Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1992, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1992, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1992. 33 Hjónáband Tilkynningar Þann 4. júlí voru gefin saman í hjóna- band á Þingvöllum af séra Hönnu Maríu Pétursdóttur Margrét Valtýs- dóttir og Henrik Zacharíasen. Heim- ili þeirra er í Danmörku. Ljósm. Nærmynd Þann 18. júlí voru gefin saman í hjónaband í Bústaðakirkju af séra Pálma Matthíassyni Svanbjörn Ein- arsson og Bryndís Ósk Jónsdóttir. Heimili þeirra er að Álfaheiði 8, Kópavogi. Ljósm. Mynd Þann 11. júlí voru gefin saman í hjónaband í Neskirkju af séra Guð- mundi Óskari Ólafssyni Hildigunnur Sigurðardóttir og Jón Grétar Haf- steinsson. Heimili þeirra er að Vík- urási 1, Reykjavik. Ljósm. Sigr. Bachmann. Þann 4. júlí voru gefin saman í hjona- band í Grensáskirkju af séra Hall- dóri Gröndal Hildur Edda Þórarins- dóttir og Guðmundur Pétursson. Heimili þeirra er að Hvassaleiti 38, Reykjavík. Ljósm. Nærmynd. Þann 18. júli voru gefin saman í hjónaband í Laugardælakirkju af séra Sigurði Sigurðssyni Kristín Al- bertsdóttir og Jón Sigurjónsson, til heimihs að Hrafnhólum 8, og Guð- björg Hulda Albertsdóttir og Eiríkur Sigurjónsson til heimilis að Básenda 3. Ljósm. Nærmynd. Þann 18. júlí voru gefin saman í hjónaband í Áskirkju af séra Árna Bergi Sigurbjömssyni Hulda Þórs- dóttir og Sigurður Örn Einarsson. Heimili þeirra er að Mávahlíð 15, Reykjavík. Ljósm. Jóhannes Long þann 18. júlí voru gefin saman í hjónaband í Garðakirkju af séra Árna Bergi Sigurbjörnssyni Kolbrún Reynoldsdóttir og Vignir Hilmars- son. Heimili þeirra er að Hringbraut 77. Ljósm. Nærmynd. Hundaræktarfélag íslands Hinn kunni atferlisfræðingur Roger Tímaritið Ský 7. hefti tímaritsins Ský er komið út. I Skýi eru einkum ljóð, þýdd og frumsamin en einnig prýða ljósmyndir og grafíkverk tímaritið. Ljósmynd á kápu tók Einar Falur Ingólfsson. Ritstjórar eru þeir Ósk- ar Ámi Oskarsson og Jón Hallur Stefáns- son. Verð tímaritsins 1 lausasölu er kr. 400. Veiðivon Hofsá í Vopnafirði: Mokveiði þessa dagana „Það er feiknaveiði í Hofsá og hafa bestu dagarnir verið að gefa 50 laxaj' sagði Eiríkur Sveinsson, læknir á Akureyri, í gærkvöld. Hofsá hefur gefið 750 laxa og hann er 20 pund, sá stærsti. Það var 85 ára Akureyringur, Magnús Stefánsson, sem veiddi laxinn. Hann hélt lengi vel að fast væri í botni. 25 til 50 laxar á dag er það sem heyrist sagt í veiðihúsinu á kvöldin. Erlendir veiðimenn, sem hafa verið við veiðar upp á síðkastið, hafa meira að segja sleppt löxum í þónokkrum mæli. Þetta er mjög gott en aðeins er leyft að veiða á flugu og spón í ánni. Fnjóská hefur gefiö 250 laxa og það er frábært. Sigmundur Ófeigsson var þar fyrir skömmu og veiddi 5 laxa á flugu,“ sagði Eiríkur og bætti við að Selá væri töluvert fyrir neðan Hofsá. Veiði væri samt góð í Selá. Stærsti silungurinn í Baugsstaðaósi 9 pund „Veiðin í Baugsstaðaósnum hefur verið góð og stærsti silungurinn er 9 pund,“ sagði Ágúst Morthens á Sel- fossi í gærkvöld. „Ósinn er fullur af fiski, hæði stór- um og smáum. Kona, sem var að veiða hjá okkur fyrir skömmu, setti í 6 fiska en var svo óheppin að missa þá alla. Það hafa veiðst einhverjir laxar en ég veit ekki hve margir, kannski kringum 10. Ég held að • Hann Magnús Ý. Magnússon veiddi fyrsta laxinn sinn í Tungu- fljóti og fyrsta laxinn á þessu sumri. Þetta var 12 punda hrygna. DV-mynd Jón Orri • Séra Pálmi Matthiasson er lunkinn með fluguna og veiddi 3 laxa í Dyr- hólaósnum fyrir fáum dögum. DV-mynd Brynjar Gauti næstu vikur eigi eftir að gefa vel af fiski,“ sagði Ágúst og bætti við: „Það komu 10 laxar í Langholtinu í Hvítá í fyrradag og eru þá komnir 155 laxar þar.