Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1991, Side 31
MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 1991.
39
Fréttir
Grunnskólamir á noröanverðu Snæfellsnesi:
Samstarfs-
dagur í stað
íþróttakeppni
Kristján Sigurössan, DV, Stylddshólnii:
Grunnskólarnir hér á norðanverðu
Snæfellsnesinu, það er í Stykkis-
hólmi, Ólafsvík, Grundarfirði og á
Helhssandi, hafa tekið upp á þeirri
nýbreytni að í stað hinnar árlegu
íþróttakeppni, sem fram fór áður á
milli skólanna, eru komnir svokall-
aðir samstarfsdagar. Þeir felast í því
að tveir árgangar nemenda úr öllum
skólunum hittast, 9. og 10. bekkur í
nóvember, 7. og 8. bekkur í febrúar
og 5. og 6. bekkur í apríl.
í stað harðrar íþróttakeppni er öll-
um nemendunum skipt í hópa og
dagurinn fer í að leysa ýmsar þraut-
ir. í hveijum hóp eru nemendur frá
öllum stöðunum.
í nóvember hittust nemendur í 9.
og 10. bekk og dagurinn fór þannig
fram að byrjað var á að fara í ratleik
um bæinn og þurfti þar að leysa
ýmsar þrautir í leiðinni. Áfram var
síðan haldið í þrautunum eftir há-
degi en nú voru þær bæði úti og inni,
Keflavík:
Ægir Már Karasan, DV, Suðumesjum:
Bæjarráði Keflavikur bárust tvö
leigutilboð í veitingahúsið Vestur-
braut 17 í Keflavík. Þau-voru frá
Sverri Þ. Halldórssyni og Annel B.
Þorsteinssyni, sem buðu 354.800
krónur á mánuði að frádregnum
tveimur fyrstu mánuðum leigu-
tímans sem færu í að endurbæta
húsnæðið, og frá Matarlyst hf. Þeirra
tiiboð var 100 þúsund krónur á mán-
uði og jafnframt mun tilboðsgjafi sjá
um endurbætur innandyra á hús-
næðinu.
Bæjarráð samþykkti að taka tilboði
þeirrá Sverris og Annels. Einnig
samþykkti bæjarráð afhot af húsinu
tvö kvöld í viku samkvæmt sam-
komulagi með svipuðu sniði og verið
hefur.
Nýju leigjendumir taka við húsinu
í byijun janúar 1992.
SjáKsali í
,jólaskapi“
Bensínsjálfsah hjá Olís við Hamra-
borg í Kópavogi tók upp á því eftir
lokun kvöld eitt rétt fyrir jólin að
dæla bensíni án þess að peningar
væru settir í hann. Ökumenn gátu
því afgreitt sjálfa sig án þess að
greiða fyrir „sopann". Höfðu vegfar-
endur á orði að sjálfsalinn væri í jóla-
skapi. -ÓTT
Bros - útvarp
á Suðumesjum
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum:
Útvarp Bros hefur hafið útsending-
ar á Suðumesjum og verða útsend-
ingar allan sólarhringinn.
„Við höfum alltaf sent út í viku í
senn á þessum árstíma. Núna mun-
um við senda út til áramóta. Suður-
nesjamenn hafa sýnt mikinn áhuga
á þessari stöð og ætti fólk að stilla á
FM 96,5,“ sagði Kristján Jóhannsson,
dagskrárgerðarmaður á Útvarpi
Bros, í samtali við DV.
svo sem reiðhjólaþrautir, boltaþraut-
ir, stærðfræðiþrautir, myndmennta-
þrautir og íslenskuþrautir.
Þegar þessu var lokið fóm krakk-
arnir í hópa sem þau höfðu vahð sjálf
þar sem meðal annars var boðið upp
á myndmennt, skák, félagsvist,
körfuknattieik, mínígolf og svo fram-
vegis.
Að loknum kvöldmat var síðan
dansað í félagsmiðstöðinni X-inu hér
í Hólminum fram eftir kvöldi.
Dagurinn tókst gríðarlega vel og
allir voru mjög ánægðir, bæði krakk-
amir og kennaramir sem sáu um
skipulagningu dagsins og em krakk-
amir þegar famir að hlakka til næsta
samstarfsdags.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
(1.FL.B.1985
Hinn 10. janúar 1992 er fjórtándi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl.B.1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 14 verðurfrá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með
5.000,- kr. skírteini
10.000,-kr.
100.000,-kr. "
= kr. 524,00
= kr. 1.048,00
= kr.10.484,00
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. júlí 1991 til 10. janúar 1992 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006
hinn 1. janúar 1985 til 3196 hinn 1. janúar 1992.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 14 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1992.
Reykjavík, 31. désember 1991.
SEÐLABANKI ISLANDS
*
Gleðilegt nýtt ár
Þökkum það sem er
að líða
TRVGGMGAMIBS10DIN P