Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1990, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1990.
27
DV LífsstíU
Helgi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Eldvérks hf.:
Jónískir reyk-
skynjarar eru betri
„Aðferðimar, sem notaðar eru til
að skynja reyk, eru einkum tvær.
Önnur er svokölluð jónísk aðferð þar
sem notað er örlítið af geislavirku
efni í skynjarana. Þá verður til jónun
í sérstöku skynjunarhólfl þar sem
plús- og mínusagnir era á fleygiferð
fram og aftur. Svo þegar reykagnir,
hvort sem þær eru sýnilegar eða
ósýnilegar, fara inn í þetta hólf truíla
þær flæðið á þessum jónum og skynj-
arinn gefur merki um að eitthvað sé
á ferðinni sem ekki á að vera. Þetta
þýðir það að jónískir reykskynjarar
Neytendur
geta gefiö merki um bruna sem ekki
er enn orðinn að eldi. Það getur þá
verið eitthvað byijað að bráðna sem
veldur ekki strax sýnilegum reyk“,
segir Helgi Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Eldverks hf. í Ármúia.
Hann selur bæði geislavirka og
ógeislavirka reykskynjara og telur
að fólki stafi lítil hætta af báðum.
„Eins getur þessi skynjari numið
bráðdrepandi lofttegundir frá ýms-
um gerfiefnum áður en um eiginleg-
an eld eða sýnilegan reyk verður að
ræða.
Hin tegundin af reykskynjuram er
með fótósellu, ljósnema. Þá er um
að ræða svipaða aðferð og notuð er
á karlaklósettum á skemmtistöðum.
Þegar menn labba að salernisskál-
inni fer vatnið sjálfkrafa að renna
þegar menn ganga fyrir ljósgeisla
sem hafður er yfir skálunum.
í reykskynjurum virkar þetta
þannig að í sérstöku hólfi á skynjar-
anum er ljósgjafi sém sendir frá sér
ljósgeisla sem ljósnemi skynjar. Ef
það koma svo reykagnir þarna á
milh, sem trafla ljósmagnið sem
neminn skynjar, þá fer reykskynjar-
inn í gang.
Ljósnemaskynjarinn þarf sýnileg-
.Ljósnemaskynjarinn þarf sýnilegan reyk en jóníski skynjarinn ekki,“ segir Helgi Guðmundsson.
an reyk en jóníski skynjarinn ekki.
Það benda flestar eða allar rann-
sóknir til að geislavirki skynjarinn
nemi fleiri tegundir af reyk eða loft-
tegundum sem myndast við bruna
fyrr en ljósnemaskynjarinn. þetta er
ástæðan fyrir því að jóníski skynjar-
inn er talinn vera betri,“ sagði Helgi.
Hann sagði ennfremur að ef fólk
vildi samt sem áður skipta úr geisla-
virkum skynjara yfir í ljósnema-
skynjara, þá tækju þeir hjá Eldverk
hf. geislavirka skynjara upp í hina
ljósnæmu, svo fremi þeir hafi verið
keyptir hjá þeim.
-hge
Raymond Urbschat:
Sigurður misskilur
hlutverk sitt
„Ég held að maðurinn misskilji
starf sitt. Það er að sjálfsögðu hlut-
verk hans að halda fólki frá hlutum
sem eru á einhvem hátt geislavirkir
en ekki að reyna að réttlæta notkun
geislavirkra hluta, í þessu tilviki
reykskynjara. Hann ætti frekar að
benda fólki á að til séu annars konar
reykskynjarar og mæla með notkun
þeirra,“ sagði Raymond Urbschat
eðlisfræðingur í samtah við DV og á
þar við Sigurð Magnússon, forstöðu-
mann Geislavarna ríkisins.
Sigurður sagði í samtah við DV í
síðustu viku að notkun reykskynjara
væri ekki heimiluð ef menn hefðu
ástæðu th að ætla að þeir sendu frá
sér geislun sem væri yfir hættu-
mörkum.
„Ætti ekki maður, sem hefur yfir-
umsjón með dreifingu geislavirkra
efna í landi sem ætlar að gerast fyrir-
mynd í umhverfismálum, að ráð-
leggja fólki eindregið að nota annars
konar tæki ef þau eru fyrir hendi, í
stað þess að fuhyrða að geislavirkt
efni bjargi mannslífum? Það er held-
ur ekki rétt hjá honum að Am-efnið
sé í lokuðu og þéttu hólfi því ef svo
væri myndi tækið ekki skynja reyk.
Það sem máh skiptir er að Am
verður th úr plútoníum og aldrei
hreinsað 100% þannig að ef íslend-
ingar halda áfram að flytja inn plú-
toníum eftir þessum leiðum þá er
plútoníum, sem hingað kæmi sjóleið-
is frá Dounray, „bara eitthvað htið“
sem ekki tæki að mótmæla,“ sagði
Raymond. -hge
Geislavamir ríkisins taka á
móti notuðum reykskynjurum
„Þeir reykskynjarar, sem era hér
á markaði, innihalda örlítiö af Am-
ericium 241 og samkvæmt þeim regl-
um, sem ghda um meðferð á geisla-
virkum úrgangi í fóstu formi, er þetta
innan þeirra marka sem má fara með
venjulegu sorpi,“ sagði Sigurður
Magnússon, forstöðumaður Geisla-
varna ríkisins.
„Ef fólk ætlar að fara að fleygja
reykskynjurum í miklu magni er það
svo annað mál. Ef menn vilja skipta
út reykskynjuram og losna við þá
gömlu án þess að henda þeim þá tök-
um á móti þeim hér. Við munum svo
sjá um að losa okkur við þá með
þeim hætti að blaðamenn þurfa ekki
aö hafa af því áhyggjur;" sagði Sig-
urður.
-hge
Neytendasiðunni hefur borist veriö fluttar inn af þeim nema
fyrirspurn um það hvort bóta- framleiðendur erlendis krefðust
skylda umboöa á gahaðri vöra falli fuhkominnar ábyrgðai' á vöranni.
niður ef aðrir en umboöið flytja Ihns vegar er það á valdi viðkom-
vöruna ínn. andi umboðsmanna hér hvort þeir
Við leituðum álits Jóns Magnús- veita þaö góöa þjónustu á shmi
sonarlögmannsá þessu máli. Hann vöru að viðskiptamaðurinn geti
kvað það ekki lagalega skyldu um- reitt sig á umboðið.
boðs að bæta vörur sem ekki hefðu -hge