“ Séra Pálmi veiddi 3 laxa á fluguna „Nýjasta veiðisvæðiö hérna fyrir austan er Dyrhólaósinn hjá okkur og hann hefur gefið 30 laxa. Við leyf- um stangaveiði í þrem ám sem renna í ósinn," sagði Þórir N. Kjartansson í Vík í Mýrdal í gærkvöld. Núna fyr- ir fáum dögum var byrjaö að sleppa löxum úr hafbeit í þessar veiðiár sem renna í Dyrhólaósinn. „Séra Pálmi Matthíasson var hér fyrir fáum dögum og veiddi þrjá laxa á fluguna, þetta voru 6 og 7 punda laxar hjá Pálma. Magnús Krisijáns- son veiddi 5 laxa á hálfum degi eins og Pálmi. Við seljum daginn á 2000 og það er enginn kvóti. Ég frétti af 8 punda sjóbirtingi sem veiddist ofar- lega í Tungufljóti og þar hafa veiðst laxar líka,“ sagði Þórir ennfremur. -G.Bender Reynisvatnið: Flutningurinn á laxinum drap hann „Það virðist hafa gleymst að svelta fiskinn fyrir flutninginn og augljóst er að of langur tími fór í að ferma bflinn. Það veröur, að mínu mati, að flokkast undir handvömm að það skuh hafa tekið 5 tíma að koma fisk- inum á bfl. Það fer mjög illa með fisk af þessari stærð að vera lengi í þröngri nót og síðan að þurfa að háfa hann upp á bíl með öllu því hnjaski sem því fylgir. Til þess að auka þol fisksins við slíkar aðstæður verður það að vera regla að svelta hann í 2 til 3 sólarhringa, að minnsta kosti. Að mínu mati eru þetta helstu orsak- ir dauða fisksins. Ég legg því tfl að ef sömu aðilar ætla að endurtaka svona flutning þá verði nægum tíma varið tfl undirbúnings. Það er einnig skoðun mín að seljandinn hafi brugðist hlutverki sínu með hörmu- legum afleiðingum. Það er yfirleitt ófrávíkjanleg regla að seljandi undir- húi fiskinn í hvívetna fyrir slíkan flutning, nema að samið sé sérstak- lega um annað. Ég get bætt því við að sams konar flutningar eiga sér stað þessa dagana svo tugum skiptir og drepst sjaldan meira af fiskinum en 1-2%.“ Þetta segir Gísh Jónsson, dýra- læknir á Keldum, um dauða laxanna í greinargerð um Reynisvatn. „Þaö var aðeins einn og einn lax sem var horaður. Flestir voru fisk- amir feitir en þoldu þetta bara ekki,“ sagði Guðrandur Jónatansson, ann- ar þeirra sem slepptu laxinum í vatn- ið. „Stærsti laxinn var 9 pund en þeir minnstu 2 pund. Það var stærsti lax- inn sem drapst fyrst,“ sagði Guð- brandur ennfremur. -G.Bender Abrantes mun halda námskeið og fyrir- lestra á vegum Hundaræktarfélags ís- lands dagana 10.-14. ágúst. Námskeiðin verða tvö og verða haldin í húsnæði HRÍF í Sólheimakoti. Á námskeiðunum verður bæði verkleg og bókleg kennsla og í þjálfun verður byggt á atferlisfræði og tjáningarformi hundsins. Hvort nám- skeið tekur 4 daga og hefjast þau 10. og 14. ágúst kl. 19. Einnig verður boðið upp á einkatíma. Skráning og allar uppl. í síma 625269 og 625275 milli kl. 14 og 18. Hiö íslenska náttúrufræðifélag 15. -21. ágúst verður farið í ferð á vatna- svið Jökulsár á Fjöllum. Aðaláhersla verður á fom hamfarahlaup í Jökulsá, eldvirkni í Krepputungu og viðar, sand- fok o.fl. Leiðbeinendur verða Guttormur Sigurbjamarson jarðfræðingur, Frey- steinn Sigurðsson jarðfræðingur og Bragi Benediktsson landgræðsluvörður. Gist verður í svefnpokaplássum i fjallaskál- um, bændagistingu og sumargistingum. Gjald fyrir ferðina kr. 17.500 + 4.000 fyr- ir gistingu. Farið verður af stað frá Um- ferðarmiðstöðinni kl. 14. Uppl. og skrán- ing í síma 91-624757, fólk er beðið um að skrá sig fyrir 8. ágúst. Hana nú í Kópavogi Vikulega laugardagsganga Hana nú í Kópavogi varður á morgun. Lagt af stað frá Fannborg 4 kl. 10. Nýlagað molakaffi. Félag eldri borgara í Rvík. Göngu-Hrólfar fara frá Risinu kl. 10 laug- ardagsmorgun. Ljósmyndamaraþon Kodak og ALKA 15. ágúst kl. 10 verður þreytt í fyrsta skipti ljósmyndamaraþon á Akureyri, sem ÁT.KA heldur í samvinnu við Kod- ak-umboðið Hans Petersen hf. og Petró- myndir. Keppnin felst í þvi að taka ljós- myndir af fyrirfram ákveðnum verkefn- um eða mótífum eftir tiltekinni röö á ákveðnum tíma. Keppnin er öllum opin og þurfa keppendur aðeins að hafa með- ferðis myndavél fyrir 35 mm filmu. Þátt- tökugjald er kr. 500. Skráning fer fram í síma 01-675100 og 96-23520. Einnig er hægt að skrá sig að morgni 15. ágúst í Petró- myndum. Biskupstofa Dagana 11.-24. ágúst nk. mun biskup ís- lands, herra Ólafur Skúlason, visitera Húnavatnsprófastsdæmi. Biskup mun heimsækja alla söfriuði prófastsdæmisins og ræða við safnarðarmenn og presta og predika við guðsþjónustur og helgistund- ir í kirkjunum. Vísitasía biskups hefst 11. ágúst með messum í Holtastaðakirkju kl. 14. Tapaðfundið Gleraugu töpuðust Svört Armani gleraugu töpuðust í Vest- mannaeyjum um sl. helgi. Gleraugun eru í hulstri í hvítum poka ásamt bláu linsuboxi. Fundarlaunum er heitið. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að hringja í síma 77811.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.