Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1992, Blaðsíða 28
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1992.
Ljósmyndasamkeppni DV og Hans Petersen:
Margar skemmtileg-
ar myndir hafa borist
Sumarmyndir lesenda streyma nú
inn á ristjóm DV. í bunkaninn er að
finna margar skondnar og skemmti-
legar myndir sem koma munu til
áiita þegar dómnefnd kveður endan
lega upp úr með hvaða mynd verður
valin Skemmtilegasta sumarmyndin
1992.
Verðlaun í sumarmyndasam-
keppninni era glæsileg. 1. verðlaun
eru Canon EOS1000 Kit N myndavél
að verðmæti 38.900 krónur. 2. verð-
laun eru Canon Prima Twin mynda-
vél að verðmæti 15.300 krónur. 3.
verðlaun eru Canon AD myndavél
að verðmæti 10.990 krónur. Þrenn
aukaverðlaun verða veitt, sjónaukar
af gerðinni Viewlux að verðmæti
5.800 krónur hver. Alls er verðmæti
verðlauna 82.590 krónur.
Á hveijum laugardegi, þar til dóm-
nefnd kemur saman, verður úrval
iimsendra mynda birt í DV. Myndir
sem birtast í blaöinu komast sjálf-
krafa í úrslit keppninnar.
Skilafrestur rennur út 30. septem-
ber.
Drífið í að taka til skemmtilegar
myndir frá sumrinu, setjið þær í
umslag, merkiö vel og sendið okkur.
í hverju umslagi á einnig að vera vel
merkt og frímerkt umslag sem notað
verður til að koma myndunum aftur
til baka. Það má gjaman koma fram
af hvaða tilefni og hvar myndimar
eru teknar. Myndimar mega hafa
heiti.
Utanáskriftin er:
Skemmtilegasta sumarmyndin,
DV, Þverholti 11,
105 Reykjavík.
-hlh
Halla. Sendandi: Guðmunda Péturs-
dóttir, Dugguvogi 5, Reykjavik.
ÍWS*si
Fyrsta veiðiferðin heitir þessi mynd sem tekin er við Stafafellsvatn í Lóni. Sendandi er Hrönn Óskársdóttii
hóli v/Dyngjuveg, Reykjavík.
Ir, Staðar-
Frlður á jörð. Sendandi: Sjöfn Jóhannesdóttir, Stekkjarholti 5, Akranesi. Fagnaðarfundur vlna heitlr mynd Þuríöar ísólfsdóttur, Hléskógum 26,
Reykjavik.
Horft yfir Norðurá. Sendandi: Hrafn-
hildur Rafnsdóttir, Svarfhóli, 311
Borgarnesi.
Hlustað á Stjórnina á Flórída.
Sendandi: Sara Magnúsdóttir, Afla-
granda 35, Reykjavík.
Sumarl Sendandi: Ólafur Gunnars-
son, Ásvallagötu 4, Reykjavik.