Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1992, Qupperneq 19
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1992. 19 Þýskalandsmeistari í sumarfríi á Saudárkróki: : Eg ætlaði mér alltaf • að velj a körfuboltann B § - segir Eyjólfur Sverrisson sem hefur náð undraskjótum frama Ætlaði mér alltaf að taka körfuboltann fram yfir knattspyrnuna, Eyjólfur Sverrisson, knattspyrnumaður frá Sauðárkróki. Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: íslenski Þýskalandsmeistarinn í knattspymu, Eyjólfur Sverrisson, er „heima" í sumarleyfi þessa dagana. „Heima“ er auövitað á Sauðárkróki og þar hitti DV Eyjólf að máh nú í vikunni, í vetrarveðrinu sem þá geis- aði. Á Sauðárkróki var slyddudrulla og kuidi og lítið sumarlegt. Við Eyj- ólfur mæltum okkur mót á Hótel Mælifelli til að ræða saman yfir kaffi- boha og tveimur mínútum fyrir um- saminn tíma birtist Þýskalands- meistarinn. Ég hafði orð á því við hann hvort þama væri ekki hin róm- aða þýska stundvísi í öllu sínu veldi. „Æth það ekki. í Þýskalandi þýðir ekkert annað en vera stundvís, það lærði ég strax og ég kom þangað. Ef maður th dæmis mætir of seint á æfingar fær maður sekt og annað er eftir því í þessari nákvæmni Þjóð- veijanna. En áður en ég fór th Þýska- lands þótti ég víst aldrei neitt sér- staklega stundvís, öðru nær.“ Undraverður frami Það er óþarfi að hafa mörg orö um undraskjótan frama Eyjólfs sem knattspymumanns. Hann átti engan leik í 1. deild hér heima þegar hann gerðist leikmaður hjá Stuttgart í einni erfiðustu atvinnumannadeild í heiminum. Hann hafði heldur engan A-landsleik að baki. Hans vettvangur í knattspymunni hafði verið með Tindastóh í „óæðri" dehdum knatt- spymunnar á íslandi. Hins vegar lék hann sex leiki með 21 árs landslið- inu, skoraði í þeim jafnmörg mörk og þannig uppgötvuðu „útsendarar" erlendra liða hann. Það var ekki síst frammistaða hans í 21 árs landsleik leik gegn Finnlandi á Akureyri sem öhu breytti en þá skoraði hann fjögur mörk. Eyjólfur hafði um fleiri en einn möguleika að velja en valdi að gera samning við Stuttgart og þangað hélt hann um áramótin 1989-1990. „Nei, ég gekk ekki inn í hðið í fyrstu. Þjálfarinn, sem var Vhh Ent- ermann, breytti hðinu sáralítið þótt því vegnaði ekki vel. Hann hafði trú á stjömunum í hðinu. Ég var hins vegar reynslulaus og auðvitað var maður ekki að gera neinar kröfur um að fá strax að spreyta sig heldur beið eftir tækifærinu. Entermann var svo rekinn seint á árinu 1990. Þá tók Christoph Daum við stjóminni og hann setti mig strax inn í hðið og þar hef ég verið að lang- mestu leyti síðan, í byijunarhði. Eg lék fyrst sem afturhggjandi fram- heiji en í vetur sphaði ég sem aftur- hggjandi miðjumaður. Helst vh eg spha í fremstu röð en ef hðinu geng- ur vel þá skiptir í sjáifu sér ekki öhu máh hvar maður er hafður, það er fyrir mestu að vera í sigurhði." - Það var talað um þjófnað þegar þið tryggðuð ykkur meistaratithinn í vor. Höfðuð þið ahtaf trú á að það myndi takast? „í fyrstu var markmið okkar að ná einu af fimm efstu sætunum og tryggja okkur sæti í Evrópukeppni, það var tahð raunhæft markmið eftir gengi hðsins árið á undan. Við vorum lengst af í þriðja sæti og þar í kring og menn voru hissa á frammistöðu okkar. Það var talað um „bólu“ sem myndi springa á lokasprettinum. Við stóðum hins vegar uppi sem sigur- vegarar eftir að hafa sphað síðasta leikinn einum færri nær ahan tím- ann en unnið samt og sú tilfmning var engu lík að verða meistari. Og nú segja þeir í Stuttgart að það verði ahtaf að vera að minnsta kosti einn íslendingur í hðinu en Ásgeir Sigur- vinsson var fyrirhði þess þegar það vann síðast, árið 1984.