Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1992, Blaðsíða 8
8
LAUGAKDAGUR 13. JÚNl 1992.
Nauðungaruppboð
Þriðja og síðasta sala: Neðangreindar fasteignir verða boðnar upp og seld-
ar á nauðungaruppboði sem fram fer á eignunum sjátfum. Um er að ræða
þriðju og síðustu sölu er fram fer þriðjudaginn 16. júní 1992 á neöangreind-
um tímum.
Sumarhús í Landi Reynifells, Rangárvallahreppi kl. 14.30, þinglýst eign
Guðlaugar Daðadóttur. Uppboðsbeiðandi er Bjarni Ásgeirsson hdl.
Bújörðin Vatnskot IA, Djúpárhreppi, kl. 16.00, þinglýstur eigandi er Óli
Ágúst Ólafsson. Uppboðsbeiðandi er Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Sýslumaður Rangárvallasýslu
Tollvöruuppboð
Að kröfu Tollinnheimtu ríkissjóðs o.fl. aðila ferfram opinbert nauðungarupp-
boð á ýmsum vörum til lúkningar vangreiddum aðflutnings- og geymslu-
gjöldum.
Til stendur að selja m.a. hljómflutningstæki, húsgögn, fatnað, gjafa-, snyrti-
og hreinlætisvöru, varahluti o.fl.
Einnig verður væntanlega selt að kröfu bæjarfógeta Hafnarfjarðar og ýmissa
lögmanna pressa, gufuketill, efni til hljómplötugerðar, málverk, myndbands-
tæki, húsgögn, system 26 tölvur, bifr. JB-832 og KE-622 o.fl.
Uppboðið fer fram laugardaginn 20. júní nk. og hefst kl. 13.00 að Hjalla-
hrauni 2, Hafnarfirði.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Hafnarfirði
17. JUNI
- SÖLUTJÖLD - SÖLUBÚÐIR
Álblöðrur fyrir helíum. Álblöðrur með lofti.
Blöðrur með 17. júní áletrun.
Fánar, venjulegar blöðrur o.fl.
Einar G. Ólafsson, heildverslun
Arnarbakka 2 - sími 670799
Sýning og sala
handavinnu
Hrafnistufólks
á sjómannadaginn frá kl. 14.00-17.00 og mánudag-
inn 15. júní frá kl. 13.00-16.00. Einnig verður kaffi-
sala frá kl. 14.30-17.00.
Hrafnista í Reykjavík
og Hafnarfirði
Matgæðingur vikunnar
Grísagrill með
suörænni sveiflu
Jón Sigfússon matreiðslumeist-
ari á Hótel Lind slær á létta strengi
og býður lesendum í griilveislu
með suðrænum blæ. Hjá Jóni tak-
markast grillveislur ekki aðeins
við sumarið, hann grillar allan árs-
ins hring, líka á jólunum.
„Þegar grill er annars vegar er
ein regla sem aldrei má gleymast:
Það á umfram allt að vera
skemmtilegt að grilla. Þess vegna
er undirbúningur lykilatriði, að
hafa allt tilbúið þegar kveikt er í
kolunum."
Jón býður lesendum upp á
grísagrill með suðrænni sveiflu og
sunnlenskum humar í forrrétt.
Alltsemþarf
Hér á eftir fer aUt það sem þarf
til grillveislunnar:
36 humarhalar
'A franskbrauð
500 g smjör
2 box sýrður rjómi
1 lítið box majónes
2 sítrónur
6 tómatar
1 agúrka
1 haus íssalat (iceberg)
8 bökunarkartöflur
1 svínahnakki
1 dós ananas
engifer
salt og pipar
tómatsósa
sojasósa
púðursykur
lítill bakki graslaukur
Kjötið marinerað
Þegar allt þetta bggur tílbúið á
borðinu er hægt að byrja undir-
búninginn. Svínahnakidnn er
Jón Sigfússon.
skorinn í hæfilega þykkar sneiðar
(2-3 sentímetra) og sneiðamar
lagðar í fat.
Þá er marineringarlögurinn lag-
aður. í hann þarf:
1 boUa tómatsósu
/2 bolla sojasósu
1 msk. svartan grófamalaðan pipar
4 msk. púðursykur
1 msk. engifer
Þessu er öUu hrært saman og
heUt yfir kjötið. Kjötið er síðan sett
tíl hUðar.
