Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1992, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1992, Blaðsíða 8
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1992. Svipmyndir Af hverjum er svipmyndin? „Þögn í bekknum!" Kennslukonan sló bendiprikinu í púltið. Hún hét Sadie Mulvaney. Hún fékk sæmilega gott hljóð. Sadie naut virðingar þótt hún væri bara sextán ára gömul. Einn af litlu drengjunum í bekkn- um var sá sem svipmyndin er af. Eins og Sadie var hann dökkur yf- irlitum og þótti erfiöur. Hann var stór og sterkur fyrir aldur. Stund- um fékk hann áköf reiðiköst sem ungfrúin átti erfitt með að bæla niður. Það hefðu átt að vera sérkennar- ar eða sálfræðingar í skólanum. Einhver hefði þurft aö sinna litla og erfiða piltinum. Það hefði getað komið í veg fyrir miklar áhyggjur síðar. Sá sem svipmyndin er af komst upp í sjötta bekk. Þar fékk hann of lága einkunn í of mörgum fögum. Hann var að setjast aftur í sama bekk. Það stoðaði þó ekkert. Námsleiði fór nú að gera vart við sig. Hann byijaði að slá slöku viö. Þá kom til vandræða í samskiptum við kennara. Hann sló kennslukon- una. Þá veitti skólastjórinn honum áminningu. Það var þeim sem hér er lýst um of. Hann hætti námi fyr- ir fullt og allt. Nú varð hann að fara að vinna. Hann fékk starf í verslun. Þar var hann þó ekki lengi. Hann vann líka í keiluspilshöll og hjá bókbindara, en svo lagði hann inn á þá braut sem frægð hans tengist. Sá sem svipmyndin er af var bara nífján ára þegar hann varð alvar- lega ástfanginn. Hún hét Mae Coughlin og var tuttugu og eins árs. Þau hittust í veislu í kjallara- klúbbi við Carroll-stræti í New York. Mae var há og grönn. Hún vann í vöruhúsi. Hann bað hennar og hún játaðist honum. Brúðkaupið fór fram þann 18. desember 1918. Nokkru síðar fluttust þau til ann- arrar borgar. Þar var sá sem hér er lýst fijótur að hasla sér völl. Þrátt fyrir skamma skólagöngu og skort á starfsþjálfun varð hann brátt einn ríkasti og valdamesti maður borgarinnar. Kvöld eitt lenti hann í umferöar- slysi. Drukkinn ók hann á leigubíl sem stóð kyrr. Hann varö ævareiður, tók fram skammbyssu og hótaði að skjóta vesalings leigubílstjórann. Lögregla kom á staðinn og komst að þeirri niðurstöðu að sá sem svip- myndin er af hefði valdið óhapp- inu. Hann hefði gerst sekur um gáleysislegan akstur, ölvun undir stýri og ólöglegan vopnaburð. Venjulegur maöur hefði fengið fangelsisdóm fyrir slik afbrot. En ekki hann. Hann fékk ekki einu sinni áminningu. Málsskjölin „hurfu" í höndum yfirvalda. Fáir þorðu að snúast gegn þeim sem hér er lýst. Einn þeirra var ungur blaðamaður, Robert St. John. Hann hóf útgáfu lítils blaðs, Tribune, sem fór að kanna starf- semi þess sem við segjum hér frá. Skattayfirvöldin snerust nú gegn Tribune og hækkuðu fasteigna- matsverð á litlu húsi blaðsins svo að fasteignaskattur þess hækkaði. Umferðarráðið lét síöan baima bílastöður fyrir framan ritstjómar- skrifstofumar. Og brátt þorði nær enginn að auglýsa í blaðinu. Þá komu yfirmenn brunaeftirlits og heilsugæslu og héldu því fram að í húsinu væri verið að brjóta margs kyns reglur. En St. John lét ekki deigan síga. Þá misþyrmdu nokkrir glæpamenn honum illa. Hann lét sér ekki segj- ast við það. Þegar hann kom aftur