Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1992, Page 12
12
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1992.
Erlend bóksjá
Enn bjargar Jack
Ryan heiminum
Söguhetja Ians Flemming, James
Bond, hefur reynst langlífur jafnt í
skáldsögum sem á hvíta tjaldinu.
Engin önnur skáldsagnapersóna síð-
ustu áratuga hefur náð slíkum vin-
sældum meðal almennings sem þessi
breski njósnari og kvennabósi.
Nú er fullyrt að Bond hafi eignast
alvarlegan keppinaut á njósnahimni
skáldskaparins. Sá heitir Jack Ryan
og er hetjan í spennusögum banda-
ríska rithöfundarins Toms Clancy.
Sló strax í gegn
Clancy, sem er 45 ára, starfaði sem
sölumaður hjá tryggingafélagi áður
en hann fór að skrifa spennusögur
fyrir fáeinum árum. Hann sló í gegn
með fyrstu skáldsögunni - The Hunt
for Red October. Þar sagði frá áhöfn
sovésks kafbáts sem reyndi að flýja
til Bandaríkjanna og naut þar að-
stoðar bandaríska leyniþjónustu-
mannsins Jacks Ryan.
Sagan sló ekki hvað síst í gegn
vegna sannferðugra lýsinga Clancy
á aUs konar tæknibúnaði í vopnabúr-
um risaveldanna. Sumir töldu hann
hafa fengið upplýsingar frá banda-
rísku leyniþjónustunni. Svo var þó
ekki, enda nóg til af prentuðum
heimildum. Clancy hafði einfaldlega
sankað að sér bókum og skýrslum
um kafbátahernað þar til hann var
orðinn næsta sérfróður um efnið.
Sams konar vinnubrögð hafa ein-
kennt síðari skáldsögur Clancy: Red
Storm Rising sem fjallar um aðdrag-
anda að þriðju heimsstyijöldinni,
Patriot Games um baráttu gegn írsk-
um hryðjuverkamönnum, The
Cardinal of the Kremhn þar sem
risaveldin, sem þá voru, keppast við
að koma sér upp Stjömustríðstækni,
Clear and Present Danger um átök
bandarískra aðilda viö eiturlyfjabar-
ónana í Kólumbíu og nýjustu
spennusöguna, The Sum of Ah Fears.
Tom Clancy: söguhetja hans nýr
James Bond?
Hryðjuverkamenn
í þessari nýjustu sögu er Jack Ryan
aðstoðarforstjóri bandarísku leyni-
þjónustunnar. Hann á í höggi við
samtök hryðjuverkamanna sem hafa
komist yfir ísraelska kjarnorku-
sprengju og hyggjast nota hana gegn
Bandaríkjunum og reyndar með
óbeinum hætti gegn risaveldunum
báðum.
Ryan þarf ekki aðeins að sýna hug-
vitsemi í tafhnu við hryðjuverka-
mennina heldur einnig í póhtískum
hildarleik innan Bandaríkjanna þar
sem forsetinn og sumir ráögjafar
hans marka stefnu sem hlýtur að
leiða til glötunar.
Eins og í fyrri bókunum er hér
mikiö um tæknilegar og sagnfræði-
legar upplýsingar. Aðdáendur hans
taka því vafalaust fagnandi en óneit-
anlega gerir þetta söguna stundum
þunglesna og afar langa; kiljuútgáfan
Harrison Ford sem Jack Ryan í
Patriot Games.
er nærri þúsund blaðsíður með smáu
letri. Minna má nú gagn gera.
Sagan er hins vegar spennandi og
söguþráðurinn í hæfilegri nánd við
veruleikann eins og í fyrri bókum
höfundarins. Ryan er einmg tiltoiu-
lega hversdagslegur fjölskyldumað-
ur sem notar heilann frekar en hnef-
ana.
Á hvíta tjaldið
Tímaritiö Forbes áætlar að Clancy
hafi halað inn jafnvirði hátt í þriggja
mihjaröa íslenskra króna fyrir bæk-
ur sínar síðustu sjö árin. Og hann
fékk nýverið hátt í einn milljarð í
fyrirframgreiðslu vegna næstu
spennusögunnar en hún er enn í
smíðum. Þar með hefur hann pen-
ingalega séð slegið út metsölukónga
eins og Stephen King og Jeffrey Arc-
her.
