Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1992, Qupperneq 30
50
mÍðVIKUDÁGUR!12. ÁGÚST 1992.
Afmæli
Þorsteinn Gylfason
Þorsteinn Gylfason, heimspekipró-
fessor viö HI, Mímisvegi 2, Reykja-
vík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Þorsteinn fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR1961, lauk BA Hon-
ours-prófi í heimspeki við Harvard
University 1965, stundaöi nám í
heimspeki við Háskólann í
Miinchen 1967 og framhaldsnám og
rannsóknir í heimspeki viö Magda-
len College í Oxford 1965-71.
Þorsteinn var stundakennari viö
MH1968-69, við MA vorið 1976 og
viö MR frá 1977. Hann hefur kennt
heimspeki við HÍ frá 1971, var skip-
aður lektor 1973, dósent 1983 og er
prófessor við HÍ frá 1989. Þá er hann
ritstjóri Lærdómsrita Bókmennta-
félagsinsfrál970.
Þorsteinn var formaður tónleika-
nefndar HÍ1974-76, gjaldkeri og síð-
ar meðstjómandi 1 stjóm PEN á ís-
landi frá 1975, ritari Skipulags-
nefndar HÍ1979-81, ritari í stjóm
islensku óperunnar frá 1980 og for-
stöðumaður Heimspekistofnunar
HÍ1982-91.
Meðal ritverka Þorsteins era: Til-
raun um manninn, 1970; Þrætubók-
arkom, 1981 (ásamt Peter Geach);
Valdsorðaskak, 1981; Rauður fyrir-
lestur, 1981; Orðasmíð, 1991, auk
fjölda ritgerða í innlend og erlend
blöð og tímarit. Birst hafa eftir hann
]jóð og ljóðaþýðingar í blöðum og
tímaritum. Þá hefur hann þýtt End-
urtekninguna, eftir Sören Kierke-
gárd, 1966; Frelsið, eftir John Stuart
Mill, 1970 (ásamt Jóni Hnefli Aðal-
steinssyni); Síðustu daga Sókrates-
ar, eftir Platón, 1973 (ásamt Sigurði
Nordal), og Hugleiðingar um frum-
speki, eftir René Descartes, 1974.
Þorsteinn ritstýrði tímaritinu
Jörð I og II ásamt Sverri Hólmars-
syni, 1963, hefur ritstýrt Leikskrá
íslensku óperunnar frá 1982 og
tímaritinu íslensk heimspeki frá
1982,-
Þorsteinn er félagi í Phi Beta
Kappa frá 1965, var styrkþegi
Styrktarsjóðs Hannesar Ámasonar
1967 og hlaut viðurkenningu Rithöf-
undasjóðs ísiands fyrir ritstörf 1991.
Fjölskylda
Bræöur Þorsteins: Vilmundur
Gylfason, f. 7.8.1948, d. 19.6.1983,
alþingismaður, og Þorvaldur Gylfa-
son, f. 18.7.1951, prófessor við HI.
Foreldrar Þorsteins em Gylfi Þ.
Gíslason, f. 7.2.1917, fyrrv. prófessor
og ráðherra, og kona hans, Guðrún
Vilmundardóttir, f. 7.12.1918, hús-
móðirogstúdent.
Ætt
Meðai foðursystkina Þorsteins var
Vilhjálmur útvarpsstjóri, faðir Þórs
hæstaréttardómara og Auöar Eirar
prests. Gylfi er sonur Þorsteins,
skálds og ritstjóra í Reykjavík, bróð-
ur Bjöms kaupmanns, föður Gunn-
laugs Scheving listmálara. Þor-
steinn var sonur Gísla, skipstjóra á
Stærra-Árskógi, Jónassonar. Móðir
Þorsteins ritstjóra var Ingunn, syst-
ir Hólmfríðar, langömmu Ingimars
Ingimarssonar fréttamanns. Ingunn
var dóttir Stefáns, umboðsmanns á
Snartarstöðum, Jónssonar, bróður
Rannveigar, langömmu Jónasar frá
Hriflu og Kristjáns, afa Kristjáns
Karlssonar, skálds og bókmennta-
fræðings.
