Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1990, Blaðsíða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1990.
Nýr hljómur orða
Á hádegi þann 16. ágúst sl. voru
þeyttir þokulúðrar í flotastöðinni
WOhelmshaven og orrustuþotur
flugu lágflug yrir hana. Deild tund-
urduflaslæðara, ásamt birgðaskipi,
var að leggja úr höfn. Samtals 385
þýskir hermenn hófu hér ferð sína
til austurhluta Miðjarðarhafs, allir
um borð voru með „fiðrildi í mag-
anum“ eins og Georg Buss, skip-
herra eins slæðarans, oröaði það.
Yfirmaður þýska flotans ræddi
um stríðsátök og viuk tundurdufl
og sagði að „endir og útkoma fram-
lags þessa væru óviss“. Orðlausir
föðmuðu foreldrar syni sína á hafn-
arbakkanum, börn teygðu út hand-
leggina og kölluöu á pabba um leið
og trossurnar voru dregnar inn.
Milli kvenna með föla, vota hvarma
stóð foringi í grænum stríðsklæðn-
aði og með rauða alpahúfu, strauk
augun í sífellu. Hann var ekki ein-
asti maðurinn sem grét.
Á heimili Angeliku Mann hangir
ekki ein einasta mynd af herskipi
þrátt fyrir að eiginmaður hennar,
skipherra slæðarans Marburg, hafi
verið 12 ár í flotanum. Þannig sagð-
ist tímaritinu Stern frá 23. ágúst sl.
Framleitt í Þýskalandi
Sjóliðarnir höfðu aldrei borið
eins mikið af sjúkragögnum um
borð eins og fyrir þessa ferð. Þá
voru teknar birgðir af fjarritapapp-
ír til margra mánaða, aukabirgðum
af skotfærum komið fyrir og bún-
ingar til varnar efna-, sýkla- og
kjarnavopnum í snatri útvegaðir,
málmmerkjum með kennitölu út-
býtt til allra.
Á leiðinni skyldi æft gegn bruna,
leka og efnavopnaárás. Með vift-
um, sem draga loft um síur, er
hægt að halda yfirþrýstingi undir
þiljum og skipinu þannig ómeng-
uðu. Eftirhtssveit í hlífðarbúningi
má síðan senda meö mælitæki út
um loftlás til könnunar ofan þilja.
írakar eiga í Samarra efnavopna-
KjaUaiiim
Jón Hjálmar Sveinsson,
fyrrv. sjóliðsforingi
fyrir sér hvað gera skuli leggi írak-
ar tundurdufl úr flugvélum í Súes-
skurð eða Persaflóa og kalli Bush
á meiri hjálp.
Þeir telja ekki eftir sér að senda
hermenn í stað þess að sitja örugg-
ir heima og taka einungis þátt í að
borga brúsann en telja þó að stjórn-
arskrárbreytingu þurfi til eigi
Þjóðverjar að taka beinan þátt í
styrjöld sem ekki snýst um vamir
Þýskalands og yrði ekki einu sinni
háö á svæði því sem NATO-sátt-
málinn nær til.
Þeir eru þakklátir Bush og Thatc-
her, en þó fyrst og fremst Gor-
batsov, fyrir sameiningu Þýska-
lands, horfa til Bush sem yfirveg-
aðs forustumanns sem á þessari
stundu eigi stuðning skilinn. Þeim
stendur hins vegar beygur af sjálf-
„Herkostnaður Bandaríkjamanna hef-
ur verið greiddur með Qárlagahalla
sem Þjóðverjar hafa lánað þeim fyrir.
Stór hluti þróunarstarfs bandarísks
vopnaiðnaðar fer fram á japönskum
rannsóknastofum..
verksmiðju, búna tækjum fram-
leiddum í V-Þýskalandi. Á æfing-
um í tundurduflaeyðingu er hluti
áhafnarinnar í höggvörðum sæt-
um, hinir liggja fyrir til að draga
úr hættu á beinbrotum skyldi dufl
springa nálægt. Samt getur slík
sprenging drepið alla áhöfnina en
skilið skipið nothæft eftir.
Stjórnarskráin setur mörk
Þegar árið 1987 komst þýska
herráðið að því að væri þýskum
kaupförum ógnað þá væri ekkert í
þýskum lögum sem hindraði Þjóð-
verja í að taka að sér tundurdufla-
slæðingu á alþjóðlegum siglinga-
leiðum. Þjóðverjar velta hins vegar
skipuðu heimslögregluhlutverki
Bandaríkjamanna sem sýnt hefur
sig í frumhlaupum gegn Panama,
Grenada og Líbýu, hlutverki sem
þeir hafa hvorki efni, tæki né menn
til að gegna lengur.
