Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Qupperneq 40
52
MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1991.
Menning
Afturgöngur
Enn einu sinni efnir Frú Emilía til höföinglegrar
haustveislu og býður að þessu sinni leiklistarunnend-
um að kynnast verkum Henriks Ibsen í formi leiklestr-
ar.
Undir yfirskriftinni „Haust með Ibsen“ eru flutt þrjú
leikrit eftir hann og sem fyrr er einkar vel að undir-
búningi og ílutningi staðið.
Leiklestur hefur á undanfórnum árum unnið sér
fastan sess í leikhúslífi borgarinnar, ekki hvað síst
fyrir dugnað aðstandenda Frúarinnar sem hafa með
þessum hætti kynnt nokkur höfuðskáld leikbókmennt-
anna.
Slíkur flutningur leikrits getur í meðfórum góðra
listamanna verið alveg kjörin leið til þess að kynna
hvort heldur er klassísk eöa ný verk sem ella kæmust
ekki fyrir augu eða öllu heldur eyru áhorfenda.
Aðsóknin að leiklestrinum í Listasafni íslands í gær
sýndi líka að margir kunna vel að meta framtakið.
Þau verk Ibsens, sem kynnt eru að þessu sinni eru:
Hedda Gabler, Afturgöngur og Brúðuheimilið, og er
hvert þeirra flutt tvisvar sinnum, sína helgina hvert.
Öll þessi verk teljast til stórvirkja í leikbókmenntum
og eru flutt í afbragðsþýðingum þeirra Árna Guðna-
sonar, Bjarna Benediktssonar og Sveins Einarssonar.
Og frú Emilía lætur ekki þar við sitja, heldur hefur
gefið leikritin út í bókaformi, eins og fyrri verkefni
leikhússins. Þetta er orðinn dágóður bunki af leikrit-
um, sem þannig hafa komið út.
Ég átti þess ekki kost að fylgjast með leiklestrinum
á Heddu Gabler, sem var á dagskrá fyrir viku, en sá
hins vegar seinni flutning Afturgangna í gær. Pétur
Einarsson leikstýrði og þeir leikarar sem þátt tóku í
lestrinum voru: Margrét Helga Jóhannsdóttir (frú Al-
ving), Þorsteinn Gunnarsson (séra Manders), Eyvind-
ur Erlendsson (Engstrand smiður), Ingvar Sigurðsson
(Osvald) og Bára Lyngdal Magnúsdóttir (Regína).
Afturgöngur er „fjölskyldudrama" og fjallar um
staðnað, og fordómafullt samfélag í lok síðustu aldar.
Frú Alving reynir að losna við drauga fortíðar og um
leið að fegra minninguna um spilltan og brokkgengan
eiginmann sinn, með því að verja myndarlegri fjárhæð
til byggingar munaðarleysingjahælis.
En hún kemst að raun um að það er hægara ort en
gjört að slá striki yfir hið liðna. Þeir dauðu lifa áfram
qg „syndir feðranna koma niður á börnunum".
Leiklist
Auður Eydal
Þátttakendur í leiklestrinum fluttu textann af þjálli
fagmennsku og hrifu áheyrendur léttilega með sér á
vit þeirra persóna sem Ibsen lætur mæta örlögum sín-
um í verkinu.
Þorsteinn Gunnarsson náði ótrúlega vel að gegnum-
lýsa séra Manders með vel unnum blæbrigðum í fram-
sögninni og Eyvindur Erlendsson var makalaus sem
smiðurinn Engstrand. Margrét Helga Jóhannsdóttir
lagði upp úr innri þunga í hlutverki frú Alving og það
var gaman að bera túlkun hennar saman við túlkun
norsku leikkonunnar, Juni Dahr, sem lék m.a. brot
úr Afturgöngum í dagskrá um konur Ibsens í Norraena
húsinu fyrr í haust.
Já, „Haust með Ibsen“ ber nafn með rentu og um
næstu helgi verður Brúðuheimilið tlutt með sama
hætti í húsi Listasafnsins svo að leiklistarunnendur
geta strax farið að hlakka til.
Frú Emilía: Leiklestur í Listasafni íslands.
AFTURGÖNGUR
Höfundur: Henrik Ibsen
Þýðing: Bjarni Benediktsson
Leikstjórn: Pétur Einarsson
Andlát
Gísli Kristjánsson, skólastjóri á
Hvolsvelli, er látinn.
Sigurður Haraldsson framreiðslu-
maður er látinn.
Bergþór Albertsson bifreiðarstjóri,
Norðurvangi 31, Hafnarfirði, lést í
St. Jósefsspítala í Hafnarfirði laugar-
daginn 23. nóvember.
Hans Bjarnason, Tryggvagötu 9, Sel-
fossi, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands
22. nóvember.
Björg Benediktsdóttir frá Lækjardal
andaðist á héraðshælinu Blönduósi
miðvikudaginn 20. nóvember.