Móðir Gylfa var Þómnn Pálsdótt-
ir, trésmiðs í Reykjavík, Halldórs-
sonar og Ingibjargar Þorvaldsdótt-
ur, b. í Framnesi, Jónssonar. Móðir
Þorvalds í Framnesi var Rannveig,
systir Kristínar, langömmu Elínar,
móður Þorvalds Skúlasonar hst-
málara. Hálfsystur Rannveigar
voru Þuríður, langamma Vigdísar
forseta, Sigríður, langamma Önnu,
móður Matthíasar Johannessen rit-
stjóra, og Guðrún, langamma Þor-
steins Ö. Stephensen leikara og
móðir Sigríðar, ömmu Helga Hálf-
danarsonar rithöfundar og
langömmu Hannesar Péturssonar
skálds. Hálfbróðir Rannveigar var
Ólafur, prestur í Viðvík, langafi Þor-
valds í Árnarbæli, föður Ásdísar
Kvaran lögfræöings. Rannveig var
dóttir Þorvalds, prófasts og skálds í
Holti, Böðvarssonar.
Guðrún, móðir Þorsteins, er systir
Þórhalls prófessors og Ólafar, móð-
ur Ólafs framkvæmdastjóra og
Kristínar fréttamanns Þorsteins-
bama. Guðrún er dóttir Vilmundar
landlæknis Jónssonar, b. á Fornu-
stekkum, Sigurðssonar.
Móðir Guðrúnar var Kristín
læknir, systir Ástu, móður Ólafs
Ólafssonar landlæknis, og systir
Guðrúnar, móður Ólafs Björnsson-
ar, fyrrv. prófessors. Bróðir Kristín-
ar var PáU, faðir Ólafar myndhöggv-
ara. Kristín var dóttir Ólafs, próf-
asts í Hjarðarholti, bróður LUju,
ömmu Karls Kvaran listmálara. Ól-
afur var sonur Ólafs, kaupmanns í
Hafnarfirði, Jónssonar, og Mettu
Kristínar, systur Maríu, langömmu
Guðrúnar Agnarsdóttur, Ástríðar
Thorarensen og Péturs Ormslev.
Metta var dóttir Ólafs, hreppstjóra
í Hafnarfirði, Þorvaldssonar. Móðir
Kristínar var Ingibjörg Pálsdóttir
Mathiesen, prests í Arnarbæli,
Jónssonar, prests í Amarbæli, bróð-
ur Rannveigar, langömmu Guð-
mundar í Steinnesi, langafa Auðar
Hauksdóttur framhaidsskólakenn-
ara. Jón var sonur Matthiasar, stúd-
ents á Eyri, Þórðarsonar, stúdents
í Vigur og ættföður Vigurættarinn-
ar, Olafssonar, lögsagnara á Eyri,
ættföður Eyrarættarinnar, Jóns-
sonar og langafa Jóns forseta. Móðir
Páls var Ingibjörg, systir Margrétar,
langömmu Margrétar, móður Ólafs
Thors forsætisráðherra en bróðir
IngibjcU-gar var Grímur, langafi Ás-
geirs Ásgeirssonar forseta.
Þorsteinn er staddur á Húsavík á
afmælisdaginn. Honum til heiðurs
verður hóf í Norræna húsinu föstu-
daginn 14.8. nk. sem hefst kl. 20.30.
Allir vinir hans eru velkomnir.
Steindór Steindórsson
Steindór Jónas Steindórsson, fyrrv.
skólameistari Menntaskólans á Ak-
ureyri, Hafnarstræti 94, Akureyri,
erníræðurídag.
Starfsferill
Steindór er fæddur á Möðruvöll-
um í Hörgárdal og ólst upp á Hlöð-
um. Hann lauk gagnfræðaprófi á
Akureyri 1922, stúdentsprófi frá MR
1925 og stundaði nám í náttúrufræð-
um við Kaupmannahafnarháskóla
1925-30. Steindór lauk prófi í for-
spjallsvís. 1927 og fyrri hluta magist-
ersprófs 1930. Hann var við fram-
haldsnám og vísindastörf viö grasa-
safnið í Ósló 1950-51 og dvaldi um
þriggja mánaða skeið í Bandaríkj-
unum 1956 í boði Bandaríkjastjóm-
ar.
