Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1992, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1992.
3
Fréttir
Unglingar 1 ham á Eskifirði aðfaranótt sunnudagsins:
Gengu berserksgang
- brutu rúður og útiljós og þökulögðu bíl
Unglingar á Eskifirði gengu ber-
serksgang um síðustu helgi, brutu
11 rúður, þijú útiljós, sturtuðu úr
blómapottum og þökulögðu bíl, svo
dæmi séu tekin. Þrír unglingar frá
Eskifirði á aldrinum 14 og 15 ára
hafa viðurkennt hluta af skemmdar-
verkunum. Lögreglan á Eskifirði
rannsakar málið og reiknar með að
fleiri verði teknir.
Skemmdarverkin áttu sér stað að-
faranótt sunnudagsins. Alls voru 11
rúður brotnar í Grunnskólanum, úti-
búi Bifreiðaskoðunar íslands og
þurrkhúsi Hraðfrystihúss Eskifjarð-
ar. Þá voru þrjú útiljós brotin við
verkstæði frystihússins. Blómapott-
um víðs vegar um bæinn var snúið
á hvolf og moldinni sturtað niður.
Því næst lá leið skemmdarvarganna
á tjaldstæði bæjarins þar sem einn
bíll í eigu ferðafólks var þakinn með
túnþökum.
Nokkuð mikið tjón hlaust af þess-
um skemmdarverkum. Bíll í eigu
Akureyri:
ÚAáum
2000tonn
óveidd
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii;
Togarar Útgerðarfélags Akur-
eyringa hafa aflað misvel að undan-
fómu, sum skipin hafa komið með
ágætan afla aö landi en önnur minna
og er óhætt að segja að á ýmsu hafi
gengið.
Útgerðarfélagið hafði til ráðstöfun-
ar 22.800 tonn og eru þá meðtalin
kaup á kvóta til viðbótar við eigin
kvóta. Einar Óskarsson hjá ÚA segir
að um 2.000 tonn af þessu magni séu
óveidd, en kvótaárinu lýkur sem
kunnugt er um næstu mánaðamót.
Hins vegar er heimilt að flytja um
20% yfir á næsta kvótaár þannig að
þótt ekki takist að veiða þessi 2.000
tonn kemur það ekki að sök.
Síðustu landanir hjá ÚA em þær
að Kaldbakur kom í byijun vikunnar
með nær fullfermi eða 255 tonn af
þorski og karfa, Sléttbakur með 126
tonn af frosnum fiski og Hrímbakur
með 113 tonn.
Ólafsfjörður:
Laxinn streymir
í gildrurnar
Helgi Jónsson, DV, Ólafefirði:
Nú eru komnir á sjöunda þúsund
laxar í gildrumar hjá Laxósi hér í
Ólafsfirði og era það miklu betri
heimtur en á sama tíma í fyrra -
aukning upp á 150%. Fyrstu laxamir
komu í gildrumar í ósnum 20. júní sl.
Njarðvík:
Verðlaunamyndir
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
í verslunum í Njarðvík má nú sjá
ýmsa skemmtilega hluti merkta 50
ára afmæh bæjarins. Þar má nefna
derhúfur, svifdiska, boli og umhverf-
isvæna innkaupapoka. Afmælisvik-
an hefst 15. ágúst með margvíslegum
uppákomum.
Nemendur í grunnskóla Njarðvík-
ur teiknuðu myndir sem prýða þessa
hluti og voru þær valdar út eftir
verðlaunasamkeppni skólans.
starfsmanns Bifreiðaskoðunar var
inni í útibúi fyrirtækisins þegar rúð-
ur vom brotnar þar og skemmdist
lakkið öðrum megin á bílnum.
Ekki er talið að unglingamir hafi
verið ölvaðir. Lögreglumaður á Eski-
firði sagði í samtali við DV að
skemmdarverk af þessu tagi hefðu
ekki þekkst á staðnum í mörg ár.
Lögreglan á staðnum var aðeins á
bakvakt um síðustu helgi. „Núna eru
imglingamir farnir að ganga á lagið
því lögreglumaður er ekki á helgar-
vakt héma nema aðra hveija helgi.
Það fékkst ekki fjárveiting fyrir
afleysingamanni hingað. Þetta er
ófremdarástand og leiðinlegt að
unglingamir hagi sér svona. Héma
hefur félagsstarf meðal þeirra verið
gott. Það vantar samt eitthvað," sagði
lögreglumaðurinn á Eskifirði.
Eins og áður sagði hafa þrír ungl-
ingar viðurkennt að vera valdir að
hluta skemmdarverkanna en neita
algjörri aðild. Lögreglan á von á að
fleiri unglingar verði teknir vegna
þessa máls.
-þjb
(H)
Metabo^V
OTDITFffM Á CIIMADHFRAfir
HANDVERKFÆRIA SUMARHIBODl
BORVÉL
650W tveggja hraóa, stiglaus
og med höggi og öryggiskúplingu
BORVEL
550W stiglaus hradastilling
<&íÍfí*!.
ígSfl&f
HJÓLSÖG
800W vinnuhestur.
Geysilega öflug vél.
SLIPI
ROKKUR
115mm, 650W med
öryggiskúplingu
V
HITABLASARI
2000W öflugur hitablásari
SLIPI
ROKKUR
180mm, 2000W med
öryggiskúplingu
HoJcllV
IÐNAÐARMENN VITA AÐ GÆÐIN SKIPTA MALI
ENDING - KRAFTUR - ORYGGI
Útsölustadir:
ívetusiu• btseemuitg veáLiu
Reykjavík: B.B. byggingavörur, Metró,
O. Eltingsen.
Akranes: Málnlngarþjónustan
Borgarnes: Kaupf. Borgflrðlnga
Grundarfjörður: Versl. Hamrar
ísafjöröur: Áral hf.
Bolungarvik: Vélsmlðja Bolungarvfkur
Hvammstangi: Kaupf. V-Húnvetnlnga
Blönduós: Kaupf. Húnvetnlnga
Sauðárkrókur: Kaupf. Skagflrðlnga
Akureyrl: KEA, bygglngavörudelld
Piglufjörður: Versl. Torgið
Húsavik: Kaupf. Þlngeyinga
Seyðisfjörður: Stálbúðin
Egilsstaðir: Kaupf. Hóraðsbúa
Reyðarfjöröur: Kaupf. Héraðsbúa
EskHjörður: Versl. Nýjung
Neskaupstaður: Kaupf. Fram
Höfn: Kaupf. A-Skattfelllnga
Vestmannaeyjar: Húsey
Selfoss: S.G.-búðln
Keftavik: Kaupf. Suðurnesja