Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1992, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1992.
13
Sviðsljós
Ljósmyndari DV var staddur á Suðureyri við Súgandafjörð á dögunum og rakst þá á þennan unga dreng sem var
að fiska niðri við höfnina. Það beit á hjá unga veiðimanninum og hann var að vonum ánægður enda um ágætis
feng að ræða. DV-mynd Brynjar Gauti
Flugmódeláhugamenn á Akureyri
Flugmódeláhugamenn á Akureyri
komu saman á Melgerðismelum sl.
laugardag. Þar var tekin í gagnið ný
100 m löng flugbraut sem eflaust á
eftir nýtast vel þeim flugmódelmönn-
um í framtíöinni. Akureyrarbær
hafði veg og vanda af gerð brautar-
innar.
Fjöldi manna var viöstaddur vígslu
brautarinnar og um 40 flugvélar
voru á staðnum. Nokkrir félagar úr
Flugmódelfélaginu Þyt í Reykjavík
sáu ástæðu til að bregða sér til Ákur-
eyrar af þessu tilefni og samfagna
með norðanmönnum. Og-vitaskuld
flugu menn vélum sínum um viðan
völl eins og vera ber.
Fairchitd PT-19, kennsluvél úr seinni heimsstyrjöldinni, á lágflugi.
Skjöldur Sigurðsson dælir hér bensini á vél sína. Hún
er af gerðinni North American Harvard AT-6.
DV-myndir Ingólfur Jónsson
Hér er mótorinn keyrður upp á Robin R 2000 sem
skömmu síðar flaug um loftin blá.
Svíar
fjöl-
mennaí
hesta-
ferðir
Sigrún Lovisa, DV, Hveragerði:
Hér í Hveragerði hefúr verið starf-
rækt í nokkur ár hestaleiga, Eldhest-
ar, og eru eigendur Bjami Sigurðs-
son og synir hans tveir með höfuð-
stöðvar í félagsheimilinu Bergþóru.
í byijun, 1987, voru famar stuttar
ferðir í 1-3 daga en nú em famar
mim lengri ferðir. Sú lengsta 8 dagar
í Amarfell. Eldhestar em með 100
hesta staðsetta í Hveragerði og 60
hesta á Húsatóftum og Vík í Mýrdal.
Ferðir Eldhesta em vinsælar hjá
erlendum ferðamönnmn sem flestir
em sænskir eða um 80% en Þjóðverj-
ar em famir að koma í vaxandi mæh.
Fimmtán Svíar ásamt fararstjórum að leggja i ferð til Arnarfells og síðan
er riðið af stað. DV-myndir Sigrún Lovísa
LJUFFENGIR KINVERSKIR RETTIR
15% KYNNINGARAFSLÁTTUR
TILBOÐSRÉTTIR FRÁ 11-1 0G 5-7 KÍNAHÖIIIN
Sigtúni 3
sími 629060
Opið virka daga kl. 11-22
Opið um helgar kl. 11-23.30
(ATH. heimsendingarþjónusta.)
Tilboðsdagar
í Parísarbúðinni
12., 13., 14. og 15. ágúst nk.
30-50% afsláttur.
Sértilboð á hverjum degi.
Parísarbúðin
Austurstræti 8, simi 14266
^ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN
^ FYRÍR LANDSBYGGÐINA:
ð 993272
í
GRÆNI
Síl
™ SIMINN ^
-talandi dæmi um þjónustu!
Verkamanna-
félagið Hlíf
Orlofshús til sölu
Orlofshús Verkamannafélagsins Hlífar
er til sölu.
Nýbúið er að stækka húsið og endurnýja og
er það sem nýtt. Aðildarfélög innan Alþýðu-
sambands íslands hafa forkaupsrétt á húsinu
næstu 30 daga frá birtingu þessarar auglýsing-
ar. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrif-
stofu Hlífar, Reykjavíkurvegi 64, símar 50987
og 50944.
Stjórn Hlífar
Aukablað
Tómstundir
og útivist
Miðvikudaginn 19. ágúst nk. mun
aukablað um tómstundir og útivist
fylgja DV.
í þessu blaði verður m.a. flallað um skotveiði-
ferð á Qrænlandi, gúmbátaferð niður Mvitá,
atferlisfræðingur hunda og katta tekinn tali, sigi-
ingar á skútum, kænum, seglbátum o.s.frv.
Allt um marajxjn: upplýsingatöflur, viðtöl við
keppendur, kortaf Reykjavíkurmaraþoninu o. fl.
Einnig verður flallað um linuskauta, mataræði,
veiði í ám og vötnum, hestamennsku,
svifdrekaflug, flugmódel o.fl. o.fl.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa
i þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband við
Jensínu Bóðvarsdóttur, auglýsingadeild DV, hið
fýrsta i síma 63 27 22.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er fímmtudagurinn 13. ágúst.
ATH.i Bréfasími okkar er 63 27 27.
Auglýsingar - Þverholti 11 - Reykjavík