Steindór var stundakennari við
Gagnfræðaskóla Akureyrar
1930-36, kennari í Menntaskólanum
á Akureyri 1930-66 og skólameistari
á sama stað 1966-72. Hann ferðaðist
um landið til gróðurrannsókna flest
sumur 1930-76.
Steindór gegndi fjölmörgum trún-
aðarstörfum. Hann var m.a. form.
Ræktunarfél. Norðurlands, Nor-
ræna félagsins á Akureyri, Alþýðu-
flokksfélags Akureyrar og sat í mið-
stjórn sama flokks. Steindór var
héraðssáttasemjari á Norðurlandi,
varaþingmaður Alþýðuflokksins og
sat á einu sumarþingi fyrir ísfirð-
inga. Hann er heiðursfélagi í Félagi
ísl. náttúrufræðinga, Hins ísl. nátt-
úrufræðifélags, Norræna félagsins,
Alþýðuflokksins og heiðursdoktor
við verkfræði- og raunvísindadeild
HÍ. Steindór hefur skrifað ótal
greinar í blöð og tímarit, þýtt og
skrifað bækur og var ritstjóri tíma-
ritsins Heima er best í áratugi.
Fjölskylda
Steindór kvæntist 14.7.1934 Krist-
björgu Dúadóttur, f. 3.12.1899, d.
16.8.1974. Foreldrar hennar voru
Dúi Benediktsson, lögregluþjónn á
Akureyri, og kona hans, Aldís Jóns-
dóttir.
Kjörsonur Steindórs og sonur
Kristbjargar: Gunnar Steindórsson,
f. 14.9.1923, kennari, kvæntur Guð-
rúnu Sigbjömsdóttur tryggingafull-
trúa. Þau eiga fjögur böm, Steindór,
lögfræðing, Sigbjörn, alþingismann,
Kristínu, skrifstofumann og hús-
móður, og Gunnar, verslunarmann.
Foreldrar Steindórs voru Steindór
Steindór Jónas Steindórsson.
Jónasson, f. 27.5.1872, d. 9.3.1902,
verslunarmaður, og Kristín Jóns-
dóttir, f. 19.6.1866, d. 10.2.1956, ráðs-
kona á Mööruvöllum. Steindór var
sonur Jónasar Gunnlaugssonar,
hreppstjóra á Þrastarhóli í Arnar-
neshreppi, en Kristín var dóttir Jóns
Sigurðssonar, bónda á ýmsum bæj-
um, síðast þurrabúðarmanns á Ak-
ureyri.
Steindór tekur á móti gestum á
afmælisdaginn í setustofu heima-
vistar Menntaskólans á Akureyri
kl. 17-19.
Birgit Henriksen
Frú Birgit Henriksen, Suðurgötu 16,
Siglufirði, er fimmtug í dag.
Starfsferill
Birgit er fædd á Siglufirði og ólst
þar upp. Hún lauk verslunarskóla-
prófi frá V.í. 1961, stúdentsprófi frá
M.H. 1986 og stundar nú nám við
H.í.
Efdr nám í V.í starfaði Birgit um
tíma hjá Síldarverksmiðjum ríkis-
ins. Hún bjó í tæpa tvo áratugi í
Þýskalandi og starfaði þar m.a. hjá
einu stærsta tryggingarfélagi Evr-
ópu, Deutsche Krankenversicher-
ung, og vann síðan í allmörg ár sem
ritari við Sendiráð íslands í Bonn.
Eftir heimkomuna tíl íslands, 1977,
hóf Birgit störf sem skrifstofumaður
hjá Síldarútvegsnefnd og vaim síðan
við tölvudeild Eimskipafélags ís-
lands.
Fjölskylda
Birgit giftist 28.12.1963 Jóni Sæ-
mundi Siguijónssyni, f. 25.11.1941,
fv. alþingismanni. Foreldrar Jóns
Sæmundar: Sigurjón Sæmundsson,
f. 5.5.1912, prentsmiðjustjóri og
Ragnheiður Jónsdóttir, f. 2.1.1914,
húsmóðir.
