Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1992, Qupperneq 16
16
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1992.
Sviðsljós
Demi Moore situr hér fyrir á rúmstokknum. Bruce Wiilis sefur værum
svefni. Ætli hann viti af þessu?
John F. Kennedy yngri brá sér á tónieika með írsku stórhljómsveitinni U2
i New York um daginn. Með sér á tónleikana tók hann kærustuna, fyrirsæt-
una Julie Baker, og frænda sinn, Wiiliam Smith, sem kom fyrir dómstól á
þessu ári, ákærður fyrir nauðgun, en var ekki fundinn sekur.
HÚSEIGENDUR
Kjaraboö eldhúsinnréttingar, fataskápar
og baðinnréttingar.
12-25% afsláttur af öllum gerðum innréttinga.
Greiðslukjör í allt aö 18 mánuði.
H-GÆÐI HF.
Suðurlandsbraut 16, Rvk.
Sími 91-678787.
ENGIN UTSALA
EN
TILBOÐSDAGAR
HÓFUST í DAG
Opið kl. 10-18.
20-50% afsláttur
PÓSTSENDUM
& z
barnafataverslun
Skólavörðustíg 6B, sími 62 16 82
Demi Moore dregur að sér athygli:
Nakin í fötum
Leikkonan Demi Moore situr fyrir
nakin í næsta hefti Vanity Fair.
Myndir af henni munu birtast á for-
síðu og einnig inni í blaðinu. Mynd-
imar eru þó ffábrugðnar flestum
nektarmyndum að því leyti aö fót
hafa verið máluð á Demi Moore að
þessu sinni.
Forsíðumyndin af Demi Moore í
síðasta ágústhefti Vanity Fair hlaut
mikið umtal eins og sjálfsagt er í
manna minnum. Þá urðu sumir ákaf-
lega hneykslaðir á leikkonunni og
af þeim viðbrögðum að dæma er eins
líklegt að þeir hinir sömu fussi og
sveii yfir Demi von bráðar.
í fyrra sat Demi Moore fyrir nakin,
komin sjö mánuði á leiö, og vakti sú
forsíða einhveija mestu athygli er
um getur í sögu blaðsins. Tina
Brown, ritstjóri Vanity Fair, þótti
taka mikla áhættu með birtingu
myndarinnar.
Demi Moore, hin 29 ára eiginkona
Bruce Willis, varð undrandi á margs
konar og miklum viðbrögðum við
myndinni og hún ákvað að bæta um
betur í næsta ágústhefti Vanity Fair.
„Það kom mér skemmtilega á óvart
að fólki skyldi bregða við hluti sem
fyrir mér eru ákaflega eðlilegir,“ seg-
ir Demi. „Það gleður mig líka að ég
skuh hafa gert eitthvað til að láta
aðrar konur líta sig öðrum augurn."
Forsíðan sem vakti mikið umtal í fyrra.
Þessi forsíða hefur nú þegar vakiö meiri athygli en sú
frá í fyrra.
Jet Black Joe á Púlsinum. Hljómsveitin hefur verið á ferðinni í sumar, m.a.
og Todmobile á sveitaböllum.
Kolsvarti Jói
stelur athygli
Hjómsveitin Jet Black Joe þýtur
nú eins og þota upp á himin íslenskr-
ar dægurtónlistar. Þeir sem til
þekkja telja aö hljómsveitin eigi eftir
aö hækka flugið til muna í náinni
framtíð.
Ifljómsveitm er skipuö þeim Páli
Rósinkrans söngvara, Gunnari
Bjama Ragnarssyni gítarleikara,
Starra Sigurðssyni bassaleikara,
Jóni Amarssyni trommuleikara og
Hrafni Thoroddsen, gítar- og orgel-
leikara.
Svo tónlist þeirra félaga sé skil-
greind þá er um að ræða frumsamið
melódískt rokk með enskum textum.
Lag þeirra, Rain, kom út á safnplötu
nú í sumar og nýtur mikilla vin-
sælda.
Þessir efnilegu piltar úr Hafnar-
firði og Garðabæ hafa skrifaö undir
samning við Steina hf. og er von á
plötu frá Jet Black Joe um næstu
jól. Viö upptöku plötunnar nýtur
hljómsveitin aðstoðar Eyþórs Am-
alds, poppjöfurs úr Todmobile.
spilað meö Sálinni hans Jóns míns
Söngvarinn Páll syngur af innlifun.
DV-myndir RaSi