Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992.
67
Afmæli
Gisli Helgason
GísH Helgason tónlistarmaður,
Reynimel 22, Reykjavík, verður fer-
tugurámorgun.
Starfsferill
Gísli fæddist í Vestmannaeyjum
og ólst þar upp. Hann stundaði nám
við Blindraskólann í Reykjavik,
Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja og
lauk stúdentsprófi frá MR1972. Gísli
stundaði nám við lagadeild HÍ í tvo
vetur og nám í tungumálum og sögu
við heimspekideild. Hann sótti nám-
skeið í Surrey University í Bretlandi
í hljóðupptökum og hljóðstjóm 1982.
Þá stundaði hann nám í blokk-
flautuleik hjá Oddgeiri Kristjáns-
syni 1962 og nam klarinettuleik við
Tónhstarskóla Vestmannaeyja
1964-68.
Með námi starfaði Gísli á sumrin
hjá Samvinnutryggingum og SÍS
1969-76. Hann sá um þáttinn Eyja-
pistil í Ríkisútvarpinu með Amþóri
bróður sínum 1973 og hafði síðan
með höndum dagskrárgerð um fé-
lagsmálefni ásamt Andreu Þórðar-
dóttur. Hann hóf að vinna að gerð
hljóöbóka fyrir Blindrafélagið og
Borgarbókasafn Reykjavíkur 1971,
varð starfsmaður Hijóðbókagerðar
Bhndrafélagsins 1977, þegar þessir
tveir aðilar hófu samstarf um gerð
og dreifingu hljóðbóka, og var síðar
deildarstjóri tæknideildar Blindra-
bókasafns íslands 1983-88. Þá varð
hann forstöðumaður Hljóðbóka-
gerðar Bhndrafélagsins þar sem
hannstarfarenn.
Gísh átti þátt í stofnun Vísnavina
1976 og var formaður félagsins um
skeiö. Hann hefur starfað aö félags-
málum Bhndrafélagsins frá 1969,
setið í stjórn félagsins frá 1988, sat
í nefnd er samdi lög Bhndrabóka-
safnsins, var varamaður í Svæðis-
stjórn um málefni fatlaðra í Reykja-
vík frá 1984 og aðalmaður frá 1988,
var formaður Svæðisstjórnar 1989-
1992, á sæti í stjórn Sjónstöðvar ís-
lands frá 1990 og er einn forsvars-
manna samtakanna Almánnaheill,
samtaka um réttlæti.
Gísh lék um árabil með dönsku
visnasöngkonunni Hanne Juul, að-
allega í Svíþjóð, starfaði með hljóm-
sveitinni Hálft í hvoru og vann að
hljómplötuútgáfu hljómsveitarinn-
ar og er nú í hljómsveitinni Is-
landica sem haldið hefur fjölda tón-
leika erlendis. Sú hljómsveit gaf út
plötuna Rammíslensk. Hann gaf út
plötuna í bróðemi með Gísla bróður
sínum. Þá hefur hann gefiö út plöt-
urnar Ástarjátning, 1985, og Heimur
handa þér, 1991, auk þess sem hann
hefur stjórnað upptökum á plötum
annarra hljómlistarmanna en Gísh
hefur rekið eigið útgáfufyrirtæki,
Fimmund, um nokkurra ára skeið.
Fjölskylda
Gísli er kvæntur Herdísi Hall-
varðsdóttur tónlistarmanni. Hún er
dóttir Hallvarðs Valgeirssonar við-
skiptafræðings, sem lést á síðasta
ári, og Rannveigar Tryggadóttur
þýðanda.
Dóttir Herdísar og kjördóttir Gísla
er Bryndís Sveinbjörnsdóttir.
Systkini Gísla eru Sigtryggur, for-
stjóri Brimborgar í Reykjavík; Stef-
án, ökukennari í Vestmannaeyjum;
Páh, ferðamálafrömuöur í Vest-
mannaeyjum; Guðrún, ræstinga-
stjóri á Hótel Sögu; Amþór, formað-
ur Öryrkjabandalagsins.
Foreldrar Gísla: Helgi Benedikts-
son, f. 3.12.1899, d. 8.4.1971, útgerð-
armaður og kaupmaður í Vest-
mannaeyjum, og kona hans, Guð-
rún Stefánsdóttir, f. 30.6.1908, hús-
móðir.
