Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1992, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1992.
Fréttir
íslendingurinn sem sakaður er um vopnasölu:
Er vellauðugur athafna-
maður og býr erlendis
íslendingurinn, sem sakaður er
um að hafa stundað stórfellda ólög-
lega vopnasölu á undanfórnum
árum, er nú vellauðugur athafna-
maður og býr erlendis. I grein þýska
tímaritsins Spiegel, sem DV greindi
frá í gær, er fullyrt, að íslendingur-
inn Loftur Jóhannesson, fæddur á
íslandi 1930, hafi verið milliliður
milli vopnasala í Austur-Þýskalandi
og bandarísku leyniþjónustunnar
CLA í stórfelldum vopnaviðskiptum.
í greininni, sem unnin er upp úr
leyniskjölum austur-þýsku leyni-
þjónustunni Stasi, kemur fram að
Loftur hafi verið býsna umsvifamik-
ill og notið fyllsta trausts hjá vopna-
sölunum í Austur-Þýskalandi. Er
fullyrt að hann hafi fengið að fela
eigin vopn í leynilegum vopna-
geymslum þar og eru nefndar í því
sambandi RPG-18 skriðdrekabyssur.
Þá eru taldar upp stórar pantanir
stríðsvéla sem hann á að hafa lagt
fram hjá austur-þýskum vopnasöl-
um. Loks er minnst á umsvif hans í
svissneska bankanum Cantrade í
Ziirich. Þar naut hann sérstakrar
fyrirgreiðslu sem var flokkuð undir
fjármögnun þróunarverkefna á sviði
sérstakrar tækni. Þess skal getið að
„sérstök tækni“ er dulmál sem notað
var í Austur-Þýskalandi yfir vopna-
viðskipti áður en til sameiningar
kom.
Stofnaði Fraktflug
Aðeins einn íslendingur með nafn-
inu Loftur Jóhannesson er fæddur
Loftur Jóhannesson. Der Spiegel
segir hann hafa stundað vopnavið-
skipti í stórum stíl áður en Þýskaland
var sameinað.
árið 1930. Hann lærði flug, fyrst hér
heima en lauk síðan ílugstjóraprófi
í Englandi 1950. Eftir það hefur hann
að mestu búið erlendis, lengst af í
Englandi þar sem hann starfaði sem
flugmaður. Lögheimili á hann þó í
Reykjavík ásamt franskri eiginkonu
sinni og dóttur.
Loftur hefur rekið ýmis fyrirtæki
erlendis og sum þeirra hafa einnig
komið við sögu hér heima. Má nefna
Fraktflug, sem stofnað var í kringum
Biafra-stríðið. Félagið var starfrækt
í upprunalegri mynd vel fram yfir
1970. Þá fóru nokkrir meðeigenda
Lofts út úr því og stofnuðu íscargo.
Eftir það fór Loftur út í rekstur á
Douglas DC-6 A vöruflutningavél. Sú
vél fórst við Nurnberg 1974 þegar
hún var í blómaflutningum frá Nizza.
Sagður moldríkur
Síðan þetta átti sér stað hefur Loftur
staöið í ýmiss konar viðskiptum.
Hann hefur meðal annars fengist við
að kaupa og selja flugvélar. Einnig
hefur hann fengist við alls konar fyr-
irgreiðshi í flugbransanum. Sjálfur
hefur hann ekki unnið sem flugmað-
ur mörg undanfarin ár.
Það orð fer af honum að hann hafi
komist í góðar álnir erlendis og sé
nú orðinn moldríkur. Viðmælendur
blaðsins fullyröa að hann eigi kastala
í Suður-Frakklandi, búgarð við Was-
hington DC og loks húseign í Lon-
don. Sú mun ekki staðsett á versta
stað í borginni því að úr gluggum
hennar er gott útsýni yfir garð Buck-
ingham-hallarinnar. -JSS
Nýr eigandi að Hraðfrystihúsi Ólafsvikur:
Gerir ráð fyrir að f á hráef ni
frá í það minnsta 15 bátum
ÞórhaBur V. Einarsson, DV, Ólafsvik:
Guðmundur Tryggvi Sigurðsson á
Hvammstanga gekk nýverið frá
kaupum á Hraðfrystihúsi Ólafsvík-
ur, sem varð gjaldþrota 1990, og hefur
nú hafið rækjuvinnslu í húsinu.
Kaupverð var 60 milljónir króna.
Guðmundur hefur verið í rækju-
vinnslu frá 1959, lengst af í Hnífsdal
en síðan á Hvammstanga. Hefur þar
rekið rækjuvinnsluna Meleyri frá
1989.
Guðmundur sagði í samtali við DV
að ekki væri um það að ræða að
flytja starfsemi frá Hvammstanga
heldur væri fyrst og fremst um að
ræða hagræðingu - aukin umsvif.
„Ég hef trú á þessu og ætla að reka
þessi fyrirtæki saman. Það gefur
augaleið að það er betra að vera með
starfsemi þar sem hráefnið kemur á
land. Við höfum gegnum árin fengið
mikið hráefni héðan og flutt þaö
norður á bílum. Ég geri ráð fyrir aö
fyrirtækin fái hráefni frá að minnsta
kosti 15 bátum,“ sagði Guðmundur.
Ein rækjupillunarvél er í húsinu
hér og er reiknað með að bæta við
annarri. Þijár vélar eru á Meleyri
og þar starfa 50 manns. Fyrsta hrá-
efnið, sem barst hinum nýju eigend-
um hér til vinnslu, var frá rannsókn-
arskipinu Dröfn - alls 7 tonn.