Clancy segir reyndar í nýlegu
blaðaviðtah að nú orðið séu þessir
peningar bara tölur. Hann hafi þegar
aht sem hann þarfnist.
Það mun síöur en svo draga úr
peningastreyminu að Hollywood ætl-
ar að gera Jack Ryan að eins konar
súperhetju næstu ára á hvíta tjald-
inu. Fyrir nokkrum árum var The
Hunt for Red October kvikmynduð
en nú er Patriot Games komin í kvik-
myndahús með Harrison Ford í hlut-
verki Ryan - en hann er reyndar
þekktastur meðal bíógesta sem ævin-
týramaðurinn Indiana Jones.
Búast má við aö hver sagan af ann-
arri verði kvikmynduð næstu árin. í
það minnsta hefur verið samið við
Harrison Ford um að leika Ryan í
alls fimm kvikmyndum, að sögn fyr-
ir jafnvirði um þriggja milljarða ís-
lenskra króna.
Jack Ryan er því ekkert á fórum á
næstunni, hvort sem honum tekst
nú að skyggja alvarlega á hinn htríka
James Bond í heimi njósnasagnanna.
THE SUM OF ALL FEARS.
Höfundur: Tom Clancy.
Berkley Books, 1992.
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Joanna Trollope:
THE RECTOR’S WIFE.
2. David Lodge:
PARADISE NEWS.
3. Jeffrey Archer;
AS THE CROW FUES.
4. Colin Oexter:
THE JEWEL THAT WAS
OURS.
5. Len Delghton:
MAMISTA.
6. Jílly Cooper:
POLO.
7. John Grlsham:
THE FIRM.
8- Julian Barnes:
TALKING IT OVER.
9. Barbara Taylor Bradtord:
P.EMEMBER.
10. Terry Pratchett:
REAPER MAN.
Rit almenns edlis:
1. Peter Mayle:
TOUJOURS PROVENCE.
2. Laurie Lee:
A MOMENT OF WAR.
3. Peter Mayle:
A YEAR IN PROVENCE.
4. BUi Bryeon:
NEITHER HERE NOR THERE.
5. Latðí Fortescue:
PERFUME FROM
PROVENCE.
6. Hannah Hauxwell:
HANNAH: THE COMPLETE
STORY.
7. M. Baigent & R. Leigh:
THE DEAD SEA SCROLLS
DECEPTION.
8. Julia Phillips:
YOU’LL NEVER EAT
LUNCH IN
THIS TOWN AGAIN.
9. Nancy Friday:
WOMEN ON TOP.
10. G. Stelnem G. Barris:
MARILYN.
tByggt A The Sunday Ttmes)
Bandaríkín
Skáldsögur:
1. John Grisham:
A TIME TO KILL.
2. John Grisham:
THE FIRM.
3. Tom Clancy:
THE SUM OF ALL FEARS.
4. Stephen King:
NEEDFUL THINGS.
5. Anne Rivers Siddons:
OUTER BANKS.
6. Jude Deveraux:
THE DUCHESS.
7. Sandra Brown:
A WHOLE NEW LIGHT.
8. Fannie Flagg:
FRIED GREEN
TOMATOES AT
THE WHISTLE STOP CAFE.
9. Fannle Flagg:
DAISY FAY AND THE
MIRACLE MAN.
10. Harold Robbins:
THE PIRANHAS.
11. Iris Ralner Dart:
l’LL BE THERE.
12. Doris Mortman:
THE WILD ROSE.
13. Amy Tan:
THE KITCHEN GOD'S WIFE.
14. Judith Michael:
SLEEPING BEAUTY.
15. J.F. Freedman:
AGAINST THE WIND.
16. Lawrence Sanders:
THE SEVENTH
COMMANOMENT.
Rit almenns eðlis:
1. Katharine Hepburn:
ME: STORIES OF MY LIFE.
2. D.L.Bariett & J.B. Sleele:
AMERICA: WHAT
WENT WRONG?
3. Peter Mayle:
A Y6AR IN PROVENCE.
4. Deborah Tannen:
YOU JUST DON’T
UNDERSTAND.
5. Peter Mayle:
TOUJOURS PROVENCE.
6. M. Scott Peck:
THE ROAD LESS
TRAVELLED.
7. P.J. O'Rourke:
PARLIAMENT OF WHORES.
8. B. Williams & C. Kreski:
GROWING UP BRADY.
9. Julia Phillips:
YOU'LL NEVER EAT LUNCH
IN THIS TOWN AGAIN.
10. M.Rothmíller&I.G.Goldman:
L.A. SECRET POLICE.
(Byggt ú Ncw York Tlmes Book flevlsw)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Jorn Riel:
FLERE SKRONER FRA ET
REJSELIV.
2. Stefano Benni:
TERRA.
3. Knud H, Thomsen:
BRODRENE PÁ YARLECH
CASTLE.
4. Naifer & Smith:
HVORFOR KAN MÆNDIKKE
ÁBNE SIG?
5. Betty Mahmoody:
tKKE UDEN MIN DATTER.
6. Cllttord Irving:
UNDER ANKLAGE.
7. Jean M. Auei:
REJSEN OVER STEPPERNE.
8. Herbjerg Wassmo:
DINAS BOG.
9. Pavel Kohout:
DANSETIMEN.
10. Bret Easton Eilis:
AMERICAN PSYCHO.
(Byggt á PollUken Sondag)
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
Sjöunda
boðorðið
Líf Lewis gamla Starrett er
tryggt fyrir þrjár milljónir banda-
rískra dala. Þegar hann finnst
myrtur i New York telur trygg-
ingarfélagið ástæðu til að senda
spæjara sinn, Doru Conti, á vett-
vang til að kanna hvort væntan-
legir erfingjar hafi átt þar ein-
hvern hlut að máh.
Conti leggur land undir fót og
fer aö kanna máhð. Hún hittir
íjölskyldu hins látna og Wenden,
lögreglumanninn sem annast
rannsókn morðsins. Fljótlega
kemur í ljós aö ekki er allt sem
sýnist varðandi rekstur fyrirtæk-
isins sem gamh maðurinn lét eft-
ir sig. Brátt reka Uka fleiri lík á
fjörurnar. Og Wenden sýnir ekki
minni áhuga á Conti en morð-
rannsókninni.
Sanders er löngu kunnur fyrir
spennusögur sínar sem sumar
hafa komiö út í íslenskri þýöingu.
Þessi fer frekar rólega af staö en
spennan eykst þegar á líður.
THE SEVENTH COMMANDMENT.
Höfundur: Lawrence Sanders.
New Engllsh Library, 1992.
UAV iL)
LODGE
ktk'fí'ssíbío. intollÍRent... tiie slory
tolK the ípark* fiy - Financial Timn
Paradise
K&UIS a
Paradís
heimsótt
Föðursystir Bernards Walsh
hvarf snemma að heiman í Bret-
landi, giftist Amerikana og lenti
loks fráskilin á Hawaii-eyjunum
sem auglýstar eru í ferðabækl-
ingum sem paradis á jörðu. Nú
er hún að deyja og vill endilega
hitta bróður sinn fyrir andlátið.
Er jafnvel reiðubúin að greiða
fyrir hann flugfarið. Bemard,
sem var prestur þar til hann
missti trúna, en kennir þó enn
guðfræði, fellst á beiöni frænku
sinnar aö fara meö gamla mann-
inn, sem er orðinn slitinn og
þreyttur, til Hawaii.
David Lodge, sem er einn af
snjöllustu núlifandi skáldsagna-
höfundum Breta, fer hreinlega á
kostum í þessari sögu sinni um
afdankaða prestinn sem fær að
kynnast allt annars konar para-
dís en hann hefur verið að fræða
guðfræðinemana um ámm sam-
an. Persónumar em sérstæðar
en sannferðugar. Og Lodge á auð-
velt með að lýsa hinu fyndna og
fáránlega í daglegu háttemi
manna í þessari bráðskemmti-
legu og hlýju sögu.
PARADISE NEWS.
Höfundur: Davld Lodge.
Penguin Books, 1992.