Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Qupperneq 20
20 MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1991. „Hvað höfðingjarnir hafast að“ „Guðsblessun fylgi núverandi ríkisstjórn." „Kjósendur bera ekkert traust til ykkar vegna óhófslifnaðar bæði innanlands og utan. Þið eigið að ganga á undan með góðu fordæmi en ekki heimta af okkur, litla fólkinu, að fara að herða sultarólina.“ Þegar kjósendur ganga til alþingis- kosninga h.vílir mikil ábyrgð á þeim. Þjóðin sér það best núna síð- an núverandi pótintátar komust til valda. Það þarf alltaf heimtumikil próf og kunnáttu við ýmis störf í okkar þjóðfélagi. Alltaf finnst mér það einkennilegt þegar alþingis- mann eru kosnir og geta vaðið beint í ríkisstjóm og oftast með lít- inn sjóndeildarhring eins og átti sér stað sl. vor. - Geta farið til Al- þingis án þess að hafa menntun til að stjórna íslandi af ábyrgð og framsýni. Nú fær þjóðin að kenna á því eft- ir síðustu alþingiskosningar, nú stjóma menn íslandi sem aldrei hafa unnið við atvinnuvegi þjóðar- innar. Ég tel það skyldu og hef allt- af talið að setja þau lög með hraði að enginn megi bjóða sig fram til alþingis án þess að hafa unnið í minnst 4-5 ár við landbúnaðar- störf, fiskvinnslu og alla algenga vinnu, bæði byggingarvinnu og annað sem þroskar manninn best, því vinnan göfgar alla. - Manni líð- ur alltaf svo vel þegar maður vinn- ur og hefur heilsu til að vinna. Þorsteinn ber af Það er átakanlegt að heyra í þess- um blessuðum pótintátum, stutt- buxnadrengjum sjálfstæðismanna sem stjórna landinu, allt lögfræð- ingar. Þorsteinn Pálsson, sem er nú loksins kominn í síöbuxur eftir rúm tvö kjörtímabil, ber af sínum samherjum í ríkisstjórn með rögg- semi og ábyrgð og vona ég að hann verði íslensku þjóðinni til heilla. Davíð Oddsson, þú ert svo fljót- fær og hugsar um ekkert annað en að vera forsætisráðherra. Já, svona getur lýöræðið verið hættulegt þeg- ar frekir og ábyrgðarlausir menn hafa þetta sem áhugamál sitt en hafa enga hæfileika til þess að starfa yfirleitt. Þaö veit alþjóð að Davíð flúði úr borgarstjórn vegna mikilla skulda og bókstaflega hreinnar óánægju með hann. Eg átti alltaf bágt með trúa þessu. En það sagði mér flokksbundinn sjálf- stæðismaður að þetta væri fyrir- hyggja hjá Davíð en hann væri ekki nokkur maður í pólitíkinni og síst af öllu til að verða forsætisráð- herra. Þarna kemur mikil- Kjállaiinn Regína Thorarensen mennskubrjálæði fram. í öllum hans störfum, eins og hefur sýnt sig þessa sex mánuði sem hann hefur verið forsætisráðherra, ræð- ur hann ekki við hlutina og heimt- ar svo bara hvíldir og viil loka Al- þingi. Davíð á námskeið til Þorsteins Við hjónin fórum austur á Eski- fiörð seint í mars í fyrra, til að vera við fermingu dótturdóttur okkar. Við stoppuðum í þrjár vikur og var okkur víða boðið í mat og heim- sóknir. En ein matarveislan var sú skemmtilegasta veisla sem ég hef verið í. Konan er mikil og frábær matmóðir og húsbóndinn er hygg- inn maður, segir ekki mikið, en það sem hann segir meinar hann og hann hefur alltaf verið blindur sjálfstæðismaður. Auðvitað var talað um kosningar formanns sjálfstæðisflokksins, hvort Davið mundi komast að, og það voru misjafnar skoðanir á því máli eins og gengur og gerist. Þá tók húsbóndinn til máls cg sagði orðrétt með reiði „Ef Davíð borgar- stjóri verður kosinn formaður Sjálfstæðisflokksins þá verður Sjálfstæðisflokkurinn útdauður eftir nokkur ár.