Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1992, Síða 22
22
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1992.
Fréttir
Marska hf. á Skagaströnd:
Sjófrysta ýsan í neytendaumbúðir
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Hvaö sem segja má um þær deilur,
sem uppi hafa verið aö undanfömu
um ágæti frystiskipaútgerðar okkar,
eru flestir á einu máli um aö sá flsk-
ur, sem frystur er um borð í togurun-
um um leið og hann kemur upp úr
sjónum, sé sá besti fiskur sem hægt
er að fá.
Hjá Marska hf. á Skagaströnd hef-
ur sú starfsemi veriö tekin upp að
kaupa af Skagstrendingi hf. ýsu sem
fryst hefur verið um borð í togaran-
um Örvari. Ýsan er síðan „brotin
upp“ úr öskjunum sem hún hefur
verið fryst í, 2-3 flök em sett í poka
og þaðan fer flskurinn í verslanir.
Þegar DV leit þar inn vom Lilja
Kristinsdóttir, Særún Níelsdóttir og
Þórey Jónsdóttir í óöaönn að setja
ýsuna í slíkar umbúðir og vom þann
daginn að pakka fyrir Hagkaup. Þær
sögðu að ýsan frá Marska færi í
verslanir vítt og breitt um landið og
líkaði mjög vel og þeir sem reynt
hafa a.m.k. draga það ekki í efa.
Hagakirkja 1 Holtum færð í upprunalegt horf:
Kostar nokkrar
milljónir króna
- kirkjan 100 ára í ár
Um þessar mundir standa yflr
framkvæmdir við Hagakirkju í
Holtahreppi í Rangárvallasýslu. Eitt
hundrað ár em liðin síðan kirkjan
var tekin í notkun en 1894 var hún
afhent Hagasöfnuði til eignar. Að
sögn Halldóm Þorvarðardóttur
sóknarprests er stefnt á að taka
kirkjuna í notkun 1994 eftir að búið
verður að koma henni í uppmnalegt
horf. Fjármögnun endurbótanna fer
fram úr Kirkjugarðssjóði, Húsfrið-
unarsjóði ríkisins, Jöfnunarsjóði
sókna og Kirkjubyggingasjóði, auk
framlaga frá safnaðarbörnum og
öðmm einstaklingum. Ekki er vitað
hvað endurbæturnar munu kosta en
um nokkrar milljónir verður að
ræða. Halldóra sagði að reynt yrði
að spara eins mikið og mögulegt
væri.
Sjö hundmð þúsund króna styrkur
hefur fengist úr Húsfriðunarsjóði og
styrkur frá Kirkjugarðssjóði upp á
eina mifljón. Loforð eru fyrir nokkur
hundruð þúsund króna lánum úr
Kirkjubyggingasjóöi og Jöfnunar-
sjóði sókna.
„Fyrir hundrað árum sáu sóknar-
bömin um byggingu kirkjunnar.
Ættum við ekki að geta það sama í
dag?“ sagði Halldóra að lokum.
Þótt endurbygging Hagakirkju hafi
verið samþykkt samhljóða á safnað-
arfundi á sínum tíma hafa gagnrýn-
israddir komið fram. Eitt safnaðar-
bamið sagöi í samtali við DV að
óþarfi væri að hafa þrjár kirkjur í
Holtunum en auk Hagakirkju eru
Árbæjarkirkja og Marteinstungu-
kirkja. „Það er alveg nóg að hafa eina
kirkju hér í hreppnum. Þetta er ekk-
ert nema peningasóun, auk þess sem
Hagakirkja er á leiðinlegum stað.
Það er sóðalegt í kringum hana,“
sagði viðmælandi blaðsins úr Haga-
söfnuði.
-bjb
< Ý' y '. v - - -
Hagakirkja í Holtahreppi í Rangárvallasýslu er orðin hundrað ára gömul
Hún verður færð I upprunalegt horf fyrir nokkrar milljónir króna.
Lilja, Særún og Þórey pakka hér sjófrystu ýsunni í umbúðir fyrir neytendamarkað.
DV-mynd gk
Okkur langaði að
reyna eitthvað sjálf
Gytfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Við hjónin höfum bæði unnið hjá
því opinhera en okkur langaöi að
reyna eitthvað sjálf. Því var það að
þegar meirihlutinn í hótelinu var til
sölu slógum við til,“ segir Ásrún Ól-
afsdóttir en hún keypti í vor meiri-
hlutann eða 57% í Hótel Blönduósi
ogþau hófu rekstur hótelsins 1. maí.
Ásrún segir að reksturinn hafi
gengið ágætiega þann stutta tíma
sem flðinn sé síðan þau byrjuðu.
Maímánuður hafi komið ágætlega
út en júní reyndar ekki eins vel enda
mun það vera reynslan að sá mánuð-
ur sé ekki mjög góður yfirleitt í þess-
um rekstri.
Á Hótel Blönduósi eru 18 herbergi
og rúm fyrir 38 gesti. Herbergin eru
flest með baði og sjónvarpi og sími
er á þeim öllum. Á jarðhæð er veit-
ingasalur þar sem um 110 manns
geta setið samtímis, eldhús og vín-
stúka. Boðið er upp á morgunmat og
aðrar máltíðir af fjölbreyttum mat-
seðli auk þess sem réttur dagsins er
ávallt á boðstólum.
Eins og á öðrum hótelum er á þessu
hóteli mun minna um gesti yfir vetr-
armánuðina. „Á þeim tíma veröum
við að treysta á heimamenn og fólk
í nærsveitum, að þetta fólk notfæri
sér þá þjónustu sem hér er aö hafa,“
sagði Ásrún.
40 tonn af Vilkó súpum
Gyifi Kristjánasan, DV, Akureyri:
Fjórir starfsmenn Vilkó súpugerð-
arinnar á Blönduósi afgreiddu 40
tonn af súpum út úr húsnæði súpu-
gerðarinnar á ári og hljóta það að
teljast góð afköst, ekki síst þegar þess
er gætt að vélvæðing fyrirtækisins
er með allra minnsta móti og t.d. er
súpunum pakkað í höndunum.
Viðmælendur DV á Blönduósi
höfðu á orði að súpufyrirtækið væri
eitt fárra fyrirtækja í bænum sem
gengi mjög vel í rekstri. Kaupfélag
Húnvetninga er eigandi fyrirtækis-
ins, keypti þaö frá Hafnarflrði 1985
og flutti starfsemina norður ári síðar
og síðan hefur reksturinn gengið
mjög vel. „Vilkó súpurnar selja sig
sjálfar, við auglýsum sáralítið en er-
um með sterka aðila sem annast
dreifmguna fyrir okkur," sagði
Gunnar Valdimarsson.
Hráefnið í súpumar kemur að
mestu frá útlöndum og segja má að
við súpugerðina sé mannshöndin
nær allsráðandi. Hráefnið er fyrst
þurrkað í sérstökum þurrkskáp, síö-
an blandað aukaefnum og hrært í
„steypuhrærivél". Að því loknu fer
súpuduftið í pökkunarherhergiö þar
sem einn maður viktar það í poka,
þeim er lokað einum í einu af ann-
arri manneskju og þriðji starfsmað-
urinn setur pokana í öskjur og lokar
þeim. Einföld framleiðsla en afköstin
góð eins og sagði hér aö framan.
Bms
mmi
Þrjár manneskjur starfa við pökkun á Vilkó súpunum í litlu pökkunarherbergi og fóru 40 tonn um hendur þeirra
á siðasta ári. DV-mynd gk