Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1992, Side 5
■ LAUGARDAGUR 22, ÁGÚST 1992.
5
Fréttir
T». .1'
:S!.*ÍÍ
Verðmiðlun
til Baulu
Landbúnaðarráðherra hefur sett
reglugerð sem veitir Baulu rétt á
framlögum úr Verðmiðlunarsjóði í
tengslum við Mjólkursamlag KÞ. Um
15 miiljóna tap var á rekstri Baulu á
síðasta ári og mun fyrirtækið líklega
fá það bætt úr sjóðinum en fram til
þessa hefur það engar greiðslur feng-
ið úr sjóðnum þrátt fyrir að hafa
greitt í hann á annan tug milljóna.
-kaa
Slasaðist
á reiðhjóli
Hjólreiðamaður var fluttur slasað-
ur á slysadeild Borgarspítalans í
gærmorgun eftir að hafa misst vald
á hjóli sínu á gatnamótum Höfða-
bakka og Stekkjarbakka.
Maðurinn kom hjólandi niður
Höfðabakkann og ætlaði að beygja
inn á Stekkjarbakka. Við það missti
hann vald á hjólinu og lenti harka-
lega á umferðarmerki á gatnamótun-
um með fyrrgreindum afleiðingum.
-bjb
Vest-norræna ráðstefnan á Egilsstöðum:
Atvinnumál og staða
kvenna aðalef nið
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstödum;
Um helgina er haldin kvennaráð-
stefna á Egilsstöðum með þátttöku
fulltrúa frá Færeyjum, Grænlandi
og íslandi. Ráðstefnan var sett á
fimmtudagskvöld að Hótel Vala-
skjálf. Aðalviðfangsefni ráðstefn-
unnar er atvinnumál og staða
kvenna í þessum þrem löndum.
Hugmyndin að þessum fundi
kviknaði á Nordisk Forum í Ósló
fyrir nokkrum árum. Fulltrúar frá
Færeyjum eru 63 og komu þeir með
Norrænu til Seyðisfjarðar. Græn-
lensku konurnar, sem eru 47, komu
með flugi til Egilsstaða. íslensku full-
trúarnir eru um 250.
Fjölmargir þekktir fyrirlesarar
verða á ráðstefnunni og verða fyrir-
lestrar í gangi í einu. Alls hafa um
100 konur á Austurlandi unnið að
undirbúningi ráðstefnunnar.
Mikið verður um að vera á Egils-
stöðum þessa daga og bæjarlífið
verður næsta fjölskrúðugt. Auk fyr-
irlestra verða hstsýningar frá lönd-
unum þremur. Kaffihús verður opið
aha dagana. Tískusýningar verða frá
löndunum þrem þar sem m.a. verður
sýndur selskinnsfatnaður frá Græn-
landi og flíkur úr hreindýraskinni,
hannaðar og saumaðar af austfirsk-
um konum. Sett var upp atvinnu- og
minjagripasýning og er hún jafn-
framt sölusýning.
Sýningar Cirkus Arena á undanförn-
um vikum vítt og breitt um landið
munu lifa í endurminningum um
sumarið sem brátt er á enda. Síð-
asta sýning Cirkus Arena hér á landi
að þessu sinni var hér á Seyðisfirði
18. ágúst. Síðan var pakkað í bílana
og haldið af landi brott fimmtudag-
inn 20. ágúst með Norrænu.
DV-mynd Pétur Kristjánsson
SUBARULEGACY
SKUTBÍLL GL
2000 CC 16 VENTLA
5 GÍRA 4WD
HÁTT OG LÁGT DRIF
VÖKVA- OG VELTISTÝRI,
RAFDRIFNAR RÚÐUR,
SAMLÆSINGAR Á HURÐUM
OG MARGT FLEIRA.
Verð aðeins 1.590.000
ÁN RYÐVARNAR OG SKRÁNINGAR
Kvennahlaup verður í dag og hlað-
ið hefur verið minnismerki ráðstefn-
unnar. Er það gríðarstór varða, hlað-
in úr milli 300 og 400 steinum undir
verkstjórn Sveins Einarssonar. Kon-
ur frá Færeyjum og Grænlandi
munu leggja þar steina frá sínu landi
á sunnudag og er varðan þá fuhgerð.
Við setningarathöfnina flutti Jó-
hanna Sigurðardóttir ráðherra
ávarp. Fuhtrúi Grænlands flutti sitt
ávarp bæði á grænlensku og dönsku
sem er aðalmál ráðstefnunnar.
Heillaóskaskeyti barst frá Vigdísi
Finnbogadóttur forseta.
Nokkrar grænlensku kvennanna á ráðstefnunni í svipmiklum þjóðbúningum
sínum. DV-mynd Sigrún
UM HELGINA
FRÁ KL. 14-17
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
síma 91-674000
ARCITIC EDITION:
NÝ ÚTFÆRSLA
ÞAR SEM UM ER AÐ RÆÐA,
ÁLFELGUR STÆRRI DEKK
OG HÆÐ UNDIR LÆGSTA
PUNKT VERULEGA AUKIN.
’AKTU EKKI ÚT [ ÓVISSUNA,
AKTUÁSUBARU
BESTUR ÞEGAR
MEST Á REYNIR