Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1990, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÖBER 1990.
9
Utlönd
EB-viöræöur:
Ágreiningur getur
fellt stjórn Syse
Jan P. Syse, forsætisráðherra Noregs.
Næstu tvær til þrjár vikumar
kemur það líklega í ljós hvort
norska stjómin verður að segja af
sér vegna ósamkomulags milli
Miðflokksins og Hægri flokksins
um afstöðu Noregs i samningavið-
ræðunum við Evrópubandalagið,
EB. Syse forsætisráðherra er leið-
togi Hægri flokksins.
Búist er við að EB muni í samn-
ingaviðræðunum við Noreg og hin
aöildarlönd EFTA, Fríverslunar-
samtaka Evrópu, krefjast breyt-
inga á norskum lögum sem hindra
kaup útlendinga á norskum auð-
lindum. Flest þessara laga voru
sett fyrir heimsstyrjöldina fyrri
þegar Noregur var fátækt land og
erlend fyrirtæki keyptu fossa,
skóga og fjallshlíðar. Samkvæmt
lögunum verða þeir sem kaupa
slíkt að hafa fengið leyfi frá norsk-
um yfirvöldum.
Miðflokkurinn segir lögin enn
nauðsynleg en nokkrir háttsettir
menn úr röðum Hægri flokksins
og Framfaraflokksins segja þau
úrelt og vilja semja við EB um
breytingar á þeim. Verkamanna-
flokkurinn er sama sinnis.
NTB
„Fimmti maðurinn“
enn í f elum
John Cairncross, sem sagður er
vera „flmmti maður“ KGB í bresku
leyniþjónustunni, flúði heimili sitt í
Suður-Frakklandi í gær til að forðast
fréttamenn.
Njósnari sovésku leyniþjón-
ustunnar, Oleg Gordievsky, fullyrðir
í bók sinni að Cairncross hafi verið
fimmti maðurinn í einu frægasta
njósnahneyksli sögunnar og birtist
útdráttur úr bók hans í tímaritinu
Time í gær.
Á sjötta áratugnum störfuðu innan
bresku leyniþjónustunnar nokkrir
menn sem reyndust vera útsendarar
sovésku leyniþjónustunnar. Vitað
hefur verið um fjóra þeirra en
fimmta mannsins hefur lengi veriö
leitað. Hafa ýmsar tilgátur verið sett-
ar fram um hver hann var.
Félagi Cairncross sagði að hann
myndi ekkert segja fyrr en bók
Gordievskys kæmi út. Ekki er vitað
hvert Cairncross, sem nú er 76 ára,
og kona hans fóru í gær en þau höfðu
tekið hús á leigu í þorpinu Saint-
Antonin. Reuter
Borgarstarfsmenn í Jóhannesarborg i Suður-Afriku með skilti sem nú hafa
verið tekin niður. íhaldsmenn í Suður-Afríku er ekki ánægðir með að nú
skuli blökkumönnum leyfður aðgangur að almenningssundlaugum og bóka-
söfnum sem áður hafa einungis veriö fyrir hvita. Símamynd Reuter
Suður-Afríka:
íhaldsmenn vilja
bola de Klerk frá
Suður-afríski íhaldsflokkurinn
hefur heitið því að bola stjórn de
Klerks forseta frá og viðhalda sér-
réttindum hvítra í Suður-Afríku.
Landsfundur flokksins hefst í dag,
rúmum sólarhring eflir að lög um
aðskilnað kynþátta á aimannafæri
voru felld úr gildi.
Þó svo að íhaldsflokkurinn hafi
minna en fjórðung þingsæta segja
leiötogar hans að þeir gætu unnið
kosningar núna ef einungis hvítir
tækju þátt. Er það skoðun flokks-
manna að stuðningsmönnum hans
muni fjölga vegna afnáms laganna.
Sumar sveitarstjórnir reyna að
komast hjá því að hhta breyttum lög-
um og í Springs, nálægt Jóhannesar-
borg, þar sem íhaldsflokkurinn fer
með völdin, var almenningssund-
lauginni lokað í gær í stað þess að
veita blökkumönnum aðgang að
henni. Annars staðar var aðgangs-
eyrir stórhækkaður.
Afríska þjóðarráðiö hefur heitið að
berjast fyrir því að nýju lögunum
verði framfylgt. Reuter
... alla daga
■^f^ARNARFLUG
m
INNANLANDS hf.
Reykjavíkurflugvelli - simi 29577
Tölvupappír
iiii
Hverlisgotu 78, simar 25960 25566
Söguleg heimsókn
til Norður-Kóreu
Forsætisráðherra Suður-Kóreu, Kang Young-hoon, til vinstri, við komuna
til Norður-Kóreu í morgun. Símamynd Reuter
Forsætisráðherra Suður-Kóreu,
Kang Young-hoon, fór í morgun í
sögulega heimsókn til Noröur-Kóreu.
Er það í fyrsta skipti frá því að Kór-
euskaganum var skipt 1945 sem svo
háttsettur Suður-Kóreumaður fer í
heimsókn til Norður-Kóreu. Gert er
ráð fyrir að Kang ræði við norður-
kóreska embættismenn á morgun og
fimmtudag.
í síðastiiðnum mánuði kom forsæt-
isráðherra Norður-Kóreu, Yon Hy-
ong-muk, í heimsókn til Suður-Kóreu
til viðræðna við ráöamenn þar. Báðir
fóru ráðherramir um landamæra-
þorpið Panmunjom þar sem einstaka
fundir ríkjanna hafa átt sér stað frá
því að bardögum lauk 1953.
Yfirvöld í Norður-Kóreu sendu í
morgun frá sér bréf þar sem stungið
var upp á að teknar yrðu upp á ný
viðræöur Rauða krossins um sam-
einingu yfir tíu milijóna manna úr
fjölskyldum sem tvístruðust í stríð-
inu. Samkvæmt fréttum á Kang að
flytja Kim Il-sung, leiðtoga Norður-
Kóreu, tillögu Rohs Tae-woo, forseta
Suður-Kóreu, um fund leiðtoganna
annaðhvort í Seoul eða Pyongyang.
Gert er ráð fyrir að forsætisráð-
herrar beggja Kóreuríkjanna taki
upp þráðinn þar sem frá var horfiö
í september. Kang hefur stungið upp
á að leyfðar verði ferðir yfir landa-
mærin á stærri hátíðum, að sam-
vinna á sviði viðskipta og efnahags-
mála verði aukin og að herir ríkj-
anna verði jafnstórir. Búist er við að
Yon leggi áherslu á að þremur and-
ófsmönnum, sem fóru ólöglega yfir
til Norður-Kóreu, verði sleppt, að
árlegum sameiginlegum heræfing-
um Bandaríkjamanna og Suður-
Kóreumanna verði hætt og að ríkin
hafi eitt sameiginlegt sæti hjá Sam-
einuðuþjóðunum. Reuter
Vinningstölur laugardaginn
13. okt. ’90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 1 2.299.118
Z. 4af5^SfM 4 99.653
3. 4af 5 158 4.351
4. 3af 5 4732 339
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
4.989.336 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULlNA 991002