Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1991, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 1991.
19
Eru okurvextir sanngjarnir?
Eins og oft áður kemur fátt eins
mikið við fólk og fjármál. Peningar
og auðhyggja virðist vera sett ofar
öllu um þessar mundir. Innheimtu-
aðgerðir hafa sjaldan verið eins
harkalegar og nú tíðkast. Gjaldþrot
eru daglegir viðburðir og ekki virð-
ist skipta nokkru máli í hvemig
aðstöðu fólk er sett, fjármagnið
hefur verið sett í öndvegi.
Þjóðin undraðist fyrir fimm árum
þá ósvífni sem „okurlánarinn við
Hlemm“ viðhafði í lánsviðskiptum
og voru þau viðskipti réttilega
nefnd okurlán. í dag verður „okur-
lánarinn við Hlemm“ eins og sak-
laust barn ef miðað er við það við-
skiptasiðferði sem nú viðgengst á
hinum opinbera íjármagnsmark-
aði.
Eins og það var svartast
Fyrir nokkrum ánun voru há-
KjaHaiinn
Magnús Sigurðsson
múrarameistari
Djúpavogi
„Ef bankar tapa á glæfralegum útlán-
um þykir sjálfsagt að hækka vexti og
láta þá borga tapið sem vilja standa í
skilum.“
markslán frá Húsnæðisstofnun
Ríkisins 4,2 millj. Þá þótti svívirði-
legt ef þeir sem höfðu lánsloforð
upp á 4,2 millj. en ætluðu ekki að
nýta það til húsbyggingar seldu
lánsloforðið fyrir 500 þús. Á þess-
um árum var biðröðin eftir hús-
næðisláni komin upp í tvö ár. Þá
voru vextir af lánum Húsnæðis-
stpfnunar 3,5%.
í núverandi húsnæðisláncikerfi
eru vextirnir 6% og þeir sem fá 4
milljónir að láni í húsbréfum verða
að gera sér að góðu að fá fyrir þau
3 milljónir í peningum, 24% affóll
eru orðin staðreynd. En það verður
samt sem áður að borga til baka 4
milljónir með 6% vöxtiun og verð-
bótum í beinhörðum peningum. Og
nú er spurt: Getur það gengið að
það opinbera gangist fyrir slíku og
þvílíku viðskiptasiðleysi?
Það er eins og það sem var svart-
ast á gráa markaðnum sé það sjálf-
sagðasta hjá bönkum og opinber-
um stofnunum í dag og yfirleitt er
gengið skrefi lengra en það sem
áður þekktist ósvífnast. Nú vantar
ekkert nema að viðurkenndar
lánastofnanir taki afbrota- og of-
beldismenn í sína þjónustu til-að
beija skuldir út úr peningalausu
fólki, þá er aUt komið sem áður
þekktist á gráa markaðnum sem
varla er til lengur nema ef vera
skyldi hjá bönkum og öðrum opin-
berum aðilum.
Ekki vantar útskýringamar hjá
félagsmálaráðherra og öðrum fyr-
irsvarsmönnum húsbréfakerfisins.
Afioll allt að 24% eru fullkomlega
eðlileg, það voru nefnilega gefm út
greiðsluerfiðleikahúsbréf og þetta
hlýtur að jafna sig eftir áramót
þegar greiðsluerfiðleikunum er
væntanlega lokiö, fyrst það gerði
þaö ekki núna í haust eins og til
stóð. Einnig er það hin háa, og
„sjálfsagða“ ávöxtunarkrafa sem
gerir þessi afíoll auðskýranleg í
augum ráðamanna.
Raunvextir eru sanngirnis-
mál...
En hverjir eru það sem fara fram
á þessa háu ávöxtun á fjármagni?
Tæplega eru það þeir sem fá pen-
ingana að láni. Getur verið að fólk
af þeirri kynslóð, sem var að koma
undir sig fótunum á verðbólguár-
unum þegar sparifé þeirra eldri var
brennt á verðbólgubálinu, fari
fram á háa raunávöxtun á sínum
fjármunum? Það fólk er líklega í
áhrifastöðum í dag.
Raunvextir eru sanngirnismál en
vaxtaokur, sem kemur fjölskyldum
og fyrirtækjum á vonarvöl, er aftur
á móti allt annað en sanngjamt.
Raunvexti, sem eru 6% og allt þar
yfir, er tæplega hægt að kalla ann-
að en okur.
