Dagblaðið Vísir - DV

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjúlí 1992næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    2829301234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    2627282930311
    2345678
Tölublað
Áður útgefið sem

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1992, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1992, Blaðsíða 19
.Sfloj uOr fls H!m/,ír!>ii7'Mf' IHFerunú 123 talsins Jón Kristján Sigiixdsson, DV, Barcekma: Aðildarþjóðir aö alþjóöa hand- knattíeikssaxnbaxidinu eru nú orðnar 123 talsins en á nýaf- stöðnu þingi sambandsins hér skömmu fyrir leikana var sam- þykkt innganga ellefu nýrra ríkja. Evrópuríki sem gengu inn í sambandið eru Albanía, Armen- ía, Azerbajdzhan, Bjelo-Rússland, Georgía, Moldavía, Úkraina, Kró- atía og Slóvenla. Frá Asíu gekk Kazakhstan inn í sambandið og Gínea-Bissá kom inn frá Afríku. 25þúsund miðar seldir á HM í Svíþjóð í tímariti Alþjóða handknatt- leikssambandsins, World Hand- ball, kemur fVam að nú þegar hafa um 25 þúsund miðar selst á heimsmeistarakeppnina sem haldin verður þar í landi í mars á næsta ári. Riðlakeppni fer fram í fjórum borgum, Karlstad, Gautaborg, Malmö og Umeo. Úr- slitákeppnin verður síðan leikin í Stokkhólmi 1 Globe íþróttahöU- inni sem tekur 16 þúsund áhorf- endur. Sterkir Rússar tilþýskra félagsliða Tveir af sterkustu handbolta-; mönnum Samveldismanna hafa ákveðið að leika með þýskum fé- lagsliðum á næsta tímabili. An- drei Lavrov heitir annar þeirra og mun hann leika með TuS Kais- erslautem og Sregeí Ladigin mun leika með CSC Erlagen. Fleiri sterkir handboltamenn munu leika í Þýskalandi á næsta ári og má þar nefna Robert Magnusson sem var sá markahæsti í sænsku deildinni í vor en mun leika með Bayer Dormagen í vetur. Einn sterkasti leikmaöur Kóreu- manna, Jae-Won Kang, mun tara frá Grashoppers til Winterthur í sama landi. leika ekki með Thúskin og Atavin, sem hafa verið burðarásar soveska lands- iiðsins undanfarin ár, voru ekki valdir í liöið fyrir keppnina hér á ólympíuleikunum. Þeir gátu ekki verið með i undirbúningnum fyr- ir leikana sökum anna með sín- um félagsllðum. Bjarni fékk skell - tapaði fyrir Frakkanum Traineau og er úr leik í ólympíukeppninni Jón Kiistján Sigurösson, DV, Barcelona: Bjarni Friðriksson, bronsverð- launahafi frá ólympíuleikunum í Los Angeles, beið lægri hlut fyrir Step- hane Traineau frá Frakklandi í 2. umferð júdókeppninnar á ólympíu- leikunum í Barcelona í gær. Bjami sat yfir í 1. mnferð og lenti svo á móti þessum sterka franska júdó- manni sem er heimsmeistari í þess- um þyngdarflokki, -95 kg. Frakkinn sigraði Indónesíumann á ippon í 1. umferð og síðan kom glíman gegn Bjama 12. umferð en hún hófst um tuttugum mínútum síðar. Bjarni hafði undirtökin í byrjun Margir íslendingar, sem komu til að horfa á viðureign Bjama gegn Frakkanum, biðu spenntir eftir við- ureigninni og var stemmningin góð á meðal áhorfenda. Glíman fór rólega af staö en Bjami gaf hvergi efdr og hafði undirtökin ef eitthvað var. Þeg- ar líða tók á skoraði Frakkinn stig og upp frá því varðist hann vel og forðaðist að fara í gólfið. Þegar um 4,25 mínútur vora hðnar af glímunni náði Frakkinn Bjama niður og sigraði á ippon eða fuÚnað- arsigur. Skömmu áður en Frakkinn sigraði var hann fyrir meiðslum en það kom ekki í veg fyrir sigur hans. Uppreisnarglíman varð af engu í þessari stöðu sá Bjami fram á upp- reisnarglímu því allir áttu von á því að Frakkinn færi alla leið í úrslit. Því miður gekk það ekki en Frakkinn tapaði heldur betur óvænt fyrir lítt þekktum Bandaríkjamanni, Leo White að nafni. White gerði sér lítið fyrir og sigraði Frakkann á ippon snemma í glímunni. Þar með var draumur Bjama úti um uppreisnar- glímu. Sannarlega sár vonbrigði því að Bjami hefur sjaldan eða aldlrei verið í eins góöu formi. Bjarna Friörikssyni er hér skellt í gólfið af franska júdómanninum Styephane Traineau. Traineau sigrði í annars spennandi glímu eftir að Bjarni hafði byrjað vel. Bjarni er úr leik þar sem Frakkinn tapaði í næstu umferð fyrir Bandaríkjamanninum Leo White. Simamynd Reuter „Er mjög óhress“ - sagði Bjarni eftir tapið 1 Barcelona í gær Jón Kristján Sigurðsson, DV, Baroelona: „Ég átti von á miklu meiri mót- spymu í byijun. Frakkinn er vanur í glímum sínum að keyra á fullu í upphafi en það var ekki reyndin í þetta skipti. Að öðm leyti er ég mjög óhress með að fara ekki lengra í keppninni en ég var alveg viss um að Frakkinn færi alla leið en annað átti heldur betur eftir að koma á dag- inn. Ég barðist eins og ég gat en Frakkinn reyndist sterkari,“ sagði Bjami Friðriksson júdómaður í sam- tali við DV eftir keppnina í Barcelona í gær. Bjami sagði við DV að hann hefði ætlað að glíma sem mest í gólfinu en Frakkinn forðaðist það sem heitan eldinn. „Ég átti alls ekki von á því að Frakkinn tapaði fyrir Bandaríkja- manninum. Þetta vom tvímælalaust ein óvæntustu úrslitin í þessum flokki," sagði Bjami ennfremur. Bjami Friðriksson, sem 36 ára að aldri, hefur verið í fylkingarbrjósti íslenskra júdómanna um árabil og unnið til aragrúa verðlauna innan lands sem utan. En hvað ætíar Bjami sér í framhaldinu eftir ólympíuleik- ana hér í Barcelona? „Ég reikna ekki með að ég keppi á fleiri mótum erlendis. Hins vegar ætla ég að keppa áfram á mótum heima eins og íslandsmótum. Ég er mjög svekktur hvemig þetta fór hér á ólympíuleikunum," sagði Bjami Friðriksson, í samtali DV skömmu efdr keppnina í Barcelona í gær. Leo White frá Bandaríkjunum fagnar ógurlega eftir óvæntan sigur á Frakkan- um Traineau og þar með var Bjaml úr leik á ólympfuleikunum. Simamynd Reuter Jón KrisQán Sigurðsson skrifarfrá Barcelona

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað: 170. tölublað (29.07.1992)
https://timarit.is/issue/194189

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

170. tölublað (29.07.1992)

Aðgerðir: