Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1992, Síða 16
16
Menning
Listahátíð í Reykjavík fram undan:
Hlutur leiklistar
aldrei verið eins stór
- setning hátíðarinnar 1 Kvosinni
Draumleikur eftir August Strindberg, í leikstjórn Lars Rudolfsson, hefur fengið mikið lof gagnrýnenda í Svíþjóð. Á
myndinni eru Elsbeth Berg, Gudrun Henriksson, Lotta östlin og Hákan Fohlin I hlutverkum sínum.
Þrir heimsfrægir listamenn á sviði tónlistar sem munu halda tónleika í Reykjavík: óperusöngkonan Grace Bumbry,
flautuleikarinn James Galway og djasssöngkonan og pianóleikarinn Nina Simone.
Listahátíð í Reykjavík er haldin á
tveggja ára fresti og má segja að
menningarþyrstir íslendingar bíði
hverrar hátíðar með mikilli eftir-
væntingu, enda hefur ávallt tekist
að fá heimsfræga og eftirsótta hsta-
menn til að koma fram á hátíðinni
og svo verður einnig nú.
Listahátíðin í ár er ekki aöeins
mjög fjölbreytt, sem og fyrri hátíðir,
heldur er hún einnig sú lengsta,
stendur yfir frá 30. maí til 19. júní.
Forskot á sæluna verður tekið 27.
maí en þá skemmta hinir vinsælu
Gipsy Kings í Laugardalshöll. Á síð-
ustu Listahátíð kom til tals að Gipsy
Kings skemmtu en af því gat ekki
orðiö þá. Nú mæta þessir skemmti-
legu listamenn með gítara sína og
skemmta og er mikill áhugi á komu
þeirra hingað enda hefur tónlist
þeirra hljómað á öldum ljósvakans
nokkur undanfarin ár og margir eiga
flutning þeirra á plötu eða geisla-
diski.
Auk opnunarinnar á laugardaginn
verður flutt í Þjóðleikhúsinu nýtt
tónverk eftir Hjálmar H. Ragnars-
son. Þetta er ópera í tíu þáttum við
texta HaUdórs Laxness sem nefnist
Rhodymenia Palmata. Þá veröa sin-
fóníutónleikar í Háskólabíói þar sem
einsöngvari verður óperusöngvar-
inn Gösta Winbergh sem oft hefur
verið nefndur í Svíþjóð hinn nýi
Björhng.
Síðan mun hver stóratburðurinn á
listasviðinu taka við af öðrum. 31.
maí verða opnaðar þijár stórar hst-
sýningar: Miro á Kjarvalsstöðum,
2000 ára litadýrð og Daniel Buren í
Listasafni íslands. Auk þess verða
margar fleiri sýningar í gaheríum og
sýningarsölum. Má þar nefna Krist-
ján Davíðsson í Nýhöfn, yfirlitssýn-
ingu á verkum Hjörleifs Sigurðsson-
ar í Norræna húsinu og FÍM-salnum
og Björn Brusewitz í Listasafni ASÍ.
Leiklist skipar
sérstakan sess
Leikhstin skipar sérstakan sess á
Listahátíð að þessu sinni þar sem
undir hana fallá Norrænir leikUstar-
dagar 4.-9. júní. Norrænir leiklistar-
dagar eru haidnir annað hvert ár á
vegum NorrænaleikUstarsambands-
ins og skiptast löndin á um aö halda
þessa leikUstarhátíð. Þegar þau at-
riði, sem verða á þessum leikUstar-
dögum, samemast leikhstinni á
Listahátíðinni má segja að svo fijótt
leikhúslíf hafi aldrei verið í Reykja-
vík því auk aðkominna leikUstar-
hópa verða leikhúsin í borginni með
sýningar á leikritum sem þar eru enn
í fullum gangi.
Af erlendum leikUstaratriðum má
nefna tvær sýningar sem koma frá
Svíþjóð. Önnur er uppsetning Orion-
leikhússins í Stokkhólmi á Draum-
leik Augusts Strindbergs í leikstjórn
Lars Rudolfsson. Hann fékk núklu
gagnrýnendaverðlaunin sænsku
1990 fyrir leiksfjórn sína á þessu
verki. Hin sænska sýningin er Ham-
let - en stand up eftir bræðuma
Shakespeare, gamansorgleikur í
fimm þáttum. I öUum hlutverkum
er Roger Westberg. Þetta er sýning
sem Svíar hafa hlegið sig máttlausa
yfir frá því hún var frumsýnd í fyrra-
vor.
Frá Danmörku kemur bamaleik-
húsið Artibus með Apann, sýningu
sem hefur farið sigurfór um Dan-
mörku. Þar segir frá drengnum Allan
sem vaknar einn morgun og hefur
þá breyst í apa. Finnar senda hingað
tfl lands dansflokk Jorma Uotinen
og sýnir flokkurinn Pathetique við
tónhst Pjotr Tsjækofskí. Ballett verð-
ur einnig í Borgarleikhúsinu 14. júni
en þá verður sýnt May B sem er eitt
þekktasta verk danshöfundarins
Maguy Marin sem er einn þekktasti
dansahöfundur Evrópu. Er mikfll
fengur að fá dansflokk hennar til
landsins. 16. júní mun svo dansflokk-
urinn sýna Cortex, sem einnig er eft-
ir Marin, og er Cortex nýjasta verk
hennar.
Frá Frakklandi kemur einnig götu-
leikhúsið Théatre de TUnite og verða
sýningar á vegum þess bæði innan-
húss og utan. Leikhópur þessi mun
örugglega setja mikinn svip á Lista-
hátíðina að þessu sinni.
