Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992. Fréttir ísaflörður: Meirihluti þriggja f lokka í bæjarstjórn að springa Gísli Hjartaison, DV, ísafiröi: Allar líkur eru á því aö meirihluti Sjálfstæðisflokks, Alþýðubandalags og Framsóknarflokks í bæjarstjórn ísafjaröar sé að springa. Hart hefur verið deilt síðustu daga um vinnu- brögð við mannaráðningar á skrif- stofur bæjarins. Fyrir skömmu var auglýst staða aðalbókara ísafjarðarkaupstaöar og bárust 11 umsóknir. Deilur komu strax upp meðal bæjarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins um ráðningu í starf- iö. Formaöur bæjarráðs, Georg Bær- ingsson, hafði lofað ákveönum aðila, Birgi Valdimarssyni, stuöningi en bæjarstjórinn, Smári Haraldsson, vildi annan umsækjanda, Guðbjörgu Konráðsdóttur. Samkomulag var svo gert á meiri- hlutafundi að ráða Guðbjörgu og að bæjarstjóri réði svo tvo aðra um- sækjendur í önnur störf á bæjar- stjórnarskrifstofunum, annan í afleysingar en hinn til tímabundinna verkefna. Þessi hrossakaup voru gerð til þess að þóknast öllum bæjar- fulltrúum Sjálfstæöisflokksins. Smári bæjarstjóri staðfesti í viðtali við DV að þetta væri rétt og myndi hann ráða þessa- tvo umsækjendur til starfa á næstunni. Á bæjarstjórnarfundi á fimmtu- dagskvöld var svo gengið frá ráðn- ingu í aðalbókarastörfin eftir miklar deilur meirihluta við minnihluta um form atkvæðagreiðslunnar. Guð- björg var svo ráðin með 5 atkvæðum meirihlutans. Einn seöill var auður og Bára Einarsdóttir fékk 3 atkvæði. Einar Garðar Hjaltason, forseti bæjarstjórnar, sagði í viðtali við DV að hann sætti sig ekki við þessi vinnubrögð þar sem stefnan væri að fækka á bæjarstjómarskrifstofunum með tilkomu nýs tölvukerfis. Sagði hann að ísafjarðarkaupstaður væri meö mesta yfirbyggingu allra kaup- staða á landinu. Ennfremur eru harðar deilur milli bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um vinnubrögö meirihluta bæjar- stjórnar. í meirihluta eru þrír full- trúar Sjálfstæðisflokks, einn fram- sóknarmaður og einn alþýðubanda- lagsmaður. í minnihluta sitja 2 full- trúar í-lista, sem er klofningsfram- boð sjálfstæðismanna, og 2 alþýðu- flokksmenn. Bæjarstjórinn er kjör- inn varafulltrúi Alþýðubandalagsins en gegnir ekki bæjarfulltrúastörfum meðan hann er bæjarstjóri. „Ég mun að sjálfsögðu taka sæti mitt sem varamaður í bæjarstjórn ef meirihlutinn springur," sagði Smári Haraldsson. Þeir eru nokkuð vígalegir, peyjarnir á lóð Vesturbæjarskóla, að minnsta kosti þegar þeir eru komnir upp á Tví- höfða. Tvíhöfði er eitt þriggja listaverka á skólalóðinni eftir Magnús Tómasson. DV-mynd GVA Neysluvatn ísfirðinga ekki hæft til böðunar Gísli Hjartaraon, DV, Isafirði; Neysluvatn ísflrðinga er yfirborðs- vatn og hefur kólígerlamengun af sauruppruna í vatninu verið mikið vandamál undanfama áratugi. Heil- brigöisnefnd kaupstaðarins auglýsti sl. haust í blöðum og óskaði eftir því að neytendur á ísafirði og í Hnífsdal syðu drykkjarvatn sitt. Rækjuverk- smiðjur og frystihús klórblanda vatnið sem notað er til matvælaiðn- aðarins. „Fólk á að sjóða drykkjarvatnið á ísafirði, Hnífsdal og í Súðavík því það er ónothæft til drykkjar ósoðið. Vatnsprufur hér á ísafirði hafa farið yfir mörkin sem gefin eru fyrir vatn til böðunar. Vatn eins og það sem bannað er að baða sig upp úr í Naut- hólsvík hefur verið notað til drykkjar á ísafirði," sagði Anton Helgason hjá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða í viðtali við DV þegar hann var spurður um vatnsmálin. Sagt er að ísfirðingar sem fari í sólarlandaferðir fái aldrei matareitr- anir vegna þess að þeir séu búnir að öðlast ónæmi gegn flestum bakter- íum með drykkju mengaðs vatns allt sitt líf. Sjúkrahús Vestmannaeyja: Skurðdeildinni lokað í sex vikur í sumar - ákvörðun sem vekur óánægju, segir framkvæmdastjórinn Stjóm Sjúkrahúss Vestmannaeyja hefur tekiö ákvörðun um að loka skurðdeild sjúkrahússins um sex vikna skeið í sumar. Er þetta gert til að ná niður rekstrarkostnaði, er samkvæmt