Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Page 10
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991.
10
Utlönd
James Baker, utanríkisráóherra Bandaríkjanna, tókst í gær að sannfæra
Shamir, forsætisráðherra ísraels, um ágæti friðarráðstefnu um Mið-Austur-
lönd. Símamynd Reuter
PLO:
Engin mála-
miðlun um ff ull-
trúa Palestínu
- ísrael féllst á friðarráðstefnuna í gær
Háttsettur embættismaður Frels-
issamtaka Palestínu, PLO, sagði í
morgun að ekki væri hægt að gera
neina málamiðlun um fulltrúa Pal-
estínumanna á friðarráðstefnu um
Mið-Austurlönd sem risaveldin
standa að en hann gekk þó ekki svo
langt að krefjast beinnar þátttöku
PLO.
„Það sem PLO hefur komið áleiðis
til Bandaríkjanna fyrir milligöngu
Breta er að við mundum með ánægju
taka þátt í friðarráðstefnu og gera
allt sem í okkar valdi stendur til að
koma á friði í Mið-Austurlöndum,“
sagði Bassam Abu Sharif, póhtískur
ráðgjafi Yassers Arafats, í viðtali við
breska útvarpið, BBC.
Abu Sharif sagði að það yrði „vand-
ræðalegt" ef stjómvöld í Washington
leyfðu Yitzhak Shamir, forsætisráð-
herra ísraels, að velja palestínska
fulltrúa á ráðstefnuna.
Þegar hann var spurður nánar um
hverjir ættu að tala fyrir munn Pal-
estínumanna þegar ísraelsmenn
neituðu að ræða við PLO og araba
frá Austur-Jerúsalem sagði Abu Sha-
rif að Palestínumenn yrðu að ákveða
það sjálfir.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, tókst að fá ísraels-
menn til að fallast á friðarráðstefn-
una í gær. ísraelsmenn höfðu áður
hafnað hugmyndum Bandaríkja-
manna um ráðstefnuna.
Baker hittir leiðtoga Palestínu-
manna í dag og búist er við því að
hann leggi hart að þeim að mæta til
friðarráðstefnunnar sem fyrirhugað
er að halda í október. Háttsettur
bandarískur embættismaður sagði í
gær að Baker mundi reyna að fá
Palestínumenn til að gera að engu
þau orð ísraelska stjórnmálamanns-
ins Abba Ebans að Palestinumenn
misstu aldrei af tækifæri til að missa
af tækifæri.
Þótt Shamir hafi fallist á friðartil-
lögur Bandaríkjamanna í gær setti
hann þó það skilyrði að fyrst yrði að
leysa deiluna um fulltrúa Palestínu-
manna. Það skilyrði gæti hugsanlega
eyðilagt besta tækifæri um langa
hríö til að leysa deilumál ísraels og
arabaríkjanna.
Reuter
Lögreglan færði morð-
ingjanum eitft af
fórnarlömbunum
Skriðdrekaárás á
króatískt þorp
Nú hefur komið á daginn að lög-
reglan í Milwaukee í Wisconsin í
Bandaríkjunum skhdi 14 ára gamlan
dreng eftir hjá fjöldamorðingjanum
sem hefur viðurkennt að hafa drepið
17 manns á hroðalegan hátt. Hér áttu
þrír lögreglumenn í hlut og hafa þeir
allir verið leystir frá störfum. Dreng-
urinn var eitt af fómarlömbum
morðingjans.
Mál þetta hefur vakið mikinn óhug
í Bandaríkjunum eftir að morðing-
inn, Jeffrey Dahmer, viðurkenndi
ódæði sín. Lögreglan hafði á sínum
tíma afskipti af drengnum þegar
hann flúði skelfingu lostinn úr íbúð
Dahmers. Leitað var skýringa á mál-
inu hjá Dahmer og sagði hann lög-
reglunni að drengurinn væri 18 ara
gamall og þeir væru elskhugar. Lög-
reglan tók það gott og gilt og skildi
drenginn eftir hjá Dahmer sem myrti
hann skömmu síöar. Þegar lögreglan
kom í íbúðina hafði morðinginn lík
eins fórnarlambsins í tunnu í svefn-
herbergi sínu.
Dahmer var handtekinn þann 24.
júlí. Þá fundust rotnandi lík í íbúð
hans og höfuðkúpur ekki færri en
ellefu manna. Dahmer hefur viður-
kennt að hafa stundað iðju sína í
meira en áratug. Hann hefur þegar
verið ákærður fyrir fjögur morð en
beðið er með að leggja fram enn fleiri
kærur á hendur honum.
Reuter
Bandaríkjamenn
ósáttirviðlok
Persaflóastríðsins
Stöðugt fleiri Bandaríkjamenn
lita svo á að bandamennirnir í
Persaflóastríðinu hefðu ekki átt
að láta staðar numið fyrr en
Saddam Hussein, forseti íraks,
væri fallinn af valdastóli.
Skoðanakannanir vestra sýna
að yfir 70% aðspurðra telja það
mistök að hætta hemaði við
Persaflóa meðan Saddam hélt
völdum og 57% segjast vera ósátt-
ir við George Bush vegna þess að
hann ákvaö að láta hætta hem-
aði.
Nú er ár liðið frá innrás iraka
í Kúveit. Af þvi tilefni hefur
Margrét Thatcher, fyrrum for-
sætisráðherra Breta, látið hafa
eftir sér að bandamenn hefðu átt
að neyða íraka til að framselja
Saddam. Reuter
Óttast er að tuttugu og einn maður
að minnsta kosti hafi látið lífið þegar
skriðdrekar úr júgóslavneska hem-
um æddu inn í Króatíu frá Serbíu
og skutu á þorp á landamærum lýð-
veldanna í gær, að sögn lögreglu.
Talsmaður króatísku lögreglunnar
sagði að líklega hefðu fimmtán lög-
regluþjónar látið lífið þegar lögreglu-
stöð þeirra var jöfnuð við jörðu í
árásinni á þorpið Dalj. Júgóslav-
neskur ljósmyndari sagðist hafa séð
sex önnur lík sem þorpsbúar sögðu
aö væru Serbar.
Jacques Poos, utanríkisráðherra
Lúxemborgar, sagði í gær að hernað-
arlegrar íhlutunar Evrópubanda-
lagsins væri ef til vill þörf til að
stöðva sundurlimun Júgóslavíu.
Poos er einn þriggja ráðherra banda-
lagsins sem fara til Júgóslavíu í dag
til að reyna eina ferðina enn að koma
í veg fyrir borgarastyrjöld í landinu.
Um tvö hundruð manns hafa fallið
1 bardögum frá því Króatía og Slóv-
enía lýstu yfir sjálfstæði sínu í júní.
Talsmaður lögreglunnar í Króatíu
sagði að tuttugu skriðdrekar að
minnsta kosti hefðu tekið þátt í árás-
inni á Dalj og aðra bæi í austurhluta
Króatíu. Hann sagði að ástandið í
Dalj væri enn of hættulegt til að
hægt væri að senda þangað króatísk-
ar sveitir.
Þátttaka hersins olli mikilli bræði
leiðtoga Króatíu og Franjo Tudjman
forseti viðurkenndi fyrir þinginu að
lögregla og varðliðar lýðveldisins
hefðu ekki vopn til að heyja stríð.
Reuter