Kjartan Guðnason fulltrúi lést á
Reykjalundi 22. nóvember.
Þórey Hannesdóttir, Suðurgötu 90,
Akranesi, andaðist að morgni 23.
nóvember.
Lárus G. Jónsson,fyrrverandi skó-
kaupmaður, hjúkrunarheimilinu
Skjóli, lést laugardaginn 23. nóvemb-
er.
Hálfdán Örnólfsson, frá Hóli í Bol-
ungarvík, lést í Hrafnistu í Hafnar-
firöi 23. nóvember.
Þórdis Pálsdóttir andaðist í Borgar-
spítalanum 22. nóvember.
Hulda Þ. Björnær, Dalbraut 27, lést
á Vífilsstaðaspítala 22. nóvember.
Ásmundur Guðmundsson frá Helga-
vatni lést á Hrafnistu föstudaginn 22.
nóvember.
3 Jarðarfarir
Eggert I. Isdal andaðist 1. nóvember
sl. Jarðarfórin hefur farið fram í
kyrrþey.
í MYRKRI 0G REGNI
eykst áhættan verulega!
Um það bil þriðja hvert slys í umferðinni
verður í myrkri. Mörg þeirra í rigningu
og á blautum vegum.
ÞURFA AÐ VERA HREINAR.
|JUMFERÐAR
Fjölnir Hallgrímsson, Seilugranda 8,
andaðist á vöggudeild Landspítalans
16. nóvember. Útförin hefur farið
fram.
Sigurlaug Sigurðardóttir frá Hjalla,
Ölfusi, Háteigsvegi 40, verður jarð-
sungin frá Háteigskirkju þriðjudag-
inn 26. nóvember kl. 13.30.
Guðrún Jónsdóttir kennari, sem lést
15. nóvember, verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju í dag, 25. nóvemb-
er, kl. 13.30.
Þorvarður Júlíusson bóndi, Söndum
í Miðfirði, verður jarðsunginn frá
Kolbeinsstaðakirkju þriðjudaginn
26. nóvember kl. 14.30. Kveðjuathöfn
í Melstaðarkirkju, Miðfirði, kl. 10
sama dag.
Haukur Guðmundsson, frá Gerðum
í Garði, verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni þriðjudaginn 26. nóvember
kl. 15.
Haraldur Ólafsson sjómaður, Sjafn-
argötu 10, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Hallgrímskirkju mið-
vikudagirih 27. nóvember kl. 13.30.
Safnaðarstarf
Hallgrímskirkja: Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur Arkitektafélagsins
um byggingarlist
Nú í vetur stendur Arkitektafélag íslands
að röð fyrirlestra fyrir fagfólk og áhuga-
menn á sviði hönnunar og byggingarlist-
ar. Með þessu framtaki hyggst félagið
efla faglega umræðu um þessi efni hér á
landi, en sem kunnugt er ekki boðið upp
á nám í byggingarlist og tengdum hönn-
unargreinum hér á landi. Haldnir verða
átta fyrirlestrar, einn í hverjum mánuði
á tímabilinu sept.-maí. Helmingur fyrir-
lesaranna verður úr hópi innlendra fag-
manna en hinn hlutinn gestir frá öðrum
löndum. Þegar hafa verið haldnir tveir
fyrirlestrar og var aðsókn framar björt-
ustu vonum. í kvöld, 25. nóvember,
kynna írsku arkitektarnir Sheila
O’Donnel (f. 1953) ög John Tuomey
(f.1954) verk sín. Þau stunduðu bæði nám
í byggingarlist við University College í
Dublin. Fyrirlesturinn verður haldinn í
Ásmundarsal, Freyjugötu 41, og hefst kl.
20. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill
á meðan húsrúm leyfir.
Fundir
Hið íslenska náttúrufræðifé-
jag
í kvöld, 25. nóvember, kl. 20.30 veröur
haldinn næsti fræðslufundur HÍN á þess-
um vetri. Fundurinn verður að venju
haldinn í stofu 101 í Odda, Hugvisinda-
húsi Háskólans. Á fundinum heldur Árni
Björn Stefánsson, augnlæknir og hella-
rannsóknamaður, erindi sem hann nefn-
ir: Þríhnúkagígur - stærsti hraunhellir í
heimi? í erindinu segir Árni frá rann-
sóknum sinum og félaga sinna í vor og
sumar á gíghelhnum, þessari stórkost*
legu náttúrusmíð, sem liggur rétt við
bæjardyr Reykvikinga i Þríhnúkum í
Bláíjallafólkvangi. Þessir fræðslufundir
félagsins eru öllum opnir og aðgangur
ókeypis.
ITC-deildin Kvistur
Fundur í kvöld kl. 20.00 á Holiday Inn.
Vigdís Grímsdóttir les upp. Fundurinn
er opinn öllum. Upplýsingar gefur Gróa
í síma 74789.
TiXkyimingar
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu kl. 13-17. Bridge og
frjáls spilamennska.
