Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1992, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1992, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 20. MÁl 1992. Utgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HORÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aöstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91)63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÓLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð i lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr Alþingi frestað Alþingi lauk störfum í nótt. Þinginu var frestað fram í ágúst en þá verður þráðurinn tekinn upp að nýju vegna samninganna um evrópska efnahagssvæðið. Mun ekki af veita, enda eru það bæði flókin mál og viðamikil, auk þess sem allt stefnir í harðar pólitískar deilur um þessa samninga og samband okkar við Evrópu yfirleitt. Segja má að þingstörfum ljúki í miðjum klíðum. Mörg stór mál, sem flutt eru af ríkisstjórninni, eru óaf- greidd og á það einkum við einkavæðingu ríkisfyrir- tækja og sölu ríkisins á þeim. Ennfremur eru margar blikur á lofti í atvinnu- og efnahagsmálum og allt gerir þetta að verkum að frestun þingsins virkar ótímábær. Þinghald í vetur hefur verið með sérkennilegum blæ, stöðugar uppákomur, óvanalegar deilur og að sumu leyti ruglingslegt og óskipulagt verklag. Getur það verið að breytingarnar á skipan Alþingis hafi ekki reynst sem skyldi? Með því að leggja deildaskiptingu á Alþingi niður og færa þingið í eina málstofu var ætlun manna að þingið yrði skilvirkara. Einföld nefndaafgreiðsla, einfóld um- ræða í einni málstofu og aukin verkaskipting milli þing- manna átti að gera stjórn og skipulag þingstarfa sam- ræmdari og léttari. Þegar haft er í huga að meirihluti stjórnarliðsins er öruggur, stjórn þingsins í höndum stjórnarliða og mikið af nýjum þingmönnum, sem eru lausir við gamlar hefðir og hægagang, mátti ætla að afköst Alþingis yrðu meiri og ríkisstjórn reyndist létt- ara að koma málum í gegn. Raunin hefur orðið önnur og forsætisráðherra hefur hvað eftir annað séð ástæðu til að kvarta undan mál- æði og málalengingum sem tefja þingstörf. Ríkisstjórnin hefur átt í bash með að koma málum í gegn. Það er nefnt sem dæmi um erfiðleika ráðherranna að Jón Sig- urðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra hafi ekki komið neinu frumvarpi í gegnum þingið í vetur. Við höfum hvað eftir annað orðið vitni að málþófi eins eða nokkurra þingmanna sem þannig geta stöðvað alla afgreiðslu á þingi. Þingheimur bíður og löggjafar- valdið lamast við það að einn alþingismaður sest að í ræðustólnum. Auðvitað hefur það átt sinn þátt í seinagangi og mála- tilbúnaði á þingi að sest hefur að völdum ný ríkisstjórn sem fetar nýjar slóðir; ríkisstjórn sem stendur frammi fyrir risavöxnum vanda. Það er mikil undiralda í stjórn- málunum. Viðfangsefnin eru ný, viðhorf og gildismat eru að breytast, línurnar í flokkapólitíkinni ekki eins skýrar og áður. Flokkakerfið er að riðlast og það hefur áhrif á afstöðu þingmanna í vaxandi mæli. Samflokks- menn greinir á. Það er til að mynda áberandi í vetur hvað stjórnar- þingmenn hafa oft og tíðum átt stóran þátt í seinkun á afgreiðslu þingmála. Ágreiningur gengur þvert á flokka, skarast í málaflokkum og það þarf þumalskrúfur á marga þingmenn áður en þeir sætta sig við flokkslínuna eða handjárn ríkisstjórnar. Þinghaldið í vetur ber keim af þessari þróun. Það er of snemmt að dæma ríkisstjórnina og verk hennar af þessu fyrsta heila þingi hennar. Hins vegar er ljóst að stjórnarstefnan er í grundvallaratriðum ólík síðustu stjórn og raunar ólík þeim hugsunarhætti í póh- tík sem hefur verið ráðandi í tuttugu ár. Það tekur tíma að venda kvæðinu svo vendilega í kross. Þingmönnum er vorkunn þótt þeir bregði fyrir sig málæðinu. Ellert B. Schram „ ... þróunarlöndin munu sem hópur hagnast af verði frjálsræði með landbúnaðarafurðir aukið ...,“ segir greinarhöf. m.a. - Utanrikisráðherra kynnir GATT-samning á Hvolsvelli með bændum. 