“ Fagnaðarlæti og kjálkabrot Þegar hðíð kom heim með sigur- launin voru geysheg fagnaðarlæti í Stuttgart og Eyjólfur segir að borgin hafi bókstaflega veriö á öðrum end- anum. „Fagnaðarlætin voru alveg ólýsanleg og fólk á öllum aldri dans- aði og söng á götum úti og bar okkur á höndum sér.“ En mitt í öhum fagnaðarlátunum komu svo fregnir af því að Eyjólfur hefði kjálkabrotnað. Ihar tungur fóru strax af stað og sögðu að nú hefði kappinn lent í einhveiju klandri. „Já, ég heyrði þessar sögur og að ég hefði lent í slagsmálum. Það rétta er hins vegar að í vetur lenti ég í samstuði í einum leiknum og kjálk- inn bólgnaði upp. Þetta hjaðnaði fljótlega en læknar segja að þá hafi myndast sprunga í kjálkann. í fagn- aðarlátunum fékk ég síðan olnboga- skot í mannþrönginni, þá bólgnaði ég aftur og í ljós kom að ég var brot- inn. Ég er orðinn góður af þessu en er með málmplötu í kjálkanum th að styrkja hann og platan verður þar fram að jólum. Það versta við þetta er að það væhr ahtaf í málmleitar- tækjum þegar ég þarf að fara í gegn um slík tæki, th dmis á flugvöhum, og þá þarf ég að standa í því að út- skýra fyrir mönnum hvað veldur." Það er ljóst að Eyjólfur hefur tekið geyshegum framfórum sem knatt- spymumaður á þeim stutta tíma sem atvinnumennskan hefur verið vett- vangur hans og hann sphaði ótrúlega stórt hlutverk í liði Stuttgart miðað við hversu stutt hann hefur verið atvinnumaður. En hvemig hefur hann breyst sem knattspymumaður að eigin áhti? „Ég held að ég hafi breyst mjög mikið. Ég hef meiri tækni og snerp- una hef ég aukið geyshega. Þá hefur skhningur á fótboltanum aukist mik- ið. Ég myndi segja að ég hafi bætt mig á öhum sviðum enda væri annað óeðhlegt eins og maður æfir mikið.“ - En á hvaða sviðum þarftu helst að bæta enn frekar við? „Ég fer mikið áfram á kraftinum, er ekki einn af þeim „tekniskustu". Ég stefni að því að bæta tæknina enn frekar, ná upp enn meiri snerpu og verða betri ahhiða leikmaður." Það var ekki síst fyrir thsthh Ás- geirs Sigurvinssonar að Eyjólfur réðst th Stuttgart á sínum tíma og Eyjólfur dregur enga dul á að það hafi verið gott að hafa Ásgeir við hhð sér í Stuttgart. Ásgeir starfar hjá fé- laginu og er mjög virtur enda fyrr- verandi stjama hðsins. „Okkar samskipti em mjög góð og við höfum reglulegt samband eins og reyndar alhr íslendingar sem eru í Stuttgart. Hann hjálpaði mér mikið þegar ég kom þama út og gerir auð- vitað ennþá. Ég get ahtaf leitað th Ásgeirs ef ég þarf að fá aðstoð." Nákvæmnin rosaleg Eyjólfur er giftur Önnu Pálu Gísla- dóttur frá Vestmannaeyjum en hún flutti th Sauðárkróks 10 ára gömul og er því „skagfirsk Eyjarós“ ef svo má segja. Þau eiga tveggja ára bam. En hvernig hefur þeim géngið að aðlagast daglega lífinu í Stuttgart og hvemig líkar þeim við Þjóðveijana? „Þetta hefur gengið mjög vel og gengur ahtaf betur eftir því sem við komumst betur inn í tungumáhð og r 1 landí heimsmeistaranna í knattspyrnu þetta daglega líf. Við skiljum orðið þýskuna alveg en það var erfitt fyrst. Þótt ég sé með stúdentspróf í þýsku þá sagði það ekki mikið þótt það hafi auövitað hjálpað mér að komast inn í málið.“ - Em Þjóðveijarnir eins stífir og nákvæmir í umgengni og sagt er? „Ég hef ekki átt í neinum vandræð- um með að umgangast þá. Þeir em alveg rosalega nákvæmir og það þarf aht að vera alveg hundrað prósent og eftir reglunum. Th dæmis hvað snertir æfingar þá eru menn skilyrð- islaust sektaðir ef þeir mæta ekki á réttum tíma. Ég mátti hafa mig allan við í byijun að komast inn í þennan hugsunarhátt og theinka mér hann.