Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Side 5
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990.
5
Viðtalið
Fréttir
Múlagöngin í notkun um helgina
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Langþráður draumur Ölafsflrð-
inga rætist á sunnudag, en þá verða
jarðgöngin í Ólafsíjarðarmúla opnuð
fyrir umferð. Ekki er um formlega
opnun að ræða enda eftir að leggja
lokahönd á frágang í göngunum.
Krafttaksmenn, sem hafa unnið við
gerð ganganna, og Vegagerðarmenn
munu einungis takast í hendur, og
jafnvel stendur til að samgönguráð-
herra aki fyrstur manna í gegn.
Göngin verða opin fram yfir áramót
en tahð er að loka þurfi þeim í stutt-
an tíma eftir ármótin vegna lokafrá-
gangs en reynt verður að halda þeim
týna í lágmarki.
Jarðgöngin í Múlanum eru 3140
metrar að lengd og um 3400 metrar
með vegskálum og eru því lengstu
jarðgöng hér á landi. Til saman-
burðar má nefna að Strákagöng eru
783 metra löng og göngin í Odds-
skarði eru 635 metrar.
Göngin eru 5 metra breið og hæðin
5,4 metrar. í þeim er ein akrein en
útskot til mætinga eru með 160 metra
bih. Eyjafjarðarmegin er ganga-
munninn 125 metra yhr sjó en Ólafs-
fjarðarmegin 70 metra yfir sjó. Göng-
in eru upplýst og með bundnu slit-
lagi. Vegskálarnir eru með tveimur
akreinum og er lengd þeirra Ólafs-
fjarðarmegin 165 metrar en 90 metrar
Eyjafjarðarmcgin.
Göngin liggja að mestu í um það
bil 12 milljón ára gömlum basaltlög-
um sem eru um 10 metra þykk að
meðaltali, og voru göngin aðallega
styrkt með sprautusteypu og berg-
boltum.
Krafttak sf., sem er sameignarfélag
norska verktakafyrirtækisins Aker
Contractors og Ellerts Skúlasonar,
hefur séð um framkvæmdir við
gangagerðina. Þær hófust í septemb-
er 1988, en yfirstjórn verksins hefur
verið í höndum Vegagerðar ríkisins.
Nafn: Ingibjörg Pálmadóttir
Aldur: 41 árs
Staða: Forseti bæjarstjórn-
ar Akraness
Ingibjörg Pálmadóttir mun
leiða lista Framsóknarflokksins á
Vesturlandi í komandi kosning-
um. Ingibjörg var valin í fyrsta
sætið á aukakjördæmisþingi
Framsóknarflokksins sem haldið
var í Borgarnesi á dögunum. Hún
er forseti b'æjarstjórnar Akraness
og hefur setið í bæjarstjórn í 8 ár.
Ingibjörg er fædd og uppalin á
Hvolsvehi og á ættir sínar að
rekja til Rangárvahasýslu. Hún
gekk í gagnfræðaskólann að
Skógum og lauk síðan prófi í
hjúkrunarfræðum árið 1970. Aht
frá þeim tíma hefur Ingibjörg
starfað við Sjúkrahúsið á Akra-
nesi, „af og til frá 1970,“ eins og
hún segir.
Öfgaleysló
heillar mig
Sem fyrr segir hefur Ingibjörg
setið í bæjarstjóm í 8 ár, en tekið
þátt í stjómmálum frá 1978. „Ég
man ekki eftir mér öðmvísi en
með áhuga á stjórnmálum og því
sem er að gerast í kringum mig.“
Ingibjörg segir að Framsóknar-
flokkurinn hafl heillað sig með
öfgaleysi. „Það eru hvorki öfgar
til hægri né vinstri í Framsóknar-
flokknum," segir hún. Kosninga-
baráttuna segir Ingibjörg verða
harða. „Hún verður bæði hörð
og erfið en ég hlakka til að takast
á yiö hana.“
Áhugamál Ingibjargar ’eru
margvisleg. „Ég er nú gift kona
og hef mestan áhuga fyrir þvi og
að vera þaö áfram. En annars hef
ég æði mörg áhugamál. Stjórn-
máhn taka náttúrlega mjög mik-
inn tíma og ef ég væri ekki komin
svona á kaf í þau þá hefði ég mik-
inn áhuga fyrir mínu starfi sem
hjúkrunarfræðingur. Ég hef orð-
iö að láta það vikja fyrir hinu.“
Mikil
útívistarmanneskja
Fyrir utan stjórnmálin og
hjúkrun hefur Ingibjörg mikinn
áhuga á útivist alls konar. „Ég
nýt þess að ganga úti í hvernig
veðri sem er og ég nýt þess að
synda. Síðan finnst mér sérstak-
lega gaman af að vera með krökk-
unum mínum og fæ mikið út úr
því að vera með unglingum."
Ingibjörg segist ekki vera með
bíladellu, en hins vegar.á hún
bíl. „Ég er nú að spá í hvaða bíl
ég á á þessu heimili. Það er einn
á heirailinu nýkominn með bíl-
próf svo ég er nú eiginlega bara
á hjóli. Annars á ég Toyota árgerð
1984. Ég er mjög ánægð ef bihinn
fer í gang og þaö nægir mér.“
Rjúpur eru vinsælar á jólunum
hjá Ingibjörgu. „En eftir því sem
árin höa kann ég alltaf betur og
betur aö meta fisk. Ég borða mik-
inn fisk og verð náttúrlega gasa-
lega spræk af honum."
Ingibjörg er gift Haraldi Stur-
laugssyni utgerðarmanni og þau
eiga fjóra syni á aldrinum eins til
sautján ára. ns
CES verilaunin 1990 lyrir
tœkni og hönnun.
TÆKNIVERSLUN
Laugavegi 89»Sími91-613008
Gangið í JVC VideoMovie klúbbinn
ef þib eigib JVC VideoMovie vél.
VHS: Heimsmál myndbondanna
GR-AX7 lófavélin frá JVC
m m "mm m m ■ m .
m, K' ■ m ■ fe
Tökuvélin sem
Þaö sem gerir GR-AX7 vélina svona frábœra er smœö
hennar, hönnunin og sú staöreynd, aö litla VHS snceldan gengur í
hvaöa VHS tœki* sem er. GR-AX7 lófavélin - Vélin sem smellur
í lófann, myndbandstcekiö og aö lífsmátanum.
O* meb snælduhylki
VIUUUIIIUVIU LVHSia
GR-AX7 videomovie er þœgileg
og einföld í meöförum.
C
Kann alltaf
beturog betur
að metafisk
Siii —.... I .■ *
Hvaö er þaö sem skiptir mestu
máli í sambandi viö tökuvél?
Aö hún sé handhœg.
Ertu undrandi á því?
Prófaöu GR-AX7 lófavélina
og þá veistu hvaö viö meinum.
GR-AX7 videomovie hrífur
þig meö hvert sem er
- hvenœr sem er.
Helstu tækniatriöi: 5 lúx, 760 grömrn^
1 /4000 lokhraöi, sjálfvirk/handvirk skerpa,
. 8 lita myndblöndun, breibtjald,
aukafjarstýring fyrir teiknimyndagerð,
hljóbsetningu o.fl.