Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Page 18
18
LAUGARDAGUR 4. APRlL 1992.
Veiðivon
Verð á veiðileyfum
er fáránlega hátt
- segir Eiður Guðnason umhverfisráðherra
Hann var fróðlegur og fjörlegur á
köflum formannafundur Landssam-
bands stangaveiðifélaga um síðustu
helgi í félagsheimili Stangaveiöifé-
lags Hafnarfjarðar.
Eiður Guðnason umhverfisráð-
herra, Amþór Garðarsson, formaður
Náttúruverndarráðs, og Ami ísaks-
son veiðimálastjóri fluttu erindi. En
seinni hluti fundarins var með for-
mönnum og fulltrúum veiðifélag-
anna.
Eiður Guðnason ráðherra ræddi
um stangaveiði, útivist og náttúru-
vernd. Hann byijaði að ræða um
verð á veiðileyfum og hann sagði að
sér þætti verð á veiöileyfum alltof
hátt í íslenskar veiðiár og hann hefði
aldrei hitt neinn sem hefði keypt
veiðileyfi í þeim. „ Verðið er fáránlega
hátt,“ sagði Eiður Guðnason.
Bæði Eiður og Amþór sögðu báðir
að þar sem sportveiðimenn færa
væra þeir í fremstu víglínu í náttúra-
vernd.
Ámi ísaksson veiðimálastjóri
ræddi um veiðina í sumar. Því er
spáð að laxveiðin verði góð næsta
sumar og mikið er rætt um laxaseiöi
sem flytja á frá ísnó í Kelduhverfi.
„Þetta eru ekki seiði af norskum
stofni, þau má þekkja eins og hand-
bolta og fótbolta. Það er engin sjúk-
dómahætta af þessum seiðum úr
ísnó, þessi seiði fara í Hraunsfjörð-
inn og í Rangárnar," sagði Ámi enn-
fremur.
Rætt um var mengun í Þorleifslæk,
Ölfusá og í Rangá hjá Hellu. Fundar-
menn höfðu miklar áhyggjur af þess-
ari megnun sem lengi hefur fengiö
aðviögangast. -G.Bender
Fundarmennirnir Daði Harðarson,
Þorsteinn G. Gunnarsson og Eiríkur
St. Eiríksson hlusta á Árna ísaksson
veiðimálstjóra.
Eiður Guðnason umhverfisráðherra.
DV-myndir G.Bender Arnþór Garðarsson, formaður Náttúruverndarráðs.
Þjóðar-
spaug DV
Helgi Sveinsson var bankastjóri
á Isafirði fyrir nokkrum tugum
ára. Hann var eindreginn bind-
indismaður og hélt uppi forystu
í þeim málum í kaupstaðnum,
meðal annars með stúkustarf-
semi.
Eitt sinn kom á fund Helga einn
af góðborgurum ísafjaröar, en sá
þótti nokkuð drykkfelldur, og var
erindi hans að biðja um lán.
Helgi tók umsókn hans vel en
sagðist þó setja það sem skilyröi
fyrir lánsveitingunni að hann
gengi í stúkuna.
„Eg get það ekki,“ stundi góö-
borgarinn, „ég get það bara alls
ekki, Helgi minn.“
„Af hveiju ekki?“ spurði Helgi
þá.
„Þú sérö svo skrambi fljótt á
mor ••
Stjómmálamaður, hægra meg-
in viö miðju, var eitt sinn of seinn
í matarboð og þótti honum það
mjög miður. Þaö glaönaði þó
heldur en ekki yfir pólitíkusnum
þegar honum var vísað til sætis
við hliöina á eiginkonu gestgjaf-
ans en fyrir framan þau var stórt
fat með ilmandi og vel steiktri
gæs. í gleði sinni yfir nálægðinni
við gæsina gat hann ekki orða
bundist og sagði því stundarhátt;
„Ég er nú bærilega settur hérna
hjá gæsinni.“
Er hann hafði mæit þessi orð
tók hann eftir ijótu augnaráði frá
eiginkonu gestgjafans og sá sig
því tilneyddan til að bæta við:
„Þeirri steiktu auðvitað.“
Örvæntu ekki
Við jaröarfór bóndakonu einn-
ar á Norðurlandi, sem hafði i
gegnum tiðina verið manni sín-
um ótrú, voru aðeíns viðstaddir
eiginmaður hennar og friðill, auk
prestsins. Eiginmaðurinn var
hinn rólegasti en friöillinn bar sig
aftur á móti rojög illa. Að jaröar-
fórinni lokinni gekk eiginmaður-
inn til hins syrgjandi friðils, lagði
hönd á öxl honum og sagöi:
„Örvæntu' ekki, vinur minn.
Hver veit nema ég gifti mig aftur."
Finnur þú fimm breytingar? 149
Annaðhvort ferð þú að brosa Nafn:.........
eða tekur hattlnn afl
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: SHARP stereo
ferðaútvarpstæki með kas-
settu að verðmæti kr. 6.380 frá
Hljómbæ, Hverfisg. 103.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.941.
Bækumar, sem eru í verðlaun,
heita: Á elleftu stundu, Falin
markmið, Flugan á veggnum, Leik-
reglur, Sporlaust. Bækumar eru
gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 149
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundrað
fertugustu og sjöundu getraun
reyndust vera:
1. HrönnGunnarsdóttir
Hlégerði 10, 200 Kópavogi.
2. Margrét Þórisdóttir
Hvammstangabraut 13,
530 Hvammstanga. .
Vinningamir verða sendir
heim.