Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Side 10
10 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1992. Myndbönd tUilt KAKKIN RI.AHE EDWAKDS' SWITG* JIMMY SMIIS JsBKTD WILLIAMS 10RRAI.VÍ BRACCO oMflMMW SJLíi!*WriBIslBiraBl8íl*!II«M Karlrembukona SWITCH Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Blake Edwards. Aðalhiutverk: Ellen Barkin, Jimmy Smits, Jobeth Williams og Lorraine Bracco. Bandarisk, 1991 -sýningartimi 103 min. Bönnuð börnum innan 12 ára. Blake Edwards hefur oft sýnt frumleik í gerð gamanmynda sinna og ekki bregst honum frumleikinn í Switch sem fjallarum mikla karl- rembu sem lætur lífið fyrir hendi þriggja ástkvenna sem hún hafði farið ilia með. En sagan af karl- rembúnni er ekki búinn. Þegar komið er að dyrum himnaríkis er karlrembunni neitað um inngöngu, hún látin fara til jarðarinnar aftur til að finna eina kvenpersónu sem þykir vænt um hana. Sá í neðra vill hafa afskipti af málinu og lætur karlrembuna fara í kvenmannslíki til jarðarinnar... Switch er að sumu leyti bráð- fyndin. í öllum bestu og fyndnustu atriðum myndarinnar er Ellen Barkin sem leikur kvenkarlremb- una mjög skemmtilega og er gaman að fylgjast með henni í viðskiptum við kvenfólkið. En eins og um sum- ar gamanmynda Edwards vantar herslumuninn til að hægt sé að telja Switch vel heppnaða kvik- mynd. Þríhymingur THE CROSSING Utgefandi: Myndform. Leikstjóri: George Ogilvie. Aðalhlutverk: Russell Crowe, Robert mammone og Danieile Spencer. Áströlsk 1990 - sýningartimi 90 min. Leyfð öllum aldurshópum. Söguþráðurinn í The Crossing er gamalkunnur, tveir karlmenn að berjast um hylli sömu stúlkunnar. Þessi ágæta ástralska kvikmynd er látin gerast í smábæ á heitu sumri. Kærastinn hafði farið til stórborg- arinnar en snýr nú aftur til að fá elskuna sína til að koma með sér til borgarinnar þar sem framtíðin býður þeirra langt frá fábreyttu lífi smáþorpsins. í millitíðinni hafði kærastan snú- ið sér að besta vininum sem alls ekki vill sjá á eftir stúlkunni. Svona caga getur ekki endað nema á einn veg þar sem einhver aðili málsins verður að láta undan. The Crossing lætur ekki mikið yfir sér en er samt vel gerð að öllu leyti og heldur manni við efnið þótt líið í handritinu komi á óvart. Tónlistin í myndinni er smekklega valin að efninu. Maður gegn manni RirOCHET Utgefandi: Bíómyndir. Leikstjóri: Russell Mulcahy. Aðalhlutverk: Denzel Washington, John Lithgow, lce T. og Lindsay Wagner. Bandarisk, 1991 - sýningartími 104 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára Ricochet er ein af þeim myndum sem byrja sérlega vel en gefur jafnt og þétt eftir þegar fer að líða á myndina og þegar upp er staðið er ekki heil brú í endinum á mynd- inni. Denzel Washington leikur Nick Styles, ungan og snjaUan lögfræði- nema sem starfar sem lögreglu- maður með náminu. Kvöld eitt þeg- ar hann er á vakt verður hann vitni að óvenju bíræfnu ráni og kemur ræningjanum á snjallan hátt undir lás og slá. Áhugakvikmyndatökumaður hefur tekið atburðinn upp og Styles verður frægur á einni nóttu. Hann lýkur námi, giftist unnustu sinni og eignast tvö börn. í starfi sínu hjá saksóknaraembættinu gengur honum mjög vel og er brátt gerður að saksóknara. Eftir marga sigra hans í réttarsalnum er farið að tala um hann sem næsta borgarstjóra. Ræninginn og morðinginn Blake (John Lithgow) sem varð til þess að Styles varð frægur leggur hatur á hann og þegar hann sleppur setur hann dauða sinn á svið og byrjar heldur betur að hrella Styles sem er í miöjum kosningaslag. 