Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1992, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1992.
Fréttir
Sævar Reynisson, gjaldkeri sóknamefndar Keflavíkur:
Þetta er djöflatrúar
- sáttagrundvöllurinn er brostinn
„Þama var um að ræða stærsta
aðalsafnaðarfund sem haldinn hefur
veriö fyrr og síðar. Sóknarpresturinn
talar þama um demonísk öfl. Þetta
er djöflatrúar og maður á ekki eitt
einasta orð,“ sagöi Sævar Reynisson,
gjaldkeri sóknamefndarinnar í
Keflavík, við DV.
Sóknamefndinni er sagt til synd-
anna í greinargerð sr. Ólafs Odds
Bjömssonar svo og íbúum Keflavík-
ur, eins og fram kom í DV í gær.
Sævar sagði að sóknamefndin
heíði ákveðið að gera allt sem hún
gæti til að leita sátta, að beiðni bisk-
ups. Eftir fundi með honum og pró-
fasti hefði hún farið þess á leit við
biskupinn að hann setti starfsreglur
sem prestur yrði að fara eftir. Ættu
þær að auðvelda samstarfið. Raunar
hefðu prófastur og biskup tjáð sókn-
arnefndinni að sóknarpresturinn
væri allt annar og breyttur maður
eftir að þeir hefðu rætt við hann.
Væm þeir bjartsýnir á að samstarfið
ætti að geta gengiö.
„Síöan kom þessi holskefla," sagði
Sævar, „þar sem hann lætur ekki
bara okkur heyra það, heldur Kefl-
víkinga almennt. Það svíður okkur
eiginlega sárast. Hann talar um „fé-
lagslegan fasisma" og „Neanderdals-
kynslóðina". Maður er gjörsamlega
kjaftstopp.
Menn em búnir að vera sem lam-
aðir í morgun vegna þessa. Ég fæ
ekki séð hvemig sóknarpresturinn
getur starfað með okkur fyrst hann
lítur okkur þessum augum. Það er
augljóst að hann hefur eyðilagt þann
sáttagrundvöll sem verið var að
byggja upp.
Varðandi skrifstofuaðstöðu prests-
ins hefm- hann gengið hart fram í
því öli þessi ár að fá að hafa hana
heima og fá borgað 100 þúsund krón-
ur fyrir það. Við höfum viljað hafa
aðstöðuna í safnaðarheimilinu til að
hann væri meðal fólksins en það
hefur hann ekki viljað.
Þá fer hann ekki með rétt mál varð-
andi störf byggingamefndar né að
við höfum keypt hús undir líkbílinn.
Hann veit nákvæmlega hvemig báð-
um þessum málum er háttað og talar
gegnbetrivitund." -JSS
Sr. Helga Soffia Konráösdóttir:
Hef kvartað wið
prófast og biskup
- undan framkomu sóknarprestsins
„Þaö getur verið að sr. Ólafur Odd-
ur sé vanur og hafi komist upp með
það lengi að sýna fólki ókurteisi og
óvirðingu með oröum sínum og
framkomu. Ég sætti mig hins vegar
ekki við slíka framkomu, allra síst
af starfsbróður mínum. Og þar sem
ekki hefur vottað fyrir afsökunar-
breiðni hef ég kvartaö undan fram-
komu hans við mig bæði viö prófast
Kjalamesprófastsdæmis og biskup
íslands," sagöi sr. Helga Soffia Kon-
ráðsdóttir við DV.
Helga Soffia hefur leyst sr. Ólaf
Odd Jónssson sóknarprest af und-
anfama mánuði. í greinargerð hans
koma fram ásakanir á hendur henni
um að ætla að sölsa undir sig emb-
ætti og nota starfsheiti á ólögmætan
hátt.
Helga Soffia hafði gengið á fund
Ólafs Odds, til að ræða starf aðstoð-
arprests sem fyrirhugað er að ráða
í, og hugmyndir sínar varöandi slíkt
starf. „Um margt vorum við sam-
mála en um önnur atriði algjörlega
á öndverðum meiði," sagði hún. „Til
dæmis vorum við ósammála um
skiptingu greiðslna fyrir fermingar-
störf, þar sem skoðun hans var sú
að aðstoðarpresturinn mætti vinna
50 prósent til móts við sóknarprest-
inn en þiggja fyrir það 30 prósent
laun. í miðju samtali okkar rauk
hann upp úr sæti sínu með svívirö-
ingum og skömmum og talaði niður
til mín eins og hann væri að tala við
rakka sem þyrfti að tukta til. Hann
bar brigður á heilindi mín gagnvart
sér meðan hann hefði verið í náms-
leyfi vegna þess að ég bað fyrrum
meðhjálpara aö lesa ritningarlestra
og tóna messusvör í kirkjunni á degi
aldraðra. Þennan umrædda full-
orðna mann bað ég fyrir þessi verk
tfl að fá hæfan mann í þau á þessum
degi en ekki tfl að ögra sr. Ólafi Oddi.
