Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Qupperneq 8
FÖSTUDAGUR 2. ÁGtJST 1991.
LífsstOl
VINBER
-7%
SVEPPIR
0%
3
li
565 398
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Verðmismunur á
vínberjum 232%
- meðalverð á papriku hækkar um nær helming
Neytendasíöa DV gerði að venju
könnun á grænmetisverði í gær,
fimmtudag. Kannað var verð í fimm
verslunum: Fjarðarkaupi, Hafnar-
firði, Bónusi, Skútuvogi, Miklagarði
við Sund, Kjötstöðinni í Glæsibæ og
Hagkaupi í Skeifunni.
Athygli er vakin á því að Bónus-
búðimar selja grænmeti í stykkjatali
en hinar búðimar selja það eftir vigt.
Til að fá marktækan samanburð á
milli þessara verslana er grænmetið
í Bónusi því vigtað og umreiknað
eftir meðalþyngd yfir í kílóverð.
Að venju eru nokkrar sveiflur á
grænmetismarkaðinum. Verð á
flestu grænmeti hefur eitthvaö lækk-
að frá síðustu viku en verð á hvít-
káh, gulrótum og tómötum hefur
hækkað.
Það sem vekur helst athygli er að
verð á grænni papriku hefur lækkað
að meðaltah um 42% frá fyrri viku
og kostar nú að meðaltali 273 krónur
kílóið í stað 457 króna áður. Papriku-
verðið var hæst í Kjötstöðinni, þar
sem þaö var 396 krónur kílóið, en
lægst var það í Bónusi, eða 146 krón-
ur kílóið. Mismunur á hæsta og
lægsta verði er nokkuð mikill, eða
171%.
Gulrætur hafa hækkað um 38% að
meðaltah frá síðustu viku. Meðal-
verð þeirra er 257 krónur kílóið.
Hæst verð á gulrótum er í Fjaröar-
kaupi þar sem kílóverð á gulrótum
er 359 krónur. Lægst er verðið í Bón-
usi, 146 krónur kílóið. Mismunur á
hæsta og lægsta verði er 146%.
Gífurlegur verðmismunur er á
grænum vínberjum mhh verslana.
Hæst er verðið í Miklagarði, 498
krónur kílóið, en lægst í Bónusi, 150
krónur kílóiö. Munurinn þarna á
milh er heil 232%. Meðalverð grænna
vínberja er 355 krónur og er það 7%
lækkun frá síðustu viku.
Það er nokkuð vandasamt að
kaupa sér kartöflur þessa dagana.
Flestar búðir bjóða bæði upp á gaml-
ar kartöflur á lágu verði og nýjar sem
eru mun dýrari. Best er að spyija
afgreiðslufólkiö nákvæmlega um
verðmismuninn og hvaða kartöflur
eru nýjar því merkingum er iðulega
ábótavant.
DV bar saman verð á gömlum kart-
öflum í tveggja kílóa pokum. Þar er
Fjarðarkaup með lægsta verðið, eða
29,50 krónur khóið, og Kjötstöðin í
Glæsibæ með hæsta veröið, eða 89
Það munar töluvert miklu á verði grænna vinberja í verslunum borgarinn-
ar, eða 232%.
krónur kílóið. Verðmismunurinn er
mikill, eöa 201%. Meðalverð eldri
kartaflna hefur lækkað um 16% frá
síðustu viku. Verð á nýjum kartöfl-
um er einnig afar mismunandi.
Fjarðarkaup er meö ódýrustu nýju
kartöflurnar. Þar kostar tveggja
kílóa poki 150 krónur. Dýrastur er
tveggja kílóa poki í Kjötstöðinni, 325
krónur.
Verðmismunur á gúrkum milli
verslana er 137%. Dýrastar eru þær
í Kjötstöðinni á 298 krónur kílóið en
ódýrastar í Bónusi á 126 krónur.
Meðalverð gúrkna er 209 krónur
kíióið og hefur það lækkað um 15%
frá síðustu viku.
Blómkál hefur einnig lækkað um
23% að meöaltah. Meðalverö þess er
219 krónur kílóiö. Dýrast er blómkál-
ið í Kjötstöðinni, 298 krónur, og ódýr-
ast í Fjarðarkaupi, 147 krónur, og er
mismunurinn 103%.