Þriðja ballettatriðið á Listahátíð er
svo íslenskt en það er fmmsýning á;
tveimur nýjum dönsum eftir Auði
Bjarnadóttur. Hópurinn, sem að sýn-
ingunni stendur, nefnir sig Svölu-
leikhúsið og verða verkin sýnd á
stóra sviði Þjóðleikhússins.
Mikil og fjöl-
breytttónlist
Margir merkir og þekktir tónlistar-
menn heimsækja ísland meðan á
Listahátíð stendur og hefur þegar
verið minnst á óperusöngvarann
Gösta Winbergh. Annar óperusöngv-
ari, sem heimsfrægð hefur hlotið, er
Grace Bumbry sem verður með ein-
söngstónleika. Hún er tahn meðal
þeirra fremstu og á að baki marga
sigra á óperusviðinu.
Flautuleikarinn James Galway
hefur heillað heiminn mörg undan-
farin ár og er ekki að efa að koma
hans hingað er einn af stærstu við-
burðum Listahátíðar. Þá verður
djassöngkonan og píanóleikarinn
Nina Simone mörgum fagnaðarefni.
Þessi látlausa blökkukona, sem búin
er að standa á sviðinu í tugi ára, verð-
ur með tónleika í Háskólabíói.
Þá verða margir íslenskir tónlistar-
menn í sviðsljósinu, bæði klassískir
og aðrir sem eru í léttari kantinum.
Hér hefur aðeins verið stiklað á
stóru um viðburði á Listahátíð. Þátt-
ur innlendra listamanna er mjög
stór. Þá má að lokum nefna Undra-
börnin frá Rússlandi sem örugglega
eiga eftir að vekja athygli, eins og
flest það sem í boði er á þessari tólftu
Listahátíð í Reykjavík.
-HK
MIÐVJKUDAGUR 20. MAÍ 1992.
Sverrirfærhrós
fyrirsýningu
í Mexíkó
Um siðustu mánaðamót opnaði
Sverrir Ólafsson sýrflngu á 10
skúlptúrverkum í Mexíkóborg.
Hefur sýningunni verið mjög vel
tekið. Fiallað hefui' verið um
hana í öllum helstu fjölnflðlum
landsins og Sverri boðíð að halda
aðra sýningu síöar. Fjöldi gesta
var við opnunina, þar á meöal
margir Islendingar, búsettir í
Mexíkó. Þetta er í annaö sinn sem
Sverrir sýnir í Mexíkó en hann
tók þátt í stórri, alþjóðlegri sýn-
ingu þar fyrir tveimur árum. Þá
keypti ríkislistasafn Mexikó stórt
útilistaverk eföi' hann. Verkið
hefur verið á sýningarferð um
landið ásamt öðrum verkum í
eigu safnsins en framtíöarstaður
þess er í nýju höggmyndasafni,
sem nú er verið að ljúka byggingu
á, í borginni Juarez á landaraær-
um Mexíkó og Bandaríkjanna.
Peter Bastiaei
medfyririestur
Hér á landi er staddur einn
merkilegasti maðurinn í dönsku
tónlistarlífi, Peter Bastian, en
haim hefur aflað sér mikillar
virðingar á sviði sígildrar, sem
og léttrar tónlistar. Hann er hér
ásamt félögum sínum i tríóínu
Bazaar. Hann er ekki aðeins tón-
listarmaður heldur einnig rithöf-
undur og hefur bók hans, Ind i
musikken, notið mikilla vinsælda
og texti hans vakiö mikla aíhygli.
Hlaut hann bókmenntaverðlaun
1988 fyrir hana. Bastian mun
halda tvo fyrirlestra hér á landi
meðan á dvöl hans stendur og er
só fyrri í Norræna húsinu í kvöld
og sá síðari 23. maí í húsi FÍH.
Fyrirlestra sína byggir hann á
bók sinifl. Bastian þykir litríkur
ræðumaður enda nflkill húmor-
isti.
Inferno 5 og
Sveinbjöm
til Finnlands
Hljómsveitinni og fjöllistafélag-
inu Infemo 5 hefur verið boðið á
hina árlegu rokk- og listahátíð í
Turku í Finnlandi. Með í fór verð-
ur Sveinbjörn Beinteinsson alls-
heijargoði. Mun hann flytja
kvæöi og framkvæma heiðna
helgiathöfn með hjálp fleiri ása-
trúarmanna. Inferno 5 hefur síð-
an það hóf starfsemi sína 1984
flutt viöanflkla og margmiðla
geminga hér heima og erlendis
og má nefna Klumbudansinn og
Rykdjöfla. Auk þess leikur það
fyrir dansi. Á sama tíma og In-
ferno 5 kemur fram í Turku verð-
ur myndlistarsýning á verkum
eftir meðlimina. Eftír aö hátíð-
inni í Turku lýkur mun Infemo
5 halda til Rússlands og halda
tónleika í Pétursborg.
Ljósmyndasýn-
ingáSiglufirði
í dag er afmælisdagur Siglu-
fjarðar og verður af því tflefni
opnuð sýning á Jjósmyndum úr
eínkasafni Steingríms Kristins-
sonar í Nýja bíói á Siglufirði. f
safni Steingríms er ennfremur að
fiima myndir sem Kristfinnur
Guöjónsson ljósmyndari tók en
safn hans er nú í eigu Stein-
gríms. Um það hil eitt þúsund
myndir verða þama tfl sýnis og
ei þar bæði um að ræða myndir,
sem sýna gömlu, góðu síldarárin,
og mikið af myndum af fólki og
mannlífinu almennt frá þeim
tíma. Elstu myndimar em frá um
1930 en sýningin spannar tlmabil-
ið allt til þessa dags. Flestar
myndanna hafa ekki áður sést
opinberlega.