Afram hélt presturinn þindarlaust
og talaði óvirðulega um samstarfs-
fólk sitt í kirkjunni og um nágranna-
presta sína á Suðumesjum. Loks
lýsti hann því yfir að hann treysti
sér ekki tfl þess að eiga samstarf við
mig sem aðstoðarprest sinn í fram-
tíðinni.
Þetta var það sem gerðist á fundi
mínum með Ólafi Oddi Jónssyni.
Allt annað sem kemur þar að lútandi
í greinargerð hans eru meðvitaöar
eða ómeðvitaðar rangtúikanir og ó-
sannindi.
Hann reynir einnig að reka fleyg
tortryggni milii mín og nýráöins
prests Njarðvíkinga sem ég hef átt
ágætissamstarfvið." -JSS
Organisti Keflavíkurkirkju:
Hef aldrei rægt
sóknarprestinn
„Ég hef aldrei rægt sóknarprest-
inn. En þessi ummæli lýsa ef til vill
best þeim sem láta þau frá sér fara
því ekki hefur hann talað orð við
mig frá því að þetta byijaði. Síðustu
viðskipti okkar voru þau að hann
hreytti í mig svívirðingum á sóknar-
nefhdarfundi," sagði Einar Öm Ein-
arsson, organisti í Keflavíkurkirkju.
Séra Ólafur Oddur Jónsson, sókn-
arprestur í Keflavíkursókn, sagði
meðal annars í greinargerö sinni að
organistinn hefði borið út óhróður
um sig bæði við kórfólk og almenn-
ing. Einar Öm hafði sagt upp vegna
samstarfsörðugleika við prestinn.
Hann dró uppsögn sína til baka þegar
sóknamefndin gaf kost á sér til að
starfa áfram en hún hafði einnig sagt
upp.
„Sóknarpresturinn talar um að
honum beri afsökunarbeiðni," sagði
Einar Öm. „En ef hann á ekki aö
ganga undan með góðu fordæmi,
hver á þá að gera það? Ég ætla ekki
að fara í neitt orðaskak við hann eða
setja mig í dómarasæti. Ég vísa þess-
um ummælum hans alfarið á bug,
en tel þau ekki svaraverö aö öðra
leyti.“
Einar Öm sagði sér kunnugt um
að sóknamefndin hefði boðið presti
að færa tfl veggi og innrétta handa
honum fyrsta flokks skrifstofu í safn-
aðarheimflinu en hann hafi ekki vflj-
að þiggja þaö.
„Ég er búinn að búa í Keflavík í 2
ár og hef ekki nema allt gott um íbú-
ana að segja. Bæjarbragurinn er tfl
fyrirmyndar og söfiiuöurinn góður.
Ekki hefur borið skugga á samstarfiö
þar, nema þá viö einn mann sem er
sóknarpresturinn. “
-JSS
Sundlaugarnar eru elnkar vinsælar á sumrin. Þangað mæta ungir sem
aldnlr til að fá sér sundsprett og sleikja sólskinið. Ljósmyndari DV rakst á
þessa kátu sundlaugargesti á Seltjarnarnesi. DV-mynd JAK
Jöfhunartillögur Hagræöingarsjóðs:
Best hefði þetta
verið gert strax
- segirÞorstemnPálssonsjávarútvegsráðherTa
„Auðvitað hefði verið best ef
menn hefðu afgreitt þessa jöfnun
strax en því miður var ekki sam-
staða um það þegar aflaheimfldim-
ar vora ákveðnar en nú er sam-
komulag um aö jafna þetta út frá
sömu grundvallarhugmynd og þá
lá fyrir en það á hins vegar eftir
að finna fjármögnunarleiðina,"
sagði Þorsteinn Pálsson í gær eftir
ríkisstjómarfundinn þar sem tfl-
lögur Byggðastofnunar vom rædd-
ar.
Þorsteinn segist annars vera
nokkuð sáttur við tfllögumar. Að-
alatriöiö væri að fallist hefði verið
á að jafna þetta áfall vegna þorsks-
brestsins út frá sömu grundvallar-
hugmyndum og hann kynnti á sín-
um tíma. Það væri kjami málsins.
