Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1990, Síða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1990.
Viðskipti
Verðum að f ara ut-
an ogfá ráðstefnur
- segir Júlíus Hafstein, formaður ferðamálanefndar Reykjavíkurborgar
„Það markverðasta sem fram hef-
ur komið hér í dag er sú hugmynd
að sett verði á laggirnar sérstakt ráð-
stefnufyrirtæki sem sæi um að fá
erlend fyrirtæki og samtök til að
halda ráðstefnur hérlendis," segir
Júlíus Hafstein, formaður ferða-
málanefndar Reykjavíkurborgar,
um ráðstefnu sem hófst á Hótel Loft-
leiðum í gær og er um það hvernig
auka megi ráöstefnuhald á íslandi.
„Það eru þúsundir stórra ráðstefna
haldnar hvarvetna í heiminum á
hverju ári og ljóst að við íslendingar
eigum mikla möguleika á að fá fleiri
ráðstefnur hingað. Én við verðum
að vera duglegri. Við veröum að fara
út og ræða beint við þá erlendu aðila
sem halda ráðstefnur og vinna þann-
ig kröftuglega að því að fá ráðstefnur
hingað. Þær koma ekki af sjálfu sér
heldur þarf að hafa mikið fyrir því
að fá þær. Það er eftir miklu að slægj-
ast fyrir íslenska ferðaþjónustu."
Það eru Flugleiðir, Hótel Saga,
Reykjavíkurborg, Samband veitinga-
og gistihúsaeigenda og fyrirtækið
Ráðstefna og fundir sem standa að
þessari ráðstefnu á Hótel Loftleiðum.
Um 100 manns sækja ráðstefnuna,
þar af eru um 16 til 18 erlendir sér-
fræðingar og blaðamenn.
Á meðal erlendu sérfræðinganna
er Bretinn Geoffrey Grau Forton,
stjórnarformaður Meetings World
Associate. Hann er einhver kunnasti
sérfræðingar í heimi um ráðstefnu-
hald.
Hugmyndin um sérstakt íslenskt
ráðstefnufyrirtæki snýst um að það
yrði einkafyrirtæki í eigu flugfélag-
anna, sveitarfélaganna, banka, út-
flutningsfyrirtækja og fyrirtækja í
ferðaþjónustu. Þetta fyrirtæki yrði
samnefnari fyrir allt ráðstefnuhald á
íslandi og héldi utan um dæmið.
- Hvað með þá erfiðleika í sölu á
íslandi sem ferðamannalandi að
landið sé of fjarlægt og að hér sé
mikil dýrtíð?
„Það er samdóma álit þeirra er-
lendu sérfræðinga sem hér hafa talað
að ísland hafi upp á mikla sérstöðu
að bjóða og að það sé einmitt sú sér-
staða sem eigi að selja ytra þegar
landið er kynnt sem ráðstefnuland."
Júlíus segir ennfremur að lítil
mengun og gott ástand í heilbrigðis-
málum sé hluti af sérstöðu landsins,
auk þess sem gott orð fari af íslend-
ingum ytra við að halda og skipu-
leggja ráðstefnur.
Með því að fá hingað fleiri ráðstefn-
ur myndi ferðamönnum fjölga yfir
vetrarmánuðina og þar með ykist
nýting bæði hótela og flugfélaga að
sama skapi.
-JGH
Júlíus Hafstein, formaður Ferðamálanefndar Reykjavíkurborgar, segir þá
hugmynd góða að stofna sérstakt ráðstefnufyrirtæki, sem ynni duglega að
þvi að ná í ráðstefnur til landsins. „Þetta fyrirtæki yrði samnefnari fyrir
allt ráðstefnuhald á íslandi."
Hverjir eru með Víglundi?
- Ísflugsóttiumflugleyfiígær
„Það kemur í ljós þegar þar að
kemur hvernig hluthafalistinn lítur
út. Ég mun í þessari viku gera ráða-
mönnum í trúnaði grein fyrir því
hverjir séu helstu hluthafar og standi
að fyrirtækinu. Opinberlega vil ég
hins vegar ekki gefa það upp fyrr en
kemur í ljós hvort við fáum flugleyfi
til Amsterdam og Hamborgar en um
þau sóttum við í morgun," sagði Víg-
lundur Þorsteinsson við DV í gær.