“ Já, eskfirskur sjálfstæðismaður vissi hvað hann var að segja því hann bað til guðs að það kæmi aldr- ei fyrir að Davíð yrði formaður flokksins. Ef Davíö hefði verið bú- inn að vera eitt kjörtímabil á Al- þingi hefði verið lítil von til aö hann yrði forsætisráðherra með sóma því að ég álykta að menn þurfi að kynna sér störf Aiþingis í eitt til tvö kjörtímabil og Davíð aldrei þurft minna en þrjú tímabil tii að minnka mikilmennskubrjálæðið. Þessi framhleypni og mikil- mennskubijálæði í þér, Davíð, að vera nú forsætisráðherra, það veröur íslensku þjóðinni dýrt og við erum ekki búin að sjá fyrir endan á því. Davíð, þú þarft að fara á námskeið til Þorsteins Pálssonar og læra að tala og halda ræður. Þú ert of þvoglumæltur og óáheyrileg- ur til að fólk skilji þig alltaf eða heyri hvaö þú ert að flytja. Ég er sammála sumu sem þessi unga ríkisstjórn hefur á stefnuskrá sinni og kemur vonandi í fram- kvæmd ef hún verður ekki alltaf í fríi bæði utanlands og innan. Láta t.d. alla sjúkhnga borga efnið í matinn þegar þeir liggja á spítölum og einnig að láta skólafólkið borga 15-20 % í skólagjöld á ári. það er alltaf verið að vorkenna eldri borg- urum. Ég sem eldri borgari er reið vegna þessa. Eldri borgarar sem eiga skuldlausa íbúð geta vel borg- að 15 þúsund á mánuði á spítala. Þessu hafa margir athafnasamir heilbrigðisfulltrúar viljað koma í gégn en hafa ekki getað. Núverandi heilbrigðisráðherra má alls ekki koma svona oft í sjónvarpið. Áhorf- endur eru dauðhræddir við hann, og börnin fara að gráta. Sonarson- ur minn 5 ára, sagði t.d. um dag- inn, að hann Sighvatur ætlaði ör- ugglega að lemja sig með spýtu sem hann hefði fundið á rekanum hann vaeri svo reiður á svipinn. Ég álykta að það auki meðala- notkun mikið hjá fiölda fólks að láta núverandi heilbrigðisráðherra koma í sjónvarpið. Fólk gæti álykt- að sem svo að Sighvatur ráðherra ætti eyðslusama konu fram úr hófi og 10 (þörn að sjá fyrir. Hann teldi sjálfur að hann væri í akkorði við að landa úr vestfirskum togurum. Smádrengir í sandkassaleik Davíð, mér finnst oft að ríkis- stjórnin þín sýni rétta mynd af smádrengjum í sandkassaleik. Þið byrjuðu á því að kaupa ykkur rán- dýra ráðherrabíla, sem þið höfðu ekkert leyfi til og engir peningar voru til fyrir. Þið vilduð ekki taka við ráðherrabílunum af fráfarandi ríkisstjórn. Ég er hissa á Davíð að kaupa ekki tvo strætisvagna af Reykjavíkurborg og láta gera þá upp og ráða sex bílstjóra til að fara með ykkur á þing og í boð og dýrar veislur sem þið haldið allt of oft og eru alltaf of fiölmennar. - Ef þú hefðir gert þetta, Davíð, þá hefði litla fólkið haft meira álit á þér, heldur en fyrir að kaupa bíl fyrir hátt á fiórðu milljón. Kjósendur bera ekkert traust til ykkar vegna óhófslifnaðar bæði innalands og utan. Þið eigið að ganga á undan með góðu fordæmi, en ekki heimta af okkur, litla fólk- inu, að fara að herða sultarólina. - Guðsblessun fylgi núverandi ríkis- stjórn. Óskandi að ykkar sjóndeildar- hringur stækki fljótt og þið komist niður á jörðina til að stjórna af fyr- irhyggju en séuð ekki alltaf uppi í skýjunum að sýna veldi ykkar. Regína Thorarensen Viðeyjar „viðreisnar" skjalið Viðeyjar „viðreisnar" skjalið, virðast hér fáir skilja. Áður var ekki talið, eitthvað þyrfti að dylja. heiður ber heiðursmönnum halli þeir ekki máli. Viðeyjarklúðrið könnum þó kratar fyrir því skáli. Davíð 1 dýrðarljóma deilir völdum með Jóni. Hver