Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1992, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1992, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1992. 9 kross hvaö varðar áróður tii að koma í veg fyrir útbreiðslu eyðni. Sagt er að hrœðsluáróður síðustu ára hafi ekki borið tilætlaðan ár- angur þvi eyöni haldi áfram að breiðast út. Hér eftir verði reynt að ná meö fræðslu til þeirra hópa sem eru i beinni hættu með að Fá sjúkdóm- inn. Ætlunin er að hætta að hræða venjulegt fóik með sögum af eyðnismiti því flestir eigi ekki á hættu að smitast og hafi aldrei átt. Sáttasemjarinn skorinnáháls meðöHlösku Látlu munaöi aö Dani á fimm- tugsaldri léti lífið þegar hann reyndi að koma á sáttum í stormasamri sambúð ungs kær- ustupars nú um helgina. Pólkið var í afmælisveislu á Amager þegar elskendurnir urðu ósáttir og pilturinn dró vinkonu sína á hárinu út á bílastæði þar sem gera átti út um málin. Maöurinn reyndi að taia um fyrir piltinum en hann brást hinn versti við, braut ölflösku og skar sáttasemjarann á háls. Læknum tókst að bjarga lífi mannsins á siðustu stundu. Dennidæma- lausi kominn í lAÍtimar IVttB IICH Kvikmyndafyrirtækið Wamer hefur ráöiö sex ára gamlan strák að nafni Mason Gamble til að leika Derrna dæmalausa í kvik- mynd sem væntanlega verður frumsýnd næsta sumar. Auglýst var eftir leikurum í hlutverkið og gáfu 20 þúsund strákar sig fram. Væntanlegur Denni hefúr leikið í tveimur aug- lýsingmn en er þess utan óreynd- ur leikari. Frægir leikarar fara með hlutverk fullorðna fólksins í myndinnf Þar á meðal er búiö að ráða stórleikarann Walter Matthau til að leika Wilson, ná- granna og fjandvin Denna. Hrapaði 600 mefraíöípunum Rúmlega tyitugur Breti hrapaði fil bana í Ölpunum um síðustu helgi. Fallið var um 600 metrar og lét fiallgöngumaöurinn þegar lífið. Þetta er fimmtándi maöurinn sem ferst við klifur í Ölpunum í sumar. Flestir hafa farist við til- raunir til að koraast á tind Mont Blanc. í flestum tilvikum hefur mátt kenna slæmu veðrí um slys- in en illviðri hafa verið tið á þess- um slóðum í sumar. I Rússarnír koiiiii dollurum Lögreglan í Rönne á Borgund- arhólmi handtók 21 rússneskan sjómann á diskóteki þar í bænum um helgina vegna grunsamlegrar meðferðar þeirra á eriendum gjaldeyri. Rússarnir stráðu um sig doUurunum en þeir höfflu skömmu áöur tekið land á eyj- unni. Grunur lék á aö peningamir væru falsaðir en við rannsókn kom í Uós að Sámur frændi hafði sjáifur látið prenta þá. Mönrnrn- um var jþví sleppt og gátu þeir haldið skemmtun sinni áfram og farið fijálslega með fé sitt. Rúss- amir tógðust fá laun sín greidd í doUurum. ____________________________________________________________Útlönd George Bush ratar óvænt í vandræði vegna upplýsinga um framhjáhald: Lét undirmenn sína undirbúa ástarf undi - viðhaldið, Jennifer Fitzgerald, er nú siðameistari 1 utanríkisráðuneytinu „Það duldist engmn að varaforsetinn átti í ástarsambandi við aðstoðar- konu sína og lét mig sjá til þess að innangengt væri miUi herbergja þeirra á hótelinu," er haft eftir Louis Fields, fyrrum sendiherra Banda- ríkjanna í Genf, í nýútkominni bók. Þama er verið að vísa til atviks sem varð í ferð Georges Bush á ráðstefnu í Genf í Sviss árið 1984. Bush var þá varaforseti Bandaríkjanna og með í fóruneyti hans var Jennifer Fitzger- ald, nánasti ráðgjafi hans. Þau höfðu þá þekkst um árabil eða aUt frá því Bush var sendiherra í Kína. Síðar höfðu þau unnið saman þegar Bush var forstjóri