Miklar vangaveltur hafa verið um
það í viðskiptalífinu að undanfömu
hverjir standi með Víglundi Þor-
steinssyni, formanni Félags ís-
lenskra iðnrekenda og forstjóra BM
Vallár, við að yfirtaka isflug og koma
með nýtt fjármagn í það fyrirtæki.
Ljóst er að á milli 30 og 40 fyrrver-
andi starfsmenn Amarflugs em með
í hlutafjársöfnuninni en ekki hefur
fengist uppgefið hvaða fyrirtæki hafa
skráð sig fyrir hlutafé. Á annað
hundrað nöfn em á hluthafalistan-
um.
ísflug sótti um flugleyfi á fyrrver-
andi leiðum Amarflugs í gærmorg-
un. Til stóð að Víglundur gengi á
fund Steingríms J. Sigfússonar sam-
gönguráðherra í morgun til frekari
viðræðna um máliö.
Mikil samkeppni er á milli ísflugs
Viglundur Þorsteinsson, formaður
Félags islenskra iðnrekenda: „Það
kemur í Ijós þegar þar að kemur
hvernig hluthafalistinn lítur út.“
lok ákvörðun um það hvort félagið
verður fyrir valinu.
-JGH
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra. Búist er við að hann
taki ákvörðun í lok vikunnar um það
hvort ísflug eða Flugleiðir fá flug-
leyfi til Amsterdam og Hamborgar.
og Flugleiða um flugleiðimar til
Amsterdam og Hamborgar. Búist er
við að samgönguráðherra taki í viku-
Akranesbær býður hlutabréf til solu
Sigurður Sverrissan, DV, Akranesi:
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á
fundi nýlega með 7 atkvæðum gegn
2 að bjóða hlutabréf bæjarins í Síld-
ar- og fiskimjölsverksmiðju Akra-
ness til sölu. Aðeins tvær vikur em
frá því bæjarstjórnin samþykkti að
auka hlutafé sitt í fyrirtækinu um
14,3 milljónir króna.
Hlutafjáreign bæjarins í SFA er að
nafnvirði 15,5 mfiljónir króna. Ef
gert er ráð fyrir að sama verð fáist
fyrir þau ög greitt var fyrir bréf í
nýafstaðinni hlutaíjáraukningu má
gera ráð fyrir að þau seljist á 45-50
mfiljónir króna.
HB & Co og þeir Runólfur Hall-
freðsson, Sigurður Ingimundarson
og Magnús Sólmundsson sendu í
fyrravor bréf til bæjarins þar sem
óskað var eftir viðræðum um kaup
á hlutafé bæjarins í SFA. Engar
formlegar viðræður fóru fram. Fyrir
nokkmm dögum sendu þessir sömu
aðilar bréf tfi bæjarins þar sem þeir
lýstu því yfir að þeir hefðu ekki leng-
ur áhuga á að kaupa umrætt hlutafé.
í bréfinu segir m.a. „Ekki er hægt
að skfija viðbrögð á annan hátt en
þann að enginn áhugi hafi verið á
sölu tfi okkar...“ Síðar segir í bréf-
inu eftir tilkynningu tfi bæjaryfir-
valda um að áhugi sé ekki lengur
fyrir hendi á kaupum á bréfunum:
....eftir sitja í okkur töluverð von-
brigði að finna það litla traust sem
við höfum greinilega sem atvinnu-
rekendur hjá bæjarfulltrúum á
Akranesi."
íslenskt atvinnulíf 1989 er komið út.
í ritinu er fjallað um fjölmörg fyrir-
tæki og miklar upplýsingar um hvert
þeirra.
Íslensktatvinnulíf
komiðút
Ritið íslenskt atvinnulíf er komið
út í þriðja sinn. Þetta er stórfróðlegt
rit fyrir þá sem hafa áhuga á íslenska
nlutabréfamarkaðnum og íslensku
atvinnulífi. í því er að fmna upplýs-
ingar um öll helstu fyrirtæki lands-
ins. Aldrei hafa upplýsingar um jafn-
mörg fyrirtæki verið birtar áður í
ritinu. Það eru fyrirtækin Talna-
könnun hf. og Vísbending sem
standa að útgáfunni.
Fyrirtækjunum er skipt í flokka
eftir starfsgr'einum. Þær eru sjávar-
útvegur, iðnaður, verktakastarf-
semi, bankar og sparisjóðir, eignale-
igur, fjárfestingasjóðir, tryggingafé-
lög, Sambandið og kaupfélög, flugfé-
lög, skipafélög, olíufélög, orkuveitur,
fiskeldi og önnur þjónusta.