„Þessi jöfnun á aö fara fram með
alveg sama hætti og gert var ráð
fyrir að þessum 12 þúsund þorskí-
gildislestum Hagræðingarsjóðs
yrði dreift, aö jafnvirði þessara tólf
þúsimda verði úthlutað tfl þeirra
fyrirtækja sem oröið hafa fyrir
mestri skerðingu." -Ari
leggímálið
„Mönnuro þykir þetta sjálfsagt
óþægilegt innlegg í máliö á þessu
stigi en ég get ekki tjáö mig um
þessa greinargerð nú. Fyrst mun
ég ræða við biskup," sagði sr.
Bragi Friðriksson prófastur við
DV vegna greinargerðar sr. Ólafs
Odds Jónssonar, sóknarprests í
Keflavik, um samskipti hans viö
sóknamefnd, ýmsa starfsmenn
kirkjunnar, svo og söfnuöinn sem
frá var sagt í DV í gær.
Sr. Bragi sagði að síðastliðinn
fimmtudag hefðu haxm og biskup
boðað tfl fundar með sóknar-
nefndinni. Hefði biskup óskað eft-
ir því við hana að hún gerði tfl-
raun til þess að ná sáttum við
sóknarprestinn.
í fyrrakvöld kvaðst Bragi svo
hafa átt annan fund með nefnd-
inni. Þá hefði hún verið fús að
leita sátta en farið þess á leit við
biskup að hann setti starfsregiur
sem aðflar gætu unnið eftir. Hefði
veriö mjög jákvæður tónn 1 sókn-
arnefhdinni til sátta.
„Biskupinn stýrir þessu máli
og ég vil fá að vita viöbrögð hans
áður en ég tjái mig eitthvað um
það,“ sagði sr. Bragi. „Vonir okk-
ar um að hér raætti ráða bót á
vöknuöu við afstöðu sókamefiid-
arinnar en nú er ekki að vita
hvert framhaldið veröur.“
-JSS
Kvótabætumar:
Fjármögnun
eríóvissu
„Hugmyndir Byggðastofnunar
vora ræddar á fundinum og þær
fengu ágætan byr hjá ríkisstjóm-
inni. Við vonranst til aö klára
þetta mál á föstudaginn kemur.
Það var ekkert rætt um skiptingu
fjármögnunar og engin gögn um
það lögð fram á fundinum. Við
munum geyma okkur fjármögn-
unarhliðina fram á fóstudag,“
sagði Davið Oddsson eftir ríkis-
sfjórnarfund í gær.
Davíð sagði að í tillögum
Byggðastofnunar væru engar
fastmótaðar fjármögnunarleiðir,
þær væru aöeins óformlega reif-
aðar i tfllögunum. Bjármögnun-
arleiðir yrðu nú skoðaðar í „kerf-
inu“ næstu daga eins og hann
orðaði það.
„Þessar aðgerðir koma hvergi
nærri Hagræðingarsjóði, ein-
göngu er um að ræða að milda
þorskbrestinn og jafna hann út
milli einstakra skipa og i raun-
inni geta forráðamenn þessara
skipa sjálfir ákveöið með hvaöa
hætti þeir nýta þær bætur sem
þeir fá í þessu jöfnunarskyni“
Davíð sagði að erfitt væri að
tala um ákveðnar upphæðir í
þessu sambandi en rætt væri um
markaðsverö af 12 þúsund
þorskigildum, þ.e.a.s, kvóta Hag-
ræðingarsjóös. Oftast hefur veriö
gengið útfráþví að markaðsvirði
kvótans sé rúmar 500 milljónir.
Fjármögnunartillögur Byggða-
stofnunar felast i því að það eiga
aö koma um það bfl 150 mflljónir
frá Fiskveiðasjóði, 150 mifljónir
frá úr Atvinnutryggingasjóöi
Byggöastofiiunar og rikissjóöur á
sjálfur að leggja til 150 mflljónir
samkvæmt tillögunum. Þetta
þýðir aö um 450-500 milljónii-
verða til skiptanna.
I frétt í DV síðastliðinn laugar-
dag um tekjur lækna var Jónasi
Hallgrímssyni geflð starfsheitiö
„líkskurðarmeistari". Hið rétta
er að hann er prófessor í meina-
fræði við Háskóla íslands. DV
biöur Jónas veiviröingar á þess-
um mistökum.