Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1990, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1990, Page 3
3 ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1990. dv Viðtalið Manngiidis- hugsjónin heillar Nafn: Egill Heiðar Gíslason Aldur: 32 ára Starf: Framkvæmdastjóri Framsöknarflokksins Egill Heiðar Gíslason hefur ver- ið ráðinn framkvaemdastjóri Framsóknarflokksins i stað Sig- urðar Geirdal sem tekið hefur við starfi bæjarstjóra í Kópavogi. Egill Heiðar er fæddur og uppal- inn í Súðavík og að eigin sögn leitar hugur hans oft vestur. „Á heímaslóöum minum í Súöavik liður mér ætíð best, ég hef miklar taugar til staðarins.“ Eins og svo víða á landsbyggð- inni þurfti Egill snemma að hleypa heimdraganura til aö stunda nám. Hann hélt til Bifrast- ar og lauk samvinnuskólaprófi 1978. Næstu tvö árin var hann í starfsnámi á vegum Sambands- ins en síðan ráðinn sem félags- málafulltrúi Kaupfélags Borg- firðinga. Því starfi gegndi hann til ársins 1982 er hann hélt utan til Svíþjóðar til náms við Lýð- háskólaim í Gautaborg. Þaðan útskrifaðist hann 1984 sem æsku- lýðs- og tómstundafulltrúi. Er heim kom var hann ráðinn æsku- lýðsfulltrúi Borgamesbæjar og gegndi því starfi til ársins 1987 er hann hóf störf hjá Framsókn- arflokknum. Jónasfrá Hriflu í uppáhaldi Að sögn Egils var það aldrei nein spuming að ganga til Uös við Framsóknarflokkinn. í æsku hreifst hann af þvi uppbyggingar- starfi á landsbyggðinni sem flokkurinn hafði forystu um eftir viðskilnað viðreisnarinnar. „Það er einkum manngildishugsjón Framsóknarflokksins semheillar mig til þátttöku í honum. Flokk- urinn hefur látið margt gott af sér leiða í íslensku þjóðfélagi og á mikla framtíö fyrir sér. Hann er í senn frjálslyndur og umbóta- sinnaöur félagshyggiuflokkur sem samrýmist betur kröfum þóðfélagsins en allir aðrir flokk- ar.“ Jónas frá Hriflu er í miklu uppáhaldi hjá AgU sem segir hann hafa unnið mikið braut- ryðjandjstarf hér á landi, meðal annars með því að leggja gmnn- inn að starfsemi ungmennafélag- anna. Er mikill ungmennafélags- maður „Félagsmál í víðum skUningi eru mér mjög hugleikin. Annars er ég frekar heimakær maöur og kann vel viö mig í hópi vina. Ég hef alla tið verið mjög virkur í starfi ungmennafélagshreyfing- arbmar og tók meðal annars þátt í að stofna ungmennafélagið Geisla í Súðavík. Þó ég sé löngu fluttur þaðan tek ég þátt í starfinu þar og er félaginu innan handar eftir bestu getu.“ Eins og sönnum ungmennafé- lagsmanni sæmir er EgiU bind- indisrnaður á bæði tóbak og vín. Hann segist þó ekki vera neinn ofstopamaður á þessu sviði og geta vel unnt öðrum að fá sér i glas. EgiUer kvæntur Magneu Gísla- dóttur, ritara á lögfræðistofu. -kaa Höfn: Roddregin síldar- f lök til Frakklands Júlia Imsland, DV, Höfn: SUdarsöltun hófst á Höfn sl. fóstu- dag en þá landaði Hvanney SF 60 tonnum af síld hjá Fiskimjölsverk- smiðju Homafjaröar. Sama dag land- aði Höfrungur II170 tonnum af síld til frystingar hjá Fiskiðju KASK. Nú verða í fyrsta sir í hjá KASK, Kaupfélagi A-Skaftfelf.iga, fryst roð- dregin sfldarflök fy :r Frakklands- markað. Annars fer öU fryst síld til Englands og Skotlands, ýmist heil- fryst eða flök. Um 70 manns vinna við frysting- una. Margt aðkomufólk vinnur í sfld- inni og hefur nokkuð mikU eftir- spurn verið eftir vinnu viðs vegar af landinu, þó einna mest af Suður- nesjum að sögn EgUs Jónassonar verkstjóra. • Síldarsöltun hófst á Höfn á föstudag, sennilega fyrsta síldarsöltunin i haust. DV-mynd Ragnar Imsland Fréttir Kratar á Vesturlandi: Fjórirákveðnir aðverameð Fjórir hafa þegar ákveðið að vera með í prófkjöri Alþýðu- flokksins á Vesturlandi. Prófkjör- ið verður væntanlega haldið í nóvember. Eiður Guðnason alþingismaður hefur ákveðið að gefa kost á sér til endurkjörs. Þrír aðrir hafa ákveðið að vera með. Það eru: Gisli Einarsson, bæjarfuEtrúi á Akranesi, Sveinn Þór Elínbergs- son, bæjarfulltrúi í Ólafsvík, og Sveinn Hálfdánarson, varaþing- maður og prentari í Borgarnesi. Ekki er búið að ákveða próf- kjörsreglur. Það verður gert á fundi kjördæmisráðs sem verður haldinn í Stykkishólmi í næstu viku. Eftir að reglur um próf- kjörið liggja fyrir verður auglýst eftir framboðum. Það er mögu- leiki á að þátttakendum eigi eftir að fjölga þegar búið verður að ákveða með hvaða hætti próf- kjörið verður. í prófkjörinu 1987 var niðurstaðan bindandi fyrir tvöefstusætin. -sme ÞAÐ BÖGGLAST EKKERT FYRIR OKKUR FLATEYRI: Þri., mib., fim., föst., sun. BILDUDALUR: Alla daga nema laugard. STYKKISHOLMUR:' Föst. *, sun. * RIF: Mán., mib., fim., föst. sun. * HOLMAVIK, GJÖGUR Mán. *, fim. * BLONDUOS Þri. *, fim. * SIGLUFjÖRÐUR: Mán., þri. *, miö., fim. föst., laug. *, sun. VESTMANNAEYJAR: Alla daga Stórir eða litlir bögglar, ferkantaðir, sívalir eða kringlóttir - ekkert mál! Við flytjum allt fyrir þig, hvort sem það er hundur eða köttur sem þarf að komast í sveitina eða til læknis, varahluti í bílinn, bátinn, sjónvarpið og hvaðeina annað sem þú þarft að koma til skila eða fá til þín. Við hringjum svo í þig og látum þig vita þegar böggullinn kemur. ATH. Stjarnan *, merkir millilendingu. ARNARFLVG INNANLANDS hS. 101 REYKJAVlK Sími 91-29577,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.