Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1990, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1990, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 16. OKT0BER 1990. Utlönd Jarðskjálfti í Austur-íran Jarðskjálfti reið yfir bæinn Tabas í austurhluta írans í nótt. Irna, hin opinbera fréttastofa landins, stað- festi þetta í morgun en ekki var nán- ar greint frá málsatvikum. Þar sagöi að engar nákvæmar frétt- ir hefðu borist, hvorki af manntjóni né skemmdum á byggingum. Skjálft- inn mældist 5,5 stig á Richterskvarða og skók allt héraðið umhverfis Taba. Taba er bær á hásléttunni um 600 kílómetra fyrir suöaustan höfuð- borgina, Teheran. Húsakostur er þar heldur lélegur og er óttast að tölu- vert tjón hafi orðið þótt skjálftinn hafi ekki verið sterkari en þetta. Síðast í sumar létu 35 þúsund manns lífið í jarðskjálfta sem varð í norðvesturhéruðum írans. Þá missti um hálf milljón manna heimili sín. Reuter Sýrlenski herinn hefur nú undirtökin í Líbanon eftir aö Aoun var neyddur til uppgjafar. Hér eru sýrlenskir hermenn að vinna við skriðdreka í Beirút. Símamynd Reuter Samskipti Frakka og Líbana í hnút vegna Aouns: Mitterrand og Hravi skiptast á stóryrðum Samskipti stjórna Frakklands og Líbanons eru nú komin í alvarlegan hnút vegna framtíðar Michela Aoun hershöfðingja sem enn dvelur í franska sendiráðinu í Beirút. Her- menn, hliðhollir Ehas Hravi forseta, og sýrlenski herinn neyddu Aoun til uppgjafar og leitaði hann þá hælis hjá Frökkum á laugardaginn. Francois Mitterrand, forseti Frakklands, hefur lýst því yfir að Aoun fái að vera í franska sendiráð- inu þar til yfirvöld í Líbanon leyfi honum aö fara úr landi. Dómsmála- ráðherra Líbanons hefur svarað Frakklandsforseta-með því að segja að mál Aouns sé innanríkismál í Líb- anon og komi Frökkum ekki við. Elias Hravi forseti krefst þess að Frakkar framselji Aoun svo hægt verði að draga hann fyrir dóm en hann á yfir höföi sér áækru fyrir stríösglæpi á þeim tveimur árum sem hann hefur barist gegn forsetan- um. Hravi segir aö staða Aouns sé nú svipuð stöðu Manules Noriega eftir að hann flúði í sendiráð páfagarðs í Panama eftir að Bandaríkjamenn höfðu hrakið hann frá völdum. Þá lauk málum svo að Noriega var framseldur. Mitterrand hefur svarað þessum rökum á þann veg að hann þurfi ekki á ráðum Líbana að halda og spyrji engan að því hverjum Frakkar veiti hæli. „Ef þeir vilja að við fram- seljum Aoun þá er svarið nei,“ sagði Mitterand. Frakkar réðu Líbanon í 20 ár á ár- unum milli stríða og hafa um langan aldur stutt við bakið á kristna minni- hlutnum í landinu. Sambúðin við stjórn landins hefur verið stirð eftir að Sýrlendingar náðu þar áhrifum og nú er stuðningur Frakka við Aoun hershöfðingja orðinn að alvarlegri milliríkjadeilu. Sendiherra Frakka í Beirút hefur átt tvo fundi með Hravi forseta en árangur hefur enginn orðið af sam- ræðum þeirra. Öflugur vörður er nú um franska sendiráðið og fá engir að koma þangað nema sendiráðs- menn.. Ástandið er nú mjög ótryggt í Líb- anon eftir að Sýrlendingar náðu þar undirtökunum með uppgjöf Aouns og manna hans. Kristnir menn óttast um framtíð sína og einstakir leið- togar þeirra halda úti hópum skæru- liða til að verjast ágangi sýrlenska hersins. Reuter I viötali við bandaríska dagblaðið The New York Times í morgun segir Hussein Jórdaníukonungur Mubarak Egyptalandsforseta hafa valdið sér mestum vonbrigðum af öllum arabaleiðtogum. Svo virtist sem Mubarak væri að reyna að hefna sín á írökum sem leiddu herferðina gegn Egyptum í kjölfar friðarsamningsins við ísrael 1979. Simamynd Reuter J ór daníukonungur í blaðaviðtali: íraksforseti hafði samþykkt að hörfa Hussein Jórdaníukonungur sagði í viðtah, sem birtist í morgun, að Saddam Hussein íraksforseti