tilmælum stjómvalda skal sjúkrahúsiö skila spamaöi upp á um 5-5,5 miltjónir á árinu. „Þetta er ákvöröun sem vekur óánægju og menn taka ekki með glöðu geði, nema síður sé,“ sagði Eyjólfur Pálsson, framkvæmdastjóri sjúkrahússins. „Reynslan ein mun skera úr um hvort þetta getur haft alvarlegar afleiöingar. En við treyst- um á sjúkraflugvél sem er hér á staðnum og getur farið í loftiö nánast hvenær sem er á þessum árstima." Skurðdefldinni verður lokaö í byrj- un júni. Þar vinna 20-30 manns og mun það starfsfólk verða í sumar- afleysingum meðan lokunin varir. Ákvörðunin um að loka skurðdeUd- inni var tekin í síðustu viku. Eyjólfur sagði að vonir stæðu til þess að hægt væri að ná tilskUdum sparnaði að mestu meö þessari að- gerð. -JSS Kristján næsti f or- maður íslandsbanka? Mjög líklegt er að ákveðið verði um helgina hver veröur næsti stjórn- arformaður íslandsbanka. Svo kann að fara að Kristján Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, verði næsti stjórnarformaður. Við stofnun bankans ákváðu eign- arhaldsfélögin þijú, sem eiga bank- ann að mestu, að skiptast á að hafa stjórnarformanninn. Nú verður tek- in ákvörðun um það hvort því fyrir- komulagi eigi að halda áfram. Miðað viö regluna til þessa ætti Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ og stjórnarformaður í Eignarhaldsfé- lagi Alþýðubankans, að taka við stjómarformennsku í íslandsbanka. Hann var fyrsti stjórnarformaður bankans. í miðjum kjarasamningum er hins vegar erfitt fyrir hann að vera báðum megin viö borðið, hvað þá þegar vaxtamál eru í brennidepli. Verði ákveðiö að skiptast á með stjórnarformanninn áfram vaknar sú spurning hvort Kristján Ragnars- son, fulltrúi Fiskveiðasjóðs í banka- ráði fái ekki formennskuna. Fisk- veiðasjóður á hluta í bankanum með eignarhaldsfélögunum enda þótt þau séu í miklum meirihluta.. Fiskveiðasjóður er hins vegar opin- ber sjóður, í eigu ríkisins. Fái Krist- ján stóhnn gegnir fulltrúi ríkisins þar með stjórnarformennsku í eina einkabankanum. Þetta getur orðið svolítið strembin ákvörðun. -JGH Skíðamótíslands: Kristinn vann í stórsviginu Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Kristinn Bjömsson frá Ólafsflrði og Örnólfur Valdimarsson úr Reykjavík háðu mikiö einvígi um íslandsmeistaratitihnn í stórsvigi á Skíðalandsmótinu í Hlíöarfjalh við Akureyri í gærmorgun. Eftir fyrri ferðina hafði Örnólfur nauma fomstu en Kristinn náði mjög góðri síðari ferð og tryggði sér sigur. Samanlagður tími hans var 1.32,04 mín. en Órnólfur fékk tímann 1.32,67 mín. í þriðja sæti varð Haukur Arn- órsson, Reykjavík, á 1.33,50 mín. í stórsvigi kvenna sigraði Ásta Hahdórsdóttir, ísafirði, sem fékk tímann 1.35,61 mín. Önnur varð Eva Jónasdóttir, Akureyri, á 1.38,35 mín. og í þriðja sæti Hildur Þorsteindóttir Akureyri á 1.44,81 mín. Ölf usárbrú lokuð í mánuð Kristján Einarason, DV, Selfossi: Ölfusárbrú við Selfoss verður lok- uð umferð stórra bifreiða frá 6. apríl til 25. maí og frá 21. apríl til 20. maí verður hún lokuð allri umferö. Vega- gerð ríkísins hefur nú hafið langþráð verk sem er endurgerð göngubraut- arinnar á brúnni og nýlagningar á aðalgólfið. Nú er verið að saga gamla gólfið í einingar sem hífðar verða af og nýjar einingar settar í staöinn. Þær eru forsteyptar og eru þegar tilbúnar. Á meðan á lokuninni stendur er um tvær leiðir að ræða til að komast til Selfoss, þaö er um Óseyrarbrú við Eyrarbakka og yfir Sogsbrú og Iðu- brú- og niður Skeið til Selfoss. Fram- kvæmdum viö brúna lýkur 26. júní. Ungur maður stunginn með hnífi 25 ára gamall maður var stimginn með hnífi í heimahúsi í Hafnarfirði í fyrrinótt. Maðurinn hafði hitt tvo menn á skemmtistað og fóru þeir þrír saman í heimahús. Lögreglu var tilkynnt um hnífstunguna og fann hún unga manninn hggjandi í blóði ...uíuiannd iannn ur íbuðinm nann handtekinn skömmu : Ungi maðurinn, sem fékk hnífs una, var fluttur á Borgarspít, með averka á bijósti og gekks undiraögerö.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.