Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1992, Page 33
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992.
45
Merming
Rómantí sk verk á
Sinfóníutónleikum
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt tónleika í Háskóla-
bíói á fimmtudagskvöldið. Stjórnandi var Petri Sakari
og einleikari á píanó var Þorsteinn Gauti Sigurðsson.
Flutt voru verk eftir Gunnar Þórðarson, Sergei Rakh-
maninov og Gustav Mahler.
Tónleikarnir hófust á Nocturne eftir Gumiar Þórðar-
son sem er hugljúf melódía í rómantískum stíl. Szym-
on Kuran, varakonsertmeistari hljómsveitarinnar,
hefur útsett verkið fyrir strengjasveit og hljómaði það
ágætlega. Því næst kom píanókonsert nr. 2 eftir Rak-
hmaninov. Þorsteinn Gauti mun hafa hlaupið í skarð-
ið fyrir annan með flutningi þessa verks og meö tiltölu-
lega skömmum fyrirvará. Þess gætti þó ekki í leik
hans. Þorsteinn er næmur tónlistarmaður og flutti
verkið á fíngerðan blæbrigðaríkan hátt og komst með
prýði frá þeim ýmsu tæknilegu þrautum sem verkið
hefur upp á að bjóða fyrir píanóleikarann. Hljómsveit-
in kom ekki eins vel út. Stilling í upphafi mistókst og
voru sumir blásararnir of lágir í tóninum út ailt verk-
ið. Hér gafst enn eitt tækifærið fyrir gagnrýnanda DV
til að endurmeta gagnrýna afstöðu sína til Rakh-
maninovs. Niðurstaða þess endurmats er sú að aldrei
hefur í pistlum þessum veriö ofsagt um gallana á tón-
verkum þessa ofmetna höfundar. Píanókonsert nr. 2
hljómar eins og röð væminna dægurlaga ofhlaðin
íburðarmiklum búningi sem drekkir því litla sem þar
kann að finnast og gerir að verkum að ekki er einu
sinni hægt að kalla þau sæt. Höfundurinn virðist ekki
hafa haft kunnáttu eða hugmyndaflug til að vinna al-
mennilega úr efnivið sínum. Þess í stað bætir hann
við nýju efni. Afleiðingin er smekklaus sundurgerð
svipað og flík væri saumuð úr bótasafni heimilisins.
Alltaf er beitt sömu aðferð, undirleik með laglínu ofan
á. Hvergi örlar á tjölröddun eöa tilraunum til að skapa
fjölbreytni og dýpt. Fyrir þá sem hafa gaman af fagur-
fræði síðrómantíkurinnar er mun nær að snúa sér að
hinni augljósu fyrirmynd Rakhmaninovs,
Tsjækovfskí, eða sjálfum höfuðpaurnum Wagner. Af
hverju að gista hjáleiguna þegar rúm býðst fyrir sama
verð á höfuðbólinu?
Síðasta verkið á tónleikunum, sinfónía nr. 1 eftir
Mahler, á sameiginlegt með píanókonsert Rakhman-
inovs síðrómantískt tónamál og fagurfræði. Að flestu
öðru leyti er það alger andstaða. Mahler notar einfald-
an efnivið en sýnir færni sína og andagift í úrvinnslu
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
efnisins. í höndum hans verður lítið frækom að stóru
tré sem breiðir út greinar sínar víða og myndar þegar
öll kurl eru komin til grafar heilan heim, rúman og
auðugan. í list Mahlers verður hvergi vart skorts á
hugmyndum eða kunnáttu en best njóta hæfileikar
hans sín í notkun hljómsveitarinnar. Hún fær að njóta
sín í öllum regnbogans litum. Stjórnandi og hljóm-
sveitarmenn virtust skilja hér sinn vitjunartíma því
að flutningurinn á þessu verki tókst mjög vel og virt-
ist aluð hafa verið lögð við undirbúninginn. Ágætur
gestur lék með homahópnum að þessu sinni, Ib Lan-
sky Otto. Hópurinn var skipaður sjö homleikurum
að þessu sinni og var homablásturinn mjög tilkomu-
mikill. Þessir tónleikar vom óvenjulega vel sóttir og
undirtektir áheyrenda voru eftir því.
Gunnar Þórðarson var höfundur fyrsta verks hljómleikanna, Nocturne.
Hann er hér ásamt Szymon Kuran varakonsertmeistara sem útsetti
verkið.
FACO FERMINGARTILBOÐ ’92
JVC 4X-1 TÖFRASTÆÐA
Litla töfrastæðan sem slegið hefur í
gegn víða um heim. Hún inniheldur
magnara, geislaspilara, útvarp, seg-
ulband, tímastillingu, hátalara og
fjarstýringu. Minnsta samstæða í
heimi með stórum hljóm.
Verð: 49.900,-
Frá JVC
RC-X220 Verð: 27.900.
JVC-ferðatæki: Mikið úrval af ferðatækjum með
útvörpum, einföldum eða tvöföldum segulbands-
tækjum með eða án geislaspilara. Þú færð rétta
tækið hjá okkur.
J VC RX 403 GÆÐASTÆÐ A
Fullvaxin gæðastæða sem inniheld-
ur öflugan magnara, útvarp, tónjafn-
ara, geislaspilara, fjarstýringu og
Polk-hátalara. Stílhrein stæða sem
gefur gæðatóninn.
Verð: 64.800,-
Tækniverslun
Laugavegi 89.
Sími 91-61 #30 #08