Kartöflurogsalat
Þá er bökunarkartöflunum pakk-
aö inn í álpappír og þær settar tíl
hUðar. Salatið er rifið og sett í skál
en í því er íssalat, tómatar, agúrka
og ananas. Salatið er sett til hUðar
(í ísskáp).
Salatsósan er einfóld. í hana þarf
aðeins eina dós af sýrður rjóma
sem hrærður er út með graslauk.
Sósan er sett til hUðar (í ísskáp).
Humarhalar
með sítrónusósu
Þá er undirbúningi fyrir aðalrétt-
inn lokiö og hægt að snúa sér að
humarhölunum. Þeir eru klofnir
langsum með hníf og hreinsaðir.
Þá eru þeir penslaðir með bræddu
smjörinu.
Þá er sítrónusósan löguö. í hana
þarf:
1 dós sýrðan ijóma
3 msk. majónes
safa úr tveimur sítrónum
Þessu er öUu blandað saman og
sett tíl hUðar.
Kveiktágrillinu
Þá er aUt tUbúið og tími tU kom-
inn aö kveikt sé á griUinu. Þaö er
látið funhitna.
Þegar grihð er tUbúið er humrin-
um raðað á og kryddaður með salti
og pipar. LykUatriði er að grilla
humarinn ekki of lengi (hann er
betri minna en meira steiktur).
Humarinn er tUbúinn þegar hann
skiptir um Ut og bognar. Humarinn
er borinn fram með sítrónusós-
unni, ristuðu brauði og smjöri og
eðalhvítvíni eða vatni.
Meðan verið er að gæða sér á
humamum eru bökunarkartölf-
umar látnar „malla“ á griUinu (á
medium á gasgriUi). Hnakkasneið-
arnar eru síðan steikar eftir smekk,
hrá-, meðal- eða velsteiktar.
(Hræðslu við hálfsteikt svínakjöt
segir Jón vera algera tímaskekkju.)
Að lokinni steikingu er kjötið
fært upp á fat ásamt kartöflunum
og borið fram meö salati og sósu.
Jón skorar á vin sinn Jakob Haf-
stein fiskeldisfræðing að vera mat-
gæðingurnæstuviku. -hUi
Tilboð óskast í endurbætur á þaki og viðhald á Borgartúni 6,
Reykjavík. Stærð þakflatar 1070 m2. Málun á stein 1680 m2. Verk-
tími er til 28. ágúst 1992 fyrir steypuvinnu og þakendurbyggingu
og til 1. júlí 1993 á þakmálun.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri í Borgartúni 7, Reykja-
vík, til og með þriðjudeginum 23. júní 1992 gegn 10.000 kr. skila-
tryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 25.
júní kl. 11.00 f.h.
IIMIMKAUPASTOFNUIM RÍKISINS BORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK
Nauðungaruppboð þríðja og síðasta á efh'rtöldum fasteignum: Smiðjuvegur 18, n. h„ þingl. eig. Skápaval c/o Magnús Þórðarson, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 16. júní 1992, kl. 16.00. Úppboðsbeið- endur em íslandsbanki, Ásgeir Magn- ússon hdl. og Iðnlánasjóður. Sæbólsbraut 8, þingl. eig. Róbert Við- ar Pétursson, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 16. júní 1992, kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur em Róbert Ami Hreiðarsson hdl. og Ásgeir Magnússon hdl.
Borgarholtsbraut 13 A, þingl. eig. Ásta Karlsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 16. júní 1992, kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur eru Lands- banki íslands, Bæjarsjóður Kópavogs, Veðdeild Landsbanka íslands og Fjár- heimtan hf.
Daltún 18, þingl. eig. Guðbjörg H. Pálsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 16. júní 1992, kl. 16.45. Uppboðsbeiðendur eru skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi, Bæjarsjóður Kópavogs, Ingólfur Friðjónsson hdl., Veðdeild Landsbanka íslands, Ólafiir Bjömsson lögfr. og Friðjón Öm Frið- jónsson hdl. Vesturvör 27, nyrðra hús, þingl. eig. B. M. Vallá hf„ fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 16. júní 1992, kl. 13.00. Úppboðsbeiðendur eru íslands- banki, Búnaðarbanki íslands og Iðn- lánasjóður.