af sjúkrahúsinu hélt hann áfram að skrifa. Þá keypti sá sem svipmyndin er af hluti félaga St. Johns í blaðinu. Þeir þoröu ekki annað en að selja þá. St. John átti aðeins fjömtíu og níu hundraðshluta hlutabréfanna. Hann varð að viðurkenna sig sigr- aðan. En St. John komst lifandi frá deil- unni sem var ekki beinlínis skemmtileg. í lok þriðja áratugarins réð sá sem hér er lýst heilu veldi. Hann átti bmgghús, vömhús, útgerðir, næturklúbba, spilavíti, hóruhús, veðreiðabrautir, matvælafyrirtæki og verksmiðjur. Árlegar tekjur hans vom um hundrað milljónir dala. Hann var nú þrítugur og eitt hundrað og sextán kílógrömm á þyngd. Þyngdina mátti að hluta rekja til þess aö hann borðaði of mikið af góðum mat. En undir fitu- laginu vom gijótharðir vöðvar. A andliti hans vom þijú ör eftir hníf sem lagt haföi verið til hans í æsku. Hann kom þannig fyrir sjón- ir að menn gleymdu honum ekki. Þá var sem stórt og kringlótt höfuð- ið sæti á sjálfum búknum. Armar réttvísinnar náðu loks til hans. Hann fékk dóm fyrir skatt- svik og fór í fangelsi. Aðrir glæpa- foringjar tóku þá við stjóm sam- taka hans. Þegar hann var náöaður árið 1940 var hann alveg niöurbrotinn mað- ur. Hann lést árið 1947. Hver var hann? Svariðerábls. 56 Matgæðingur vikunnar Fljótlegur ýsuréttur Sigríður Þorvaldsdóttir, matgæð- ingur vikunnar að þessu sinni, var fljót að setja saman uppskrift enda hefur hún fengist við matreiðslu í áratugi. Hún vann 23 sumur í röð sem matráðskona við Hítará þar sem hún eldaði ofan í svanga veiði- menn. Hún hélt til Danmerkur þar sem hún tók próf sem smur- brauðsdama hjá Idu Davidsen og stofnaði síðan brauöstofima Gleymmérei sem hún hefur rekið í 5 ár. Sigríður segist aldrei fara -eftir uppskriftum þegar hún gerir mat. „Eg les mataruppskriftir en fer aldrei eftir þeim. Ég hef alltaf viljað matreiða mest eftir eigin höfði, hafa mitt eigið bragö af matnum. Mér sýnist það ekki hafa valdið fólki vonbrigðum." Sigríður býður lesendum upp á fljótlegan ýsurétt, ofnbökuð ýsu- flök. Þetta þarf í ýsuréttinn þarf: 1 kg ýsuflök, roöflett og beinlaus 1 tsk. sítrónupuipar 1 msk. Picanta Hugli (í staö salts) 2 hvitlauksgeira, saxaða smátt eða marða Vi dós græna spergla (aspas) Sigríður Þorvaldsdóttir. DV-mynd GVA 1 avakadó 2 tómata, skorna í báta sipjör 2 bréf hollandaise-sósu sítrónusafa Tvisvar í ofninn Fyrst er eldfast mót smurt með smjöri. Þá er mörðum eða söxuðum hvítlauknum smurt innan í mótiö. Ýsuflökin eru sett snyrtilega í mót- iö og kryddinu stráð yfir. Þetta er sett í 200 gráða heitan ofn og látið vera þar í 8 mínútur. Þá er mótið tekið út. Ef safi hefur komið úr fiskinum er honum hellt af fatinu og notaður þegar sósan er löguð. Steinninn er tekinn úr avocadoinu, það skrælt og skorið í þunnar sneiðar. Þeim er raöað snyrtilega á fiskinn ásamt spergl- unum. Tómatamir eru skomir í báta og þeim raðað meðfram, í hring. Þá er mótið sett aftur í ofn- inn í 5 mínútur Á meðan er hollandaise-sósan löguð eftir leiðbeiningum á bréfun- um (safinn af fiskinum þá notað- ur). Sítrónusafi er kreistur í sósuna eftir smekk og henni síðan hellt varlega yfir fiskinn áður en hann er borinn fram. Gott er að bera soðin hrísgrjón eða soðnar kartöflur og gulrætur fram með réttinum. Sigríður segir bæði