Ef bankar tapa á glæfralegum
útlánum þykir sjálfsagt að hækka
vexti og láta þá borga tapið sem
vilja standa í skilum. Það skiptir
ekki máli á hvaða forsendum og á
hvaða vöxtum lánin eru tekin,
vextirnir eru hækkaðir ef þurfa
þykir. Það kemur ekki lánastofn-
unum við þó að þær kippi grund-
vellinum undan þeim sem skulda
með vaxtahækkuninni.
Veiðileyfagjald
„sanngirnismál“?
Er það furða að þeir sem búnir
eru að sópa til sín fjármunum með
vaxtaokri síðasta áratuginn tali
hæst um veiðileyfagjald? Þeir eru
líklega að verða einir um að geta
borgað slíkt gjald. Veiðileyfagjald
hlýtur að vera auðséð „sanngimis-
mál“, eða hvað? Ekki þarf að koma
á óvart þótt hugmyndir um ECU-
tengingu sem allsherjarlausn komi
úr sömu átt.
Með ECU-tengingu verður erfið-
ara að færa þá fjármuni sem merg-
sognir hafa verið frá atvinnuveg-
unum og öðmm skuldurum með
ósanngjörnu vaxtaokri til þeirra
aftur sem þó öfluðu fjármunanna.
Nú, þegar kjarasamningar fara í
hönd, mætti ætla að beinast lægi
við að atvinnurekendur og laun-
þegar settust saman við samninga-
borðiö gegnt fjármagnseigendum
og ríkisstjóminni ef til sameigin-
legra hagsmuna er litið. Ekki er
samt að heyra að svo verði, alla
Skrifað undir samninga. „Hvaða hagsmuna eiga þessir menn að gæta?“
spyr greinarhöfundur.
vega ekki á tali verkalýðsleiðtog-
anna og umbjóðenda atvinnurek-
enda, enda spyr maður oft; hvaða
hagsmuna eiga þessir menn að
gæta?
Vaxtastefnan er að sliga atvinnu-
vegina jafnt sem launþega í land-
inu. Það er akkúrat þar sem hund-
urinn liggur grafinn.
Magnús Sigurðsson
SKATTALÆKKUN
VEGNA HLUTABRÉFAKAUPA
Frá því haustið 1986 hafa þúsundir einstaklinga ávaxtað sparifé sitt með kaupum
á hlutabréfum í Hlutabréfasjóðnum hf.
Með kaupum á hlutabréfum í Hlutabréfcisjóðnum hf. nýta einstaklingar þá leið til
skattalækkunfu- sem fylgt getur kaupum hlutabréfa. Á árinu 1991 verður
frádráttur vegna hlutabréfakaupa allt að kr. 94.000 hjá einstaklingi en allt að
kr. 188.000 hjá hjónum.
Hluthafar í Hlutabréfasjóðnum hf. eru nú á þriðja þúsund og verðmæti hreinnar
eignar félagsins er 645 milljónir króna.
Hlutabréfasjóðurinn hf. hefur áhættudreifingu að leiðarljósi. Félagið ver hlutafé
sínu til fjárfestinga í hlutabréfum og skuldabréfum traustra atvinnufyrirtækja.
Verðmæti hlutabréfaeignar er nú 480 milljónir og skiptist þannig á einstök félög:
Eimskip 86,0 mkr. Olís 10,8 mkr
Faxamarkaður 4,1 - Olíufélagið 24,5 -
Flugleiðir 90,3 - SH verktakar 7,0 -
Grandi 56,3 - Sjóvá/Almennar 7,4 -
Hampiðjan 25,8 - Skagstrendingur 19,8 -
Haraldur Böðvarsson 13,3 - Skeljungur 48,2 -
íslandsbanki 2,1 - Sæplast 8,7 -
Ehf. Alþýðubankans 5,0 - T ollvörugeymslan 14,1 -
Ehf. Iðnaðarbankans 14,3 - ÚA 13,4 -
Ehf. Verslunarbankans 10,9 - Þormóður rammi 17,6 -
Hlutabréfasjóðurinn hf. er fyrsti hlutabréfasjóðurinn sem stofnaður var hér á
landi. Hann er stærsti hlutabréfasjóður landsins.
Hlutabréf Hlutabréfasjóðsins hf. eru seld hjá öllum helstu
verðbréfafyrirtækjum.
ÁHÆTTUDREIFING Á EINUM STAÐ
HLUTABRÉFASJÓÐURINN HF.
Skólavörðustíg 12 - Sími: 21677 - 101 Reykjavík.