Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1990, Side 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1990.
íþróttir
Stúfarfrá
Englandi
Gurmar Sveinbjomsson, ÐV, Englandi:
West Ham hefur keypt
bakvörðinn Tim Bre*
acker frá Luton Town
á 600 þúsund pund en
fyrir tæpu ári reyndi þáverandi
stjóri West Ham, Lou Macari, að
kaupa Breacker fyrir 500 þúsund
pund. Jim Ryan, stjóri Luton,
segir að salan hafi átt sér stað
vegna fjárhagslegra ástæöna.
Robson á góðtim
batavegi
Bryan Robson hjá Manchester
United er nú á góðum batavegi
eftir aö hafa gengist undir tvo
uppskurði. Sérfræðingar segja að
Robson geti farið aö skokka eftir
tæpa viku en leikmaðurinn
steíhir sjálfur að því að vera kom-
inn í form áöur en ágóðaleikur
hans fer fram á Old Trafford þann
20. nóvember. Þá mætir Manc-
hester United skoska liðinu Gias-
gow Celtic og allur ágóði af leikn-
um rennur í vasa Robsons fyrir
langa og dygga þjónustu við
Manchester United.
Aðdáandi Leeds fær
lífstíðarbann
Borgaryfirvöld i Leeds, sem eiga
heimavöll Leeds, Elland Road,
hafa sett Leeds-aðdáendann og
verkamannínn Paul Ramsden í
lífstíðarbann frá vellinum. Að-
gerðir yfirvalda koma í kiölfar
þess aö Ramsden hljóp inn á völl-
inn þegar Leeds og Tottenham
léku fyrir skömmu. Dómari leiks-
ins dæmdi mark af Leeds og því
hljóp Ramsden inn á til að mót-
mæla en fær nú banniö upp úr
öllu saman. Að auki verður hann
útilokaður frá öllum völlum á
Bretlandseyjum næsta áriö.
Daily Mirror dæmt að
greiða skaðabætur
Breska dagblaöíð
Daily Mirror hefur nú
verið dæmt til að
greiða John Barnes,
Kenny Dalglish og Peter Robin-
son, stjórnarformanni Liverpool,
umtalsverðar skaðabætur vegna
fréttar í blaðinu í febrúar síðast-
liðinn. Fréttin gekk út á það að
Bames væri á leiðinni til ítalska
liðsins Sampdoria fynr liðlega 5
milljónir punda. Ekki var skýrt
frá því hve skaðabætumar væru
miklar.
Atbiston leitar að
tiði á Englandi
Arthur Albiston, fyrrum leik-
maður með Manchester United,
er kominn til Englands á ný og
leitar þar að félagi til að spila
með. Albiston fékk frjálsa sölu frá
Man. Utd og fór til Dundee í Skot-
landi en hlutimir þar gengu ekki
upp.
Leikur Man. Utd og Wrex-
ham færður um einn dag
Leikur Manchester United og
velska liðsins Wrexham í Evr-
ópukeppni bikarhafa, sem fram á
að fara á Old Trafford, hefur ver-
ið færöur ffam um einn dag og
spilast því þriöjudaginn 23. okt-
óber.
Fær Leícester skaðabætur
vegna útsendingar?
Leicestér City hefúr
skrifað bréf til stjórnar
//« deildarkeppninnar í
Englandi og farið fram
á skaðabætur vegna fyrirhugaðr-
ar sjónvarpsútsendingar frá leik
Aston Villa og Inter Milan í Evr-
ópukeppninni þann 24. október.
Leicester er eitt fjölmargra liða
sem á heimaleik umrætt kvöld
og óttast forráðamenn liösins
tekjutap vegia útsendingarinn-
ar.
• Formenn norrænu frjálsíþróttasambandanna ásamt æðstu mönnum Evr-
ópusambandsins. Frá vinstri: Arne Ljungquist, varaformaður Evrópusam-
bandsins, Örn Eiðsson, heiðursformaður FRÍ, Nils Nygárd, formaður danska
sambandsins, Bernt Gröön, formaður sænska sambandsins, Magnús Ja-
kobsson, formaður FRÍ, Lars Martin Kaupang, formaður norska sambands-
ins, Papani lllkka, formaöur finnska sambandsins, og Carl Olav Homen,
formaður Evrópusambandsins. Þess má geta að Homen var í sex ár land-
varnaráðherra Finnlands áður en hann tók við því embætti sem hann gegn-
irnú. DV-myndGS
Norðurlandaþing frjálsíþróttaleiðtoga:
Umsókn Svía um
HM1995 studd
Norðurlandaþing frjálsíþróttaleið-
toga á Norðurlöndum var haldið á
Hótel Holti í Reykjavík á fóstudag
og laugardag. Þingið sóttu fulltrúar
frjálsíþróttasambanda allra Norður-
landanna og auk þess formaður og
varaformaður Fijálsíþróttasam-
bands Evrópu.
Þingið styður umsókn Svía um að
halda heimsmeistaramótið árið 1995,
en þeir hafa hug á að halda það í
Gautaborg og hafa þegar byijað und-
irbúning þess. Þá lagði þingið
áherslu á áframhaldandi baráttu
gegn misnotkun lyfja í keppni. Mál
Trinu Solberg, spjótkastara frá Nor-
egi, var mikið rætt. Trina var úr-
skurðuð í keppnisbann á þeim for-
sendum að hún hefði fallið á lyfja-
prófi, en var sýknuð í sumar þegar
í ljós kom að mistök höfðu átt sér
stað í rannsókn á sýnum.
