Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1992, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1992, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 12. AGUST 1992. 39 keppni. Á meðal eriendu keppendanna er lum á myndinni eru félagar hans í bresku íslendingarnir munu heyja harða keppni Keppnin mlÚi íslendinganna gæti orðið nyög jöfn. Jóhann Ingibergsson, Már Her- mannsson, Jón Stefánsson og Sveinn Emstson hafa aliir bætt sig í löngu vega- lengdunum undanfarið. Martha stefnir á nýtt brautarmet Martha Ernstdóttir stefnir að því að bæta brautarmetið í háifmaraþoni, en það er 1:17,43 klst. Að þessu sinni mun hún fá harða keppni frá Sue Dilnot frá Englandi. „Ætla að hlaupa ef ég fæ leyf i“ - segir Knútur Óskarsson, form. Reykjavíkurmaraþons „Þaö var lögð mikil áhersla á það strax í upphafi að sem flestir gætu verið með og svo er enn. Þá varð þetta orð, „skemmtiskokk", til en það er þýðing úr ensku á „fun run.“ Það var lítill áhugi fyrir lengri vegalengdum og því reynd- um við að höfða til fleiri með því að bjóða upp á 7 km skemmtis- kokk. Fyrsta árið tóku 250 manns, þar af 50 konur, þátt í Reykjavík- urmaraþoni. i fyrra, átta árum seinna, var fjöldinn kominn í 2.200 og þar af vom 40% konur. Það er því ljóst að þátttaka kvenna hefur aukist mjög,“ sagði Knútur Óskars- son, formaður Reykjavíkurmara- þons, í samtali við DV en 9. Reykja- víkurmaraþonhlaupið verður þreytt sunnudaginn 23. ágúst nk. Kjöriö fyrir alla fjölskylduna „Reykjavíkurmaraþon hefur skap- aö sér fastan sess í borgarlífinu, fólk, sem einu sinni tekur þátt, kemur aftur og nýir þátttakendur bætast við. Við leggjum mikla áherslu á góða skipulagningu á framkvæmd hlaupsins, svo sem með góðri sjúkragæslu, mörgum drykkjarstöðvum og margir fá sinn fyrsta verðlaunapening í Reykja- víkurmaraþoni. Það þekktist ekki að alfir þátttakendur fengju verð- launapening þegar við fórum af stað með hlaupiö. Það er kjörið fyr- ir alla fjölskylduna að eyða sunnu- deginum saman og njóta útiveru og hollrar hreyfingar. Von á um hátt í 200 erlendum keppendum „Undirbúningur hlaupsins gengur mjög vel, hingað koma á annað hundrað útlendingar til keppni og með þeim koma vafalaust aðstand- endur þannig að alls koma hingað um 300 erlendir gestir í tengslum við hlaupið. Þetta er góð viðbót við ferðamannastrauminn og góð land- kynning. Það er mikil vinna að skipulegga hlaup sem þetta. Við erum með framkvæmdastjóra á launum í 6 mánuði á ári og þetta er dýrt fyrirtæki. En góðir og trygg- ir samstarfsaðilar gera þetta kleift, þeir leggja til peninga og annan stuðning. Sumir þessir aðilar hafa verið með frá upphafi en þeim hefur fjölgað síðustu ár og nú er svo kom- ið að eftirsótt er að vera styrktaraö- ili hlaupsins," segir Knútur. Afmælishlaup á næsta ári með breyttu sniöi 22. ágúst á næsta ári verður 10 ára afmælishlaup Reykjavíkurmara- þons og þá munu verða gerðar ákveðnar breytingar á hlaupinu. í stað 7 km skemmtiskokks verður 4-5 km skemmtiskokk án tímatöku og jafnframt 10 km hlaup með tíma- töku. Hlaupavegalengdirnar verða því fjórar í stað þriggja nú. Það er því ljóst að þátttaka í hlaupinu mun aukast mikið með þessari breyt- ingu. Einnig er stefnt að því að Reykjavíkurmaraþon mun í sam- vinnu við Reykjavíkurborg efna til miðnæturhlaups á Jónsmessunni fyrir almenning, það verður vænt- anlega boðið upp á 3-5 km skemm- tiskokk og einnig 10 km hlaup,“ sagði Knútur Óskarsson. En