hefði samþykkt í ágúst að draga herhð sitt til baka frá Kúvæt ef Arababandalag- ið gagnrýndi hann ekki. Fordæming bandalagsins varð hins vegar til þess að Saddam varð um kyrrt. í viðtali við bandaríska dagblaðið The New York Times segir konung- urinn að þann 2. ágúst, daginn sem írakar gerðu innrás í Kúvæt, hafi Bush Bandaríkjaforseti veitt honum tveggja sólarhringa frest til að fá Saddam tíl að lofa að draga herlið sitt til baka. Það hafi Saddam gert en vegna fordæmingar Arababanda- lagsins hafi hann ekki staðið við lof- orð sitt. Jórdaníukonungur sagði að ef stríð brytist út yrði það að hluta til vegna þess að Bush og aðrir vestrænir leið- togar hefðu ekki svarað í tæka tíð „skilaboðum" frá Saddam um að hann væri reiðubúinn tíl yfirgefa mestaht það svæði sem hann hafði hertekið. Hussein Jórdaníukonungur greindi einnig frá því að Saddam hefði sagt honum seint í júhmánuði að hann hefði ákveðið að taka allt Kúvæt í stað þess að taka aðeins það landsvæði sem deilt heíði verið um þar sem hann gerði ráð fyrir að Bandaríkjamenn myndu svara með hernaði. Staða hans yrði sterkari ef hann þyrfti ekki að fara lengra en svo að hann gæti haldið hinu um- deilda landsvæði. í viðtalinu við The New York Times kvaðst Jórdaníukonungur enn telja að hægt væri að finna friðsamlega lausn á Persaflóadeilunni ef Banda- ríkin og arabískir bandamenn þeirra væru fúsir til málamiðlunar. Huss- ein kvaðst hins vegar hafa sannfærst af viðræðum sínum við Saddam að írakar myndu berjast ef ekki næðist friður með diplómatískum leiðum. Blaðið greindi frá því að Jórdaníu- konungur hefði virst æstur er hann lýsti yfir þeirri skoðun sinni að hægt hefði verið að koma í veg fyrir inn- rásina. Kvaðst hann hafa reynt að minnsta kosti fimm sinnum síðan 1988 að fá Kúvæta til að leysa landa- mæradeiluna sem þeir áttu í við ír- aka. Nokkrum klukkustundum eftir að írösk yfirvöld lýstu því yfir í gær að þau myndu aldrei yfirgefa Kúvæt gengu þúsundir hermanna um götur Bagdad, höfuðborgar íraks, og báru um tvö hundruð þeirra gasgrímur. Fregnir bárust einnig af því í gær að styttur af íraksforseta hefðu verið reistar í Kúvæt. Reuter Bnangran ísraela eykst - eldflaugaárás frá Líbanon Eldflaugum var skptið frá Líban- on inn í norðurhluta ísraels í morg- un en þær ollu engum skemmdum eða meiðslum á fólki, að því er ísra- elska öryggislögreglan sagði. Lögreglan greindi frá því að arabískir skæruhðar hefðu tvisvar skotið eldflaugum frá öryggissvæð- inu í suðurhluta Líbanon frá því að ísraelskir lögreglumenn skutu til bana tuttugu og einn araba á Musterishæðinni í Jerúsalem fyrir rúmri viku. Róttæk samtök palestínskra skæruhða lýstu því yfir á föstudag- inn að þau hefðu drepið sjö ísra- elska hermenn í Suður-Líbanon í hefndarskyni fyrir atburðinn í Jerúsalem. ísraelsk yfirvöld vísa þessu á bug. ísraelsk yfirvöld einangrast nú æ meir á alþjóðavettvangi vegna neit- unar sinnar um að eiga samvinnu við nefnd Sameinuðu þjóðanna sem rannsaka á atburðinn á Must- erishæðinni. Bandarísk yfirvöld hafa hvatt ísraelsstjóm th þess að fahast á að nefndin fái að rannsaka hvað raunverulega átti sér stað. ísraelsk yfirvöld hafa tilkynnt að þau muni ekki ræða við nefndina. Þekktur bandarískur gyðinga- prestur hefur einnig hvatt ísraela til að hafna ekki samvinnu við nefndina. Sagði presturinn að af- staða ísraela myndi dreifa athygli fólks frá innrás íraka í Kúvæt og grafa undan samskiptum Banda- ríkjanna og ísraels. En margir aðr- ir gyðingaleiðtogar styðja þó af- stöðu ísraelsstjórnar. Douglas Hurd, utanríkisráðherra Bretlands, sem nú er í heimsókn í ísrael, sagði í gær að hann myndi taka upp málið við ísraelska ráða- menn sem hann mun hitta í dag. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.