Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992. 53 Stutt öfganna á milli í fermingargjöfum: Vélsleðar og tölvur í stað gullúrsins - margir leita aðstoðar safnaðanna svo halda megi fermingarveislur Það þarf ekki að fara langt aftur í timann til að finna stórfelldan mun á fermingargjöfum þá og þeim sem eru gefnar í dag. Fyrir um 15 árum voru gullúr aðalfermingargjafirnar og aðeins lengra síðan fermingarbörn- um þótti mikill fengur í áletruðum pennum, að ekki sé minnst á handknúnar skólaritvélar. DV-mynd Brynjar Gauti „Viö höfum þegar selt tvo vél- sleða sem átti að gefa í fermingar- gjafir," sagöi sölumaöur eins vél- sleðaumboðsins við blaðamann nú í vikunni. Blaðamaður hváði en slík tæki kosta á bilinu 300-900 þúsund. Hver skyldi gefa svona fermingargjafir? spurðu alhr sem heyrðu þetta og hristu höfuðið í forundran. Víst er að mikið er að gerast á heimilum 'fermingarbarnanna þessa dagana. Sem fyrr eru það fermingarveislurnar og fermingar- gjafirnar sem eru einna fyrirferð- armestar í heimilislífinu vikurnar fyrir fermingar og hætta á aö ferm- ingarathöfnin sjálf og það sem hún táknar verði hálfgert aukaatriði, eitthvað sem gerist öðru hvoru megin við hádegi á fermingardag- inn. Gullúr og áletraðir pennar Fullorðið fólk, sem verður vitni aö fermingarveislum og gjafaflóði, segir gjarnan með glettnisblik í augum að það sé nú eiginlega uppi á vitlausum tíma, í géunla daga , hafi fermingarbörn gert sig ánægð með... Þessa þulu þekkja flestir en það þarf þó ekki að fara langt aftur í tímann til að finna stórfelldan mun á fermingargjöfum þá og þeim sem eru gefnar í dag. Það er ekki lengra en 15-20 ár síðan gullúr voru aðal- fermingargjafimar og aðeins lengra síðan fermingarbömum þótti mikili fengur í áletmðum pennum að ekki sé minnst á handknúnar skólaritvélar. Nú skrifa menn varla orðið stafkrók nema á greiðslukortanótur og ávís- anir, skrifi menn er hneppt með hjálp lyklaborða. Fermingargjaf- irnar taka mið af því. Tölvurog 5 þúsund kallar Tölvur eru mjög vinsæl ferming- argjöf um þessar mundir. Auk þeirra em hljómtækjasamstæður á 50-120 þúsund krónur, mynd- bandstökuvélar á 60-90 þúsund, sjónvörp, skíði með öllum búnaði og myndbandstæki nánast orðnir sjálfsagðir hlutir í gjafabunka fermingarbarnsins. Þá þykir varla gefandi minna en 5000 kall eigi aö gefa peninga. 100 þúsund krónur em því ekki ólíklegur afrakstur eftir stóra fermingarveislu. Fyrir utan allt þetta, sem þótti hinn mesti munaður fyrir tveimur áratugum, eru gefnar bækur, pennar, myndaalbúm og fleira og fleira. Fúll með mynd- bandstökuvélina Snúum okkur aftur að vélsleöun- um. DV frétti af einu fermingar- bami sem fékk fullkominn keppn- isvélsleða fyrir um 800 þúsund krónur í fermingargjöf á dögunum. Menn tóku þeim fregnum með fyr- irvara, vitandi að alls kyns tröÚa- sögur um gjafir og íburðarmiklar fermingarveislur grassera um það leyti sem fermingar eiga sér stað. Yfirlýsing fyrmefnds sölumanns og staðfesting á að eitt tiltekið fermingarbam á höfuðborgar- svæðinu hefði fengið vélsleða í fermingargjöf lækkaði í efasemdar- röddunum. Hins vegar varð áleitn- ari spurningin: Hvaö er fólk eigin- lega aö hugsa? I nýlegri könnun um afstöðu fólks til þess hvemig það minntist þessara tímamóta í lífi bama sinna ■ kom eindregið fram sú skoðun að það væri einkamál hvers og eins hvemig þessum hlutum væri hátt- að. Vissulega er það einkamál hvers og eins en það þýðir ekki um leið að enginn umræða um þetta skuli fara fram. En höldum áfram með dæmin: Annað fermingarbarn en það sem fékk sleðann gat ekki beinlínis kvartað eftir sína fermingarveislu. í gjafabunkanum voru tvær ferðir til Bandaríkjanna, önnur reyndar í sumarbúðir. Þá er ósögð sagan af fermingarbarninu sem fékk full- komna myndbandstökuvél en varð óskaplega fúlt yfir henni. Vegna snarræðis ættingja var vélinni forðað frá því að mélast í gólf- inu. Hjálp frá kvenfélaginu Það halda sjálfsagt flestir „eðh- legar“ fermingarveislur og gefa „eðlilegar" gjafir þó boginn sé óneitanlega spenntur vel í mörgu heimilisbókhaldinu. En svo em það öfgarnar. Meðan sumir foreldr- ar kunna sér ekki læti í innkaupum og