1200 milljarðar krónaáári Eg hef í tveim greinum hér í blað- inu rætt annars vegar mögulegan hagnað alls almennings af fjrálsum milliríkjaviðskiptum og hins vegar mögulegan hagnað einstakra hópa af að takmarka þessi sömu viö- skipti. Þróun millirikjaviðskipta í kjölfar kreppunnar miklu í kjölfar kreppunnar miklu urðu mörg lönd fyrir skakkafóllum vegna minnkandi útflutnings og halla á utanríkisviðskiptum. Við þessu var brugðist með gengisfell- ingum og innílutningstakmörkun- um. Með þessum hætti vildu menn, í hverju landi fyrir sig, annars veg- ar auka útflutning (gengisfelhng gerir innlenda framleiðslu ódýrari erlendis) og draga úr innflutningi. En eitt land nær ekki að bæta viðskiptajöfnuð sinn með ofan- greindum hætti án þess að við- skiptajöfnuður annarra landa versni að sama skapi. Hvert þeirra beitti sömu meðölum, gengisfell- ingu og innflutningshömlum. Og niðurstaðan varð verulegur sam- dráttur í heimsviðskiptum, þannig að árið 1937 voru þau 17% minni en árið 1929. Stofnun og hiutverk GATT Eftir seinni heimsstyrjöldina voru iðnríkin sammála um að láta ekki samkeppnistollahækkanir miflistríðsáranna takmarka hag- vöxt. Árið 1947 undirrituðu 23 lönd Almenna samninginn um tolla og viðskipti (General Agreement on Tariíf and Trade, GATT). Um 90% heimsviðskipta á þessum tíma var milli landa er áttu aðild að samn- ingnum. Aöildarlönd samningsins eru nú yfir 100 talsins. Höfuðmarkmið samningsins er að auka frelsi í milliríkjaviöskipt- um. Til að vinna að þessu hafa toll- ar aimennt verið lækkaðir í sjö lot- um. Áætlað er að meðaltollur í heimsviðskiptum hafi numið 40% árið 1947 en sé nú orðinn um 4,7%. Þetta er ekki lítill árangur. Auk tollalækkana skuldbindur samn- iingurinn aðildarlöndin til að veita engu landi sem aðild á að samn- ingnum betri kjör en öðru landi. Þá er einnig lagt bann við magntak- mörkunum innflutnings. KjaUarinn Þórólfur Matthíasson lektor í hagfræði við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla íslands Fra þessu tvennu eru gefnar mik- ilvægar undanþágur: Það er leyfi- legt að stofna tollbandalög (eins og EFTA og EB) og vinna að hraðari tollalækkun innan vébanda þeirra en innan GATT. Þá eru landbúnað- arafurðir og álnavara undanþegn- ar ákvæðunum um magntakmark- anir. Upprunalega samkomulagið nær heldur ekki til þjónustustarf- semi nema að litlu leyti. Sömuleið- is er þar ekki fjallað um verndun höfundarréttar á t.d. tölvuforritum eða vemdun eignarréttar á öðrum hugverkum. Uruguay lotan Uruguay lotan hófst 1986 í bæn- um Punta del Este í Uruguay. Höf- uðmarkmið þessarar lotu er að lækka meðaltoll í heimsviðskipt- unum um 30%, úr 4,7% í um 3,3%. Slíkt markmið næst ekki nema undanþágur sem nú eru í gildi séu afnumdar eða takmarkaðar veru- lega. Landbúnaðarafurðimar skipta því miklu máli í þessu tilliti. Mikilvægi hugbúnaðar og annarra hugverka í milhríkjaviðskiptum hefur aukist mikið. Miklu skiptir, sérstaklega fyrir iðnríkin, að sam- komulag verði er veiti höfundum eða eigendum upprunalegs höf- undarréttar vernd gagnvart ólög- legri fjölfóldun eða annarri ólög- legri nýtingu slíkra verka. Þaö vih svo vel til að þróunar- löndin munu sem hópur hagnast af, verði frjálsræði með landbúnað- arafurðir aukið, á sama tíma og iðnríkin hagnast á samkomulagi er tryggir eignarétt hugverka betur en nú er, eins og fyrr sagði. Fyrir- fram hefði þvi mátt ætla að þaö yrði fljótgert aö ná samningi. Vandamáhð nú, eins og blaðales- endur hafa fylgst með, felst í inn- byrðisdeilum iðnríkjanna og þá sérstaklega Evrópubandalagsins og Bandaríkja Norður-Ameríku um umfang landbúnaðarstyrkja. Mögulegur ávinningur af GATT samkomulagi Á vegum Efnahags- og framfara- stofnunarinnar (OECD) hefur ver- ið lagt mat á mögulegan ávinning íbúa heimsins af verði GATT samningur aö veruleika. Og niður- staðan er: tæpir 200 milljarðar doll- ara eða 1200 milljarðar íslenskra króna á ári. Meginhluti þessa ávinnings myndi faha annars vegar nýfrjáls- um þjóðum Austur-Evrópu og hins vegar þjóðum þróunarlandanna í skaut. Ávinningur þessara þjóða af GATT samkomulaginu yrði mun meiri en nemur allri opinberri þró- unaraðstoð við þær! Með öðrum orðum: GATT samkomulagið er áhrifamesta þróunaraðstoðin sem í boði er um þessar mundir! Þórólfur Matthíasson „Vandamáliö nú, eins ogblaðalesendur hafa fylgst með, felst í innbyrðisdeilum iðnríkjanna og þá sérstaklega Evrópu- bandalagsins og Bandaríkja Norður- Ameríku um umfang landbúnaðar- styrkja.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.