leyniþjónustunnar CIA. Sendiherrann, sem borinn er fyrir sögunni, er nú látinn. Susan Tren- ton, höfundur bókarinnar The Power House, ræddi viö hann fyrir andlátiö og fékk staðfest að Bush hefði faliö honum sem undirmanni sínum aö sjá tU þess að varaforsetinn og Jenni- fer gætu átt ástarfundi sína í friöi. Engin leið er nú að fá þessa sögu staðfesta. Hún hefur samt verið á kreiki um tímá en það var fyrst í gær að Bush var spurður beint um sann- leiksgildi hennar á blaðamannafundi Jennifer Fitzgerald er nú siðameistari utanríkisráðu- neytisins. Hún hefur ekkert iátið hafa eftir sér um vin- skap sinn við Bush. Sagan segir að þau hafi sofið sam- an i Genf árið 1984. Simamynd Reuter Barbara Bush lét sér fátt um finnast þegar fréttamenn gengu i skrokk á manni hennar vegna sögusagna um framhjáhald hans. „Sem betur fer hef ég ekki séð þessi skrif,“ sagði Barbara. Simamynd Reuter BiU Clinton, forsetaefni demókrata og andstæðingur Bush í kosninga- baráttimni, lýsti aðspurður fyrirlitn- ingu sinni á sögugurði af þessu tagi og sagði að hann þjónaöi ekki mál- stað demókrata. „Eg met Bush mik- Us sem mann. Ég kann vel við Bar- böru, konu hans,“ sagði Clinton. Clinton hefur átti í verulegum vandræðum sjálfur vegna sögusagna um framhjáhald auk annars áburðar um persónulega veikleUca. Clinton á að hafa haldið við Jennifer Flowers sem um árabU var í þjónustu hans. Clinton hefur því augljóslega ekkert gagn af því að ráðast á Bush vegna framhjáhalds. Jemíifer Fitzgerald hefur ekkert látið hafa eftir sér um málið. Hún er nú siðameistari utanríkisráðuneytis- ins í Washington en er að sögn á ferðalagi í útlöndum. Hún er ensk að uppruna, 59 ára gömul. Nýjustu skoðanakannanir sýna að CUnton er mun vinsælh en Bush og ætti að sigra auðveldlega í komandi kosningum. Margt getur þó breyst áður en kosið verður. Reuter George Bush brást reiöur við þegar hann var spurður um framhjáhaldið. „Þetta er óhróður," sagði forsetinn. Simamynd Reuter þar sem forsetinn greindi frá viðræð- um sínum við Yitzhak Rabin, forsæt- isráðherra ísraels. Bush brást reiður við og lýsti þess- um söguburði sem ómerkilegum og neitaði að svara spumingum um hvort hann hefði átt vingott við Jennifer. Hann sagði að með þessum sögum væri verið að draga kosninga- baráttuna niður í svaðið. Barbara Bush tók létt á spuming- um um hvað henni fyndist um meint framhjáhald eiginmanns síns. Hún sagðist vera svo heppin að hafa ekki séö þessi skrif. Sonurinn lék sérívikuhjá líki móður sinnar „Þetta er hroðaleg saga og öll hin undarlegasta," sagði breski réttar- læknirinn John Burton þegar hann úrskurðaði að kona nokkur í Lund- únum hefði látist af eðlilegum orsök- um og hefði látist hvort sem hún hefði komist undir læknishendur eða ekki. Konan bjó ein með tólf ára syni sínum. Hann sagði engum frá hvem- ig komið var fyrir móður sinni og lék sér í viku í íbúð þeirra þar sem hún lá látin á gólfinu. Vinur hans kom í heimsókn en drengurinn sagði honum að hrúgan á gólfinu væri uppblásin dúkka sem faðir hans hefði komið með frá Bandaríkjunum. Móðir hans væri hins vegar á ferðalagi. Nágrönnunum þótti undarlegt að frétta ekkert af konunni og bratust á endanum inn í íbúðina. Banamein hennar reyndist vera heilablóðfall. Reuter SKÓMARKAÐUR Opnum eftir sumarleyfi með stórsprengidögum. Frábært verð frá kr. 150,- Opið mánud. - föstud. 12-18. Skómarkaður, II SUemmuvegi 32 L, Kópavogi - sími 75777 EURO SKO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.