Allar helstu kennitölur úr árs-
reikningum eru birtar svo og súlurit
og kökur sem birta upplýsingar um
skiptingu rekstrartekna, skiptingu
skulda, afkomuna síðastliðin fjögur
ár og fyrirtækið í samanburði við
önnur fyrirtæki í greininni. Þá er
sagt frá eignaraðild í öðrum fyrir-
tækjum og horfum.
Ritstjóri íslensks atvinnulífs er Sig-
urður Jóhannesson hagfræðingur.
Formaður ritnefndar er Benedikt
Jóhannesson stærðfræöingur og
stofnandiTalnakönnunarhf. -JGH
Ólafsfjörður:
Tvötilboðíbréf
Hlutafjársjóðs
Helgi Jónsson, DV, Ólafsfirði:
Tvö tilboð bárust í hlutafé
Hlutafiársjóðs í Hraðfrystihúsi
Ólafsfiarðar. Hlutafiársjóður á
49% í frystihúsinu. Hærra tfiboð-
ið var frá Gunnari Þór Magnús-
syni fyrir hönd Stíganda og Sæ-
dísar upp á 48,5 milljónir króna.
Hitt hljóðaði upp á 48 millj. króna
og.var frá Sæbergi hf. Gunnar
Þór Magnússon hafði áður boðið
50 milljónir í öll hlutabréf frysti-
hússins en því var hafnað.
Tilboðin þykja lág en gert er ráð
fyrir að með nýjum aðilum komi
aukið fiármagn og kvóti inn í fyr-
irtækið. Máhð verður tekið fyrir
í næstu viku.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 2.0-2.5 Lb.Bb,-
Sb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2,5-3 Allir nema Bb
6mán. uppsögn 3,5-4 Ib.Sb
12mán. uppsögn 4-5 lb
18mán.uppsögn 10 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 2-2,5 Lb,Bb,- Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6mán. uppsögn 2.5-3.0 Allir nema ib
Innlán með sérkjörum 3-3,25 Ib
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 7-7,25 Ib
Sterlingspund 13,5-13,6 Sp
Vestur-þýskmörk 7-7,25 Sp
Danskar krónur 9-9,4 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 12,25-13,25 Allir
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 11,25-13,5 Ib
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 15,5-16,0 Bb.lb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,75-8,5 Lb
Útlántilframleiðslu
Isl.krónur 11,75-13,5 ib
SDR 11-11,25 Lb,Bb,- Sb
Bandaríkjadalir 10-10,2 Allir nema Sp
Sterlingspund 16,5-16,7 Allir
nema Sp
Vestur-þýsk mörk 10-10;2 Allir nema
Húsnæðislán 4,0 Sp
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21,0
MEÐALVEXTIR
Overðtr. okt. 90 14,0
Verðtr. okt. 90 8,2
VlSITÖLUR
Lánskjaravísitala okt. 2934 stig
Lánskjaravísitala sept. 2932 stig
Byggingavísitala okt. 552 stig
Byggingavísitala sept. 172,5 stig
Framfærsluvísitala okt. 147,2 stig
Húsaleiguvísitala óbreytt 1okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,119
Einingabréf 2 2,780
Einingabréf 3 3,367
Skammtímabréf 1,724
Lífeyrisbréf
Kjarabréf 5,060
Markbréf 2,693
Tekjubréf 1,996
Skyndibréf 1,509
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,455
Sjóðsbréf 2 1,779
Sjóðsbréf 3 1,711
Sjóðsbréf 4 1,465
Sjóðsbréf 5 1,031
Vaxtarbréf 1,7340
Valbréf 1,6290
Islandsbréf 1,061
Fjórðungsbréf 1,035
Þingbréf 1,061
Öndvegisbréf 1,054
Sýslubréf 1,065
Reiöubréf 1,045
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 560 kr.
Flugleiðir 215 kr.
Hampiðjan 173 kr.
Hlutabréfasjóður 172 kr. \
Eignfél. Iðnaðarb. 179 kr.
Eignfél. Alþýðub. 131 kr.
Skagstrendingur hf. 420 kr.
Islandsbanki hf. 173 kr.
Eignfél. Verslunarb. 140 kr.
Olíufélagið hf. 578 kr.
Grandi hf. 194 kr.
Tollvörugeymslan hf. 110 kr.
Skeljungur hf. 635 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn,
lb= Islandsbanki Lb = Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.