Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1992, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1992.
17
Fréttir
Golfáhugamenn vilja 18 hola völl á vestanverðu Seltjamamesi:
Tryggir framtíð svæðisins
„Meö 18 holu golfvelli á vestan-
verðu Seltjamamesi væri hægt að
tryggja framtíð svæðisins um
ókomna framtíð. Slíkur völlur heíði
í för með sér minni röskun fyrir lífrí-
kið heldur en vegalagning og stækk-
un byggðar. Svæðinu yröi vel haldiö
við og fuglarnir myndu fljótlega að-
laga sig að athöfnum golfaranna.
Framtíö þeirra á svæðinu yrði því
tryggð. Golfvöllurinn myndi koma í
veg fyrir að pólitíkusar framtíðar-
innar leggi svæðið undir byggð. Taki
menn spildu af vellinum eyðileggst
hann allur,“ segir Jóhann Reynisson,
golfáhugamaður á Seltjarnarnesi.
Jóhann hefur teiknað tillögu að
skipulagi á vestanverðu Seltjarnar-
nesi þar sem hann gerir ráð fyrir 18
hola golfvelli. Svipaða hugmynd
* - segir Jóhann Reynisson um skipulagsteikningu sína
bám forráðamenn Golíklúbbs Ness
fyrir fulltrúa bæjarstjómar síðastlið-
ið vor en henni vísuðu bæjarfulltrú-
arnir á bug, þar á meðal fulltrúar
minnihlutans sem vilja friða svæðið.
Meirihlutinn vill hins vegar byggja á
hluta svæðisins og leggja um það
akveg.
Að sögn Jóhanns byggðist höfnun
bæjarfulltrúanna fyrst og fremst á
þekkingarleysi á golf-íþróttinni. í
raun myndi golfvöllur þýða friðun
svæðisins, auk þess sem það yrði að
góðu útivistarsvæði. Eins og svæðið
sé núna sjáist þar varla hræða á
ferli, nema þá rétt á vorin og haustin
þegar fólk gengur um fjörurnar.
Auk golfvallar gerir Jóhann ráð
fyrir mini-golfvelli, púttvelli og
skipulögðu útivistarsvæði til hliðar
Se7//arnarrtai. asar
o$ li/ivts/arsváóurn
/oms/urKto-og t/tró/h
Jóhann hefur teiknað tillögu að skipulagi á vestanverðu Seltjarnarnesi þar
sem hann gerir ráð fyrir 18 hola golfvelli.
við völlinn. Þar segir hann að eldri
borgarar og yngri meðborgarar
þeirra geti sameinast í leik og úti-
vera.
„Meirihluti bæjarstjórnar telur sig
þurfa meiri peninga inn í bæjarfélag-
iö en það er tóm vitleysa. Fari svo
að svæðið verði byggt myndu Sel-
tirningar ekki eiga sér neitt útivist-
arsvæði. Þá myndu þeir betur stæðu,
sem borga vel til bæjarfélagsins,
flytja á brott, til staða þar sem stutt
er í útivistarsvæði. Eftir sæti miðl-
ungsfólkið og inn í bæjarfélagið
myndi láglaunafólk flytja, sem lítið
borgar í útsvar. Svo gæti því farið
að aukist byggðin þá tapi sveitarfé-
lagið tekjum. Aö hafna golfvelli er
því tóm vitleysa.“
-kaa
Hljómskálagarðurinn:
Sótt um leyfi fyrir enskt ferðatívolí
Jörundur Guðmundsson hefur sott
um leyfi til borgarráðs tO að setja
upp tívolí í Hljómskálagarðinum í
Reykjavík í sumar.
„Þetta er ferðatívolí frá Englandi
sem ég hyggst setja upp þarna, ef
leyfi fæst,“ sagði Jörandur við DV.
„Það yrði hérna frá byijun júlí til 21.
sama mánaðar. Við erum að tala um
16 tæki. Um er að ræöa hringekjur
með flugvélum og bátum og fleira
sem tíðkast á slíkum skemmtisvæð-
um.
Þetta myndi verða á túninu sunnan
við Hljómskálann. Þessum tækjum
fylgir sérstakur útbúnaður sem sett-
ur er undir þau til þess að hlífa gras-
sverðinum. Ummerkin eftir tívolíið
myndu hverfa á fáeinum vikum þar
sem gróðurinn er mjög fljótur að ná
sér á þessum tíma árs.“
Erindi Jörundar hefur verið vísað
til umsagnar garðyrkjustjóra
Reykjavíkurborgar. -JSS
30 daga, 8 stöðva upptökuminni,
þráðlaus fjarstýring, 21 pinna
„Euro Scart“ samtengi, sjálf-
virkur stöðvaleitari, klukka +
teljari, ísl. leiðarvísir.
Sértilboð 26.950,- stgr.
Vönduð verslun
E2 Aíborgunarskilmálar
IJLHÍJtCÞ
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005
SYMfN-G UM HELG1IVA. OPfe LAUGARDAG KL. 11-16 OG SUINfN'UDAG KL. 1
Peugeot 106 ber höfundum sínum fagurt vitni,
listasmiðunum sem lögðu alla hæfileika sína,
metnað og hugvit í að gera þennan glæsilega
bíl sem fullkomnastan.
Hnitmiðuð hönnun gerir Peugeot- 106
lipran, lifandi og rúmgóðan borgarbíl.
íslendingar gera þá kröfu til bíla að þeir standist
erfiða prófraun á misjöfnum vegum. Meistara-
smiðir Peugeot höfðu að leiðarljósi að finna
sem næst fullkomið samræmi milli stærðar
hans og þyngdar og þess hversu kraftmikill
bíllinn er. Niðurstaðan er sú að Peugeot 106
hefur reynst afbragðs vel úti á vegum og með
eindæmum sparneytinn. Peugeot 106 er ekki
stór bíll, en hann hefur marga stóra kosti.
Verð frá 672.500 kr.
JÖFUR
NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600