Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1992, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1992.
7
Sandkom
Fréttir
Þaulsætnir
ráðherrar
Nú er nýja
simaskráin
kominútogoft
þykirinmgóð
lesning. Tii-
gangnrinn með
lesti-inumcr
ekld ailtaf að
flettauppá
símanúmeri,
eins og líklega
séstafathuga-
semd sem
sandkornsrit-
arabarsttil
eyma.Þaðgild-
irsvo sem einu í hvaöa tilgangi flett
var upp á niifnum ráðherra síðustu
ríkisstjómar en sá sem fietti komst
aö því að Steingrtmur Hermannsson
er í nýju símaskránni títlaður forsæt-
isráðherra. HjörieifurGuttormsson
er titlaður fv. iðnaðarráðherra og
Haildór Ásgrímsson ráðherra.
Búistvið
sætaskiptum?
Þaðgddireinu
ln-ers\epna
ennerveriðað
fiagga ráð-
herratíöum
aftímviðnöfn
fyrrgreindra,
Eneftilvill
verða þessir
titlarréttirað-
urcnsíma-
skráinfyrirár-
iðl993verður
kominút.í
kiölfarýmissa
nýrralagahef-
ur því nefnilega verið fleygt að nú-
verandi ríkisstjórn verði ekki langlíf.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra hefur að minnsta kosti alltaf
farið varlega í sakimar og titlað sig
blaðamann í símaskránni.
Borgar Fjalar?
Víkurblaðið
greinirfráþví
aðmjögséunú
tii umræðu
kaupBorgar-
bræðraáTré-
smiðjunniRial-
ariht Állusa-
víkveltamenn
núfyrirsér
nafniákomp-
aníiðefafsam-
eininguverður.
Stungíðhefur
veriðuppá
nafninuBorg-
arflalar.aðþvíersegirí Víkurfrétt-
um sem einni g geta þess að íðnaðar-
manni nokkrum, sem átti inni tölu-
verðar upþliæöir hjá Rjalari, haft
þótt þetta besta nafnið „því það felur
í sér spuminguna sem viö höfum
margir verið að velta fyrir okkur
undanfárna mánuði, þ.e.a.s. hvenær
borgarPjalar?
Skítleg með-
íérð á skít
í Bændablað-
inuoglands-
hyggöinni er
bentáaðíengu
sveítarfélagi
fallitileins
míkiðafbú-
fjáiáburði og í
Reykjavíkþar
semséusaman
kominfieiri
hrossáhúsum
eníöðrttm
sóknum.
„Hestamenn í
Reykjavík
greiða talsverðan toll fyrir að losna
við skítiun frá húsum sínum en hann
er keyrður upp í Gufunes þar sem
hann er uröaður,'1 segir í blaðinu.
„Þetía er athyghsvert í ljósi þess
tnikla gróður\>eradaráhuga sem ein-
kennir oft umræður manna þar syöra
og viða nærri höfuðborgarsvæðinu
eru lítt grónar melar og klappar-
holt...“
Umsjón: Ingibjörg Bára Sveinsdóttir
Byggðastofnun boðar sölu hlutabréfa í 11 sjávarútvegsfyrirtækjum:
Eiga um 7 prósent
botnfiskkvótans
„Það er vilji fyrir því að koma rík-
inu út úr rekstri þessara fyrirtækja.
Ég dreg hins vegar í efa að okkur
takist að koma öllum bréfunum í
verð. Fæst þessara fyrirtækja hafa
verið markaðsvara og því miður hef-
ur hlutafjármarkaðinum hrakað svo
mikið að skortur er á fjárfestum,"
segir Guðmundur Malmquist, for-
stjóri Byggðastofnunar.
Hlutafjárdeiid Byggðastofnunar
hefur auglýst til sölu hlutabréf sín í
12 fyrirtækjum, þar af 11 í sjávarút-
vegi. Nafnverð bréfanna er samtals
856,2 milljónir en heildarhlutafé fyr-
irtækjanna er tæplega 2.355 milljón-
ir. í öllum tilvikum á sjóðurinn
minnihluta hlutaíjár í fyrirtækjun-
um. Eignarhluti stofnunarinnar í
fyrirtækjunum tólf er á bilinu 21 til
49 prósent.