fallegt og gott að sprauta kartöflumús (úr stöpp- uðum kartöflum og eggjarauðu) umhverfis fiskinn í fatinu (t.d. í toppa) og raða tómatbátunum ofan á, allt eftir smekk. Hún segir þetta fljótlegan og góðan rétt sem sé holl- ur og alls ekki fitandi. Sigríður skorar á Oddstein Gísla- son matreiðslumann að vera mat- gæðingur næstu viku. -hlh Hinhlidm Geri ekki upp á milli fallegra manna - segir Áhugamenn um íslenskan land- búnað þekkja flestir Helgu Guð- rúnu Jónasdóttur, forstöðumann Upplýsingaþjónustu landbúnaðar- ins. Helga Guðrún tók við þessu starfi fyrir tveimur árum en áður hafði hún verið kennari og starfað á fréttstofu RÚV. „Þetta starf er mjög fjölbreytt. Reyndar veit ég aldrei hvemig vinnudagurinn verður þegar ég mæti að morgni," segir Helga Guð- rún um starfið. Starfið er þrískipt: að koma á framfæri almennum upplýsingum um landbúnaö til stofnana og fjölmiðla, skóla og dag- heimila og frá bændum til almenn- ings og öfugt. „Með tilkomu fleiri fjölmiðla hef- ur starfið tekið stökkbreytingum á síðustu árum. Mikil vinna er fólgin í því að samræma upplýsingar og koma þeim fljótt og vel áfram," segir Helga Guðrún sem nú sýnir á sér hina hliðina. Fullt nafn: Helga Guörún Jónas- dóttir. Fæðingardagur og ár: 6.12. 1963. Maki: Ég er ógift. Böm Engin. Bifreið: Skoda Rapid ’91. Starf: Forstöðumaður UÞL. Laun: Viðunandi. Áhugamál: Þau eru svo mörg, fyrst og fremst bridge, lestur á góðum bókum, góðar kvikmyndir, göngu- ferðir, útreiðar og skemmtilegt fólk. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu? Ég hef aldrei spilað Helga Guðrún Jónasdóttir Helga Guðrún Jónasdóttir, for- stöðumaður UÞL. með. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að sofa frameftir. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að ryksuga. Uppáhaldsmatur: Hreinar og ómengaðar íslenskar landbúnaðar- afurðir en ég er sérstaklega veik fyrir djúpsteiktum camembert. Uppáhaldsdrykkur: Kældur bjór. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Bridge- landsliðið. Uppáhaldstímarit: Time. Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð? Þeir eru svo margjr og ég geri ekki upp á milli þeirra á opinberum vettvangi. Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjóm- inni? Pass Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Jónas frá Hriflu. Uppáhaldsleikari: Anthony Hop- kins Uppáhaldsleikkona: Hanna Schy- gulla. Uppáhaldssöngvari: Ég hef óskap- lega gaman af Bergþóri Pálssyni. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ingi- björg Sólrún Gísladóttir. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Homer Simpson. Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir og fréttatengdir þættir. Ertu hlynnt eða andvíg vem vam- arliðsins hér á landi? Fremur hlynnt. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Gufan. Uppáhaldsútvarpsmaður: Gunnar Stefánsson. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Ríkissjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Jón Ólafsson. Uppáhaldsskemmtistaður: Pass. Uppáhaldsfélag i íþróttum: Ég er gamall Valsari. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtiðinni? Aö komast í frí. Hvað gerðirðu í sumarfríinu? Ég vann. _jj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.