Ljóst er að það er mikill fengur
fyrir byggðarlagið að fá þennan at-
vinnurekstur í gang því fjölmargir
fá vinnu þegar húsið verður komið
í fullan rekstur. Fyrst í stað verða
25 manns við rækjuna - á vöktum
fram til haustsins. Þegar frysting
hefst fjölgar í 50-60.
„Ég er mikill bjartsýnismaður og
þetta hús er heljarmikið bákn og þar
verður auðvitað að vera mikil starf-
semi,“ sagði Guðmundur Tryggvi
Sigurðsson.
Hraðfrystihús Ólafsvíkur.
DV-mynd BG
í dag mælir Dagfari
Fergie fer og kemur og fer
Ef frá eru taldar minniháttar frétt-
ir af falli Sovétríkjanna, blóðugum
bardögum í Júgóslafiu og forseta-
framboðum í Bandaríkjunum eru
helstu heimsfréttirnar þær að
Fergie vill skilja. Fergie þessi er
stelpa í Bretlandi sem lenti í því
óláni að giftast Andrew Bretaprins
og seinna var hún dubbuð upp í
nafnbótina: hertogaynja af Jórvík.
Ekki dugði sú upphefð fyrir eilífri
hjónbandssælu þeirra skötuhjúa
og kosningarnar í Bretlandi féllu
algjörlega í skuggann fyrir þeim
stórtíöindum að Fergie væri flutt
að heiman.
Nú er það sosum ekki í fyrsta
skipti sem breska konungsfjöl-
skyldan stendur í skilnaðarmálum.
Játvarður frændi afsalaði sér
meira að segja konungstign til að
geta kvænst sinni heittelskuðu og
Margrét drottningarsystir skildi og
Anna, elsta dóttur Elísabetar,
skildi og sagt er að stirt sé milli
Díönu og Kalla og af þessu sést að
blessað fólkið er laust í rásinni og
skilur eins og annaðiólk.
Gallinn við íslenskt þjóðfélag er
einmitt þessi að við höfum ekkert
kóngafólk sem styttir okkur stund-
imar meö siíjamálum sínum og
giftir sig hvorki né skilur og fjölm-
iðlamir hafa engin konungleg
hneyksli til að velta sér upp úr. Það
var mikill ljóður íslenskra sjálf-
stæðishetja á sínum tíma þegar
þær létu íslendinga hafna danska
kónginum. Við hefðum þó alténd
kóng til að líta upp til og konungs-
fjölskyldu sem geröi svo lítið við
og við að skilja við maka sína.
Það fer nefnilega á ekki milli
mála að hjónabönd og ástamál kon-
unga og drottninga, piinsa og her-
toga og allt aftur í þriðja og íjórða
ættlið, hafa umtalsverð áhrif á
gang heimsmálanna og umræðu-
efni almennings. Hugsið ykkur
hvað það væri líflegra í heitu pott-
unum eða skemmtilegra í sauma-
klúbbunum ef íslenskur og sauð-
svartur almúgi gæti smjattað á
kjaftasögum um hjónabandserfið-
leika konungborinna nágranna.
Það er hins vegar af Fergie bless-
aðri að segja að hún hefur komið
víðar við sögu og oftar en núna
þegar hún skilur við Andrew. Hún
var ýmist of feit eða of grönn, vel
klædd eða illa klædd og svo daðr-
aði hún við útlendinga og hló á vit-
lausum stöðum. Allt hefur þetta
greinilega farið í taugarnar á
gömlu Elísabetu drottningu, sem
vill ekki að tengdadætur sínar hlæi
á vitlausum stöðum eða daðri við
aðra en syni hennar og sagt er aö
Elísabet hafi svælt Fergie úr hjóna-
bandinu.
Illt er ef satt er því Andrew
kvæntist stúlkunni og hún giftist
Andrew en ekki Bretadrottningu.
En svona fær kóngafólk htlu ráðið
um það hveijum það giftist og jafn-
vel þótt þau hjónakomin bæði vilji
kannski halda áfram hjónabandinu
er Elísabet því andvíg og þar við
situr.
Um tíma leit út fyrir að hjóna-
bandinu yrði bjargað og lögfræð-
ingar og skrifstofur þeirra gengu á
milh og Fergie var á leiðinni heim.
En nú er hún flutt út fyrir fuht og
allt eftir því sem sagt er og búin
að fá sér leigt hjá Nígeríumönnum
í nágrenni við Buckingham og ætl-
ar að láta slag standa.
Það var sagt að Fergie hefði hald-
ið fram hjá og haldið því áfram eft-
ir að upp komst. Því var mótmælt
af manninum sem Fergie átti að
hafa haldið við. Hann vill ekkert
við það kannast að hafa haldið við
Fergie en niðurstaðan er engu að
síður sú að Fergie hrekst úr kon-
ungsfjölskyldunni fyrir að hafa leg-
ið undir grun um að hafa haldið
við mann sem sjálfur heldur því
fram að það hafi ekki verið neitt
framhald á neinu framhjáhaldi
sem aldrei var til.
Ef fer sem horfir er Fergie orðin
eins og hver önnur stúlka úti í bæ
og fær sennilega heldur ekki að
halda því að vera hertogaynja. Hún
mun gleymast og gifta sig sjálfsagt
á ný og enginn mun skhja neitt í
því hvers vegna hún skildi eða af
hverju hún hætti við að skilja og
hætti svo viö að hætta við að skilja.
En vonandi tekst Elísabetu Eng-
landsdrottningu að fmna nýja og
siðprúða stúlku hana Andrew sem
hlær á réttum stöðum og heldur
ekki við neinn, sem hún heldur
ekki viö, þótt drottningunni sé sagt
að hún haldi við.
Fergie er sem sagt farin.
Dagfari