Herkostnaður Bándaríkjamanna
hefur verið greiddur með fjárlaga-
halla sem Þjóðverjar hafa lánað
þeim fyrir. Stór hluti þróunarstarfs
bandarísks vopnaiðnaðar fer fram
á japönskum rannsóknastofum og
11% bandarískra hermanna í
Saudi-Arabíu eru konur. Þjóðverj-
ar vilja stjórnarskrárbreytingu
sem heimili framlag þýskra her-
manna utan Þýskalands og ann-
arra NATO-landa en þá 'einungis
AUKABLAÐ
UTANFERÐIR
Á morgun mun 16 síðna aukablað
um ferðir til útlanda fylgja DV.
í blaðinu verður sagt frá því
helsta sem ferðaskrifstofurnar
bjóða upp á í vetur.
*
Itarlegar upplýsingar verða um
hina svokölluðu 7/borgarpakka" og
einnig verða greinar um Flórída,
pöbba í London, borgir á Ítalíu
o.fl. o.fl.
A morgun AUKABLAÐ, 16 síður
FERÐIR TIL ÚTLANDA
„.. .385 þýskir hermenn hófu hérferö sína til austurhluta Miöjaröarhafs."
undir merki Sameinuðu þjóðanna.
í fyrsta skipti í 45 ár eru mæður
þýskra hermanna óttaslegnar og
sjálft orðið „hermaður“ finnst að-
standendum áhafna þýsku tundur-
duflaslæðaranna að hljómi allt í
einu öðruvísi.
Konur axla skyldur
í sjálfu sér er ekkert neikvætt við
að konum skuli fjölga í Bandaríkja-
her en það er rangsleitni að þeim
skuh þar vera neitað um bardaga-
stöður og það á þeirri fölsku for-
sendu að með því sé verið að foröa
þeim frá hættu. í Kanada, Belgiu,
Hollandi, Danmörku og Noregi
mega konur þjóna í bardagastöðum
herja. Norsk kona hefur flogiö kaf-
bátaleitarvél og hollensk orðið orr-
ustuflugmaður.
Heiðarleiki og meðvitund um
réttindi og skyldur eru afgerandi
fyrir góðan hermann, ekki kyn.
Hræðsla er eðlileg. í byijun átt-
unda áratugarins þyrptu Sovét-
menn skyndilega herafla að Norð-
ur-Noregi. Skipherra tundur-
skeytabáts, sem sendur var í veg
fyrir flotann, sagði sjóliða sína, 18
ára drengi, hafa vætt buxumar en
engu að síður mannað vopnin
reiðubúnir.
Nokkrir foringjar úr norska
landhernum gerðust liðhlaupar við
þetta tækifæri og fóru til Svíþjóðar.
Árið 1982 fékk svo foringi í norska
landhernum fyrirvaralaust að
hætta gegn greiðslu hárrar fjár-
hæðar og starfsmannaráð land-
hersins sló þagnarskildi yfir málið.
Viðsjár, sem nú í Miðausturlönd-
um, sanna að konur eru engu síöri
menn en karlmenn.
Jón Hjálmar Sveinsson
Mermiiig____________________________________
Days Of Thunder - Úr kvikmynd:
Myndina vantar!
Sú tilhneiging aö spyrða saman tónlist og kvikmyndir færist sífellt í
vöxt og er svo komið aö vart er framleidd sú kvikmynd að ekki komi út
sérstök plata með tónlistinni í kvikmyndinni enda lögin þar oftsinnis í
bakgrunni og í glefsuformi.
Days Of Thunder er ein þessara mynda en hún er nú til sýninga hér á
landi meðal annars. Og hún er einmitt mjög gott dæmi um vel heppnaða
tengingu milli plötu og myndar því eitt lagið á plötunni/úr myndinni er
á toppi breska vinsældarlistans og hefur auðvitað sitt að segja um aðsókn
að myndinni.
Þetta lag er sungið af fyrrum söngkonu hljómsveitarinnar Lone Justice,
Mariu McKee, og heitir Show Me Heaven, virkilega fallegt lag og heldur
Nýjai plötui
Sigurður Þór Salvarsson
þessari annars sundurleitu plötu uppi að mínu mati.
Það hefur nefnilega ávallt verið Akkilesarhæll þessara kvikmynda-
platna aö þar hefur öllum fjandanum ægt saman og sú tenging sem kann
að vera til staðar er í myndinni sem ekki fylgir plötunni, því miður.
En hér er margt um stjömurnar, David Coverdale syngur prýðisgott
lag, The Last Note Of Freedom, Tina Turner skeiðar í gegnum eitt af
þessum formúlu rokklögum og sama gera Cher, Chicago og Joan Jett &
The Black Hearts. Elton John syngur eina ballöðu a la Elton John og svo
er bráðskemmtileg útsetning Guns ‘N‘ Roses strákanna á gamla Dylan
laginu, Knockin’ On Heavens Door. Að auki eru minni spámenn með í
för en þeir gera ekkert merkilegt af sér.
Þaðmá vel vera að þessi plata öðlist nýtt og meira líf við það að fara og
sjá myndina en ein og sér er hún ósköp lítilfjörleg.