Forseti þingsins var Örn Eiðsson,
heiðursformaöur FRÍ, en hann er á
fórum á Evrópuþing í Istanbúl á
næstunni. Ritari þingsins var Ólafur
Unnsteinsson. í þinglok afhenti Tap-
ani Illka, formaöur fijálsíþróttasam-
bands Finnlands, Magnúsi Jakobs-
syrú, formanni FRÍ, heiðursgjöf til
FRÍ, og sagði hana vera vott um að
íslendingar væru hátt skrifaðir í
fijálsíþróttaheiminum.
-VS
Afblaki:
Víkingur og Þróttur
haustmótsmeistarar
• - breytt fyrirkomulag íslandsmóts
Sól fer nú lækkandi og í húminu,
sem nú er að hrifsa völdin af degin-
um, má í æ ríkari mæli sjá laumu-
lega blakmenn á leiö sinni á æfingar
eða í kappleiki. íslandsmótið er hafið
og að baki er fyrsta hraðmót vetrar-
ins. Haustmótsmeistarar karla eru
hinir síungu Þróttarar og í flokki
kvenna eru Víkingar meistarar.
Nokkrar sviptingar hafa verið á
skipan liða og hafa heilu liðin jafnvel
gufað upp og horfið sjónum glögg-
skyggnustu manna. Dagar kvenna-
liðs Þróttar munu vera taldir og
HSK-drengir orðið að draga sig í hlé
vegna stórfellds liðhlaups, sem
karlalið Þróttar hefur notið góðs af.
Sést hefur til „fyrrum Þróttar-
stúlkna" á æfingum hjá Breiðablik
og ÍS, sem væntanlega munu eflast
við hðsaukann. En allar blakfréttir
eru sem betur fer ekki eingöngu á
þessa tætingslund því á Húsavík hef-
ur verið smalað saman hópi sprækra
stúlkna sem undir fána Völsunga
ætla sér að gera strandhögg víða um
land á vetri komanda.
Nú þegar hafa verið leiknir fimmt-
án leikir í íslandsmótinu og úrsht
hafa öll verið eins og vænta mátti.
Breiðablik, ÍS og Víkingar verða í
toppslagnum í kvennadeildinni en
Þróttarar, KA og HK-ingar í karla-
deildinni.
Fyrirkomulag mótsins er með
nokkuð öðru sniöi nú en síöustu ár.
Leikin verður fjórfóld umferð í báð-
um deildum og má því búast við
harðari slag um toppsætin.
-gje
England sækir um HM
- í knattspymu árið 1998
Enska knattspyrnusambandið á-
kvað á fundi sínum á sunnudag að
sækja um að halda heimsmeistara-
keppnina í knattspyrnu 1998. Eng-
lendingar hafa einu sinnu áður hald-
ið keppnina áöur, árið 1966 og unnu
þá keppnina eftir sögulegan úrshta-
leik gegn Vestur-Þjóðveijum á Wem-
bley-leikvanginum í Lundúnum.
Þijár þjóðir auk Englendinga hafa
sótt um að halda keppnina 1998,
Sviss, Marokkó og Frakkland. Al-
þjóða knattspymusambandið (FIFA)
gerir mjög harðar kröfur til þeirra
sem sækja um að halda keppnina og
má í því sambandi nefna að umsækj-
endur þurfa að leggja th átta leik-
velli sem rúma 40 þúsund áhorfend-
ur í sæti. Leikvöllurinn þar sem úr-
slitaleikurinn fer fram verður að
rúma 80 þúsund áhorfendur í sæti.
Umsóknarfrestur til að halda
keppnina 1998 rennur út í júní á
næsta ári en endanleg ákvörðun um
leikstað verður tekin í júlí 1992.
-JKS
Haukar unnu Njarð^
Ólrúleg
- Haukamenn voru sterkari á ta
Haukar sigruðu Njarðvíkinga, 76-74,
í ótrúlegum spennuleik í úrvalsdeild-
inni í Hafnarfirði í gærkvöldi. Loka-
mínútur leiksins voru hreint út sagt
magnþrungnar en Haukamenn reynd-
ust sterkari á taugunum og náðu að
tryggja sér sætan sigur.
Þessi liö hafa oft eldað grátt silfur
saman og leikir þeirra oftast jafnir og
spennandi og það var engin undantekn-
ing í gærkvöldi. Haukamenn léku mjög
vel í fyrri hálíleik og höfðu þá undirtök-
in. Þeir höfðu forystu í leikhléi, 44-30
en í seinni hálfleik tóku Njarðvíkingar
heldur betur við sér. Suðurnesjamenn
léku þá pressuvörn og við það lentu
Haukar í miklum vandræðum. Njarð-
víkingar jöfnuðu metin og náðu síðan
6 stiga forystu þegar 3 mínútur voru
eftir. Njarðvíkingar virtust vera með
unninn leik í höndunum en Haukarnir
neituðu að gefast upp og með mikhh
baráttu náðu þeir að komast aftur yfir,
74-73, þegar rúm mínúta var eftir.
• Bandaríkjamennirnir tveir, Mike Noble, hjá Haukum og Rod Robinson, hjá t
gærkvöldi.
Heimaleikur FH 2. n
- mætir Besiktas í Istanbul viku
FH-ingar hafa komist að samkomu- „Mér skilst að forráðamenn deildar-
lagi við tyrkneska félagið Besiktas um innar hafi viljað leika báða leikina hér
leikdaga félaganna í 2. umferð Evrópu- á landi en Tyrkimir hafi ekki tekið vel
kepprd meistaraliða 1 handknattleik. í þá thlögu. Tyrkir eru ekki hátt skrif-
FyrrileikurinnveröurháöuriHafhar- aðir í handboltaheimhium og þvi má
firði 2. nóvember en sá síöari í Istan- ætla að við eigum greiöan aögang í 3.
bul viku síðar, eöa 9. nóvember. umferð kepninnar með eðlilegum leík.