veisluhöldum eru aðrir sem geta engan vegin klofið íjármáladæmi sem heitir ferming. Þaö fólk sér ekki aðra lausn á vandamálinu en að snúa sér til safnaðarins í sinni sókn til aö fá niðurfellingu ferm- ingarfræðslugjalda, um 5000 krón- ur, fá inni í safnaóarheimilinu á fermingardaginn og aðstoð kvenfé- lagsins til að halda veisluna. Önnur leið er ekki fær. „Ég hef sent bömin heim með þau skilaboð aö ef einhveijir erfiö- leikar séu því tengdir að greiða fermingarfræðslugjaldið geti for- eldrarnir skrifað mér bréf eða komið og gert grein fyrir vanda sín- um. í þeim tilfellum hafa þessi gjöld verið lögð niður. Það eru þó nokkr- ir aðilar sem hafa snúið sér til okk- ar í vandræðum sínum og fengiö þetta gjald fellt niður. Svo eru einn- ig nokkrir aöilar sem hafa fengið afnot af safnaðarheimilinu endur- gjaldslaust og fengið aðstoð kvenfé- lags sóknarinnar við að halda veisl- una. Það em engar 150 þúsund króna veislur en við gerum okkar besta til að minnast megi ferming- arinnar með „hefðbundnum“ hætti," sagði sóknarprestur í stórri sókn í Reykjavík þar sem mikið er af bamafólki. Hann sagði sögu af foreldrum sem voru að hugsa um að fresta fermingu sonar síns vegna fjár- hagserfiðleika. Hann réð þeim frá því þar sem sonurinn væri nú einu sinni í hópi skólafélaga sinna og hópsefjunin mjög sterk. í samtali við móðurina benti hann á að ferm- ingin þyrfti ekki að kosta svo mik- ið. Ef fjölskyldan kæmi saman heima í stofu ásamt nánustu vinum væri hægt að eiga ánægjulega stund sem stæði ekki síður eftir í minningu fermingarbarnsins en stór veisla. Móðirin fór að tillögum prestsins og mun ekki hafa séð eft- ir þvi. Hugurinn skiptir mestu „Það er erfitt að koma þaki yfir höfuðið en mér finnst börnin vera ábyrgari og meiri þátttakendur í að styðja foreldrana í því en marg- ur heldur. Maður finnur að það er erfiðara hjá sumum en það er svo merkilegt að þeir sem mest þurfa á aðstoð að halda standa fyrstir skil á öllum hlutum og eru síðastir til að biðja aðstoðar. Það er eins og þeirra þol sé meira en hinna enda úr hærri söðli að detta hjá mörgum öðrum," sagöi annar prestur. Sá er í stórri en rótgrónari sókn en þar sem fyrrnefndur starfsbróðir hans þjónar. „Ég hef talað við bömin og ekki fundið að þau séu með þá heimtuf- rekju sem virðist bera á einhvers staðar. Þau ræða miklu meira um einlægni gjafarinnar sem þau fá en ekki umfang hennar eða verðmæti. Mér fmnst krakkamir vera miklu opnari fyrir því að það er hugurinn sem skiptir mestu máli. Það era auð- vitað alltaf einhverjir innan um sem segja að þeir vilji þetta og ætli að gera hitt en vita samt innst inni að það er ekki hægt aö verða við óskum þeirra," sagði síðarnefndi presturinn. Hann sagði ekki algengt að fólk bæði um aðstoð við að halda upp á fermingu barnsins síns en það' kæmi þó fyrir. „Þaö er ljóst aö það er harðara í ári og fólk á erfiðara með að ná endum saman. Krafa barnanna um einhverjar gjafir er hins vegar ekki alltaf frá þeim komin heldur miklu frekar auglýsing einhverra ann- arra. Foreldrarnir tala ekki mikið saman. Neysluþjóðfélagið hleypur og stekkur eftir því sem sagt er og gert. Menn halda alltaf að náung- inn sé aö gera meira en þeir sjálfir sem er meira og minna öfugsnún- ingur. Annars er það virðingarverð niðurstaða að hvað foreldrar gera til að minnast fermingar barnsins síns sé einkamál hvers og eins.“ Ákvörðun á traustum grunni Þessi prestur sagöi að í umræð- unni um fermingargjafir léti fólk, sem ekki ætti hlut aö máli hverju sinni, mest að sér kveða. Þetta fólk væri að ímynda sér allt mögulegt. „Mér finnst oft lítið gert úr ferm- ingarbömunum varðandi þessa ákvörðun þeirra að fermast. Af samtölum við fermingarbörnin má ráða aö ákvörðun þeirra stendur á mun traustari grunni en foreldr- arnir gera sér oft grein fyrir. Þau þora hins vegar ekki aö tala al- mennilega um trú sína og segjast ekki vita hvað pabbi og mamma hugsa í trúmálum. Það er eins og þaö þurfi opnari umræðu á heimil- inu og að foreldramir sýni meira í verki að þeir styðji bömin sín í því skrefi sem þau eru að stíga,“ sagði presturinn. -hlh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.