Tómatar hafa hækkað að meðaltah
um 5% frá því í síöustu viku. Meðal-
talsverðið af kílói af tómötum er 310
krónur. Lægstir eru þeir í Bónusi á
228 krónur kílóið en hæstir í Kjöt-
stöðinni, 349 krónur kílóið. Mismun-
ur hæsta og lægsta verðs er 53%.
Hvítkál hefur einnig hækkað um
16% að meðaltah. Mismunur á hæsta
og lægsta verði er 40% en það er
hæst í Miklagarði þar sem það kostar
250 kílóið og lægst í Hagkaupi á 179
krónur kílóið. Meðalverðið á hvitkáh
er 221 króna kílóið.
Sveppaverð reyndist mjög svipaö í
öhum búðunum nema í Bónusi þar
sem sveppir eru langódýrastir.
Sveppimir voru dýrastir í Hagkaupi,
á 565 krónur kílóið, næstdýrastir
voru þeir í Kjötstöðinni, 564 krónur
kílóið. Svo komu Fjarðarkaup og
Mikligarður og var verðið á sveppun-
um þar 545 krónur kílóið. í Bónusi
var hins vegar hægt að fá sveppi á
398 krónur kílóið og munar 42% á
hæsta og lægsta verði. Munur á með-
alverði sveppa frá fyrri viku er hins
vegar óverulegur.
' -BÓl
Sértilboð og afsláttur:
Grillkol og gos fyrir helgina
I Bónusi er hægt að fá 1 'Á lítra af
Sinalco á 79 krónur. Þar eru einnig
Royal Oak grhlkol á sérstöku thboös-
verði. Stór poki af kolum með 4,5
kílóum kostar 280 krónur. í Bónusi
má einnig kaupa 1 kíló af Amo kom-
flögum á 89 krónur og 390 gramma
box af hrásalati frá Salathúsinu á 99
krónur.
Kjötstööin í Glæsibæ býöur 20%
afslátt á Cameha dömubindum af
öhum stærðum. Þar er einnig hægt
að kaupa 26 stykki af A-plus bleium
fyrir 9-18 kílóa böm á 398 krónur.
20% afsláttur er á umhverfisvænu
Gité þvottaefni. 3 kíló af þvottaefninu
kosta 624 krónur. Á tilboösvegg Kjöt-
stöðvarinnar er einnig boðið upp á
375 kg pakka af Havre Fras morgun-
komi á 189 krónur.
í Miklagarði eru Perri kartöfluhög-
ur á sértilboði. 90 gramma poki kost-
ar 99 krónur. Þar er einnig hægt að
fá 800 grömm af Hy-Top tómatsósu á
99 krónur og 4 stykki af Tapir eld-
húsrúllum á 189 krónur. Þar er svo
og boðið upp á 500 gramma kafSpoka
frá Cirkel, bæði rauða og brúna, á
169 krónur.
Á thboðstorgi Fíaröarkaups er
hægt að fá 4 bréf af Honig bollasúp-
um fyrir útheguna á 77 krónur. Þar
er einnig boðið upp á 100 gramma
Tuc kexpakka meö ýmsu bragði á 39
krónur og Jacob’s fig roll, gráfíkju-
kex, á 83 krónur. Samodan rauðkál
er á tilboðsverði í Fjarðarkaupi og
kostar 600 gramma glerkrukka 99
krónur.
Hagkaup býður melónur á thboðs-
verði þessa vikuna. Vatnsmelónur
kosta 129 krónur kílóiö en gular
melónur 139 krónur kílóið. 300
gramma dós af Maling sveppum
kostar 69 krónur. í Hagkaupi má
einnig kaupa kók og diet-kók í kipp-
um. 18 hálfs lítra höskur kosta 1062
krónur, eða 59 krónur stykkið. Þar
er að auki boðiö upp á háifan kjöt-
skrokk í poka og kostar kílóið aðeins
339krónur. -BÓl
Vfnber
«
500 Verð í krómun
A_____fi5
Jan. Feb. Mars Apríl Mai Júnl Juli Águst
Paprika
Veró í krónum
273
Jan. Feb. Mars April Mai Júni Júll Ágúst