ætlar formaður hlaupsins að hlaupa sjálfur? „Ég ætla að hlaupa hálft maraþon, fái ég til þess leyfi frá framkvæmdastjóra hlaupsins," sagði Knútur. Framkvæmdastjór- inn er enginn annar en Sigurður P. Sigmundsson, hlauparinn góðk- unni, en hann var einmitt sigur- vegari í fyrsta Reykjavíkurmara- þoninu árið 1984. Hann er eini ís- lendingurinn sem sigrað hefur í hlaupinu en hann sigraði einnig í hálfu maraþoni árið 1990. -BL Þessir þekktu skokkarar verða væntanlega á meðal þátttakenda í Reykjavíkurmaraþoninu. Frá vinstri: Ingólf- ur Gissurarson, Kári Kaaber og Hannes Jóhannesson. þorstanum á 5 km fresti. Svo illa vill til að sama dag og Reykjavíkurmaraþonið fer fram, verður einnig leikinn úrslitaleik- urinn í tnjólkurbikarkeppni KSÍ raifii Vals og KA. En hvemig stendur á því að þessir viðburðir eru hafðir sama daginn? „Þetta gerðist einnig fyrsta árið sem maraþonið var háð. Upp úr þvi var gert samkomulag við stjórn KSI þess efnis að við flutt- um raaraþonið á næstsíðasta sunnudaginn í ágúst og knatt- spyman hafði áfram síðasta sunnudaginn í ágúst fyrir bikar- úrslitaleiMnn. Viö höfum rætt þetta við KSÍ og þeir hafa gefiö þær skýringar að leikurinn þurfi að fara fram þennan dag vegna landsleiks við Júgóslavíu 2. sept- ember. Nú er ljóst að ekki verður af þeim leik og því eru ef til vifi aðrar ástæður að baki. Til dæmis að þeir gætu verið hræddir við að leika þurfi aukaúrslitaleik eins og í fyrra og árið þar áður. Ef svo er þá eigum viö mjög erf- itt með að sætta okkur við það. Þetta skapar vissa erfiðleika, til dæmis má geta þess að önnur akrein Sundlaugarvegar verður lokuð og þar munu hlauparar verða á ferð á sama tíma og fólk er aö mæta á vöfiinn,“ sagði Knútur Óskarsson, formaður Reykjavikurmaraþons, í samtali viðDV. c Maraþonbolir til sölu Sérstakir maraþonbolir verða til sölu á ferðaskrifstofunni ÚRVAL/ÚTSÝN í Póst- hússtræti 13 og Álfabakka 16, á skrifstofu FRÍ í íþróttamistöðinni í Laugardal og hjá Sævari Karli í Kringlunni og Banka- stræti. Bolimir kosta 800 kr. rinsantleg- varlega i tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu s verður á þeim götumhöfuðborgarinn- eim tilmælum til ökumanna, sem leið ftir, að þeir aki varlega sem aldrei fyrr sins í fatnaði frá Max sins er gífurlega umfangsmikil og mik- ri vel fram. Afiir starfsmenn hlaupsins l af mörgum styrktaraðilum hlaupsins. SKRÁNINGAREYÐUBLAÐ NAFN (name) (Sex M/F) KENNITALA (date of birth) SiMI ÞJÓÐERNI (Nationality) Ég undirritaður/undirrituð leysi hér með framkvæmdaraðila Reykjavíkurmaraþons undan allri ábyrgð á tjóni, meiöslum eða veikindum sem ég gæti orðið fyrir I viökomandi hlaupi. Ég stað- festi það einnig að ég er baeði líkamlega og andlega fær um að Ijúka viðkomandi vegalengd. Undirskrift (signature) Dagsetning (date) Reykjavíkurmaraþon - landsbyggðarfólk Landsbyggðarfólk getur fyllt út ofangreint skráningarblað og sent þaö ásamt greiðslu til: Reykjavíkurmaraþon, c/o Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Böm, 12 ára og yngri, greiöa 600 krónur, þátttökugjaldið er 1200 krónur fyrir heilt maraþon, 800 krónur fyrir hálft maraþon og keppendur greiða sömu upphæð. HEIMILI PÓSTNÚMER Ég skrál mlg «1 þátttttku f: □ MARAÞONHLAUPI □ HÁLFMARAÞONHLAUPI □ SKEMMTISKOKKI □ SVEITAKEPPNI i SKEMMTISKOKKI (3 I SVEIT) □ SVEITAKEPPNI i HÁLFMARAÞ0NI (3 I SVEIT) NAFN SVEITAR:_____________________

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.