Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1992. Kvikmyndir Hér er Vinny (Joe Pesci) ásamt unnustu sinni, Lisu (Marisa Tomei) sem kemur mikiö við sögu þegar líða fer á málflutninginn. Joe Pesci og Vinny frændi Joe Pesci hefur verið eftírminni- legur í mörgum kvikmyndum. Hlutverkin hafa ekki aUtaf veriö stór en oftast hefur honum tekist að skapa persónur sem skilja mikið eftír sig, sérstaklega ef persónurn- ar eru sérlega ógeðfelldar, eins og j til aö mynda mafíósinn í GoodFell- | as. Vegur Pescis hefur farið ört vax- \ andi eftír að hann fékk óskarsverð- launin í fyrra sem besti leikari í aukahlutverki fyrir leik sinn í GoodFellas og er hann nú nánast eingöngu fariim að fást við aðal- hlutverk. Nýjasta kvikmynd hans, My Cousin Vinny, hefur notið tölu- verðra vinsælda vestanhafs að undanfómu og það sem kemur kannski mest á óvart er að Joe Pesci hefur aldrei leikið jafn geð- þekkan náunga og lögfræðinginn Vincent Gambino. í mörgum kvikmyndum, þar sem réttarhöld eru þungamiðjan, er lög- fræðingurinn annaðhvort upphaf- inn eða niðurlægður. Þessar lýs- ingar eiga ekki við Vincent Gamb- ino eða Vinny eins og hann er kall- aður. í fyrstu mætti halda að lög- fræðingurinn Vinny eigi margt sameiginlegt með lögfræðingum sem hafa verið gerðir ódauðlegir í sjónvarpi og kvikmyndum. Hann tekur aö sér að veija tvo saklausa unglinga sem eru ákærðir fyrir morð í lítilli borg í Suðurríkjunum en í raun er þetta eina málið sem honum býðst. Vinny er alinn upp í öngstrætum stórborgar og á erfitt með að skilja hugsunarhátt smá- bæjarbúa í Suðurríkjunum og er þessi staðreynd honum ekki beint í haginn. Það er þó annað sem sakboming- amir hafa meiri áhyggjur af. Vinny hefur aldrei verið veijandi í morö- máli fyrr og það sem verra er, hann hefur aldrei verið verjandi í dómsal áöur. Skýringin er einfaldlega sú að það em aðeins sex vikur síðan hann tók próf sem lögfræðingur. En þegar efast er um hæfni hans í réttarsalnum svarar Vinny kot- roskinn að hann hafi heldur aldrei tapað máli. En það endar nú samt með að annar sakbomingurinn fær sér annan lögfræðing en hinn sem þekkt hefur Vinny ákveður að treysta honum. „Vinny er gáfaður og heiðarlegur maður og fyndinn þar að auki,“ segir Joe Pesci, „en hann tekur at- vinnu sína mjög alvarlega. Því mið- ur gefa léleg próf og ööruvísi fram- koma fólki ástæðu til að efast um getu hans.“ Auk Joes Pesci leika í My Cousin Vinny Marisa Tomei sem leikur unnustu Vinnys, Fred Gwynne leikur dómarann og sakboming- amir eru leiknir af Ralph Macchio og Mitchell Whitfield. Joe Pesci í fyrra hlaut Joe Pesci óskarsverð- launin fyrir leik sinn í GoodFellas eins og áður sagði en sú mynd var leikstýrð af Martin Scorsese. Pesci hefur einu sinni áður verið tíl- nefndur til óskarsverðlauna, var það árið 1981 fyrir hlutverk sitt í Raging Bull sem einnig var leik- Kvikmyndir Hilmar Karlsson stýrð af Scorsese og lék Pesci þar á mótí Robert De Niro eins og í GoodFelIas. Joe Pesci fæddist og ólst upp í New Jersey og kom fyrst fram í sjónvarpi aðeins fjögurra ára gam- all í þáttaröð sem hét Star Time Kids. Eftir að skólanámi lauk hóf hann að koma fram sem skemmti- kraftur, bæði í New Jersey og New York, en auk þess að vera góður grínisti á sviði er hann vel liðtækur tónlistarmaður. Þegar hann hafði verið tílnefndur til óskarsverðlauna 1981 bauðst honum eiginlega ekkert annað en að leika harðsnúna töffara sem voru yfirleitt vitlausum megin við lögin. Það var ekki fyrr en hann lék í Lethal Weapon 2 að kvikmynda- húsgestír fengu að sjá hversu góður gamanleikari hann er, en hlutverk hans þar hjálpaði ekki svo lítið upp á vinsældir þeirrar myndar. Lék hann Leo Getz, endurskoðanda sem lögreglan hélt verndarhendi yfir, og hefur hann verið fenginn tíl að endurtaka hlutverkið í Lethal Weapon 3. Einnig má nefna lítið en eftirminnilegt gamanhlutverk sem hann lék í Home Alone og að sjálf- sögðu hefur hann verið fenginn tíl að leika í Home Alone 2: Lost in New York sem væntanlega verður framsýnd í kringum næstu jól. Eftír frammistöðu hans í tveimur fyrrnefndu myndum var engin furða þótt framleiðandi My Cousin Vinny segði að hann hefði ekki getað hugsað sér annan leikara í hlutverk Vinnys en Joe Pesci. Joe Pesci hefur leikið í kvik- myndum í tíu ár og verið afkasta- mikill. Meðal mynda, sem hann hefur leikið í, má nefna Once Upon a Time in America, Easy Money, Betsy’s Wedding, I’m Dancing as Fast as I Can, Moonwalker, JFK og The Super. Jonathan Lynn Leikstjóri My Cousin Vinny er Jo- nathan Lynn sem er breskur og hefur getið sér gott orð bæði sem leikari, handritshöfundur og leik- sfjóri. Hann sá um að skemmta ís- lenskum sjónvarpsáhorfendum í mörg ár, en hann er hugmynda- smiðurinn og handritshöfundur þáttaraðirnar vinsælu, Yes Minist- er og Yes Prime Minister. Hlaut hann mörg verðlaun fyrir þessa einstöku sjónvarpsseríu. Lynn skrifaöi tvær bækur um persón- umar í þessum þáttum sem báðar komust á metsölulista, The Com- plete Yes Minister og Yes Prime Minister. Lynn hefur leikstýrt og skrifað handrit að tveimur kvikmyndum, Clue, 1985, og Nuns on a Run sem varð nokkuð vinsæl í fyrra og vann viöa til verðlauna á kvikmyndahá- tíðum. Lynn hefur einnig verið virkur í leikhúsum í London. Three Men on a Horse, sem hann leik- stýröi 1987, var valið besta gaman- leikrið í London það árið og Songbook, sem hann leikstýrði einnig, var valin besti söngleikur- inn ári seinna. Jonathan Lynn er þessa dagana að leikstýra Eddie Murphy í nýjustu mynd hans, Dis- tinguished Gentleman. -HK Jonathan Lynn, leikstjóri My Cousin Vinny, gefur Joe Pesci góð ráð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.