Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1991, Side 24
24
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991
LífsstHL
Hreinn appelsínusafi má alls ekki vera bragðbættur né útþynntur með
neins konar aukaefnum.
Hreinn appelsínusafi:
Ekki eins hreinn
og menn halda
Hér á landi er til mikill í]öldi teg-
unda af hreinum appelsínusafa. Á
markaðnum ríkir mikil samkeppni
um hylli kaupenda, enda selst
hreinn appelsínusafi í miklum
mæli hér á landi. Á tímum hollustu
og heilsuverndar þykir hreinn app-
elsínusafi vera góður og hollur
drykkur. Á umbúðum eru yfirleitt
staðhæfingar um að safinn sé
hreinn appelsínusafi eða „pure or-
ange juice". En er hægt að treysta
þessum merkingum?
Ef tekið er mið af könnun opin-
berrar nefndar í Bretlandi er sjald-
gæft að fmnist ferna frá nokkru
fyrirtæki sem uppfylhr þær kröfur
að vökvinn sé hreinn appelsínu-
safi. í Bretlandi stendur neytend-
um til boða 21 tegund af hreinum
appelsínusafa. Aðeins fimm þeirra
eru það í raun og veru. Hinar 16
tegundirnar eru útþynntar eða
bragðbættar með ýmsum teghind-
um.
Þar má nefna ýmsar tegundir
sykurs, kornsíróp og ýmsar aðrar
bragðtegundir sem fyrirfinnast
ekki i appelsínum. Landbúnaðar-
ráðherra Breta, John Gummer,
hefur verið harðorður í garð fram-
leiðenda og fer fram á umbætur.
Flestir framleiðendanna, sem stóð-
ust ekki prófið, lofa bót og betrun.
í þessu sambandi er ekki verið að
segja að varan sé endilega óholl þó
hún innihaldi ekki alveg hreinan
appelsínusafa. Hins vegar er óleyfi-
legt að halda fram ósannindum
utan á umbúðum og það er refsi-
vert athæfi.
Þær tegundir sem stóðust prófun-
ina í Bretlandi voru appelsínusafi
frá „Del Monte“, „De L’Ora“, „Wai-
tress“, „St. Ivel“ og „Stute“. í Bret-
landi einu drekka landsmenn app-
elsínusafa fyrir jafnvirði rúmra 73
milljarða íslenskra króna. Ef sú
tala er heimfærð yfir á íslenska
neyslu og miðað við að hver ís-
lenskur þegn drekki til jafns við
breskan samsvarar það um 320
milljónum króna. Það er því mikið
í húfi fyrir hvem framleiðanda að
hafa sína framleiðslu á hreinu.
ÍS
Geislar frá halogenlömpum:
Geta verið
skaðlegir
-við mikla og langvarandi notkun
Halogenlýsing hefur smám saman
náð auknum vinsældum fram yfir
venjulega lýsingu, bæði á heimilum
og vinnustöðum. Ýmislegt hefur orð-
ið til þess að halogenljós eru tekin
fram yfir önnur. Nú hafa hins vegar
komið fram efasemdir um ágæti ha-
logenljósa. Talið er að þau geti valdið
augnskaða og jafnvel húðkrabba hjá
fólki sem notar mikið halogenlýs-
ingu.
Neytendur
Halogenlýsing hefur verið tekin
upp á mörgum vinnustöðum. Halog-
enlampar hafa einnig verið notaöir
mikið á heimilum. Þessi lýsing er
talin hafa ýmislegt framyfir venju-
lega lýsingu. Fyrst má nefna að hún
eyðir mun minna rafmagni. Perur í
halogenlömpum endast auk þess
mun lengur en aðrar og lýsingin hef-
ur í mörgum tilfellum verið talin
betri og jafnari.
Vandamálið er það að halogenljós
gefur frá sér útfjólubláa geislun. Al-
veg eins og útfjólubláir geislar sólar-
innar geta valdið húðkrabba, geta
geislar halogenlampanna það einnig.
Auk þess er talið að hornhimna aug-
ans eigi á hættu að skemmast af völd-
um útfjólublárra geisla. í Svíþjóð
hefur verið töluverð umræða um
skaðsemi halogenlampa.
Töluvert uppistand varð vegna
þessarar umræðu þar í landi fyrir
nokkrum vikum en heldur hefur þó
hægst um. Það má meðal annars
rekja til yfirlýsingar sænsku ríkis-
Þó að engin verndarhlíf sé á þessum halogenlampa er Ijósið þó nægilega
langt frá borðinu til þess að lýsingin valdi engum skaða.
stofnunarinnar sem sér um verndun
þegnanna gegn geislun. Hún kvað
upp úr um það að hættan á skaða
af völdum útfjólublárra geisla í ha-
logenlömpum væri hverfandi.
Lýsing frá halogenlampa á húö
þyrfti að vera mjög mikil og langvar-
andi til þess að hún næði að hafa
skaðvænleg áhrif. Auk þess væru
halogenlampar með hlífðargleri al-
veg skaðlausir. Hins vegar bæri að
vara fólk með mjög viðkvæma húð
við að nota of mikið halogenlýsingu.
í Svíþjóð eru ekki til neinar reglur
um hlífar á halogenlampa, frekar en
hér á landi. Hins vegar er reglugerð
í gildi í Bandaríkjunum þar sem
skylda er að hafa hlíf á öllum halog-
enlömpum.
Full ástæða er til þess að vara fólk
við að hafa lýsingu af halogenlampa
of nálægt andliti eða húð í langan
tíma í senn. Sé þess gætt ætti hættan
af halogenlömpum að vera hverf-
andi. . ÍS