Safnaðarkvöld
í Laugarneskirkju
Mánudaginn 25. nóvember verður safn-
aðarkvöld í safnaðarheimili Laugames-
kirkju kl, 20.30. Gestur kvöldsins verður
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona og mun
hún fjalla m.a. um handleiðslu Guðs.
Einnig verður boðið upp á tórúist. Kafíi-
veitingar verða bomar fram og kvöldinu
lýkur með helgistund í kirkjunni. Þetta
er annað safnaðarkvöldiö í vetur en þau
verða að jafnaði einu sinni í mánuði.
Safnaðarkvöldið er opiö öhum sem vilja
eiga notalegt kvöld í kirkjunni.
Símanáma framhaldsskóla-
nema
Nú hefur Símanáma framhaldsskóla-
nema htið dagsins ljós í þriðja sinn. Síma-
náman er sameiginleg símaskrá fram-
haldsskóla á höfuðborgarsvæðinu og er
henni dreift i 9000 eintökum. Alls em að
fmna 8500 nöfn framhaldsskólanema í
skránni ásamt fjöldanum öllum áf upp-
lýsingum sem varða félagslíf í framhalds-
skólum. Það er íslenska útgáfufélagið í
samvinnu við Félag framhaldsskólanema
sem standa að útgáfunni. Einnig máfmna
í i skránni mikhvæg símanúmer -fyrir
Myndgáta dv
framhaldsskólanema sem nýst geta nem-
endum á neyðarstundu.
Kvenréttindafélag íslands
tífnir th fræðslu- og umræöufundar um
áhrif EES-samninganna á stöðu og hag
íslenskra kvenna. Margir hafa velt því
fyrir sér hvernig lagareglur ESS-dóm-
stólsins falh að íslenskri löggjöf og hvern-
ig verði skorið úr málum. Einnig hafa
heyrst raddir um að atvinnuöryggi
sumra láglaunahópa á vinnumarkaðn-
um, ekki hvað síst kvenna, sé í hættu.
Hver verður staðan varðandi almanna-
tryggingar og ýmis önnur félagsleg rétt-
indi? Um þessi mál verður úallað á fundi
sem haldinn verður 26. nóv. 1991 á Hótel
Sögu í Átthagasalnum kl. 20. Fundurinn
er öhum opinn.
Námskeið í skyndihjálp
Reykjavíkurdehd RKÍ gengst fyrir nám-
skeiði í skyndihjálp fyrir almenning sem
hefst fimmtudaginn 28. nóvember kl. 20
og stendur yfir í 3 daga. Kennsludagar
verða 28. og 29. nóv, kennt frá kl. 20-23
og 29. nóv. kennt frá kl. 14.30-18.30. Nám-
skeiðið verður haldið í Fákafeni 11, 2.
hæð. ÖUum 15 ára og eldri er heimU þátt-
taka. Þeir sem hafa áhuga á að komast á
þetta námskeið geta skráð sig í síma
688188. Meðal þess sem kennt verður á
námskeiðinu er blástursmeðferðin,
hjartahnoð, fyrsta hjálp við bruna, blæð-
ingum, beinbrotum og mörgu öðru. Einn-
ig verður úallað um hvernig má fyrir-
byggja slys. Að loknu námskeiðinu fá
nemendur skírteini sem m.a. er hægt að
fá metiö 1 ýmsum skólum. Tekið skal
fram að ReykjavíkurdeUd RKÍ útvegar
leiðbeinendur tU að halda námskeiö fyrir
þá aðUa sem þess óska i Reykjavik.
Frumsýning á
Kirsuberjaþjófnum
Leiksmiöja Reykjavíkur frumsýnir
þriöjudaginn 26. nóvember Kirsuberja-
þjófmn í leikstjórn og leikgerð Árna Pét-
urs Guöjónssonar og Sylviu von Kospoth.
Verkið er saga brostinna vona, drauma
sem aldrei rætast. Textar eru fengnir að
láni úr Kirsuberjagarðinum eftir Tsjek-
hov og Vinnukonunum eftir Jean Genet.
Leiksmiðja Reykjavíkur hefur starfað í
tvö ár og á að baki tvær sýningar, Sumar-
gesti eftir Maxim Gorki og Þjófmn eftir
Jean Genet. Þá síðarnefndu sýndi leik-
hópurinn á leikhstarhátíð í Danmörku
sl. sumar. Sýningar verða á Galdraloft-
inu, Hafnarstræti 9.
Leikhús
FRÚ EMILÍA
„Haust með
Ibsen“
Leiklestur þekktra leikverka eftir
Henrlk Ibsen í Listasafni íslands
við Frikirkjuveg.
BRÚÐUHEIMILI
Laugard. 30. nóv. og sunnud.
1-des. kl. 14.
Aðgöngusala hefst kl. 13 i Listasafni
íslands báða sýningardaga.
FRÚ EMILlA-LEIKHÚS