf á samviskunni.
Það verður ekki annað sagt en að færni Barker við
leikstjórnina aukist til muna með hverri mynd og ef
fer sem horflr mun hans verða frekar minnst sem
meistara á kvikmyndasviðinu. Sagan í Náttfórum er
stórkostleg blanda gotneskrar hrollvekju, nútíma
slettuhryllings, þjóðfélagsádeilu, ástarsögu og mann-
dómsraunar. Efnistök Barkers eru langt hafin yfir
þann gamanhrylling sem tröllríður markaðnum í
formi Fredda, Jasona og Hrekkjalóma og vekur hann
mann snögglega af sleni sífelldrar ritskoðunar óttans.
Náttfararnir eru stórkostlegar og undurfagrar verur,
og leggjast þar á eitt frjótt ímyndunarafl Barkers, færni
brellumanna og frábær persónusköpun. Fyrir vikið
verða hinir umbreyttu Náttfarar mun mennskari en
aðrir í myndinni, aðalsöguhetjurnar þar meðtaldar.
Auraleysi hefur leitt til þess að slæmt leikararval
og lítill tími til að setja upp sögusviðið draga úr heildar-
áhrifunum og þaö þarf að horfa framjá nokkrum stór-
um göllum til að njóta myndarinnar til fulls. Ástarsag-
an, sem er mikilvægur samúðarvaki í myndinni, fer
fyrir lítið. Einnig er sálarástand Boone óljóst í upp-
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
hafi myndar og hálfósennilegt hvernig líf hans kárnar
snögglega. En grunnur myndarinnar er traustur og
það er bókmenntasinnuðu hugarfari Barkers að
þakka.
PS: Þess má til gamans geta að Barker hefur lent illa
í klóm Kvikmyndaeftirlits ríkisins. Rawhead Rex, sem
hann skrifaði handritið að, er þar á lista ofbeldiskvik-
mynda, sömuleiðis Hellraiser, sem fékkst aðeins sýnd
eftir ótal khppingar. Náttfarar rétt slapp óskemmd í
gegn og er þetta glöggt dæmi um hve eftirlitið er kom-
ið út á hálan ís og vekur furðu hversu erfitt þaö á
meö að greina milh hryllings og oíbeldis.
Nightbreed. Bandarisk 1989.
Handrit: Clive Barker (Books/Blood Damnation Game, Weave-
world) eftir bók sinni, Cabal.
Leikstjórn: Clive Barker (Hellraiser)
Tónlist: Danny Elfman (Beetlejuice, Batman, Dick Tracy)
Leikarar: Craig Sheffer (Some Kind of Wonderful), Anne
Bobby (Born/4th July), David Cronenberg, Charles Haid (Hill
Street Blues, Cop), Hugh Quarshie, Hugh Ross, Doug Brad-
ley, Catherine Chevalier. Gísli Einarsson
Gabriel
HÖGGDEYFAR
STERKIR, ORUGGIR
ÓDÝRIR!
Súkkulaði Sælkerans
Heildsölubirgðir íslensk Dreifing Sími 91-68 73 74