Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Side 15
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1992. 15 Að brjóta lögmálið Meö aukinni menntun á liðnum áratugum hefur sérfræðingum fjölgað á öllum sviðum. Ekki bara hjá okkur íslendingum heldur um alian heim. Þetta hefur leitt til mik- illa breytinga hjá almenningi. Hér áður fyrr treystu menn á sjálfa sig, dómgreind sína og lífsreynslu. Nú treysta menn á sérfræðingana. Gleggsta dæmið um þetta er veður- fræðin. Áöur en Veðurstofa íslands tók til starfa reyndu menn að spá sjálfir fyrir um veður. Til eru sögur um svo veðurglögga menn að ótrú- legt má telja. Nú hlusta allir eftir veðurspá Veðurstofunnar, fara eft- ir henni og spá ekkert í skýin sjálf- ir. Enginn má skilja orð mín svo að ég sé á móti sérfræðingum. Það er ekki rétt og allra síst veðurfræðing- um. Ég kann ekki að spá í ský og fer því alltaf eftir því sem Páll Berg- þórsson og hans fólk segir. Hitt er annað mál að veðurfræðingunum skjöplast eins og öðrum sérfræð- ingum. Eg er á því að okkur sem ekki erum sérfræðingar á neinu sviði hætti til aö ofmeta sérfræðingana. Taka úrskurð þeirra sem hinn eina stóra sannleika í hverju sem er. Ég er einnig á því að þetta sé ekki æskilegt. Öll höfum við einhveija reynslu til að byggja á, mismikla eftir aldri, en öll einhveija og hana eigum við að nota og meta hlutina sjálfstætt út frá því. Sérfræóingávaldið Þvi er ég að tala um þetta að mér þykir vald hinna ýmsu sérfræðinga orðið of mikið í þjóðfélaginu. Eg held að höfuðástaeðan fyrir því sé sú að engir þjóðfélagsþegnar stóla jafn mikið á sérfræðinga og alþing- ismenn. Þeir, ásamt ráðherrum í ríkisstjóm, em mennimir sem ráða mestu í þjóðfélaginu. Þeir em löggjafar- og framkvæmdavaldið í landinu. Varla er til svo lítilfjörlegt mál á Alþingi að ekki sé leitað til og vitnað í sérfræðinga þegar það er flutt. „Eftir höfðinu dansa lim- imir,“ segir máltækið og því ekki nema von að allur almenningur einblíni á sérfræöinga varðandi flesta hluti. Ástæðan fyrir því að ég tel of mikið sérfræðingavald hættulegt em hin mýmörgu dæmi um hug- myndaleg og fræðileg mistök þeirra. Að fella gengið Allir sem komnir em yfir tvítugt muna óðaverðbólgutímann hér á landi. Hvert var ráð hagfræðinga þá? Gengisfelling á gengisfellingu ofan í yfir 20 ár. Stundum margar á ári. Þetta átti að lækna öll mein efnahagslífsins. Þessar ráðlegging- ar efnahagssérfræðinganna end- aðu með 130 prósent verðbólgu í landinu. Eftir að aðilar vinnumarkaðar- ins, undir forystu þeirra Einars Odds og Guðmundar J. Guðmunds- sonar, tóku völdin og gerðu með sér þjQðarsátt og náðu verðbólg- unni niður í næstum ekki neitt, segja allir efnahagssérfræðingar að alls ekki megi fella gengið. Allt annað sé betra, alveg sama þótt gengi krónunnar sé of hátt skráð. Þama tala sömu sérfræðingarnir og töldu gengisfellingu lækna öll mein efnahagslífsins. Því er aö vísu haldið fram af ýmsum að hagfræö- ingar séu til þess eins og gera ein- falt mál flókið en fyrr má nú vera. Hveiju eigum við, sem ekkert vit höfum á peningum, að trúa í þessu sambandi? Gengisfellingar voru okkar fóstu punktar í tilverunni og nú er þeim kiptt frá okkur eins og ekkert sé. Veðurenglar fjórir Ég nefndi í upphafi veðurfræð- ingana. Það skal að vísu viður- kennt strax að það getur verið erf- itt að spá fyrir um veður á íslandi. Samt held ég að veðurfræðingun- um okkar skjöplist of oft. Hafa þeir þó núorðið fullkomnari mæhtæki en nokkru sinni. Hér fyrr á árum, meðan tæki þeirra voru ófullkomn- ari, var það skiljaniegra. Oft hefur verið hugsað tila til þeirra þegar spár þeirra hafa reynst rangar. Fræg er sagan af skipstjóranum sem tók í vörina og gat spýtt alveg fram á stefni á fuliu stími. Ein- hveiju sinni á meðan Teresía Guð- mundsdóttir var veðurstofustjóri var gefin út góðveðursspá sem brást. Þá heyrðist fyrmefndur skipstjóri tauta í glugga stýrishúss- ins. „Það vildi ég að hel... hún Teresía væri komin þama fram á stefnishnifiiinn þá skyldi ég... “ og svo spýtti karlinn og hitti stefnishníflÚnn. Veðurfræðingar nútímans hafna algerlega gamalli þjóðtrú um veðr- ið. Það held ég að sé rangt af þeim. Þjóðtrúin í þessum efnum byggist á reynslu kynslóðanna. Því verður heldur ekki á móti mælt að til var, og er ef til viU enn, fólk sem er svo veðurglöggt aö þaö spáir fyrir um veður af Utið minni nákvæmni en veðurfræðingamir með öU sín tæki Helgarpistill Sigurdór Sigurdórsson og tól. Þetta fólk byggir sína spá á skýjafari, vindátt og úrkomu. Áuð- vitað styðst það við reynslu margra ára og mikla athygUsgáfu