verður hverjum til sóma? Hvor ætli hinum þjóni? Frelsið er fiöregg okkar, fer það til EB landa? Eru hér frómir flokkar frjálsir í lappir standa? Hvað sagði Oddur Einar öllum sem landinu stjórna? Úrbætur ekki neinar alþýðan skal nú fórna. Loforðin verða að liggja læst í geymslu inni, á þeim má ekkert byggja ykkur það hér með kynni. Bjargvættur Oddur Einar íhaldsstefnuna kynnir. Vil fara brautimar beinar á boöorð fiármagnsins minnir. Kaupmáttinn vill hann „veija“ vextina til þess hækka, gegn öðrum hækkunum herja helst þurfi kaupið að lækka. Hörmungar húsnæðismála KjáUaiínn Stefán Valgeirsson fyrrv. alþingismaður hrunadansi er líkur. Á nú öllum að kála öðrum en þeim sem er ríkur? Húsbréf og háir vextir heimilum valdsmenn fórna. Era að manngildi mestir menn sem að okrinu stjóma? Kratamir úti að aka, ójöfnuð sýna í verki. Áf fátækum fiármuni taka frjálshyggju bera þeir merki. Leggja á skuldir skatta skiiyrði frá þeim ríku. Seint ætlar fiöldinn að fatta fantaskap ráðandi klíku. Okrið er alls ráðandi óskilamaðurinn sekur. Fjöldi flytur úr landi fésýslan eigur þess tekur. Ríkir ríkari verða, reyta fiöldann að skinni, tillitslaust tökin herða traðka á hinum minni. Fjármagnið deilir og drottnar Davíð og Jónar stjórna. Velferð ríkisins rotnar réttlætinu þeir fórna. Veislu- og valdaþyrstir vinna því fyrir þá ríku. Álbræðslum fagna fyrstir fyrirmynd ráðandi klíku. Viöeyjar „viðreisnar" skjalið varð til um miðja góu. Annað var áður talið, íhald að kommunum hlógu. Fjármagnið frelsinu heldur, fiöldinn í skuldadíki. Gjaldþrotum valdhafinn veldur, velferðin maðksmogið ríki. Dofnar nú dýrðarljómi Davíðs með viku hverri. Þorsteinn er þeirra sómi þess vegna talinn verri. Eimreiðar klíkan kunni klæki og formann valdi.' Einræði í margra munni meinhornið skástan taldi. Ráðherra virðist ríkur á ráðstefnum og á fundum. Fjármagn ríkisins fýkur farangur týnist stundum. Konur kunna að plokka karl sem reynist hálfur. Trúðar í forustu flokka fljúga um lönd og álfur. Framsókn er með og á móti málum sem deilum valda. Það er nú leikurinn ljóti loforðin sjaldan halda. Hugsjónir eru horfnar Hermannsson þótt gapi. Sveitirnar era orðnar Alþýðuflokknum að skapi. Ráðlausir rugludallar ráðhús og perlu byggðu. Augljósir innri gallar ágóða mikinn tryggðu. Ábyrgðarmaður enginn íhaldið þekkir sína. Davíð frá garði er genginn og gengur í pyngjuna þína. * * * Misréttið er að margfaldast, margir í sárastu neyð. Okrarar ganga að fólki fast fiámáms- og gjaldþrotaleiö. Kratar lögðu á skuldimar skatt, á skólanám, hjúkrunarvist. Á Viðeyjarskjalinu fara þeir flatt, frelsi tÚ jöfnunar misst. Sighvatur karlinn segir margt að sjálfsögðu meira en nóg. Umhverfi hans var aldrei bjart, öreigum legstað bjó. Þeir sem að sjálfir geta greitt gjald fyrir sjúkrahús'úst meðul og læknishjálp verður veitt og vistaðir manna fyrst. * * * Þjóðin valdi sér vanhæfa stjórn en vildu þó flestir annað. Strjálbýlið látið færa enn fóm og fátækir, það hef ég sannað. Borgaraflokkinn brást að vista þeir báðu um styrk, ekki ráð. Hvað er að frétta af kvennalista? Kommarnir, hafa þeir áttum náð? Þeir sem misnota veraldlegt vald, vonandi dregnir til saka. Verða látnir greiða það gjald glæstri stöðu og vaidi tapa. Stjórnmálaflokkanna bresta þá bönd, bjóðum fram undir jafnréttis merki. Tökum af einurð hönd í hönd hugsjónir okkar sýnum í verki. Stefán Valgeirsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.