Gísli Helgason.
Ætt
Helgi var sonur Benedikts, odd-
vita á Þverá, bróöur Jónasar lækn-
is, afa Jónasar Kristjánssonar, rit-
stjóra DV. Benedikt var sonur
Kristjáns, b. á Snæringsstöðum,
Kristjánssonar, b. í Stóradal, Jóns-
sonar, b. á Snæringsstöðum, Jóns-
sonar, b. á Heijólfsstöðum, Jónsson-
ar, b. á Mörk, Jónssonar, ættfóður
Harðabóndaættarinnar. Móðir
Helga var Jóhanna Jónsdóttir, b. á
Höskuldsstöðum, Kristjánssonar.
Móðir Jóns var Jóhanna Jónsdóttir,
b. í Kasthvammi, Ásmundssonar,
bróður Helga á Skútustöðum, ætt-
foður Skútustaðaættarinnar.
Guðrún er dóttir Stefáns, útgerð-
armanns í Skuld í Vestmannaeyj-
um, Björnssonar, b. á Bryggjum í
Landeyjum, Tyrfingssonar. Móðir
Guðrúnar var Margrét, systir Guð-
jóns, fóður Guömundar söngvara.
Margrét var dóttir Jóns í Búð í
Þykkvabæ, Ólafssonar. Móðir
Margrétar var Guðfinna Eggerts-
dóttir, b. í Hákoti í Þykkvabæ, bróð-
ur Gísla, langafa Eggerts G. Þor-
steinssonar, forstjóra Trygginga-
stofnunar ríkisins.
Amþór Helgason
Arnþór Helgason, formaður Or-
yrkjabandalags íslands, Tjarnarbóli
14, Seltjamarnesi, verður fertugur á
morgun.
Starfsferill
Arnþór fæddist í Vestmannaeyj-
um og ólst þar upp. Hann fæddist
mjög sjóndapur og missti smám
saman þá sjón sem hann hafði uns
hann varð alblindur um fermingu.
Hann stundaði nám við Bhndra-
skólann í Reykjavík, lauk skyldu-
námi og síðan landsprófi frá Gagn-
fræöaskóla Vestmannaeyja 1968 og
lauk stúdentspróf frá MR1972.
Hann stundaöi síðan nám í íslensk-
um fræðum við HÍ og lauk þaðan
BA-prófl 1978, fyrstur blindra ís-
lendinga. Þá lauk hann prófum í
uppeldis- ogkennslufræðum 1980.
Við námið nutu hann og bróðir
hans, Gísh, ómetanlegrar aðstoðar
móður sinnar, systur og mágs, auk
fleiri einstakhnga.
Á sumrin var Amþór sölumaður
hjá Heildverslun Ásbjöms Ólafs-
sonar um nokkurra ára skeið, auk
þess sem hann vann við hljóðritanir
á vegum Bhndrafélagsins og Borg-
arbókasafns Reykjavíkur.
Á dögum Vestmannaeyjagossins
sá Arnþór um þáttinn Eyjapistil í
Ríkisútvarpinu ásamt Gísla, bróður
sínum, og hefur hann fengist við
dagskrárgerð fyrir útvarp öðm
hvom síðan. Hann hefur tekið virk-
an þátt í starfi herstöðvaandstæð-
inga og er framsóknarmaður frá
1980. Hann hefur setið í stjóm Kín-
versk-íslenska menningarfélagsins
frá 1974 og var formaður þess
1977-88. A þeim vettvangi hefur
hann kynnt kínverska tónlist hér á
landi og stuðlað að flutningi ís-
lenskrar tónhstar í Kína. Hann hef-
ur setið í Félagsmálaráði Seltjamar-
ness um tíu ára skeið.
Arnþór hefur frá unga aldri starf-
að á vegum Blindrafélagsins. Hann
var varaformaður þess 1972-77,
annaðist útgáfu fréttabréfs félagsins
um fjögurra ára skeið. Hann var
skipaður deildarstjóri námsbóka-
deildar Blindrabókasafns íslands
1983 og hefur haft forgöngu um
tölvuvæðingu bhndraletursútgáfu
hér á landi. Hann hefur verið ráð-
gjafi Bhndrafélagsins og annarra
um tölvustýrð hjálpartæki fyrir
blinda en nú er tölvueign blindra
einstaklinga mun almennari hér á
landi en þekkist annars staðar. Arn-
þór hefur setið sem fulltrúi Bhndra-
félagsins í stjórn Öryrkjabandalags
íslands frá 1982 og verið formaður
þess síðan 1986.