sína. Þá báðu menn líka til verðurengl- anna fjögurra, Austra, Vestra Norðra og Suðra. Væri raunar ekki vanþörf á fyrir íslendinga að fara með eina sUka bæn um þessar mundir. Ein bænin er á þessa leið: Voldugir Drottins veðurenglar fjórir. Höldum gefi hægan byr hve ég þess ekki beðið fyr. Hafrannsókn og skipstjóramir Öllum era kunnar deilur flski- fræðinga Hafrannsóknastöfnimar og margra skipstjóra fiskiskipanna okkar. Sjaldan hafa þær deilur orð- ið harðari en í haust er leið þegar fiskifræðmgamir sögðu Utið um loðnu í sjónum og létu banna veið- ar. Skipstjóramir sögðu þetta vera rangt. Það kom svo í ljós eftir ára- mótin að sérfræðingamir höfðu rangt fyrir sér og játuðu það. Skip- stjórarnir höfðu á réttu að standa. Svo spyr maður líka þegar sér- fræðingar með sömu menntun era á algerlega öndverðum meiði um mál á þeirra sérsviði. Dæmi um þaö era fiskifræðingamir á Hafrann- sóknastofnun og Jón Kristjánsson fiskifræðingur. Þeir Hafrómenn vilja geyma fiskinn í sjónum, koma upp eins konar þorskbanka. Jón Kristjánsson viU láta veiða meira af smáfiski, beita grisjunarkenn- ingunni, til þess að stærri fiskurinn hafi meira æti. Þessir menn lærðu sömu bækumar þegar þeir vora að mennta sig. Samt era þeir á öndverðum meiði um grandvaUar- kenningar. Á sjómennina sem byggja á reynslunni er ekki hlust- að. Þá hristu menn hausinn Ein af raunverulegum perlum Reykjavíkur er EUiðavatnið og ná- grenni þess. í vatninu syndir um bragðbesta bleikja landsins og margir vUja veiða hana. Það er sennUega hvergi jafn erfitt að fá bleikjuna til að taka og í EUiðavatn- inu. Stefán heitinn Jónsson, alþing- ismaður og rithöfundur, var með slyngustu fluguveiðimönnum landsins á sinni tíð. Hami stundaði veiðar í EUiðavatninu og sagði það vera háskóla fluguveiðimannsins. „Sá sem veiðir á flugu í EUiða- vatni, hann veiðir aUs staðar,“ heyrði ég Stefán eitt sinn segja. Fjölmargir fuUorðnir og slyngir veiðimenn stunda veiðar í EUiða- vatninu. Þeir hafa gert það áratug- um saman og maður heyrir á þeim að þeir þykjast sérfræðingar í vatn- inu. Hvað gimið má vera svert. Hann er taumstyggur karl minn, segja þeir. Hvaða flugu á að nota og hve stór hún á að vera? AUt þetta vita þeir og ráðleggja byrj- endum. Og vissulega vita þeir hvað þeir era að tala um enda flestir snillingar við veiðar. Svo gerðist það einn dag fyrir skömmu að snillingamir vora við veiðar hver á sínum stað og rétt útbúnir samkvæmt lögmálinu. Hann var tregur sUungurinn þenn- an dag. Enginn hafði fengið neitt þegar hér var komið sögu. Þá birt- ist aUt í einu strákpatti meö Utla flugustöng og fór að kasta. Það sást strax að hann kunni ekki að kasta á flugustöng. En með einhveijúm ósköpum fór línan út. Þetta gekk nokkra stund. AUt í einu hrópaði hann upp. Stöngin hringsveigðist og eftir dágóða stund landaði hann fimm punda urriða. Stærsta fiski sem ég hef vitað til að dreginn hafi verið á land úr EUiöavatninu í sumar. Nú urðu sérfræðingamir forvitn- ir. Hvaða flugu var drengurinn með? Þegar farið var að skoða út- búnaðinn var strákurinn með 36 punda örstuttan laxagimistaum. Fremst á honum var einhver flugu- bastarður sem enginn hafði séð fyrr. Aukinheldur var flugan alltof stór, númer 8 en ekki númer 14 eða 16 eins og sérfræðingamir segja að nota eigi í EUiðavatni. Þetta var eini fiskurinn sem ég vissi til að kæmi á land þennan daginn. Þeir tíndust burtu einn og einn, sér- fræðingamir, fljótlega eftir þetta. Þær verst gerðu Kolbeinn Grímsson, einn slyng- asti fluguveiðimaður og fluguhnýt- ari landsins, sagði mér svipaða sögu. Hann var þá að veiða í Hlíðar- vatni. Þar hitti hann fyrir gamlan mann sem hann þekkti ekki. GamU maðurinn sagði að nú veiddist vel. Hann væri með sérstaka flugu sem gæfi vel. Hvort Kolbeinn vUdi ekki þiggja eina af sér. Kolbeinn sagðist hafa afþakkað það og farið að veiða á sínar flugur. Hann fékk 27 bleikj- ur yfir daginn. Þegar hann hitti gamla manninn undir kvöld spurði hann Kolbein frétta. Kolbeinn sagðist vera með 27 bleikjur. Gamli maðurinn sagði þetta merkfiega til- viljun. Hann hefði líka fengið 27 bleikjur. Þá skoðaði Kolbeinn í fluguboxiö hans. Hann sagðist hvorki fyrr né síðar hafa séð verr gerðar flugur né rangari stærðir miðað við reglur sérfræðina um HUðarvatn. En sá gamU veiddi á þetta jafn mikið og sérfræðingur- inn. Á þessu sést að það er valt að trúa sérfræðingum í blindni og skiptir þá ekki máU hvort við tölum um peningamál, veðurfræði, fiski- fræði eða bara þaö að veiða sUung á flugu í vatni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.