1 (12) Thelma and Louise 2 (4) Switch 3 4 5 (5) Ricochet 6 .. The Mariboro 7(8) Don’t Tell Mom the! 8 9 (-) The Addams 10(9) Wedlock 11 (7) Doc Hollywood 13 (15) Catehfire naDanaausi- f<m iinrin| Thnunhlc anum þessa vikuna. A myndinni er fjölskyldan I öllu sínu veldi. Hjón- 1 'fflörwi 1 nwu9nö in Morticia og Gomez sem sljórna fjölskyldunni eru leikin af Anjelica 15 (-) Tilíiebomb Huston og Raul Julia. Eftirleikur stríðsins í Víetnam JACKNIFE Útgelandi: Stelnar hf. Lelkstjúrl: David Jones. Aðalhlutverk: Robert de Nlro, Ed Harris og Kathy Baker. Bandarísk, 1989 - sýningartiml 98 min. Bönnuð bömum innan 12 ára. Nokkrar ágætar og raunsæjar kvikmyndir hafa verið gerðar um hermenn sem lifðu af Víetnam- stríðið og hversu erfiðlega þeim hefur gengið að aðlagast venjulegu lífi eftir heimkomuna. Nægir þar að nefna Coming Home, Deer Hunt- er og Bom on the Fourth of July. Jacknife er ein slík mynd og er hún áhrifamikil og vel gerð drama með þremur góðum leikurum. Jac- knife er samt ekki eins fræg og hin- ar þijár fyrmefndu kvikmyndir, sem sést meðal annars á því að hún komst aldrei i sali kvikmyndahúsa hér á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir að í aðalhlutverki er enginn . RobertDehBm tnside,thewar stiSrageson. annar en Robert De Niro. De Niro leikin- fyrrverandi her- mann úr Víetnam-stríðinu sem hef- ur náð góðum tökum á lífi sínu eft- ir mikil og ströng andleg átök sem meðal annars fólust í mikiu of- beldi. Hann kemur til smábæjar til að heimsækja stríðsfélaga sinn og vin sem er illa farinn andlega og gerir fátt annað en að vinna á dag- inn sem vörubílstjóri og drekka sig fullan á kvöldin. Systir hans sér um heimili handa honum. Þrátt fyrir að vinurinn og systirin sam- einist í að reyna að hjálpa upp á andlegt ástand hans virðist hann aöeins versna og verður hann alveg óður þegar hann sér að systirin dregst ósjálfrátt að stríðsfélaga hans og bjargvætti. Handritið að Jacknife er vel skrif- að og raunsætt. Það er samt fyrst og fremst leikur þremenninganna, Robert de Niro, Ed Harris (næstum óþekkjanlegur) og Kathy Bates, sem gerir Jacknife að góðri kvik- mynd sem gleymist ekki auöveld- lega. -HK Vitnið semhvarf CATCHFIRE Leiksljóri: Dennis Hopper. Aóalhlutverk: Dennis Hopper, Jodie Foster, Fred Ward, John Turturro og Dean Stockwell. Bandarísk, 1991 -sýningartimi 95 min. Bönnuó börnum innan 16 ára. í Catchfire leikur Jodie Foster unga myndhstarkonu, Anne Ben- ton, sem verður vitni að því þegar mafian myrðir mann einn á hrotta- fenginn hátt. Hún getur lýst morð- ingjanum fyrir lögreglunni sem setur hana strax í stranga gæslu en hún lýsti mafíuforingja sem þeir höfðu lengi elst við. Mafían veit einnig af henni og gerir tilraun til að myrða hana en myrðir kærasta hennar í staðinn. Benton lætur sig því hverfa af sjónarsviðinu. Á hælum hennar er bæði lögregl- an og atvinnumorðingi sem mafían hefur ráðið til að lífláta hana. Leigumorðinginn, sem Dennis Hopper leikur, hrífst aftur á móti af fómarlambi sínu og þegar hann loks nær til stúlkunnar býður hann henni tvo kosti, annaðhvort aö láta lífið eða fylgja honum það sem hún á eftir ólifað... Dennis Hopper bæði leikur og leikstýrir Catchfire sem er misgóð, mörg atriði vel gerð en önnur ekki og í heildina er myndin brokkgeng og ósannfærandi. Þaö sem gerir Catchfire fyrst og fremst fráhindrandi era aðalper- sónumar tvær sem aldrei ná til áhorfandans. Dennis Hopper er langt frá að vera sannfærandi at- vinnumorðingi og Jodie Foster veit varla í hvom fótinn hún á að stíga. í aukahlutverkum em margir frægir leikarar, má þar nefna John Turturro, Dean Stockwell, Joe Pesci, Vincent Price og Fred Ward og eklti sá ég betur en að Bob Dylan brygði fyrir 1 hlutverki myndlistar- manns. .jjg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.