BÆJARFÓGETINN í KÓPAV0GI
Skemmuvegur 34, efri hæð, þingl. eig. Vélsmiðjan Faxi hf„ fer fram á eign- inni sjálfri þriðjudaginn 16. júní 1992, kl. 17.30. Uppboðsbeiðendur eru Iðn- lánasjóður, Guðjón Ármann Jónsson hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, skatt- heimta ríkissjóðs í Kópavogi, Andri Ámason hdl. og Ásgeir Thoroddsen hrl.
Hinhliðin
Hef aldrei tekið bilpróf
- segir Þorsteinn Eggertsson, textasmiöur og rithöfundur
„Eg er nýbúinn að þýða aUa text-
ana við tónverk Trúbrots, Lifun,
en það verður flutt í nýjum búningi
í Keflavík eftir nokkrar vikur. Síð-
ar í sumar verður það sett upp í
ReyRjavík með Sinfóníuhljómsveit
íslands með miklu tUstandi,“ sagöi
Þorsteinn Eggertsson.
Það er mikið um að vera hjá Þor-
steini þessa dagana en hann hefur
einnig verið að teikna kynningar
fyrir kvikmyndina Veggfóður sem
verður frumsýnd bráölega. Þá er
Þorsteinn að skrifa bók á ensku
sem nefnist Late Night Rhapsodies.
„Þetta er smásagnasafn sem gefiö
verður út í London að ósk útgef-
anda míns þar. Fyrsta bókin mín,
The Paper King’s Subjects, er enn
í sölu,“ sagði Þorsteinn Eggertsson
sem sýnir hina hhðina að þessu
sinni:
FuUt nafn: Þorsteinn Eggertsson.
Fæðingardagur og ár: 25. febrúar
1942.
Maki: Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir er
sambýliskona mín.
Börn: Anna Valgerður, 14 ára, og
Soffía, 11 ára. Stjúpböm mín eru
Hrönn, Ólafur og Anna.
Bifreið: Ég hef aldrei lært að aka
enda er nóg af bUstjórum í umferð-
inni þótt ég bætist ekki í hópinn.
Starf: Rithöfundur, blaðamaður,
textahöfundur og fleira.
Laun: Ótrúlega misjöfn.
Áhugamál: Ferðalög, ritstörf, Ustir
og tungumál.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Stundum þijár.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Skrifa, teUcna og vera tíl.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
Þorsteinn Eggertsson rithöfundur
segist alltaf vera i sumarfríi.
gera? Veit það ekki.
Uppáhaldsmatur: Thja... ítölsk
vUUgaltasteik tíl dæmis.
Uppáhaldsdrykkur: Ég get aUtaf
drukkið kafii.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Örugglega
enginn.
Uppáhaldstímarit: Mörg. TU dæmis
National Geographic.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan konuna? Ein í
dag og önnur á morgun. Ég er aUt-
af að sjá nýjar og nýjar sem em
hver annarri faUegri.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Stundum og stundum
ekki.
Hvað persónu langar þig mest að
hitta? Mér dettur engin sérstök í
hug.
Uppáhaldsleikari: CharUe ChapUn.
Uppáhaldsleikkona: Brigitte Bard-
ot.
Uppáhaldssöngvari: John Lennon,
Little Richard, Harry Belafonte -
hundrað í viðbót.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ma-
hatma Ghandi ef hann væri á lífi.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hermann og bleiki pardusinn.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Góðar
kvikmyndir.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Ég er
andvígur hemaði og fmnst ástæðu-
laust að senda hingað blásaklausa
Bandaríkjamenn til aö loka þá inn-
an girðingar.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Ég hlusta á báðar rásir ríkis-
útvarpsins, Aðalstöðina og BBC.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Veit
ekki.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Spaug-
stofumenn.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ég
hleyp yfir þessa þar sem ég auglýsi
ekki skemmtistaði ókeypis.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ég hef
aldrei skUið íþróttir nema hvað
mér finnst þær vera eins konar
stríðseftirUkingar - og eftir því til-
gangslausar og leiðinlegar.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Aö gerast góður rit-
höfundur. Annars finnst mér aUtaf
spennandi að fást við eitthvað sem
ég hef ekki gert áður.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Ég haga Ufi mínu þannig að
mér finnst ég aUtaf vera í sum-
arfríi.