Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1992, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1992, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 22. ÁGÚS'T 1992. Skák Skákþing Islands 1992 að hefjast I Hafnarfirði. Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri leikur fyrsta leikinn i skák Helga Ólafssonar og Þrastar Þórhallssonar. Ríkharður Sveinsson skákstjóri fylgist grannt með. Eða 26. - Rxg7 27. Bf3 og vinnur. 27. Bxf8+ Kxf8 28. Bxa8 Dd4 29. Hcl Dd2 30. Dc3 Og svartur gafst upp. Skoðum einnig handbragö Helga gegn Jóni Áma Jónssyni. Byrjun hvíts misheppnast og svartur nær að hreiðra um sig á miðborðsreitn- um e5. Hann gerir síðan út um tafl- ið með „taktískri" vendingu. Hvítt: Jón Árni Jónsson Svart: Helgi Ólafsson Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Db6 6. Rb3 a6 7. Be3 Dc7 8. Dd2? Bb4 9. f3 d5 10. a3 Bxc3 11. Dxc3 dxe4 12. fxe4 0-0 13. Bd3 Rg4 14. Bc5 Hd8 15. 0-0-0 b6 16. Bgl Bb7 17. Kbl De5 18. Del Rf6 19. h3 Rd7 20. Bh2 Dg5 21. Df2 Rce5 22. Hhfl Dg6 23. Dh4 66 24. Rd4? Rxd3 25. cxd3 Rc5 26. Bgl Skákþing íslands í Hafnarfirði: Stefnir í harda keppni um íslandsmeistaratitilinn - Helgi reynir að verja titilinn og Hannes að hækka á stigum Eftir fjórar fyrstu umferðimar í landsliðsflokki á Skákþingi íslands þótti sýnt að keppnin um íslands- meistaratitilinn yrði jöfn og spenn- andi. Helgi Ólafsson, sem freistar þess nú að verja titihnn frá í fyrra, stóð best að vígi með 3,5 v. en Mar- geir Pétursson hafði hálfum vinn- ingi minna. Haukur Angantýsson og Jón Garðar Viðarsson höfðu 2,5 v. og frestaða skák sem þeir tefla í dag. Sævar Bjamason og Hannes Hlífar Stefánsson höfðu 2,5 v. Keppnin fer að þessu sinni fram í Hafnarfirði og er teflt í íþróttahús- inu viö Strandgötu. Hafnarfjarðar- bær hfjóp undir bagga á síðustu stundu með Skáksambandi íslands og „bjargaði mótshaldinu í hom“. Nú er svo komið að hvergi er auð- ugra skáklíf á íslandi en í Hafnar- firði. Skemmst er að minnast al- þjóðlega Hafnarborgarmótsins í mars og Skákþing íslands 1988 fór einnig fram í Hafnarfirði. Þá er fyrirhugað sterkt alþjóðlegt skák- mót í bænum á næsta ári. Tveir stórmeistarar og flórir al- þjóðlegir meistarar taka þátt í mót- inu nú. Þeir Helgi og Margeir hfjóta að teljast sigurstranglegastir. Þeir kusu að taka enga áhættu í inn- byröisskák í 3. umferð og sömdu um skiptan hlut eftir aðeins 13 leiki. Helgi hefur unnið aðra and- stæðinga sína af miklu öryggi en Margeir og Hannes Hlífar gerðu jafntefli í fjórðu umferð. Hannes Hlífar þarf 9 vinninga svo aö hann hækki nægilega mikið á stigum til þess að verða útnefndur stórmeistari. Hann hefur átt erfitt uppdráttar í fyrstu umferðum og ekki teflt með sömu einbeitninni og fyrr á árinu. En mótið er rétt að byija - hann á enn möguleika á aö ná markinu. Róbert Harðarson kom á óvart með góðri frammistöðu á síöasta íslandsmóti sem fram fór í Garðabæ. Hann gæti einnig gert verulegan usla nú ef marka má eft- irfarandi skák þar sem hann fer á kostum gegn Þresti Þórhallssyni. Þresti hafa annars verið mislagöar hendur - hafði aðeins einn vinning eftir fjórar umferðir. Hvítt: Róbert Harðarson Svart: Þröstur Þórhallsson Skandinavíski leikurinn 1. e4 d5 2. exd5 Rf6 3. d4 Rxd5 4. Rf3g6 Þröstur og Hannes Hlífar hafa jafnan þennan háttinn á er þeir beita skandinavíska leiknum en annar kostur er 4. - Bg4 og síðan e7-e6 sem nú virðist orðinn vin- sælh. 5. Be2 Bg7 6. 