Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1991, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991.
17
Sviðsljós
Potta-
sleikir kemur
íbæinn
Sífellt fjölgar þeim börnum sem
leggja leið sína í Þjóðminjasafnið
klukkan eUefu á morgnana til þess
að taka á móti jólasveinunum þegar
þeir koma í bæinn, einn af öðrum.
Þegar Pottasleikir mætti á svæðið
voru þar saman komin ein fjögur
hundruð böm, ein augu og eyru, til-
búin að taka lagið og hlusta á jóla-
sveinasögur.
Sú hefð hefur skapast í Þjóðminja-
safninu að gömlu íslensku jólasvein-
arnir venja komur sínar þangað dag-
lega fram að jólum, einn af öðmm,
alveg þar til Kertasníkir rekur lest-
ina á aðfangadag jóla.
Troðfullt var i Þjóðminjasafninu þennan dag en börnin létu það ekki á sig
fá og tóku undir fullum hálsi. DV-myndir BG
Pottasleikir var mættur með pottinn undir hendinni í gamaldags jólasveinabúningi og skemmti börnunum með
söng og jólasveinasögum.
LEIKJATOLVUR
imm&i
TÖ LV U R ■ TÖ LV U L E I K I R ■ F Y LG I H L U T i
mm
.wXw
• i VriVrri
12.900
9.900-
EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR
mmmm