Fjölskylda
Amþór kvæntist 1989 Elínu Árna-
dóttur kennara. Hún er dóttir Árna
Jónssonar, framkvæmdastjóra og
nú formanns Gigtarfélags Islands,
og konu hans, Sólveigar Eggerz Pét-
Arnþór Helgason.
ursdóttur listmálara.
Systkini Arnþórs: Sigtryggur, for-
stjóri Brimborgar í Reykjavík; Stef-
án, ökukennari í Vestmannaeyjum;
Páll, ferðamálafrömuður í Vest-
mannaeyjum; Guðrún, ræstinga-
stjóri á Hótel Sögu; Gísli, tónhstar-
maður.
Foreldrar Amþórs: Helgi Bene-
diktsson, f. 3.12.1899, d. 8.4.1971,
útgerðarmaður og kaupmaður í
Vestmannaeyjum, og kona hans,
Guðrún Stefánsdóttir, f. 30.6.1908,
húsmóöir.
Um ættir Arnþórs má lesa í grein
um Gísla bróður hans í blaðinu í
dag.
Vitaö er að Arnþór og Ehn efna
til kaffisamsætis í thefni morgun-
dagsins. Verður það haldið í sal
Bhndrafélagsins að Hamrahlíð 17
milli klukkan 15 og 18 í dag, laugar-
daginn4.4.
Tívolí
Opnum um helgina Opið allar helgar, alla páskana og sumardaginn fyrsta í apríl
Hjá okkur er alltaf gott veður. Góð fjölskylduskemmtun.
Til okkar er styttra en þú heldur.
Tívolí, Hveragerði
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ FRAMSÓKN
ORLOFSHÚS SUMARIÐ 1992
Mánudaginn 6. apríl verður byrjað að taka á móti
umsóknum félagsmanna varðandi dvöl í orlofshúsum
félagsins.
Þeir sem ekki hafa áður dvalið í húsunum hafa for-
gang til umsókna vikuna 6.-10. apríl.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félags-
ins að Skipholti 50A frá kl. 9-17 alla daga.
Ath. að ekki er tekið á móti umsóknum í síma.
Vikugjald er kr. 8.000.
Félagið á 3 hús í Ölfusborgum, 1 í Flókalundi, 2 á
Húsafelli, 1 í Svignaskarði og íbúð á Akureyri, einn-
ig 3 vikur á lllugastöðum.
Stjórnin
símanúmer
Mánudaginn 6. apríl 1992 verður tekin í notkun ný
símstöð hjá borgarverkfræðingnum í Reykjavík og
öðrum borgarskrifstofum í Skúlatúni 2 og breytast
þá símanúmer þeirra.
Helstu númer verða þessi:
Aðalskiptiborð.............................63 23 00
Beint innval:
Skrifstofa borgarverkfræðings 63 23 10
Borgarskjalasafn 63 23 70
Bílastæðasjóður 63 23 80
Byggingadeild 63 23 90
Garðyrkjustjóri 63 24 60
Gatnamálastjóri 63 24 80
Húsatryggingar 63 25 20
Manntalsskrifstofa 63 25 50
Trésmiðja 63 26 00
Vélamiðstöð 63 26 32
Eftirtalin símanúmer verða óbreytt til 14. apríl:
Til 14. apríl Eftir 14. apríl
Byggingafulltrúi 62 33 60 63 24 30
Borgarskipulag 2 61 02 63 23 40
Ráðningarskrifstofa 62 33 40 63 25 80
f
Geymið auglýsinguna.
Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík
ALDREI ODYRARA TIL NOREGS!
Sigling til Noregs méb bíl og helgardvöl í Færeyjum
*Verö fró lcr. 14.540.-
meö gistingu á farfuglaheimili (3 nætur) í Færeyjum.
*Verð frá kr. 22.885.-
meö hótelgistingu (3 nætur) í Færeyjum.
miSað viS 4 í bíl ,gengi 31/3
;na
FERÐASKRIFSTOFAN
Sími 91 - 6263Ó2 og 97 21111