Samkvæmt upplýsingum, sem DV
hefur aflað sér, eiga sjávarútvegsfyr-
irtækin ellefu samtals um 7,17 pró-
sent af öllum botnfiskkvóta lands-
manna, í þorskígildum talið. Sam-
kvæmt upplýsingum frá sjávarút-
vegsráðuneytinu er samanlagður
kvóti fyrirtækjanna upp á tæplega
26 þúsund lestir meðan heildarkvót-
inn er upp á tæplega 358 þúsund lest-
ir.
Miðað við að markaðsverð á kvóta
sé um 172 krónur kílóið, umreiknað
í þorskígildi, má gera ráð fyrir að við
sölu fengjust ríflega 4,4 milljarðar
króna fyrir botníiskkvóta fyrirtækj-
anna, eða rúmlega tveimur milljörð-
um meira en heildarhlutafé fyrir-
tækjanna er.
Samkvæmt þessu er ljóst að raun-
verð hlutabréfa Byggðastofnunar er
Skaiíá
meðsólskin
og sunnanvind
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egflsstöðum:
Fyrsti hlýi dagurinn á Héraði í vor
var 16. maí eða eins og orðheppinn
nemandi sagði í prófritgerð: „þá skall
hann á með sólskin og sunnanvind".
Eftir mildan og snjóléttan vetur var
apríl kaldur svo og fyrri hluti maí.
Frost fór niður í 10 stig við jörð 10.
maí og hitastigið náði jafnvel ekki
að skríða upp fyrir núllið um hádag-
inn.
En laugardaginn 16. maí breytti til
hins betra og þá komu hlýindin sem
oftast fylgja sunnanáttinni hér
eystra og hitinn rauk þegar upp í
tveggja stafa tölu.
Akureyri:
Systrakvöld í
Glerárkirkju
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Kvennakvöld, eða svokallað
systrakvöld, verður haldið í Glerár-
kirkju á Akureyri í kvöld og hefst
dagskrá kl. 21.
Þema kvöldsins er „leið kærleikans
í andlegri uppbyggingu" og verður
dagskrá mjög fjölbreytt. Kynning
verður á Taizé bænatónlistinni,
kenndar verða bænir og andlegar
æfmgar, söngur, tónlist, hæn og fyr-
irbæn og írska söngkonan Máire
Lange syngur á keltnesku. Einnig
verður kynning á kyrrðardögum fyr-
ir konur sem haldnir verða að Hólum
í Hjaltadal 28.-31. maí í umsjá Sigríð-
ar Halldórsdóttur og Helgu Hró-
hjartsdóttur.
margfalt hærra en nafnverð þeirra.
Miðað við eignarhluta Byggðastofn-
unar í sjávarútvegsfyrirtækjunum
má áætla aö kvótaeign stofnunarinn-
ar ein og sér sé rúmir 1,4 milljarðar.
Hlutabréf hlutafjárdeildar urðu
eign Hlutaflársjóðs þegar stórir
kröfuhafar í fyrirtækjunum breyttu
kröfum sínum í hlutdeildarskírteini
þegar í ljós kom að þau gátu ekki
staðið í skilum. Ríkið og ýmsar stofn-
anir þess, svo sem Landsbankinn,
Byggðastofnun og Fiskveiðasjóður,
eiga um 96 prósent af eignum Hluta-
fjársjóðs sem nú er rekinn sem sér-
stök deild í Byggðastofnun. Andvirði
seldra hlutabréfa mun þvi að lang-
stærstum hluta renna til ríkisins.
Að sögn Guðmundar renna menn
nokkuð blint í sjóinn varðandi hugs-
anlegt söluverð hlutabréfanna enda
í fæstum tilfellum til skráð gengj á
þeim. Auglýsingin sé fyrst og fremst
tilkynning um eignir sjóðsins. Komi
hins vegar fram áhugi á einstökum
bréfum verði gengið til þess verks
að auglýsa þau með tilboðsfresti og
tilheyrandi skilmálum. Þess má geta
að samkvæmt lögum skal Byggða-
stofnun bjóða til sölu hlutabréf sín
eigi síðar en 4 ármn eftir kaup þeirra.
-kaa
Hlutabréfasala Byggðastofnunar
- nafnverð hlutabréfa og áætlað söluverðmæti kvóta -
Ferðin heffst
V\a I I