“ Eyjólfur segir að þótt menn séu samheijar í leikjum þá sé ekkert gef- ið eftir á æfingum og þar sé enginn miskunn sýnd. „Harkan á æfingum er gífurleg og það er beinlínis hægt að tala um grimmd í því sambandi. Menn ganga eins langt í hörkunni og þeir mögu- lega geta enda er verið að keppa um stöður í liðinu. í byijun þegar ég kom þama var ég sparkaður niður mis- kunnarlaust á æfingum. í slíkri stöðu þýðir ekkert annað en að taka á móti á sama hátt annars verður mað- ur bara undir í þessari baráttu. Þetta voru viðbrigði frá því sem var hér heima þar sem ahir voru félagar og vinir og létu það vera á æfingum að ganga í skrokk hver á öörurn." Eyjólfur er ákaflega hógvær maður og gerir lítið úr afrekum sínum á knattspymuvelhnum. Það að vera orðinn þekktur knattspyrnumaður í landi heimsmeistaranna hefur greiihlega ekki stigið þessum 22 ára Sauðkrækingi th höfuðs. En hvemig sér hann framhaldið hjá sér í knatt- spyrnunni? „Atvinnuknattspyrnan er nú þannig að menn geta ekki gert neinar langtímaáætlanir eða séö framtíðina í einhveijum bjarma. Það þarf ekki nema ein alvarleg meiðsh til þess að gjörbreyta öhu og það er stutt mihi hláturs og gráts í þessari atvinnu. Ég horfi bara fram á eitt keppnis- tímabh í einu. Nú er ég með tveggja ára samning við Stuttgart og verð því hjá félaginu í þann tíma ef ekk- ert óvænt kemur upp á.“ - Þið knattspymumenn viljið aldrei tala um peninga eða laun ykkar. En freistar ekki að láta hugann reika th Ítalíu þar sem mestur ævintýraljóm- inn virðist vera umhverfis knatt- spyrnuna og peningamir langmest- ir? „Knattspymumenn á Ítalíu em auövitað þeir langlaunahæstu í heiminum og sennhega hugsa flestir knattspymumenn um að gaman væri að komast þangaö. Ég geri mér hins vegar alveg grein fyrir því að ef ég ætti að eiga einhveija mögu- leika á því þá þyrfti ég að bæta mig mikið sem knattspymumaöur. Ég er því ekkert að hugsa um neitt svona í neinni alvöra, einbeiti mér bara að því aö bæta mig og standa mig vel hjá Stuttgart.“ Þeir sem hafa fylgst með íþróttum hér heima vita að Eyjólfur var geysi- lega efnhegur körfuboltamaður, eitt mesta efni sem lengi haföi komið fram í þeirri grein, og margir héldu að hann myndi ná lengra í körfubolt- anum en í knattspymunni. „Ég ætlaði mér ahtaf að velja körfuboltann og hætta í knattspyrn- unni. En þegar graslyktin kom á vor- in kom einnig fiðringurinn í fæturna og maður réð ekki við sig. Eitt árið var ég ákveðinn í að hætta í knattspyminni. Þá kom hins vegar Bjami Jóhanns hingaö á Krókinn og tók við Tindastólsliðinu. Hann fékk mig til að vera áfram í knattspyrn- unni og ég lærði mikið hjá honum sem varð til þess að áhugi minn á að halda áfram jókst. Svo komst ég í 21 árs landsliðið og eftir það gerð- ust hlutimir hratt og ég var kominn til Stuttgart áður en ég vissi af.“ í snjó á Króknum Þegar DV hitti Eyjólf á Sauðár- króki síðasthðinn miðvikudag var lítt sumarlegt um að litast. Um morg- uninn hafði jörð verið alhvít í bæn- um en um hádegið var slydda og kalsaveður. Það má því segja að sum- arfrí Eyjólfs á heimaslóðum hafi orð- ið hálfgert vetrarfrí. NORÐDEKK FRÁBÆR, SÓLUÐ FÓLKSBILADEKK GÚMMÍVINNUSTOFAN HF RÉTTARHÁLSI 2, S.8I4008 & 91-814009 SKIPHOLTI 35 S 31055 Sýningar: Virka daga kl. 20.00 Laugardaga kl.15.00 og 20.00 Sunnudaga kl.15.00 og 20.00 hhbi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.