Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Síða 11
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1992. 11 David Bowie og Iman: Giftu sig á drauma- staðnum Flórens - aöeins nánustu ættingjar og vinir voru viðstaddir David Bowie og súperfyrirsætan Iman, sem er frá Sómalíu, giftu sig fyrir stuttu í lítilli en fallegri kirkju í Flórens á Ítalíu. Aðeins fjölskyld- ur þeirra og allra nánustu vinir voru viðstaddir brúðkaupið. Þar á meðal var Joe, sonur Bowie, frá fyrsta hjónabandi með Angie Bowie. Þau David og Iman höfðu oft tek- ið hvort„eftir öðru áður en þau kynntust. Hún var reyndar einn af aðdáendum hans og fór oft á tón- leika. Það var síðan sameiginlegur vinur sem bauð þeim til kvöldverð- ar þann 14. október 1990. í því boði kynntust þau og töluðu heilmikið saman. Síöan þá halda þau upp á fjórtánda hvers mánaðar með ein- hverjum hætti. Fara út að borða eða senda hvort öðru blóm eða skeyti séu þau hvort á sínum stað. David segist vera hugfanginn af fegurð Iman. „Hún er glæsileg, skemmtileg og gáfuð,“ segir hann. „Auk þess kann hún að meta minn húmor sem er mikils virði,“ segir söngvarinn. Hjónakornin ákváðu að gifta sig á Ítalíu vegna þess hversu landið hefur mikil áhrif á þau. „Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi ítal- skrar listar, sérstaklega renaiss- ance,“ segir David en Iman hefur alltaf þótt mikið til Ítalíu og ítölsku koma enda talar hún málið betur en ensku. Hún hefur einnig unnið mikið sem fyrirsæta á Ítalíu. „Uppáhaldsstaður minn er Flór- ens,“ segir hún. „Það var hka til Flórens sem viö David fórum í David Bowie ásamt syni sinum, Joe, sem varð nýlega 21 árs gam- all. fyrsta sumarleyfið okkar saman.“ David segir að þau hafi farið í sex vikna bátsferð um Ítalíu. í slíkri ferð kynnist fólk náið og auðvelt verður að finna út hvort það eigi vel saman. Raunin var sú að þau David og Iman fundu sig mjög vel í bátsferðinni. Þau enduðu ferðina í Flórens og töldu sig vera búin að finna staðinn sinn. Eins og tiðkast hjá ríka fólkinu voru sérstakir tískuhönnuðir fengnir til að búa til brúðarskartið. Iman fékk franskan hönnuð að nafni Herve Leger til að hanna brúðarkjóhnn. „Eg hitti hann fyrir nokkrum árum þegar hann vann fyrir aöra hönnuði. Þegar ég hitti hann aftur fyrir tveimur árum var hann kominn með eigið fyrirtæki. Hönnun hans hefur vakið sérstaka athygli mína. Mig langaði í látlaus- an brúðarkjól, fahegan en ekki endilega samkvæmt nýjustu tísku,“ segir Iman. Kjóllinn hennar var þröngur, fleginn og með miklu slöri frá mitti. Fastur hönnuður Davids Bowie, Thierry Mugler, hannaði fötin hans. Og var hann meðal þeirra sem boðið var í brúð- kaupið. En hjónin segjast eiga mjög fáa vini. Foreldrar brúðhjónanna höfðu aldrei hist fyrr en við giftinguna. Foreldrar Iman ákvaðu strax, er dóttir þeirra sagðist vera að fara gifta sig, að þau kæmu til Flórens. Svo var einnig um móður Davids Bowie. David Bowie á íbúðir í Sviss, Los Angeles og víðar og munu þau að mestu búa í LA. Iman á eina dóttur, Zuleika, sem er þrettán ára gömul en bæði Iman og David hafa verið gift áður. Iman telur ekki að harneignir og frægð- arferill fari saman. Þannig munu höm ekki vera á dagskrá hjá þeim á næstunni enda nóg að gera. David og Iman voru á leið til Austurlanda íjær í brúðkaupsferð en þau dvöldu einungis þrjá daga í Flórens. Iman er frá Sómaliu. Hér eru hún og David ásamt foreldrum hennar. Sviðsljós Nýgift og hamingjusöm. Poppgoðið David Bowie og súperfyrirsætan Iman. ULTRA GLOSS Sterkasta handbónið RÍlAW á íslandi. BO^! 8 ára reynsla' ESSO stöðvarnar Olíufélagið hf. Getum bobið háþrýstidælur fyrir verktaka og aðra aðila sem þurfa kraftmiklar dælur. Dælur og dælustöðvar fyrir sjávarútveginn. Sérstakar rörahreinsidælur sem losa og hreinsa úr stífluðum rörum. Sýning laugardag 27. júní kl. 14:00 -17:00 Komib og reynib tækin og kynnist möguleikum þeirra. KYNNUM STÓRVIRKAR HÁÞRÝSTIDÆLUR FRA OERTZEN Afgt ' ' V 450 bar Skeifan 3h-Sími 812670-FAX 680470

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.