0-0 0-0 7. c3 Hógvær leikur sem ætti ekki að gefa mikið í aðra hönd. Eftir 7. c4 Rb6 8. Rc3 Rc6 9. d5 Re5 10. Rxe5 Bxe5 11. Be3 lenti Þröstur í vanda gegn Renet á Apple-mótinu í mars. 7. - c5 8. dxc5 Ra6 9. c6 bxc610. Da4 Db6 11. Ra3 h6?! Betra er 11. - Rc5 12. Dh4 e5 og áfram t.d. 13. Bh6 f6! og svartur á gott tafl. Umsjón Jón L. Árnason 12. Rc4 Dc7 13. Da5 Db7 Trúlega er 13. - Rb6 betri kostur. 14. Rce5 g5?! Annar hæpinn leikur. Þröstur gælir við hugmyndina að leika peð- inu áfram og kippa stoðum undan riddaranum á e5 - í stöðunni geng- ur þetta þó ekki því aö að hvítreita biskup hans er bundinn viö að valda riddarann á a6. Stinga má upp á 14. - Rb8!? sem er tilraun til þess að treysta stöðuna og undir- búningur að 15. - Db6, eða 15. - Rd7. 15. Hdl Rac7 16. Dc5! Lætur hótun svarts sem vind um eyru þjóta! Mannsfómin gefur hvítrnn góða möguleika. 16. - g4 17. Rxc6 gxf3 18. Bxf3 e6 19. c4! Syartm- á nú úr vöndu að ráða. Riddarinn á d5 má vitaskuld ekki víRja vegna 20. Re7+ og drottning- in fellur. 19. - Db6? Af tveimur kostum velur Þröstur þann lakari. Best er 19. - Ra6 er hvítur getur vahö um 20. Dd6 Dc7 21. Re7+ Rxe7 22. Dxc7 Rxc7 23. Bxa8 Rxa8 24. Rxc8 Hxc8 25. Hd7, eða 20. Re7+ Dxe7 21. Dxe7 Rxe7 22. Bxa8 í báðum tilvikum með vinningsfæri í endataflinu. 20. Dd6! Re8 21. Dg3! Þresti sást yfir þennan snjalla leik. 21. - Dxc6 22. cxd5 exd5? Eftir 22. - Dc2 er 23. Hd2 býsna óþægilegt og áfram t.d. 23. - Dg6 24. dxe6 (hótar 25. Bxa8 og 25. e7) Dxe6 25. Hdl! og hrókmnn á a8 verður ekki forðað. En besta til- raunin er 22. - Da4! með hrókinn á dl í skotfæri. Vera má að hvitur eigi eitthvað betra en 23. dxe6 fxe6 24. b3 Hxf3! 25. Dxf3 Db5 26. Dxa8 Bb7 27. Dd8 Dc6! 28. f3 Bxal 29. Bxh6 sem er ein leiðanna sem keppendur skoðuðu aö skákinni lokinni en þessi staða ætti þó einn- ig að gefa honum vinning. Eftir leikinn í skákinni vinnur hvítur létt. 23. Bxd5 Da4 24. Bxh6 Bg4 25. b3 Dd7 26. Bxg7 Bxdl ABCDEFGH 26. - Rxd3! 27. Rxe6 Ef 27. Hxd3 Bxe4 og hrókurinn fellur. 27. - Dxg2 28. Bf2 Hvítur fær ekki valdað mátreit- inn b2 með góðu móti. 28. - Rxf2 29. Rxd8 Rd3! 30. Hxd3 Dxfl+ 31. Kc2 De2+ - og hvítur gafst upp. Fimmta umferð mótsins var tefld í gærkvöldi en í dag, laugardag, eiga skákmennirnir frí. Á morgun, sunnudag, verður sjötta umferð tefld og hefst hún kl. 17. Þá eigast við Jón Garðar Viðarsson og Hann- es Hlífar, Sævar Bjamason og Helgi Ólafsson, Ámi Á. Ámason og Þröstur Ámason, Jón Ámi Jónsson og Róbert Haröarson, Margeir Pétursson og Þröstur Þór- hallsson og Haukur Angantýsson og Bjöm Freyr Bjömsson. Mótinu lýkur næstkomandi laugardag. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.