Dóttir Birgitar og Jóns Sæmundar
erRagnheiður, f. 10.2.1968, lögfræði-
nemi.
Bræður Birgitar em útgerðar- og
sjómennirnir Olaf Henning, f. 14.3.
1933, d. 6.8.1988, og Guðlaugur Hen-
rik, f. 29.1.1936, kvæntur Erlu Krist-
insdóttur, f. 5.6.1937, og eigaþau
fjögur böm, Sigrúnu, Astu, Olaf og
Elínu.
Foreldrar Birgitar: Sigrún Guð-
laugsdóttir, f. 5.2.1907, d. 6.8.1954,
húsmóðir og Olaf Henriksen, f. 30.1.
1903, d. 31.12.1954, síldarsaltandi á
Siglufirði.
Ætt
Olaf var sonur Serine Sundför
Henriksen húsmóður frá Alvöen við
Birgit Henriksen.
Bergen og Henrik Andreas Dybdahl
Henriksen, skipstjóra og síldarút-
gerðarmanns í Haugesund, Hesteyri
og á Siglufirði. Systkini Olafs vora
Birgit, Björge, Signe, Yngva og Hen-
rik. Afkomendur þeirra era búsettir
bæði í Noregi og á íslandi.
Sigrún var dóttir Petrínu Þóreyjar
Sigurðardóttur, eiganda veitinga-
hússins Ölhallen á Siglufirði, og
Guðlaugs Sigurðssonar skósmiðs.
Systkini Sigrúnar era Óskar, látinn,
LovisaogSigríður.
ara
Margrét Þorgrímsdóttir,
Austurvegi 50, Selfossi.
Þuríður Jónsdóttir,
Pálmholti, Amarneshreppi.
Aðalsteinn Vestmann,
Skarðshlíð 5, Akureyri.
50ára
Gunnar Jóhannesson,
VaUargötu 27, Þingeyri.
Herdís Sigurjónsdóttir
húsmóðir, Háa-
leitisbraut56,
Reykjavík.
Herdístekurá
mótigestumí
Síðumúlallkl.
18-21.
Sigurður Gislason,
tæknifræðing-
urbjáKópa-
vogskaupstað,
Nýbýlavegi 104,
Kópavogi.
Siguröurtekur
á móti gestum í
Félagsheimilinu, Fannborg 2,1.
hæð, kl. 17-19 á aftnælisdaginn.
Guðmunda Sumarliðadéttir,
Hólabraut7,
Keflavík.
Eiginmaður
hennarer
Gunnlaugur
Karlsson.
Þautakaámóti ________
gestumísalfrímúrara?
stíg 16, Njarðvík, eftir kl. 19 á af-
mælisdaginn.
Guðrún Margrét Antonsdóttir,
Lækjargötu lla, Akureyri.
Valdimar Stefánsson,
Ljárskógum 9, Reykjavik.
Georg Valentinsson,
Hátúni4,Kefiavík.
Hulda Þórðardóttir,
Hávarðsstöðum, Leirár- og Mela-
hreppi.
Gunnar Hjáimarsson,
Hrauntungu28, Kópavogi.
Jakob Friðþórsson,
Jörfabakka 14, Reykjavík.
Edda Sigurveig Halldórsdóttir,
Vallholti 26, Ólafsvik.
40 ára
Haukur Þórólfsson,
Drápuhlíð 35, Reykjavik.
Ármann Jóhannesson,
Breiðvangi 5, Hafnarfirði.
Einar Sveinn Árnason,
Framnesvegi 61, Reykjavík.
Guðbjörg Leifsdóttir,
Skálanesgötu la, Vopnafirði.
Dagbjört Eiriksdóttir,
Unufelli 29, Reykjavik.
Magnús Sturla Stefánsson,
Múlavegi 17, Seyðisfiröi.
Karl Valgarður Matthíasson,
Túngötu 28, Tálknafirði.
Smári Angantýr Víglundsson,
Aðalstræti 8, AkureyrL
Jónína Vala Kristinsdóttir,
Hringbraut 89, Reykjavik.